Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987.
7
DV
Saltfiskverkun sett
upp á Fellsströnd
Það má telja til tíðinda að sett hefur
verið upp saltfiskverkun á bænum
Hnúki á Fellsströnd í Dalasýslu og
nefnist hún Hnúkanaust hf. Það eru
hjónin Bjamey Friðriksdóttir og Hö-
skuldur Davíðsson, ásamt Þórði
Halldórssyni, bróður hans og móður
sem stofnað hafa hlutafélagið. Bjamey
og Þórður vinna við verkunina. Hö-
skuldur rær og aflar fiskjar við annan
mann á 5 tonna trillu, Sóma 800.
„Þetta er nú allt í burðarliðnum hjá
okkur og varla hægt að segja að þetta
sé komið í gang. Höskuldur leggur
aflann upp í Grundarfirði og síðan er
honum ekið á bíl hingað til okkar, en
Hnúkur er 60 km frá Búðardal. Það
væri svo sem hægt að leggja bátnum
hér til að landa en þetta er plastbátur
og sjóinn leggur oft hér fyrir frarnan
í frostum og plastbátar em ekki heppi-
legir ísbrjótar," sagði Bjamey í
samtali við DV.
Frá Gmndarfirði og inn Hvamsfjörð
að Hnúki er 2ja tíma sigling en það
er rúmlega 2ja tíma keyrsla á bíl svo
þetta skiptir ekki svo miklu máli, að
sögn Bjarneyjar. Hún sagði að þau
ætluðu bæði að verka tandurfisk og
sömuleiðis væri meiningin að salta
flök.
Þetta er ekki fysta fiskverkunin sem
sett er upp á sveitabæ því í Staðar-
sveit er rekið frystihús. Á Hnúki em
engar skepnur en þau Bjamey og
Höskuldur keyptu jörðina i fyrra með
það fyrir augum að setja þar upp fisk-
verkun og stunda grásleppuveiðar.
-S.dór
Samdráttur verður i loðnuveiðum á næstu vertíð.
Næsta vertíð:
Minni loðnuveiði
„Það er alveg ljóst að um minni
veiði á loðnu verður að ræða á næstu
vertíð. Árgangamir frá 1984 og 1985
em báðir heldur lélegir en þeir verða
uppistaða veiðanna á næstu vertíð.
Niðurstaða rannsóknanna nú er að-
eins staðfesting á því sem við höfðum
áður spáð eftir ungloðnurannsóknir í
fyrra og ætti því ekki að koma á
óvart,“ sagði Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur í samtali við DV en
hann er nýkominn úr loðnurannsókn-
arleiðangri.
Hjálmar var spurður hvort hann
væri að tala um umtalsverðan sam-
drátt í loðnuveiðunum, hvort um
annað hmn stofnsins væri að ræða.
„Eg get ekkert fullyrt um það enn
hve mikill samdrátturinn verður. við
eigum eftir að vinna betur úr gögnun-
um. Ég get þó fullvrt að kvótinn
verður ekki núll á næstu vertíð eins
og var þegar stofhinn hmndi.“ sagði
Hjálmar. Hann benti einnig á að í leið-
angrinum á dögunum hefði hafís
hamlað rannsóknunum nokkuð og þvi
þyrfti að kanna svæðið betur.
-S.dór
TVeir aukafarmar af
loðnu á hvert skip
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að leyfa hverju loðnuveiði-
skipi að fara tvær fullfermisveiðiferðir
umfram þann kvóta sem því hafði ve-
rið úthlutað á vertíðinni. Þetta er gert
í tvennum tilgangi. í fyrsta lagi til að
tryggja næga loðnu til frystingar og
hrognatöku þannig að hægt verði að
standa við gerða sölusamninga. í öðm
lagi til að tryggja að veitt verði það
loðnumagn sem lagt hefur verið til að
veitt verði á þessari loðnuvertíð.
Eins og skýrt hefur verið frá í DV
er útilokað að hægt verði að veiða
leyfilegt aflamagn nema leyfa þeim
skipiun sem þegar eru búin með kvóta
sinn að veiða meira.
Það sem vekur furðu við þetta er
hins vegar sú ákvörðun ráðunevtisins
að þessir tveir aukafarmar skuli
dregnir frá kvóta skipanna á næstu
loðnuvertíð. Sú loðna sem nú er verið
að veiða kemur ekki aftur á næstu
vertíð vegna þess að hún drepst eftir
hrygningu í vor og ljóst er að levfilegt
aflamark næst ekki að þessu sinni
nema með því að leyfa þessa aukaf-
arma og raunar óvíst að það dugi til.
