Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987.
9
Útlönd
Verkfall
hjá ILO
Sjö ráðherrar hætta
vegna hneykslismála
Guðrún Hjartardóttir, DV, Ottawa:
Það hafa verið erfiðir tímar að und-
anfömu hjá Brian Mulroney, forsæt-
isráðherra Kanada, og ríkisstjóm
hans. Hvert 'hneykslismálið hefur
rekið annað í hinum ýmsu ráðuneyt-
um með uppsögnum starfsfólks og
afsögnum manna í hærri embættum.
I gær sagði framkvæmdaráðherr-
ann, Roch la Falle, af sér. Hann er
þá sjöundi ráðherrann sem vegna
hneykslismáls víkur írá embætti í
rúmlega tveggja ára stjómartíð
þessarar ríkisstjómar íhaldsflokks-
ins.
Ástæðumar fyrir afsögn Roch la
Falles vom tvær. I janúar síðastliðn-
um þurfti hann að segja upp tveimur
háttsettum aðstoðarmönnum í ráðu-
neyti sínu eftir að það uppgötvaðist
að þeir vom báðir á sakaskrá vegna
ýmissa afbrota í fortíðinni. En þeir
höfðu aldrei farið í gegnum venju-
lega öryggisrannsókn áður en þeir
gerðust starfsmenn ráðherrans.
Önnur ástæðan var sú að í júlí
1985 skipulagði einn þingmanna
Ihaldsflokksins samkvæmi á heimili
sínu þar sem um þijátíu kaupsýslu-
menn vom samankomnir ásamt
framkvæmdaráðherranum. Það sem
var óvenjulegt við þetta samkvæmi
var að hver þessara kaupsýslu-
manna greiddi upphæð sem sam-
svarar um það bil hundrað og
fimmtíu þúsund íslenskum krónum
fyrir það eitt að fá tækifæri til að
vera í samkvæminu og hitta ráð-
herrann. Þess má geta að ráðuneyti
hans sér um að veita alla meiri hátt-
ar verksamninga sem alríkisstjómin
veitir.
Strax í janúar á siðasta ári frétti
Brian Mulroney forsætisráðherra af
þessu samkvæmi og fyrirskipaði lög-
reglurannsókn í málinu. Sú rann-
sókn hefúr leitt til þess að í næsta
mánuði munu fara fram réttarhöld
í máli viðkomandi þingmanns, Mic-
hell Gravels, vegna þessa máls og
fjörutíu og níu annarra ákæmatriða
gegn honum. Snúast þau meðal ann-
ars um misnotkun á aðstöðu í
embætti og mútuþægni.
Þessi alda hneykslismála, sem
gengið hefur yfir ríkisstjómina und-
anfarið, hefur sannarlega ekki orðið
til þess að auka vinsældir hennar
Talið er að Brian Mulroney, forsæt-
isráðherra Kanada, hristi til í ríkis-
stjórninni vegna fylgistaps flokks
hans.
meðal almennings. I gær vom birtar
tölur úr skoðanakönnunum um fylgi
stjómmálaflokkanna. Kom þar í ljós
að stjómarflokkurinn hefur einung-
is 22 prósent fylgi sem er enn minna
en í janúar síðastliðnum. Aldrei fyrr
í kanadískum stjómmálum hefur
stjómarflokkur haft jafnlítið fylgi
og nú. I skoðanakönnuninni kemur
einnig fram að Frjálslyndi flokkur-
inn hefur helmingi meira fylgi en
Ihaldsflokkurinn eða 44 prósent og
nýi Demókrataflokkurinn er með 32
prósent.
Hvað af þessu leiðir er ekki ljóst
á þessari stundu. Þingið fer í viku-
langt frí í næstu viku og nota
ráðamenn það væntanlega til að
hugsa sinn gang. En þær raddir ger-
ast nú æ háværari jafht innan
flokksins sem utan hans að Brian
Mulroney forsætisráðherra hristi
rækilega upp í ríkisstjóminni og
hreinsi til meðal pólitískra ráðgjafa
ríkisstjómarinnar.
