Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987. 9 Uflönd Amal-shitar halda áfram umsátrinu um búðir PLO ísraelskar herþotur gerðu í gær aðra loftárásahrinu á búðir palestínskra skæruliða í Suður-Líbanon og er það önnur loftárásin með sólarhrings millibili á nágrenni hafnarbæjarins Sídon. Arásin í fyrrakvöld hafði beinst að Ain El-Hilweh-búðunum suður af Sí- don, en þar sögðust ísraelsmenn hafa varpað sprengjum og skotið eldflaug- um að aðalstöðvum skæruliða PLO, þaðan sem stjórnað væri hryðjuverka- árásum inn í Israel. Flestir líta svo á að megintilgangur loftárásanna sé sá að Israelstjóm vilji sýna þannig að hún láti þófið um út- lendu gíslana í Líbanon ekki halda aftur af sér og sé algjörlega sjálfstæð í sínum ákvörðunum en dansi ekki á línu sem togað sé í frá Washington. I gærmorgun vörpuðu ísraelskar vélar sprengjum á byggingar sem A1 Fatah-skæmliðasamtök Yassers Ara- fats höfðu áður notað. Loftárásimar hafa aðallega beinst að Palestínuaraöbum eða skæruliðum þeirra þótt flestar árásimar á ísraelska hlutleysisbeltið í Suður-Líbanon hafi verið gerðar af Hizbollah-hrejdíngu shitamúslíma upp á síðkastið. Ekki alls fyrir löngu létu, ísraelsk yfirvöld uppi að þau hefðu, að beiðni Samein- uðu þjóðanna, látið vera að gera árásir á Hizbollah, en haldið væri, að þau samtök stæðu aðallega að mannrán- unum undanfarið í Líbanon og að hugsanlega væm einhverjir útlendu gíslanna geymdir í búðum þeirra í S- Líbanon. Vopnaðir liðsmenn Amal-shita leita skjóls fyrir skothríð leyniskyttna meðal húsarústa við flóttamannabúðirnar í Bourj Al-Sarajneh, en þangað hefur starfsmönn- um Sameinuðu þjóðanna ekki verið hleypt með matvæli eöa sjúkralyf handa Palestínuaröbum. Símamynd Reuter Ungur Palestínuarabi situr vopnaður meðal annarra, sem flúið hafa úr flótta- mannabúðum Palestinuaraba í Beirút, eftir bardaga við múslíma. Það er talið að um 750 manns hafi fallið siðustu fjóra mánuði í bardögum um flóttamanna- búðir Palestinuaraba i Beirút og Suður-Libanon. Simamynd Reuter Sjálfsvígum fjölgar Óvenjumargir ungir Japanir fyrir- fóru sér á síðasta ári. Er félagslegri streytu og sorg út af fráfalli frægs popssöngvara kennt um. 299 stúlkur undir tvítugu styttu sér aldur á árinu 1986 og er það 77% fleiri en á árinu 1985. Óhugnanleg sjálfsvígsskriða fylgdi í kjölfar þess að söngkonan Yukiko Okada (18 ára) fyrirfór sér i Tokýo í apríl. Sjálfsmorðum stúlkna og pilta fjölgaði um 44% eða upp í 802 frá árinu áður. Frá Ástralíu berast samtímis þau tíðindi að sjálfsvígum Ástrala hafi fjölgað um 1% á árinu 1985 frá þvi árið 1984. Alls fyrirfóru sér 1.827 Ástr- alir á árinu 1985 og var meirihluti þeirra á aldrinum 15 til 24 ára. 1 öllum aldurshópum voru hlutföllin fjórir karlar á móti hverri einni konu sem frömdu sjálfsmorð. Smokkaumræða veldur óróa Ólafur Amaison, DV, New York: Opinber imiræða um smokka hér i Bandaríkjunum. getnaðan’öm sem ekki alls fyrir löngu mátti ekki nefna á mörgum heimilum. hefur valdið nokkrum óróa hér vestra meðal kenn- ara. tmarleiðtoga og foreldra. Tilraunir til að auglýsa smokka í sjónvarpi og dreifa þeim í menntaskól- imi og háskólum hafa farið fyrir brjóstiö á nrörgum sem segia að slíkt leiði til lauslætis. Þeir sem styðia þessa opnu tunræðu um getnaðaivarnir benda á að smokkar séu eina vörnin sem vitað er um gegn hinum banvæna sjúkdómi eyðni. Talsntaður kaþólsku kirkjunnar. Russel Shaw. varaði við þvi að smokkaauglýsingar rnæltu nteð getn- aðarvörnum en kirkjan er andsnúin sliku. Fullyrti hann að slikt ntyndi ýta undir lauslæti frekar en þann sjáltsaga sem æskilegur væri rneðal ungs tölks. Hann taldi að auglýsingar rnyndu hafa alvarlegar afleiðingar fyrir hinn viðkvænta hóp ungs fólks sent nú er í menntaskólum og háskólunt. Noregur miðstöð eituriyfjasmyglara? Norsk dagblöð auka sölu sína Kffl Vilhjálmsson, DV, Osló: KH ViIhjálmsBan, DV, Osló: Eititrlvfjasalar frá Suður-Ameríku hvggjast flytja í gegnum Noreg eiturlyf sem ætluð eru á rnarkað i Vest- ur-Evrópu. Upplýsingar þess efnis segist norska dómsmálaráðunevtið hafa undir höndtun. Eiturlyfjasalarnir beina nú sjóntmt síntmt að þeirn stóra ntarkaði sent Vestur-Evrópa er. Eftir að yfiivöld í Bandaríkjunum jtiku eftirlit og aðgerðir gegtt eitur- lvfjasmyglumm er Evrópa orðin rneira freistandi en áður. Yfirvöld í Noregi leita nú ráða til að hindra að landið verði notað sem milliliður í smygli á eiturlyfjimi til Vestur-Evrópu. I fytra keyptu Norðntenn daglega hundrað þúsund fleiri blöð en þeir gerðu árinu áðtu'. Daglega eru 2.6 milljónir dagblaða seldar í Noregi. Upplag allra stærstu hlaðanna jókst í fyrra. Þrjú stærstu blöðin ent Aftenposten. sem gefur út sitt aðalblað á morgnana. og síðdegisblöðin Verdens Gang og Dagliladet, Stærsta upplagið hefur Verdens Gang sem selur nimlega þrjú hundntð þúsund eintök daglega. Það er s;mta hlutafélagið sem á Aftenposten og Verd- ens Gang. ríríf \ \ \ ■ ■ ■ ■ ■ ■ Umsjón: g Bára Sveinsdóttir og lundur Pétursson myiuiui 77/ ^ Guðrr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.