Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987. Iþróttir • Derek Mountfield. Fer MountReld til Manchester? Manchester United er sífellt í leit að nýjum leikmönnum og nú hafa augu „rauðu djöflanna“ beinst að Derek Mountfíeld, mið- verði Everton. Ef af kaupunum verður er það fyrsti leikmaðurinn setn Alex Ferguson kaupir til Un- ited síðan hann tók við fram- kvæmdastjórastöðunni. Síðan Everton keypti landsliðs- miðvörðinn Dave Watson á 55 milljónir króna, fyrr í haust, hefur Mountfield gengið illa að vinna sér fast sœti í liðinu. Mountfield, sem er 24 ára og stefnir að landsliðs- sœti, hefur ekki líkað það sem best og hefur hann gefið í skyn að hann hyggist fara fram á söiu ef hann komist ekki í liðið fljótlega. Hojvard Kendall er því mikill vandi á höndum því hann vill ólm- ur halda í Mountfield sem hefur verið einn traustasti leikmaður Everton síðustu árin. Ferguson er hins vegar harður á því að hann þurfi sterkan miðvörð og hefur þegar leitað hófanna með Graig Léyéin hjá Hearts og Steve Bruce hjá Norwich. Þessir leikmenn kosta þó um 60 milljónir króna hvor um sig en talið er að Mount- field kosti hehningi minna. Verður fróðlegt að fylgjast með því hver verður fyrsti leikmaðurinn sem Ferguson kaupir til United. -SMJ Metgod frá Nott. Forest? . Hollendingurinn Johnny Metgod hjá Nottingham Forest er ekkert að flýta sér að undirrita nýjan samning við félagið þrátt fyrir að Brian Clough, fram- kvæmdastjóri Forest, hafi boðið honum mjög góðan samning. „Ég ætla að geyma allar áætlan- ir varðandi framtíðina þar til í sumar og sjá hvort ég hef ekki ' öruggt sæti í Forestliðinu,“ sagði Metgod. Á síðasta sumri sýndu bæði Newcastle og Köln mikinn áhuga á því að fá hann til sín og er það talið valda því að Metgod heldur að sér höndum núna. -SMJ Ekki nýrvöllur Eins og kunnugt er verður heimsmeistarakeppnin í knatt- spymu 1990 á Ítalíu. Þrátt fyrir að knattspyrnumannvirki séu flest mjög glæsileg á Ítalíu var ætlunin að byggja leikvang í Róm sem ætti engan sinn líka og tæki 120 þúsund áhorfendur. Þar átti síðan úrslitaleikurinn að fara fram. Þessi leikvangur átti að kosta 10 millj- arða króna. Það reyndist of stór biti fyrir borgarstjómina í Róm að kyngja og var tillaga um byggingu leikvangsins felld á fimdi hjá borg- arráðinu. Úrslitaleikurinn fer því að öllum líkindum fram á gamla ólympíuleikvanginum í Róm. -SMJ Chiedozie úr leik! Einn sprækasti kantmaður á Bret- landseyjum, Tottenhamleikmaðurinn John Chiedozie, hefiir ekki leikið við hvern sinn fingur upp á síðkastið. Hann verður nú frá keppni til vorsins vegna mjög alvarlegra bakmeiðsla. Hann gekkst undir uppskurð vegna þessa nú á dögunum. Chiedozie, sem er Nígeríumaður, hefur jafnan staðið sig með prýði í leik og hleypti hann að margra dómi nýju blóði í Tottenhamliðið með komu sinni í herbúðir félagsins. Ótrúlegur hraði hans hefur átt þátt í mörgum sigrum liðsins á síðustu misserum. Sjálfur er Chiedozie einnig ógnandi og skæður sóknarmaður enda hefur hann gert nokkur mörk í leikjum sín- um með félaginu. Chiedozie hefur þó enn ekki öðlast náð fyrir augum David Pleat, jafnvel þótt hann hafi til langs tíma verið hraustur og reiðubúinn til stórvirkja. Baráttan um sæti í Totten- hamliðinu er raunar ótrúleg enda skipa landsliðsmenn þar hvert sæti. Chiedozie hefur aðeins leikið einn leik með aðalliðinu síðan Pleat tók við stjóm félagsins. Þeir verða vart fleiri leikir hans á næstunni. -JÖG Dagsmenn Daníel Hilmarsson, skíðamaður