Starfslið aðalstöðva alþjóða vinnu-
málastofnunarinnar (ILÓ) í Genf, en
það er sú stofhun Sameinuðu þjóð-
anna vinnur að þvi að bæta kjör og
starfeskilyrði verkalýðs víða um heim,
hefur lýst yfir sólarhrings verkfalli í
dag. Er það í mótmælaskyni við „óþof-
andi lækkanir á eftirlaunum“ þess.
Nýr eftirlaunataxti, sem samþykktur
hefur verið af allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna - ásamt lækkunum frá
því árið 1985 - mun lækka eftirlaun
starfsliðs ILO um 25%.
Þar á ofan bætist að taxtinn er mið-
aður við Bandaríkjadali, en starfsliðið
í Evrópu fær launin greidd í svissnesk-
um frönkum, og gengi dollarans hefur
verið fallandi.
Um 2000 manns vinna við aðalskrif-
stofur ILO í Genf. 150 ríki em aðilar
að alþjóða vinnumálastofnuninni.
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
og
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir
Syriand reiðubúið
til hemaðar-
legra aðgerða
Sýrlensk yfirvöld hafa tilkynnt að
þau séu reiðubúin til að láta her-
menn sína grípa inn í bardagana
milli Amal shíta og vinstri sinnaðra
samtaka í vesturhluta Beirút. Þrátt
fyrir það var skothríðinni haldið
áfram í nótt og íbúum borgarinnar
varð ekki svefnsamt.
Samkvæmt útvarpsfréttum hefur
sýrlenskt herlið fengið skipun um að
sameinast öryggissveitum sem í eru
nokkur hundruð drúsar og shítar. I
Damaskus hefur verið tilkynnt að
Sýrland bíði eftir opinberri beiðni
líbanskra yfirvalda áður en gripið
verður til hernaðarlegra aðgerða.
Átök síðustu daga geta orðið
stjórninni í Libanon að falli. Forsæt-
isráðherrann Rashid Karami, náinn
bandamaður Sýrlands, og tveir aðrir
aðalleiðtogar múslíma segjast munu
segja af sér ef bardögunum linnir
ekki.
Vegna átakanna hefur ekki verið
unnt að flytja matvæli og lyf til
þeirra þúsunda Palestínumanna sem
hafast við í flóttamannabúðum í Lí-
banon. Einnig hafa tilraunir til að
fá látna lausa tuttugu og sex gísla
farið út um þúfur vegna bardaganna.
Tveir Bandaríkjamenn, sem eru mú-
slímar, flúðu frá vesturhluta Beirút
í gær en þeir voru þangað komnir
til að reyna að fá gíslana látna lausa.
Voru þeir rændir og hótel þeirra
skemmt af varðliðum.
Sýrlenskir hermenn á verði á götu í vesturhluta Beirút. Simamynd Reuter
Kommúnisti lætur skot ríða af í bardaga við Amal
shíta. Alls hafa hundrað og fimmtíu manns falliö og
þrjú hundruð særst i átökum siðustum daga.
Simamynd Reuter
I bardögunum, sem geisa i vesturhluta Beirút, hefur
verið kveikt í byggingum og þær einnig eyðilagðar á
annan hátt. Simamynd Reuter
BLASTURS
ELDAVÉLIN
Gerð R-44
LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI
SÍMI: 50022
3 möguleikar:
Yfir- og undirhiti.
Blásturshiti.
Grill — hitun.
Tvöfalt gíer í hurð.
Barnalæsing.
Stillanlegur sökkull.
Tvær hraösuöuhellur.
Hitaskápur undir ofni.
Fylgihlutir: Ofnskúffa,
4 bökunarplötur og rist.
Aukahlutir: Klukkubak með
eöa án steikarmælis,
grillmótor og teinn.
Fæst í 5 litum.
Hagstætt verð.
Góð kjör.