Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1987, Page 19
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1987. 31 • Charlie Nicholas hefur oft þurft að moka snjó i vetur Fer Nicholas til Aston Villa? Aston Villa hefur að undanfömu reynt mikið að fá Charlie Nicholas í sínar raðir. Billy McNeill, framkvæmdastjóri Aston Villa, er reiðbúinn að borga vel fyrir Nichol- as og einnig að láta Tony Dorigo í skiptum. Gengi Aston Villa á keppnistímabilinu er búið að vera afleitt og er liðið í hópi neðstu liða. Liðinu veitir því ekkert af að hressa svolítið upp á sóknarleikinn og er einn lið- urinn í því að fá Nicholas keyptan til félagsins. Nicholas hefur h'tið fengið að spila með Arsenal á þessu keppnistímabili en framan af átti hann við meiðsli að striða. í síðasta leik Arsenal var haim ekki einu sinni á varamannabekk liðsins. -JKS Celtics sigraði Sex leikir fóru fram í fyrrinótt í NBA deildinni bandarísku í körföbolta og héldu bæði stórliðin, Boston Celtics og Los Angel- les Lakers, áfram sigurgöngu sinni. En annars urðu úrslit í leikjunum þessi: Cleveland-Sacramento......129-119 Indiana-Seattle......i.......105-88 76’ers-Golden State........114-103 Boston Celtica-Dallas.......113-96 Los Angeles Lakcrs Denver..128-122 Milwaukée-ÚtahJazz.........113-109 -JKS Valsmenn æfa í Belgíu Krisýán Bemburg, DV, Belgíu: íslenskir knattspymumenn em nú famir að hugsa sér til hreyfings fyrir knattspyrnu- vertíðina í sumar og hyggjast nokkur lið fara út um páskana til æfinga og keppni. Valsmenn fara til Hollands í æfingabúðir, náhar tiltekið til Kempervennen, og er ætl- unin að leika æfingaleik við belgíska 1. deildar liðið Brúgge i þeirra ferð. Sævar Jónsson, sem leikur með Val í sumar, lék einmitt með Brúgge þegar hann var at- vinnumaður í Belgíu. Stjömiunenn verða með stóran hóp knatt- spymumanna í Skotlandi um páskana og er ætlunin að spila nokkra æfingaleiki. 2. flokkur Breiðabliks verður á ferð í Belg- íu á sama tíma og leikur þar að minnsta kosti við unglingalið Lokeren en unnið er að þri að fá fleiri leiki. Verður Olsen áfram hjá Köln? Forráðamenn FC Köln reyna nú allt hvað þeir mega til þess að fá fyrirliða danska landsliðsins, Morten Olsen, til að fram- lengja samning sinn hjá liðinu um eitt ár. Samningur Olsen, sem er nú 37 ára, rennur út í vor en frammistaða hans er slík að lið- ið getur ekki án hans verið. Köln nýtti vetrarfríið til æfingarferða til fsrael og S-Ameríku og lék þar nokkra æf- ingarleiki og var Olsen óumræðilega besti maður liðsins þar. -SMJ íþróttir „Úthaldið brást í framlengingunni“ - sagði Pálmar Sigurðsson. UMFN vann Hauka, 113-103! „Það var virkilega sárt að tapa þessu því að við spiluðum mjög vel í 40 mín- útur en framlengingin fór alveg með þetta. Við erum búnir að spila 3 leiki á einni viku og við höfðum einfaldlega ekki nóg úthald í framlengingunni,“ sagði Pálmar Sigurðsson, eftir að Njarðvíkingar höfðu sigrað Hauka í úrvalsdeildinni í körfubolta í gær- kvöldi. Leikur liðanna var æsispenn- andi og stórskemmtilegur og að loknum venjulegum leiktíma var stað- an jöfri, 94-94. Þá varð að framlengja leikinn í 5 mínútur og í framlenging- unni reyndust Njarðvíkingar sterkari og sigruðu, 113-103, en Haukamir sátu eftir með sárt ennið eftir að hafa haft undirtökin lengst af. Haukamir byrjuðu mun betur og sýndu stórgóðan leik fyrstu mínútum- ar. Staðan 16-7 og 21-10 eftir 5 mín. en þá fór aðeins að draga af heima- mönnum og Njarðvíkingar jöfhuðu metin um miðjan hálfleikinn. Jafhræði var síðan með liðunum en í hálfleik var staðan 54-50 Haukum í vil. Síðari hálfleikur var stórgóður eins og sá fyrri en Haukar höfðu nauma forystu allt þar til á lokamínútunum að Njarð- víkingar komust yfir, 91-90. Þegar 1 mín. var eftir var staðan 94-93 fyrir Hauka en þá misstu Haukamir bolt- ann og Njarðvíkingar fiskuðu tvö vftaköst þegar 7 sekúndur vom eftir. Teitur Örlygsson hitti aðeins úr einu skoti og