frá Dalvík, var í gærkvöldi kosinn íþróttamaður Norðurlands. Það var blaðið Dagur á Akureyri sem gekkst fyrir þessu kjöri. I öðru sæti varð Tryggvi Gunnars- son. knattspymumaður og marka- kóngur úr KA, og þriðji Freyr Gauti kusu Daníel Sigmundsson, ungur og bráðefnilegur júdómaður úr KA. Eyjólfúr Sverris- son, knattspymu- og körfuknattleiks- maður í Tindastóli frá Sauðárkróki, hafhaði í fjórða sæti í kjörinu og Jón- as Róbertsson, knattspymumaður úr Þór, varð fimmti. -SK ítalskur sigur á Portúgal ítalía sigraði Portúgal, 2-1, í leik leikmanna 21 árs og yngri í Evrópu- keppninni í knattspyrnu í Lissabon í gærkvöldi, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 0-0. Svisslendingar em efstir í riðlinum með 4 stig eftir þrjá leiki en næstir koma svo ítalir með 3 stig eftir tvo leiki. -JKS 9.nillCkNoah, frá Frakklandi, varð sigurvegari á Grand Prix móti í tennis sem fram fór í Lyon í Frakklandi á dögunum. Noah vann Svíann Joakim Nyström í úrslitaleik, 6-4 og 7-5. Símamynd Reuter Coca Cola mOt I Racqetball verður haldið sunnudaginn 15. febrúar kl. 13.30. Allir eru kvattir til að vera með. Skrán- ingu fyrir mótið lýkur kl. 15.00 á morgun, laugardaginn 14. febrúar. Mótsgjald er kr. 300 DV-mynd KAE •Árni Friöleifsson skoraði fimm mörk fyrir Víkinga í gærkvöldi gegn Val og hér er hanr lá knötturinn í marki Valsmanna. „Ef við hefð maikivænim -sagði Jón Pétur Jónsson, þjálfari V „Lið sem hefur Kristján Sigmundsson á sínum snærum og svona stórkoslegan eins og hann var hér í kvöld á móti okkur, á meðan okkar markverðir verja lítið sem ekkert, þarf ekki að óttast úr- slit í leikjum sínum. Dómarar leiksins gerðu ekki útslagið heldur vorum við einfaldlega lélegir, svo ekki sé meira sagt. Við skoruðum ekkert einasta mark fyrstu tuttugu mínútumar þó að mínir leikmenn stæðu fimm sinnum einir fyrir framan markmanninn. Betra liðið vann þegar upp var staðið en ég er viss um að ef við hefðum Kristján Sigmundsson í markinu hjá okkur værum við ekki búnir að tapa leik í mótinu,“ sagði Jón Pétur Jónsson, þjálfari Valsmanna, í samtali við DV eftir leik Víkings og Vals þar sem Víkingar fóru með sigur af hólmi, 22-15, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 10-4 Víkingum í hag. Leikur liðanna fór ffarn í Laugardalshöll. Valsmenn skoruðu ekki mark í heilar tuttugu mínútur Fyrstu tuttugu mínútumar í leiknum vom alveg sérstakar fyrir þær sakir að Valsmönnum var alveg fyrirmunað að koma knettinum ffamhjá Kristjáni í marki Víkings. Hins vegar gengu hlut- imir betur upp hjá Víkingi, því á meðan allt gekk á afturfótunum hjá Valsmönn- um vom Víkingar búnir að koma knettinum sex sinnum í mark andstæð- ingsins og má segja að þessi leikkafli hafi gert út um leikinn. Valdimar Grímsson braut blað í leikn- um með því að skora fyrsta mark Valsmanna en Víkingar svöruðu strax með tveimur mörkum og staðan var því orðin 8-1. Það sem eftir lifði hálfleiksins gerðist fátt markvert að því undanskildu að Kristján markvörður varði vítaskot. Valsmenn mættu mjög ákveðnir til seinni hálfleiks og skomðu fyrstu tvö mörkin. Virtist sem þeir ætluðu virki- lega að sýna á sér klærnar en það var öðm nær því Víkingar vom alls ekki af baki dottnir og svömðu alltaf jafn- harðan fyrir sig. Minnsti munur á liðunum var fjögur mörk, 14-10, en síðan skildu leiðir á nýjan leik og eftirleikur- inn var Víkingum auðveldur. Jón Pétur fékk að sjá rauða spjaldið Jón Pétur Jónsson, þjálfari Vals- manna, fékk að