Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 14. MARS 1987. Handknattleikur imglinga Margrét H. Einarsdóttir. Margrét H. Einarsdóttir, fyrirliði Víkings: „Raunhæft að stefha á 4.-6. sestið í úrslitunum“ Við stefrium á að gera okkar besta í úrslitunum en ætli 4.-6. sætið sé ekki raunhæft markmið. Liðin, sem spila í fyrstu deild, eru mjög góð en ég tel að baráttan um íslandsmeist- aratitilinn komi til með að standa á milli Fram og Selfoss. í þeirri bar- áttu hef ég meiri trú á liði Selfoss. Ég hef æft handknattleik undanfarin tvö ár og finnst hann mjög skemmti- legur. Þetta er eina íþróttin sem ég stunda. Mér finnst vel staðið að málefnum yngri flokkanna hér á landi ef undan er skilin dómgæslan, hún er léleg,“ sagði Margrét H. Ein- arsdóttir, fyrirliði Víkings í 4. flokki kvenna. Margrét var að vonum án- ægð með árangur liðs síns um síðustu helgi en þær stelpumar í Víkingi unnu 2. deild 4. flokks kvenna. Úr leik Stjörnunnar og Reynis S. í 4. flokki kvenna. Hvorugu þessara liða tókst aö komast í A-úrslitakeppnina í ár. Þessi lið hafa tiyggt sér sæti í A-úrslitum íslandsmóts yngri flokkanna í handknattleik 2. flokkur karla: Víkingur, Stjaman, KR, Grótta, UM- FA, FH, HK, Valur, Fram og lið að -'Aiorðan. 2. flokkur kvenna: Stjaman, Grótta, Víkingur, ÍBV, KR, FH, UBK, Fram, Haukar og UMFA. 4. flokkur karla: Fram, Valur, Týr V., KR, Fylkir, Þróttur, ÍR, UMFA, Stjaman og lið að norðan. 4. flokkur kvenna: Fram, Grindavík, Selfoss, Víkingur UBK, Njarðvík, KR, ÍBK, Grótta og lið að norðan. Deildakeppnin, 2. flokkur karla, 3. umferð Víkingar með „hattrick“ í keppni fyrstu deildar Hið geysisterka lið Víkings náði þeim frábæra árangri um sl. helgi að vinna 1. deildar keppni 2. flokks karla í þriðja skiptið í vetur. Víkingar em því með fullt hús í deildakeppninni og em svo sannarlega vel að þessum ár- angri komnir. „Við unnum öll liðin nema Gróttu að þessu sinni en hugar- far andstæðinga okkar í keppninni var ekki til fyrirmyndar," sagði Ásgeir Sveinsson, fyrirliði Víkings, eftir mó- tið á sunnudaginn var. Greinilegt var að lið KR og FH tóku leiki sína ekki ýkja alvarlega að þessu sinni og verð- ur að segjast að það setti svip sinn á keppnina. Lið Gróttu er á mikilli upp- leið og gæti komið á óvart í úrslitun- um. Stjaman tapaði öllum leikjum sínum en með litlum mun; þetta var einfaldlega ekki hennar dagur, eins og sagt er. Leikið var í KR-húsinu og sáu KR- ingar um framkvæmd keppninnar. Var mjög vel að málum staðið og viðkom- andi aðilum til sóma. Úrslit leikja urðu: VíkingiuFH 39-15 Víkingur-Stjaman 21-19 Víkingur-Grótta 20-20 Víkingur-KR 19-17 KR-FH 21-23 KR-Grótta 16-24 KR-Stjaman 24-23 Stjaman-FH 23-25 Stjaman-Grótta 21-22 FH-Grótta 17-20 Lokastaðan: stig 1. Víkingur 7 99-71 2. Grótta 7 86-74 3. FH 4 80-103 4. KR 2 78-89 5. Stjaman 0 86-92 2. deild Strákamir í HK úr Kópavogi sigr- uðu með miklum yfirburðum í keppni 2. deildar 2. flokks karla um sl. helgi. Lið HK vann alla andstæðinga sína og fékk þvi fullt hús stiga út úr keppn- inni. Baráttan um annað sætið í deildinni var hins vegar geysispenn- andi milli Selfoss, Aftureldingar og ÍBV. Selfoss vann Aftureldingu, Aftur- elding vann ÍBV og ÍBV lagði Selfoss. Lið ÍBV missti síðan af möguleikanum á öðm sætinu þegar það gerði jafn- tefli við lið ÍBK. Þetta varð til þess að Selfoss hreppti annað sætið í deild- inni vegna sigurs í leik sínum gegn Aftureldingu. Það kom nokkuð á óvart að liði Aftureldingar skyldi ekki ganga betur á heimavelli en raun bar vitni. ÍBK vermdi botnsætið að þessu sinni en með því að gera jafntefli við IBV hafði liðið mikil áhrif á lokastöðima ídeildinni. Úrslit leikja urðu: Selfoss-HK 17-20 Selfoss-ÍBV 18-22 Selfoss-ÍBK 36-17 Selfoss-UMFA 21-19 ÍBV-ÍBK 16-16 ÍBV-UMFA 12-18 ÍBV-HK 17-18 UMFA-ÍBK 22-17 UMFA-IíK 24-27 HK-ÍBK 28-19 Lokastaðan: stig 1. HK 8 93-77 2. Selfoss 4 93-78 3. UMFA 4 83-77 4. ÍBV 3 67-70 5. ÍBK 1 69-102 3. deild, leikstaður Njarðvik ÍR-ingar ráku af sér slyðraorðið í 2. flokki karla um síðustu helgi með því að vinna glæstan sigur í 3. deild. Ekk- ert lið átti möguleika gegn sterkum ÍR-ingum að þessu sinni og hlutu þeir fullt hús stiga í deildinni. Reykjavík- urrisamir, Valur og Fram, börðust jafnri baráttu um annað sæti. Inn- byrðis viðureign þeirra lauk með jafntefli, 20-20, og þar sem bæði liðin töpuðu fyrir ÍR en unnu leiki sína gegn Njarðvík og Fylki urðu þau jöfh að stigum. Það þurfti því markamis- mun úr keppninni í heild til að ákvarða hvort félagið hreppti annað sætið í deildinni. Valsmenn vora með mun hagstæðari markatölu og lentu þvi í öðra sæti. Njarðvík og Fylkir stóðu hinum liðunum i deildinni all- langt að baki að þessu sinni. Njarðvík lagði Fylki í innbyrðis viðureign þess- ara liða og hlaut þar með 4. sætið í keppninni. Úrslit leikja urðu: Fram-Valur 20-20 Fram-Fylkir 33-25 Fram-ÍR 25-26 Fram-Njarðvík 29-23 Fylkir-Valur 14-38 Fylkir-Njarðvík 25-29 Fylkir-ÍR 12-35 Njarðvík-Valur 12-38 Njarðvík-ÍR 17-21 Valur-ÍR 22-25 Lokastaðan: stig 1. ÍR 8 107-76 2. Valur 5 118-71 3. Fram 5 107-94 4. Njarðvík 2 81-113 5. Fylkir 0 76-135 4. deild, leikstaður Fellaskóli Lið Þróttar mætti ekki til leiks og því kepptu aðeins þrjú lið í 4. deild 2. flokks karla að þessu sinni. Keppn- in var jöfh og spennandi, liðin unnu sinn leikinn hvert og fengu því öll tvö stig. Þegar þannig ber undir er borinn saman markamunur í innbyrðis leikj- um. Armann og Haukar era með eitt mark í plús en UBK er með tvö mörk í mínus. Þar sem Haukar unnu Ár- mann hrepptu þeir fyrsta sætið. Úrslit leikja urðu: Armann-Haukar 22-24 Armann-Þróttur Þróttur mætti ekki Armann-UBK 21-18 Haukar-Þróttur Þróttur mætti ekki Haukar-UBK 17-18 Þróttur-UBK Þróttur mætti ekki Lokastaðan: stig 1. Haukar 2 41-40 2. Ármann 2 43-42 3. UBK 2 36-38 Fyriikomulag deildakeppninnar gerir það að verkum að það getur borgað sig að tapa leikjum! Óhætt er að fullyrða að almennt. ríki mikil ánægja með deildafyrir- komulagið sem notað hefur verið í keppni á Islandsmóti yngri flok- kanna í vetur. Komið hafa þó fram tveir stórir gallar sem þarf að ráða bót á fyrir næsta keppnistímabil. í fyrsta lagi er ekki æskilegt að þau lið sem eiga sæti í fyrstu deild í lokaumferð deildakeppninnar hafi að engu að keppa í lokaumferðinni. Meðan ástandið er þannig verður lokaumferð deildakeppninnar hálf- gerður skrípaleikur og því miður varð maður var við slíkt um síðustu helgi. í öðru lagi ræður endanleg röð liða í deildakeppninni því í hvaða riðli þau lenda í úrslitunum. Þetta fyrir- komulag býður upp á að liðin sem spila í fyrstu deild, geta tapað leikj- um viljandi til að lenda í „hagstæð- um“ riðli í úrslitunum. Það verður því miður að segjast eins og er að sum úrslit leikja um sl. helgi benda tíl að lið hafi einmitt stundað þetta. Augljóslega verður slíkt athæfi hvorki leikmönnum né íþróttinni til framdráttar og því verður að breyta þessu fyrirkomulagi fyrir næsta vet- ur. TTT MARSTILBOÐ Þrjár geröir ITT hljómflutningstækja. Verö frá 18.480 kr. Hátalarapör frá 3.990 kr. ITT FYLGIR EKKI TÆKNINNI - IIT LEIÐIR TÆKNINA. ITT HO myndbandstæki m/fjarstýringu, allir eigin- leikar + Scarttengi. Verö 39.550,- kr. 20" ITT litasjónvarpstæki. Frábært verð, 33.780 ,- kr. Umboðsmenn um land allt. Skipholti 7 - Símar 20080 og 26800.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.