Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Blaðsíða 40
Frjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987.
Tílraun með endurheimtur vilttra laxaseiða:
Seiði skila sér miklu betur í
heimaána en sleppi
ratvísin erfðabundin í stofni
Sto&blöndun með sleppingum
seiða úr öðrum vatnakerfum í lax-
veiðiár skilar oft litlum árangri þar
sem seiðin skila sér illa til baka á
sleppistöðina en betur i ána þar sem
þau eru upprunnin. Þetta sýna nið-
urstöður tilraunar sem Jón Kristj-
ánsson, fiskifreeðingur hjá
Veiðimálastofttun, hefur gert í sam-
vinnu við fiskiræktarfulltrúa
Reykjavikurborgar, meðmerkingum
Elliðaárseiða og sleppingum þeirra
í önnuj- vatnakerfi. Þessar niður-
stöður koma fram i skýrslu sem
Veiðimálastofhun gefur út.
Tiiraunin sýnir að seiði, sem upp-
runnin eru í Elliðaánum og ganga
til sjávar þaðan, koma ekki fram
annars staðar, en Elliðaárseiði sem
sleppt var í aðrar ár villtust alltaf
og komu frá 27% þeirra til 100%
fram á öðrum stað en þeim var
sleppt Hins vegar „villtust" öll seið-
in til sama staðar, nefrúlega heima-
stöðvanna sjálfra, Eiliðaánna.
Þau seiði sem sleppt var í þessari
tilraun eru villt seiði sem voru á leið
til sjávar úr Elliðaánum, þar sem þau
voru fædd og uppaiin. I hinu nýja
umhverfi, þar sem seiðunum var
sleppt, voru Önnur seíði úr heima-
■stofni viðkomandi ár á leið tíl sjávar.
Þegar seiðin komu til baka sem full-
vaxnir fiskar komu þau annaðhvort
í sleppiána eða í Elliðaámar, þaðan
sem þau voru ættuð. Ekkert seið-
anna kom fram í öðrum ám eða
hafbeitarstöðvum.
í skýrslunni kemur fram að þessar
niðurstöður falli að tilgátum sem
Norðmaðurinn Hans Nordeng sctti
fram árið 1977 um göngur laxfiska,
þar sem fram kemur að ratvísi sé
erfðabundin í laxastofhi hverrar lax-
veiðiár. Samkvæmt kenningu
Nordengs má skýra niðurstöðumar
þannig að þegar seiðín koma á nýjan
stað ganga þau inn í göngumynstur
það sem fyrir er og fylgja því á með-
an þau verða ekki fyrir áreiti sem
er sterkara tryggðinni við hina nýju
félaga. Þegar seiðin verða hins vegar
fyTÍr sterkara áreiti - hitta sína eigin
stofhfélaga - brestur trúnaðurinn
við nýju félagana og þau fylgja sín-
um eigin hópl
Þessar niðurstöður styrkja hins
vegar ekki tílgátur um að ratvísin
sé bundin eftiasamsetningu árvatns-
ins og ekki heldur að ratvísin
grundvallist á ótíltekinni „laxa-
lykt“, að þvi er fram kemur í skýrsl-
unni.
-Áí
Kennaradeilan:
Farið að dofna
í manni hfjóðið
- segir Kristján Thoriacius
„Ég get ekki sagt annað en að það
er farið að dofha í manni hljóðið þeg-
ar spurt er hvort takist að semja fyrir
mánudag þannig að ekki komi til
verkfalls kennara," sagði Kristján
Thorlacius, formaður Hins íslenska
kennarafélags, í samtali við DV síð-
degis í gær.
í gærmorgun hittust tveir fulltrúar
frá kennurum og tveir frá fjármála-
ráðuneytinu og sagði Kristján að þar
hefði komið fram að fjármálaráðu-
neytið hefði endurskoðað fyrra tilboð
sitt. Þrátt fyrir endurskoðun væri til-
boðið ekki freistandi fyrir kennara.
Enginn samningafundur hafði verið
boðaður síðdegis í gær.
Stjómir svæðafélaga kennara í
Reykjavík og á Reykjanesi hafa boðað
til stórfundar um stöðu samningamál-
anna í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð kl. 15.00 á morgun. -S.dór
20000
LOKI
Þá höfum við loksins
eignast okkar græningja!
hentu samþingmönnum gljávíöi í tilefni fjögurra ára afmælis Kvennalistans. Guðrún Helgadóttir þakkar þarna
Kristinu Halldórsdóttur fyrir gjöfina. Geir Gunnarsson brosir að öllu saman. DV-mynd GVA
Byggingarnienn:
Maraþonfundur
um samningana
Þegar DV fór í prentun í gærkvöldi
stóð enn yfir samningafundur í kjara-
deilu byggingarmanna og viðsemjenda
þeirra. Hafði fundurinn þá staðið yfir
í vel á annan sólarhring. Karphúsið
var lokað fréttamönnum í gær og
fréttabann af fundinum. Samkvæmt
heimildum DV mjakaðist verulega í
samkomulagsátt fyrripart dagsins í
gær en síðan hægði á ferðinni. Engin
ákvörðun hafði verið tekin um það í
gærkveldi hvort haldið yrði áfram
fundi í nótt.
-S.dór
Sex bílar í árekstri
Sex bílar lentu saman í árekstri síð-
degis í gær, það er óku hver aftan á
annan á Laugaveginum rétt hjá
Heklu. Einn ökumannanna var fluttur
á slysadeild en meiðsli hans eru ekki
talin alvarleg. Þegar slysið áttí sér
stað var slæmt skyggni vegna snjó-
komu.
-FRI
Fremur hæg breytileg átt verður um mestallt land. Léttskýjað verður suðaustanlands en dálítil él á við og dreif í öðrum landshlutum. Hiti verður
nálægt frostmarki við sjóinn en 2 til 6 stiga frost inn til landsins.
Horfur á sunnudag og mánudag:
Hæg breytileg átt um mestaltt landið
62 • 25 • 25
FRÉTT ASKOTIP
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift ~ Dreifing: Sími 27022