sjá rauða spjaldið í leiknum, þegar fimm mínútur voru til leiksloka, fyrir að mótmæla við dómar- „Broddi hefur ekki lært af sjálfum séru - opið bréf til Ípróttasíðunni hefur borist eftirfarandi bréf frá Garðari Alfonssyni vegna ummæla Brodda Kristjánssonar badmintonleikara í viðtali á íþróttasíðu IJ V 9. febrúar sl. „Þar sem undirritaður þykist hafa verið einhvers staðar nálægur þegar Broddi óx úr grasi sem badmintonleikari er ekki bægt að leiða þetta viðtal hjá sér án at- hugasemda. Það er rangt að Broddi hafi lært badmin- ton af sjálfum sér eða foreldrum sínum. Á jteim tíma var ekki leikið badminton hér sem kallast því nafni (að sjálfsögðu er átt við badminton sem gefur möguleika til að standa í sæmilegum eriendum spilurum) einhvers staðar hefur hann lært þá tækni sem hann býr að nú. Það er líka rangt að kínverskir þjálfarar haft orðið til þess að badmintoníþróttin hafi komist hér á það stig að teljast sæmi- leg keppnisíþrótt. Þessu til sönnunar vil ég benda á að í fyrsta skipti sem TBR tók þátt í Evrópukeppni félagsliða sem haldið var í Kaupmannahöfn (undirritaður var jjjálfari TBR þá) var liðið einum leik frá því að komast í undanúrslit, þessi eini leik- ur var gegn belgísku félagi og hann gat farið á báða vegu, svo naumt var það. Þó var liðið á þessum tíma reynslulaust og ekki með kínverskan spilara sem seinna varð. Það einkennilega skeði að eftir þessa keppni var . frammistaðan þökkuð kín- verskum þjálfara sem ekki var á staðnum og hafði aðeins verið viku á íslandi. Þetta sýnir að Kínverjar hafa snemma farið að setja svip sinn á íslenskt badminton. Ég vil geta þess að um þetta var fjallað í að minnsta kosti tveimur erlendum badmin- tonblöðum. Nú mætti spyrja hvort ég áliti að Kín- verjar væru hér ekki til gagns. Því fer íþróttasíðu DV fjarri að ég álíti að svo sé en við þurfum ekki endilega Kínverja til að við getum notað alla þjálfara sem eru nægilega sterk- ir til þess að leika við okkar bestu spilara ef þjálfunin fer fram í því formi. Það er sem sagt ekki vandamálið að þjálfa ef maður hefur tæknilega góða leik- endur í höndunum, maður þarf ekki einu sirmi að geta tjáð sig munnlega. Ég held því fram að höfuðvandamálið liggi í grunnþjálfuninni, eftir það er hægt að fara í bækur og lesa sér til um alls konar æfingar sem byggja ofan á það sem fyrir er, en þá kemur spumingin, veit ekki sá sem byggði grunninn hvemig hann hefur hugsað sér áframhaldið, það er mjög líklegt. Þerssi atriði sem að framan greinir gilda ekki bara um badmintoníþróttina. Það sem tæpt hefur verið á er miklu viðameira en það sýndist í fyrstu því að Asíubadminton *fer um margt ólíkt Evrópubadmintoni, þar kemur til ólík líkamsbygging og ólíkt eðli. Þessi atriði hafa verið í brennidepli í Evrópu og Asíu undanfarin ár því hér er, svo ótrúlegt sem það hljóðar, pólitík á ferð- inni, ekki hægri eða vinstri, heldur annars konar pólitík. Þetta leiðir okkur að því spursmáli hvort kínverskir þjálfarar geri sér ekki grein fyrir því að Asíustíll passar ekki fyrir Évrópu. Ég held að þeir geri sér jp-ein fyr- ir þvf nú en hvers vegna eru þeir þá hér áfram? Að mínu mati er það vegna þess að j)eir em hér í sambandi við Evrópubad- minton og virðast fá vel greitt fyrir. Að lokum, það væri fróðlegt fyrir undir- ritaðan, áður þjálfara hjá TBR, að heyra hvað tuttugu og sjö fold laun þjálfara í Kína em miklir peningar. Garðar Alfonsson, Austurgerði 4, Kópavogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.