Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Page 21
MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987.
21
Frábært hjá Amóri
___- skoraði 2 mörk og er orðinn markahæstur í Belgíu
Kristján Bemburg, DV, Belgiu;
OArnór Guöjohnsen er nú marfcahæstur í Belgíu.
í leik Anderlecht og Seraing lék
Amór Guðjohnsen við hvem sinn
fingur. Jafnræði var með liðunum í
upphafi þótt Seraing tæki forystuna
með ágætu marki Engelbert. En við
þetta mark tók leikurinn nýja stefnu.
Anderlecht tók öll völd á vellinum og
jafnaði Amór Guðjohnsen eftir þunga
sókn með stórglæsilegu marki. Hann
stökk hátt yfir vamarmenn Seraing
og skallaði knöttinn í marknetið.
Belgíski landshðsmaðurinn Grun
bætti síðan við marki og var staðan
því 2-1 í leikhléinu Anderlecht í vil. í
seinni hálfleik héldu leikmenn And-
erlecht uppteknum hætti. Þeir sóttu
án afláts og komust í 4-1 með mörkum
þeirra Scifo og Kmcevic.
Liðið átti einnig ófá færi og meðal
annars spann Amór sig stórkostlega
í gegnum vöm Seraing. Hann lék á
þrjá vamarmenn en Gomez, mark-
vörður liðsins, sá við honum og varði
mjög glæsilega. Leikmenn Seraing
gáfust ekki upp þótt þeir ættu á bratt-
ann að sækja og áttu þeir einnig
nokkur færi. Afríkumaðurinn Kind-
ambo klóraði í bakkann og breytti
stöðunni í 2-4. Eftir mark hans sótti
Anderlecht ákaflega og var Amór
mjög óheppinn að skora ekki eftir
homspymu Vercauteren. Amór tók
knöttinn glæsilega á lofti og sendi
hann með stórkostlegri hjólhesta-
spymu í átt að markinu. Knötturinn
smaug hins vegar rétt framhjá mark-
inu. Stórglæsilegur gemingur hjá
Amóri enda fékk hann mikið klapp
hjá áhorfendum .
Þrátt fyrir þetta glæsiskot hafði
Amór ekki sagt sitt síðasta orð. Hann
átti þrumuskot, rétt utan vítateigs,
sem hafnaði neðst í markhominu. Al-
gerlega óverjandi fyrir Gomez,
markvörð Seraing.
Á síðustu mínútunum náði Rouyr
síðan að svara fyrir Seraing og lauk
leiknum því 5-3.
Amór er nú markahæstur í fyrstu
deildinni með 10 mörk. Eftir leikinn
sagði hann að gaman hefði verið að
skora úr hjólhestaspymunni. „Það
hefði áreiðanlega orðið fallegt mark,“
sagði hann. „Annars vom hin mörkin
frekar góð. Ég er sennilega búinn að
skora sex af þessum tíu mörkum mín-
um í vetur með skalla. Það er vitan-
lega gaman að vera markahæstur í
deildinni en það er erfitt fyrir miðju-
mann að halda slíkri stöðu. Við vorum
búnir að fá á okkur eitt mark á heima-
velli fram að þessu. Þessi þrjú mörk
vom ódýr og alls ekki gott veganestí
í Evrópukeppni. Leikurinn við Bayem
Múnchen verður erfiður en ég held
að hann geti farið á báða bóga. Það
yrði þó alveg stórkostlegt að slá félag-
ið út annað árið í röð.“
Ragnar meiddur
Ragnar Margeirsson horfði á félaga
sína í Waterschei ná jafhtefli við Li-
erse. Ragnar á nú við meiðsl að stríða.
„Meiðsli í læri tóku sig upp aftur,"
sagði Ragnar í samtali við DV, „þau
komu upp eftir leikinn gegn Standard
á dögunum. Ég gat þó byrjað að
skokka á föstudag og trúlega get ég
byrjað að æfa með hópnum á morgun.
Ég verð því líklega fær í flestan sjó
þegar að næsta leik okkar kernur."
Gummi Torfa kom inn á
Fyrir leik Beveren og Berchem var
fastlega gert ráð fyrir að Guðmundur
Torfason yrði í byrjunarliði Beveren
en annað kom á daginn. Þótt leikurinn
færi stöðugt fram á vallarheimingi
Berchem létu áhorfendur stöðugt í ljós
óánægju með þá ákvörðun þjálfarans
að geyma Guðmund á bekknum. Þjálf-
arinn lét síðan undan þrýstingi
áhorfenda og Guðmundur kom inn á
þegar 20 mínútur voru til leiksloka.
Tíminn reyndist hins vegar of skamm-
ur til þess að hann næði sér á strik.
Beveren vann leikinn, 5-0, og höfðu
fjögur markanna verið skomð er Guð-
mundur kom til leiks.
„Það hefði verið gaman að hefja
þennan leik,“ sagði Guðmundur í sam-
tali við DV, „en ég verð bara að bíta
á jaxlinn og halda áfram að æfa.“
-JÖG.
Rússamir koma ekki
- buðu landsliðinu til Moskvu en HSÍ hafnaði
Stefin Kristjánsaan, DV, Rostodc
Nú er ljóst að sovéska landsliðið
kemur ekki hingað til lands eins og
áætlað hafði verið. Ætlunin var að
leika tvo landsleiki við Sovétmennina
dagana 5. og 6. febrúar. Ástæðu þess
að þeir hætta við ferðina mun vera
að rekja til frábærs leiks sovéska liðs-
ins gegn A-Þjóðveijum í gær en þann
leik unnu Sovétmenn, 27-17. Nú vilja
þeir 'frekar æfa heima við og leika
æfingaleiki þar.