jafhaði. Haukar geystust í sókn en Pálmari mistókst að skora og framlenging því staðreynd. í henni vom Njarðvíkingar miklu sterkari og unnu ömggan sigur i lokin, 113-103. Bæði lið léku þennan leik mjög vel en eins og tölumar bera með sér var sóknarleikurinn í fyrirrúmi. Hjá Njarðvík vom þeir Jóhannes, Helgi, Valencia býður metupphæð Sigurglaðir írar fagna hér marki Marks Lawrenson sem hann skoraði á 17. mínútu leiks íra og Skota á Hampden Park í fyrrakvöld. Það reyndist sigurmark leiksins og eru írar nú með ágætis stöðu í riðlinum, með 4 stig eftir 3 leiki. í liði, sem er hörkugott, voru eftirtaldir leikmenn: Bonner (Celtic), McGrath (Man. United), Moran (Man. United), McCarty (Man. City), Hougton (Oxford), Lawrenson (Liverpool), Whelan (Liverpool), Aldridge (Liverpool), Stapleton (Man. United), Brady (AC Mílanó) en John Byrne (QPR) kom inn á fyrir hann og Galvin (Tottenham). Símamynd/Reuter Hreiðar og Valur í sérflokki en Teitur stóð einnig fyrir sínu í leiknum. í liði Hauka kom komungur nýliði, Tiyggvi Jónsson, skemmtilega á óvart og stóð sig mjög vel í sínum fyrsta leik í úr- valsdeildinni. Pálmar var að vanda mjög sterkur og reyndar stóð allt Haukaliðið sig vel. Stig Hauka: Pálmar 35, Ólafur 14, Tryggvi 13, Henning 11, fvar 10, Reynir 10, Ingimar 8 og Sigurgeir 2. Stig UMFN: Jóhannes 26, Helgi 23, Valur 22, Hreiðar 21, Teitur 12, Kristinn 6 og Ámi 3. Dómarar voru Jón Otti Ólafsson og Bergur Steingrímsson og áttu þeir fremur slakan dag og högnuðust Njarðvíkingar nokkuð á dómgæslu þeirra. -RR • Pálmar Sigurðsson. • Jón G. Bjamason. Eriing og Jón G. í KR Knattspymumaðurinn Erling Aðalsteinsson er nú að nýju geng- inn í raðir KR-inga. Hann lék um skeið með Gróttu en hefur nú ákveðið að spila á ný með sínu gamla félagi. Þá er Jón G. Bjamason einnig genginn í KR en hann hefúr æft um hríð með ÍR-ingum. Jón hyggst leika með fyrsta flokki KR á kom- andi sumri. „Ég er að byggja og hef því ekki tíma aflögu í fótboltann," sagði Jón í stuttu samtali við DV. „Ég ætla að dútla með í sumar, - meir af gamni en alvöru.“ Sigur hjá Þór Þór sigraði úrvaldsdeildarlið Fram á Akureyri í gærkvöldi með 86 stigum gegn 56. Var þetta fyrri viðureign liðanna í 8 liða úrslitum í bikarkeppni KKÍ. Kytfingar til Spánar Golfleikurum gefst kærkomið tækifæri að leika golf á frábærum golfvelli, Santa Ponsa, um pásk- ana. Ferðaskrifetofan Samvinnu- ferðir-Landsýn verður með 30 manna ferð til Mallorca um pásk- ana og verður farið utan 15. apríl og komið aftur þann 29. apríl. Af þessum 14 dögum eru 8 frídagar frá vinnu. Margir kylfingar hafa þegar skráð sig í þessa hagstæðu ferð en þess má geta að fararstjóri verður hinn eldhressi kylfingur, Kjartan Lárus Pálsson. -SK í Dana Spænska liðið Valencia hefur boðið danska liðinu Bröndby metupphæð fyrir miðvallarleikmanninn Henrik Jensen. Spánverjamir segjast vera til- búnir að greiða 28 milljónir króna fyrir hin 27 ára gamla Jensen. Þetta er hærri upphæð en var greidd fyrir Mic- hael Laudrup á sínum tíma. „Bæði við í Bröndby og Henrik Jens- en erum á þvi að taka þessu tilboði,11 sagði formaður Bröndby, Per Bjerre- gaard. Formaðurinn vildi þó ekki gefa upp hve mikið af upphæðinni rynni til félagsins en það er auðvitað veru- legur hluti. Atvinnumennskan ræður nú ríkjum í dönsku knattspyrnunni og sala eins og þessi ýtir auðvitað enn frekar undir hana. Bröndby er nú í 8-liða úrslitum Evrópukeppninnar. -SMJ • Henrik Jensen. BÍLAKJALLARINN Fordhúsinu v/hlið Hagkaups. Símar 685366 og 84370. Chevrolet Blazer Silverado 4x4 dísil Til sölu Blazer árg. '82, ekinn 57.000 km, með eftirtöldum aukabúnaði frá verksmiðju. Falleg- ur bill, til sýnis hjá okkur: • 6,2 lítra nýrri dísilvél • krómstálspeglum á báðum O sjálfskiptingu með overdrive hliðum. • aflstýri og bremsum • stereoútvarpi og kassettutæki • krúskontroli • Söluverðmæti 1.300.000,- • lituðu gleri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.