-S.dór
Búfræðingar
eru reiðir
Búfræðikandidatar em mjög reiðir
um þessar mundir vegna þess að Bún-
aðarsamband Suðurlands hefur ráðið
garðyrkjufræðing í starf fram-
kvæmdastjóra Búnaðarsambandsins.
Segja þeir í ályktun að hér sé um lög-
brot að ræða og beri Búnaðarsam-
bandinu því að auglýsa stöðuna aftur
og ráða búfræðing til starfans en því
hefur sambandið ekki fengist til að
lofa og viðurkennir ekki að ráðningin
sé ólögleg. Þetta kalla búfræðingar
einstrengingslega afstöðu og skiln-
ingsleysi, lögbrot og vanvirðu við
búfræðinga.
-S.dór
Atvinnumál
j
. S
:-V
3 v ^ s
Mikið hefur verið um útflútning á gámafiski frá Vestmannaeyjum að undanförnu, enda fór þriðjungur af öllum
bolfiskafla, sem landað var i Eyjum á siðustu vertíð, i gáma. Á myndinni er verið að setja í gáma úr Breka VE.
DV-mynd Ómar
»*»*»*»*»*»*»*» • »*» »*» »'»»»»»»»I»'|’»,Í»»»,»'»»» »»»»»<
•}v
»Sv
•}V
•}v
*}v
»}v
•}v
•}v
•}v
*}v«
•}v
•Jv«
»}v
:p
::
»}v
$
:p
»}v
*}v
»}v
•}v
•}v
•}v
•}v
*}v«
::
:li:
.«•
•}i*
.}{.
.}{•
•}\.
•}\«
:i:
:U*.
:U:
:p
:;:
*}v
•}v
•}v
■}v
*}v
»}v
:r.
:i:
:;:
•}v
•}v
*}v
*}v«
*}v
*}v
•}v«
•}v
•}\«
»}v
»}v«
•}v
*}v
»}v
*}v
»}v
•}v
»}v
■}v
*}v
■}v
•}v«
•J\«
•}V
•Jv
*»}•
•Jv«
*}v
»}v
»}v«
•}v«
*}v-
•}v
•}\«
•}\»
»}v
»}v
*}v
*}v
•}v
*}v
»}v
• »>**
*vv
•\\-
•Jv«
»\\-
»}v
*}\-
*\\-
•\\-
»\\-
»\\*
*\\-
»\\-
»\\-
•}\-
*\\-
*\\«
•\\-
•\\-
•\\-
•\\-
■\\-
■\\-
•\\*
»\\-
•}\-
»\\-
»\\-
Bíla-
Aukahlutir - Varahlutir - Sérpantanir
19ANCHO
MW5U5PENSION
GUMBO MUDDER
★ $ hefur lækkað ’P
VORUM AÐ FÁ Á FRÁBÆRU VERÐI:
★ Jeppa- jafnt sem fólksbílafelgur. Breiddir 6-14 tommur.
★ Hin víðförlu GUMBO MUÐDER dekk. Stærðir 30-44 tommur.
★ Rancho fjaðrir, demparar og upphækkunarsett.
★ Warn driflokur og rafmagnsspil.
★ Flækjur í flestar tegundir jeppa- og fólksbíla.
★ Einnig höfum við á lager mikið magn af vélahlutum jafnt sem auka-
hlutum í ameríska bíla.
★ Síðast en ekki síst pöntum við alla aukahluti og varahluti í amerísk
farartæki.
—Bílabú5
Benna
■
I VAGl
VAGNHJ0LIÐ
Vagnhöföa 23
1-10 Reykjavík
Sími 685825
^ BÍLVIRKI s/f,
Fjölnisgötu 6,
600 Akureyri.
Sími 96-23213.
*}V
•}\-
•}v
*}v
•}\«
»}v
*}v
•}v
•}\«
•}v
»}v
•}v
•}v
»}v
•}v
»}\-
:i:
:«í
:i:
•}v
*}v
*}v
*}v
•}v
•}\«
•}v
•}v
•}\«
•}\«
*}v
•}\-
•}\«
*}v
»}v
•}v
•}\«
»}v
•}v
•}v
•}v
•}v
*}v
•}v
*}v