Til að bæta íslendingum þetta upp
buðu Sovétmenn landsliðinu að koma
til Moskvu og leika þar. HSÍ afþakk-
aði þetta boð enda verður nóg að gera
hjá landsliðsmönnum okkar á næst-
Lokastaðan
Stefin í&isjánsson, DV, Rœtodc
Úrslit leikja í gær:
V-Þýskaland -Pólland........21-19
A-Þýskaland-Sovétríkin.....17-27
Ísland-Svíþjóð.............21-23
Eftir síðustu umferðina á Eystra-
saltsmóíinu varð staðan þessi:
1. Sovétríkin......5 122-108 7
2. A-Þýskaland.....5 107-105 6
3. V-Þýskaland.....5 104-102 5
4. Svíþjóð.........5 119-119 4
5. Pólland.........5 121-129 4
6-ísland...........5 106-116 4
Sjaldan eða aldrei hefur mótið ver-
ið jafritvísýnt og nú. Það em
aðeins þijú stig sem skilja að efeta
og neðsta lið. Alþjóð veit að í síð-
asta leik Islendinga var nánast um
tvennt að tefla, silfur eða botnsæt-
ið í keppninni. Forsjónin var ekki
hliðholl okkar mönnum í þetta
sinnið og því fór sern fór.
-JÖG
unni. Flugleiðamótið hefet um næstu við Svisslendinga strax á eftir.
helgi og síðan koma tveir landsleikir -SMJ
Mark Duffield
leikur með KS
- næsta sumar. Víðismenn leika í Bremen
sumar. Hann hefur tilkynnt félaga-
skipti yfir í KS og mun þvi leika með
þeim Siglfirðingum í 2. deildinni næsta
sumar. Mark ætti,ekki að vera ókunn-
ugur þeim fyrir norðan því hann hefur
áður leikið með KS og KA.
Áður hefur verið sagt frá því að
Ólafur Róbertsson muni leika með
Leiftri á Ólafefirði en ekki er talið að
fleiri leikmenn hverfi á brott úr her-
búðum Víðismanna. Þá hefur þeim
bæst liðsauki en það er Keflvíkingur-
inn Björgvin Björgvinsson sem hefur
ákveðið að leika með þeim Garðbúum.
Haukur Hafeteinsson mun þjálfa Víð-
ismenn í sumar en hann kom liðinu
meðal annars upp í 2. deild á sínum
tíma. Um páskana fara þeir í keppnis-
ferðalag til Bremenhaven og munu þá
spila við B-lið Werder Bremen.
-SMJ
Þorbjöm til Portúgal?
Stefin Kristjánsson, DV, Rœtodc
Þorbjöm Jensson fékk tilboð frá Sporting Lissabon í Portúgal um að
koma og leika með liðinu í úrslitakeppninni sem byijar þar í sumar.
Það hefði verið vel mögulegt fyrir Þorbjöm að fara því keppnin í Sví-
þjóð verður búin þá. Þorbjöm sagði að það hefði verið gaman að fara
en hins vegar hefði það verið of mikið fyrirtæki að taka sig upp með
fjölskylduna fyrir aðeins tvo mánuði. Þá hefði tilboðið ekki verið mjög
freistandi íjárhagslega. -SMJ
Nú er ljóst að Mark Duffield mun
ekki leika með Viði í Garði næsta
- á Golden Cup. Varð þriðji í 50 m bak-
sundi
Jón Kristján Sigurðssan, DV, Strasbourg:
„Þetta magnaðist með hveijum degi.
Fyrst varð ég í 5. sæti í 100 m bak-
sundi, svo í 4. sæti í 200 m baksundi
og nú í 3. sæti í 50 m baksundi," sagði
Eðvarð Þór sem tókst að komast á
verðlaunapall annað árið í röð á Cold-
en Cup mótinu í Strasbourg.
„Á þessu móti vom 5 baksundsmenn
í sérflokki. Þrír af þeim vom búnir að
hvíla sig fyrir þetta mót en ég var til
dæmis búinn að æfa mjög mikið að
undapfömu og fann mikið fyrir því
fyrsta keppnisdaginn. Síðan fór þetta
að lagast."
Eðvarð nánast datt inn í úrslit í 50
m baksundi því hann var 9. í undan-
rásum og átti samkvæmt því að vera
úr leik. Einn keppandi dró sig hins
vegar úr úrslitunum og Eðvarð kom
í staðinn fyrir haim. „Það kom
skemmtilega á óvart að hreppa 3. sæt-
ið en ég fann mig sérstaklega vel í
sundinu. Mér var lofað súkkulaðiís ef
ég næði 5. sæti og það var mikil hvatn-
ing. Ég kom svartsýnn hingað á mótið
en það rættist úr því þegar á leið.
Næsta mót er íslandsmótið og ég stefiii
að því að „rústa“ metunum í bringu-
sundi og koma þeim á almennilegan
standard," sagði Eðvarð Þór.
Frammistaða Eðvarðs á mótinu var
mjög góð þó að hún bæri þess töluverð
merki að hann er í erfiðu æfingapró-
grammi núna. Hann synti á 27,88 sek. í
50 m baksundi en þar sigraði Frank Hoff-
meister sem var mjög sigursæll á mótinu.
Hann synti á 26,86 sem er nýtt v-þýskt
met. Patrik Ferland frá Sviss varð annar,
synti á 27,82. Þá setti Eðvarð Þór nýtt
fslandsmet í 50 m bringusundi, synti á
32,02 og varð númer 22 af 40 þátttakendum.
•Eðvarð Þór komst á verðlaunapall i Strasbourg.
Eðvarð Þór aftur
á verðlaunapall