Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Side 2
2
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987.
Fréttir
Utankjörfundarkosning:
Byrjað að kjósa
Kosning til Alþingis utan kjörfunda
er þegar hafin um allt land og einnig
erlendis. Kosið er hjá borgarfógetan-
um í Reykjavík, sýslumönnum og
bæjarfógetum um landið og í sendiráð-
um erlendis. Einnig verður kosið hjá
kjörræðismönnum viða erlendis og
gefur utanríkisráðuneytið upplýsingar
um kjörstaði.
Hjá borgarfógetanum í Reykjavík
sér Jónas Gústafsson borgarfógeti um
kosninguna. Hjá honum er opið
klukkan 1(W)3 á virkum dögum. Síðar
verður opið um helgar og verður það
kynnt þegar þar að kemur.
Framboðsfrestur er ekki útrunninn
og rennur ekki út fyrr en 27. mars,
fjórum vikum fyrir kjördag, sem er 25.
apríl.
-HERB
Fiskiskip þvegin úr
menguðum hafnarsjó
Ríkismat sjávarafurða kallar það - fádæma sóðaskap -
Ríkismat sjávarafurða hefur skor-
ið upp herör gegn þeim „fádæma
sóðaskap" sem það svo kallar að þvo
fiskiskipin upp úr menguðum sjó
inni í höfnum landsins. Þetta við-
gengst víða um land. í síðasta frétta-
bréfi Ríkismats sjávarafurða er skýrt
frá því hvar skip eru þvegin upp úr
hafharsjó og hvar ekki.
Halldór Amason, forstöðumaður
ríkismatsins, segir að það samræmist
ekki þeim kröfum sem reglugérðir
geri til sjávar, sem notaður sé til
þrifa, að taka sjó úr menguðum
höfnum til þeirra verka. „Samt sem
áður viðgengst víða sá fádæma sóða-
skapur að þvo skip upp úr hafn-
arsjó,“ segir Halldór. Hann spyr í lok
hugleiðingar sinnar um málið: -
Hver vill sjóða eða skola soðninguna
sína í hafnarsjó? og svari nú hver
fyrir sig.
í Fréttabréfi Ríkismats sjávaraf-
urða er greint frá því að á Snæfells-
nesi þvoi menn báta sína úr
hafnarsjó, sömuleiðis víða á Vest-
fjörðum, á Sauðárkróki, í Grindavík,
Hafnarfirði, Keflavík ogí Sandgerði.
Þá eru nefridir staðir þar sem þessu
hefur verið hætt og skipin þvegin
úr fersku vatni. Þar eru tilnefndir
staðir eins og Höfn í Homafirði,
Vestmannaeyjar og Reykjavík.
-S.dór
Hin nýja gerð af salernum, þar sem plast rennur yfir setuna.
DV-mynd KAE
vEyðnisalemi“
flutt til landsins
Þú ýtir á takka og plastþynna renn-
ur yfir salemissetuna frá hægri til
vinstri. Þetta eru nýju „eyðnisalem-
in“ sem hafin er innflutningur á til
landsins. Réttara væri að nefha þessa
nýjung eyðnivamarsalemi því það er
hugmyndin sem liggur að þaki fram-
leiðslunni sem er svissnesk.
„Þetta er nýjung sem kemur okkur
öllum við, því miður liggur mér við
að segja,“ sagði talsmaður fyrirtækis-
ins Rökrás sem flytur salemin inn.
Ekki er hægt að kaupa kerfið eitt
sér heldur verður að íjárfesta í salem-
inu öllu. Plastþynnan er í litlum
boxum sem liggja þétt upp að vatns-
kassanum og rennur á milli þeirra
hringinn er setan sjálf myndar. Auð-
velt er að skipta um þynnu þegar
rúllan hefur rennt öllu ofan af sér.
