Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Qupperneq 12
12
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987.
SUMARNÁM
í uppeldis- og kennslufræðum til
kennsluréttinda við félagsvísindadeild
Háskóla íslands
Auk reglulegs vetrarnáms er nú unnt að stunda nám
í uppeldis- og kennslufræðum að hluta að sumar-
lagi. Sumarið 1987 verða eftirtalin námskeið kennd:
Skóli og samfélag (5 ein.) 1. júní til 22. júní.
Þroskibarna og unglinga (5ein.) 29.júní til 17. júlí.
Hluti námskeiðsins Kennsla, þ.e. fjögurra daga nám-
skeið í hópefli 23. til 26. júní, dæmikennsla sem er
16 stunda námskeið; undirbúningur og skipulag æf-
ingakennslu.
Nám þetta er ætlað þeim sem þegar hafa lokið há-
skólaprófi eða eru í háskólanámi. Námskeiðaskráning
fer fram í nemendaskrá háskólans 6. til 10. apríl kl.
10-1 2 og 1 3-1 5. Skrásetning í háskólann fyrir þá sem
ekki eru þegar skráðir fer fram sömu daga í aðalskrif-
stofu háskólans og þar fást umsóknareyðublöð
(námskeiðsgjald fyrir þá er kr. 1.500.-).
Umsókn um vist á stúdentagarði þarf að berast Félags-
stofnun stúdenta fyrir 10. maí.
Nánari upplýsingar veitir Gerður G. Óskarsdóttir, við-
talstimi fimmtudaga kl. 17 til 18 í síma 1 77 17.
Háskóli íslands,
félagsvísindadeild
VIKAN
er ekki sérrit
heldur fjölbreytt
og víðlesið heimilisblað
og býður hagstæðasta auglýsingaverð
allra íslenskra tímarita
VIKAN
nær til allra stétta og allra aldursstiga. Aug-
lýsing í Vikunni nær því til fjöldans en ekki
aðeins takmarkaðra starfs- eða áhugahópa.
VIKAN
hefur komið út í hverri viku í næstum 50 ár
og jafnan tekið breytingum í takt við tímann,
bæði hvað snertir efni og útlit. Þess vegna er
Vikan svona fjölbreytt og þess vegna er les-
endahópurinn svona stór og fjölbreyttur.
VIKAN
selst jafnt og þétt, bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Þess vegna geta auglýsendur tréyst því að
auglýsing í Vikunni skilar sér.
VIKAN
er ekki sérrit. Enginn efnisflokkur er henni
óviðkomandi. Þess vegna er Vikan svo vinsæl
og víðlesin sem raun ber vitni.
VIKAN
veitir auglýsendum góða þjónustu á skynsam-
legu verði og hver auglýsing nær til allra
lesenda Vikunnar.
VIKAN
hefur sína eigin verðskrá yfir auglýsingar.
Upplýsingar um auglýsingaverð Vikunnar
eiga við hana eina og þær fást hjá auglýsinga-
deild Vikunnar í síma 27022.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Breiðhöfða 10, þingl. eigandi Byggingariðjan
hf„ fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 23. febr. '87 kl. 11.15. Uppboðs-
beiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Lögmenn Hamraborg 12, Ásgeir
Thoroddsen hdl., Brynjólfur Kjartansson hrl. og Jón Hjaltason hrl.
________ __________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Suðurlandsbraut 12, þingl. eigandi Stjörnuhúsið hf„ fer fram
á eigninni sjálfri mánudaginn 23. febr. '87 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Neytendur
Uppskriftaþeysa DV:
Indverskur
karrvfiskur
Fyrsti rétturinn í uppskriftaþeys-
unni okkar birtist í dag. Það var
Þórunn Guðnadóttir, Blönduhlíð 4,
sem sendi okkur uppskrift að ind-
verskum kam'fiski. Þórunn mat-
reiddi þennan rétt fyrir blm. og
ljósmyndara sem fengu svo að
bragða á hinum gómsæta rétti.
Gömul uppskrift
Þórunn sagði að þessi uppskrift
væri orðin nokkuð gömul. Hún sá
hana í Eldhúsbókinni endur fyrir
löngu en breytti henni í núverandi
horf. í réttinn er notaður afgangur
af soðnum fiski eða soðinn fiskur
sérstaklega fyrir réttinn. Að öðru
leyti er uppskriftin eins og hér segir:
1 bolli soðinn fiskur
1 epli
1 laukur
1 tsk. karrí
1 msk. kókosmjöl
1 bolli mjólk
1 tsk. sítrónusafi
1 msk. smjörl.
salt og pipar eftir smekk
Laukurinn og eplið er flysjað og
sneitt niður og steikt í smjörlíkinu
þar til það er mjúkt. Þá er mjólk og
karríi bætt út í og látið krauma í
ca 30 mínútur. Þá er soðnum fiskin-
um og kókosmjölinu bætt út í, hitað
vel upp og kryddað með salti, pipar
og sítrónusafa.
Með þessu er borið karríhvítkál
og soðin hrísgijón.
Karríhvítkál
Ca 500 g hvítkál, 2 laukar, 50 g
smjörlíki, um 'A dl sólblómaolía, 3
tsk. karrí, 1 tómatur eða 1 msk. tóm-
atsósa, 'A tsk. sinnep, salt.
Smjörlíkið er brætt, karríið sett
út í og síðan smáttskorið hvítkálið
og laukurinn, tómatur og sinnep.
Þetta er látið krauma í 15-20 mín.,
hrært oft í á meðan. Passið að hafa
hitann ekki of mikinn. Þegar káhð
er orðið mjúkt er 1 dl af mjólk hellt
út í og látið sjóða i 1-2 mín.
Minnkarfeitina
Þórunn sagðist hafa minnkað
smjörlíkið til muna í þessari upp-
skrift en í nútímamatargerð er mun
minna smjör notað en áður var. Eins
notar hún olíu að hluta til í staðinn
fyrir smjörið áður.
Þetta hvítkáls/lauksalat var sér-
lega gott. Það passar áreiðanlega vel
með ýmsum öðrum réttum eins og
t.d. kjúklingaréttum eða öðrum fiski.
Þórunn sagðist líka oft breyta til og
láta stundum gulrótarbita út í og
stundum græna papriku. Það gerir
bæði gott bragð og lífgar einnig upp
á úthtið.
Að ganga frá öllu um leið
Þórunn vann mjög snyrtilega við
Þórunn undirbýr matseldina.