Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987. 15 Leikfélag Akureyrar 1917 - 1987 Þau stóðu að Edith Piaf, 1985. Það er eitt af alvinsælustu leikritum sem Þið munið hann Jörund, 1969 til 1970. Arnar Jónsson og Þráinn Karlsson. Leikfélag Akureyrar hefur sýnt frá upphafi. Fyrir miðju Edda (Piaf) Þórarins- dóttir. Skugga-Sveini Templarar byggðu bæði leikhúsin Góðtemplarar byggðu bæði þau leikhús sem byggð hafa verið á Akureyri. Það fyrra var byggt árið 1897 rétt norðaustan við núverandi leikhús, Samkomuhúsið. Þetta leikhús brann árið 1952. Templarar byggðu Samkomuhúsið eftir alda- mótin og var það vígt 23. desember árið 1906. Saga þess er því áttræð. Fyrsta leiksýningin í húsinu var Ævintýri á gönguför sem sýnd var 20. janúar 1907. Þar með hófst glæsileg og ævintýraleg ganga leiklistarinnar í þessu húsi. Og 80 ára Samkomuhúsið stendur enn fyrir sínu eins og gestir munu sjá á afmælissýningunni á Kabarett í kvöld. ' -JGH Skugga Sveinn og fallbyssu- skotin Fallbyssukúlum var skotið þegar leikhúsgestum var tilkynnt að sýn- ing Skugga-Sveins.væri að hefjast. Drunurnar glumdu og sýningin byrjaði. Þetta var árið 1877 og not- uð var sama fallbvssan og lét bæjarbúa jafnan vita þegar síld var komin inn á fjörðinn. -JGH Haraldur Sigurösson skráir sögu Leikfélags Akureyrar. Verkinu hyggst hann Ijúka í haust. Hér er hann á heimavigstöóvum, í úr- klippusafninu i kjallaranum heima hjá sér. DV-mynd JGH Haraldur Sigurðsson Haraldur Sigurðsson. leikari hjá Leikfélagi Akureyrar í mörg ár. vinnur nú að því að skrá sögu Leik- félags Akurevrar. Haraldur er rnikill safnari og í fórurn hans er að finna dýrmætar heimildir um leikfélagið. Hann starfar í Útvegs- bankanum og segist fara beint úr víxlunum í úrklippusafnið sitt. All- ar rnvndir og upplýsingar um Leikfélag Akurevrar hér á síðunni eru fengnar hjá Haraldi og þökkurn við honum kærlega fvrir aðstoðina. -JGH Eldhuginn Hallgrimur Valdimarsson, sá sem ieikfélagið á hvað mest að þakka. Eldhuginn hjá Leikfélagi Akur- eyrar, og aðaláhugamaðurinn um leiklist á Akureyri í áratugi, var Hallgrímur Valdimarsson verslun- armaður. Hann er af öllum talinn maðurinn á bak við það að leik- félagið komst á laggirnar og hélt það út. Hallgrímur sat i fyrstu stjórn félagsins með þeim Júlíusi Havsteen, Sigurði E. Hliðar og Jóhannesi Jónassyni. -JGH ...svo komu þau Þau sem voru mest í sviðsljósinu á fjölunum hjá leikfélaginu á árunum 1940 til 1960 voru Jóhann Ögmunds- son, Guðmundur Gunnarsson, Júlíus Oddsson, Jón Kristinsson, Árni Jónsson, Björg Baldvinsdóttir, Þór- halla Þorsteinsdóttir, Brynhildur Steingrímsdóttir og Sigríður P. Jóns- dóttir og gamanleikarnir Kjartan Ölafsson og Jón Ingimarsson. Einnig þær Kristjana Jónsdóttir og Guðlaug Hermannsdóttir. Auðvitað væri hægt að nefna enn fleiri leikara en að flestra mati voru það þau sem báru hitann og þungann og þóttu mest áberandi. -JGH Jóhann Ögmundsson. Guðm. Gunnarsson. Július Oddsson. Jón Kristinsson, Björg Baldvinsdóttir. Þórhalla Þorsteinsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.