„Ég veit að kerfið hefur verið sett
upp víða á Norðurlöndum og er til
dæmis orðið allsráðandi í norsku
ráðuneytunum. Þessu geta svo fylgt
geislarofar við vask sem stjóma vatns-
rennsli, sápuskammti og blæstri til
þurrkunar. Marmshöndin þarf því
hvergi að koma nálægt," sagði inn-
flytjandinn.
-EIR
DV
Verkfall byggingamianna:
Verkfallsbrot
viða i Amessyslu
Nokkuð hefur verið um verkfalls- sem ófaglærðir menn voru settir í staðnunr alla daga. Víða annars
brotíÁmessýsluíverkfallibygging- störf trésmiða sem em í verkfalli. staðar hafa verkfallsverðir uppgöt-
armanna þar undanfama daga. Hafa Að sögn Ingvars Guðmundssonar vað verkfalisbrot í sýslunni, sem
verkfallsverðir orðið að grípa inn í á verkfallsvakt byggingarmanna á hafa verið stöðvuð.
á nokkrumn stöðum. Mest gekk á í Selfossi hefur verið sett verkfalls- -S.dór
h'm trésverksmiðjunni að Flúðum þar vakt a verksmiðj una og eru verðir á
Hvolsvöllur:
Það er pólítískur
þefur af þessu
- segir Guðfinnur Guðmannsson sem nertað var um lóð
„Ég sótti um lóð undir veitingahús
og bensínstöð á vegum Skeljungs en
fékk neitun frá sveitarstjóminni á
þeim forsendum að samkvæmt skipu-
lagi ætti verslunarhús að rísa á
lóðinni. Samt gerðist það í fyrrahaust,
löngu eftir að ég sótti um lóðina, að
skipulaginu var breytt svo bankinn
gæti fengið lóð þama skammt frá, sem
hann hefur þó ekki sótt um. Ég er sá
eini sem sótt hefur um lóð sunnan
megin við þjóðveginn. Það er pólitísk-
ur þefur af þessu öllu saman,“ sagði
Guðfinnur Guðmannsson á Hvolsvelli
um þá afgreiðslu sem umsókn hans
fékk hjá sveitarstjóm.
Framsóknarmenn ráða öllu á Hvol-
svelli. Oddvitinn er settur kaupfélags-
stjóri og að sögn Guðfinns vilja þeir
að Olíufélagið sitji eitt að allri bensín-
sölu á Hvolsvelli. Að skjóta sér á bak
við skipulag sé fyrirsláttur því eins og
allir viti sé auðvelt að breyta skipu-
lagi á stað eins og Hvolsvelli. Guð-
finnur benti einnig á að atvinnuástand
á Hvolsvelli væri slæmt og þeim mun
furðulegra væri að bregða fæti fyrir
menn sem vildu byggja upp fyrirtæki
á staðnum.
Sveitarstjórinn, Ólafur Sigfusson,
sagði að vegna þess að skipulagið
gerði ráð fyrir verslunarhúsnæði á
lóðinni þar sem Guðfinnur sótti um
væri ekki hægt að láta hann hafa lóð-
ina. Þá benti hann á að 1979 hefði
Skeljungur hafnað lóð á sama stað en
nú væri þetta allt komið undir skipu-
lag.
-S.dór
Díana Sigurðardóttir, upphafsmaður að stofnun baráttusamtaka gegn kynferðisglæpum, tekur á móti símsvaranum
af Arnari Hákonarsyni, framkvæmdastjóra Rafeindar. DV-mynd KAE.
Símsvari til baráttunnar
gegn kynferðisglæpum
Baráttusamtökum gegn kynferðis- stofu samtakanna í Hlaðvarpanum. um miðvikudaginn 18. mars. Þá
glæpum hefur borist símsvari að gjöf Ráðgert er að opna skrifstofuna inn- hyggjast samtökin gefa út blað sem
frá fyrirtækinu Rafeind. Verður tæk- an tíðar en áður verður haldinn dreift verður á öll heimili í landinu.
inu komið fyrir í væntanlegri skrif- framhaldsstofnfundur í Hlaðvarpan- -EIR