Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987.
x> V Hin hliðin
•Bragi Haraldsson, verkamaður á Eskifirði, er hræddastur við grimma hunda.
DV-mynd Emil Thorarensen, Eskrfiröi.
„Held mest upp
á Brtlana og
John Lennon“
- segir Bragi Haraldsson á Eskifirði
inni: Andvígur.
Hlynntur eða andvigur núverandi
meirihluta í bæjarstjóm Eskifjarðar:
Hlynntur honum.
Hvaða verk ert þú ánægðastur með
af verkum þínum á síðasta ári? Hef
ekki hugsað út í það.
Eitthyað sérstakt sem þú stefhir að
á þessu ári? Nei.
Ef þú yrðir að syngja eitt lag að við-
stöddu fjölmenni á Amarhóli, hvaða
lag myndir þú velja þér? Ég myndi
aldrei gera það.
Myndir þú telja þig góðan eigin-
mann? Sæmilegan.
Vaskar þú upp fyrir eiginkonuna?
Já.
Besta bók sem þú hefur lesið: Vopn-
in kvödd eftir Hemingway.
Fallegasti kvenmaður sem þú hefur
séð: Hef ekki hugsað um það.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Hef heldur ekki hugsað um
það.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfri-
inu? Hafa það gott.
Hvor finnst þér myndarlegri, Raisa
Gorbatsjova eða Nancy Reagan?
Raisa Gorbatsjova.
í lokin langar mig til að-hiðja þig
um að semja stöku:
Áhrif, völd og auður
em okkar merki.
Djöfullinn er ekki dauður
hann dafhar og er hinn sterki.
-SK/E.T. Eskifirði.
Sá sem sýnir á sér hina hliðina
að þessu sinni er Bragi Haraldsson,
verkamaður frá Eskifírði. Bragi er
ættaður úr Borgarfírði eystra. Um
tíma bjó hann á Vopnafírði en árið
1956 íluttist harm til Eskiíjarðar og
hefur búið þar síðan. Fjölmargir
þekkja til Braga en hann var meðal
annars húsvörður í félagsheimilinu
Valhöll á Eskifírði um tólfára skeið.
Bragi starfar nú hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar og hefur látið verkalýðs-
mál til sín taka. Hann var um tíma
formaður verkalýðsfélagsins Árvak-
urs á Eskifírði eða þar til að
Hrafnkell A. Jónsson tók við for-
mennskunni. Bragi er giftur Guð-
björgu Þorsteinsdóttur og þess má
geta að eitt bama þeirra, Unnur
Sólrún, skipar annað sætið á lista
Alþýðubandalagsins á Austurlandi í
komandi alþingiskosningum. Svör
Braga fara hér á eftir:
Fullt nafn: Bragi Haraldsson.
Aldur: 68 ára.
Maki: Guðbjörg Þorsteinsdóttir.
Böm: Þau em þrjú: Svanur, Harald-
ur Guðni og Unnur Sólrún.
Bifreið: Seat Ibiza árgerð 1986.
Laun: Verkamannalaun.
Helsti veikleiki: Veit það ekki.
Helsti kostur: Ég vil ekki hæla sjálf-
um mér.
Hvað myndir þú gera ef þú ynnir
tvær milljónir í happdrætti? Ég
myndi láta bömin mín hafa hluta
af fénu.
Myndir þú vilja vera ósýnilegur í
einn dag? Ég hef ekkert með það að
gera.
Mestu vonbrigði í lífinu: Engin.
Mesta gleði í lífinu: Fjölskyldan mín.
Uppáhaldsmatur: Hangikjöt.
Uppáhaldsdrykkur: Kaffi.
Uppáhaldslag: Ég bið að heilsa eftir
Inga T. Lárusson.
Uppáhaldshljómsveit: Bítlamir.
Uppáhaldssöngvari: John Lennon.
Uppáhaldsstjómmálamaður: Vil
ekki hafa persónudýrkun.
Umsjón:
Stefán Kristjánsson
Uppáhaldsblað: Ekkert.
Uppáhaldstímarit: Ekkert.
Uppáhaldsíþróttamaður: Kristján
Arason.
Uppáhaldsrithöfundur: Halldór
Kiljan Laxness.
Ef þú yrðir bóndi á morgun, með
hvaða skepnur vildir þú þá helst
búa? Hef ekki hugsað um það.
Við hvaða skepnur ert þú hræddast-
ur? Grimma hunda.
Ætlar þú að kjósa sama flokk í kom-
andi alþingiskosningum og þú kaust
síðast? Nei.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjóm-
31
MALBIKUN - VIÐHALD
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í viðhald á malbiki
gatna sumarið 1987. Útboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, gegn 5.000
kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 24. mars kl. 11.00.
B æj a rverkf ræð i n g u r.
''/'V/M
UTBOÐ VEGAGERÐIN
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í verkið: Höfða-
strandarvegur, Enni - Þrastarstaðir, 1987.
(Lengd 3,3 km, magn 14.000 rúmmetrar).
Verki skal lokið 30. september 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
16. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 30. mars 1987.
Vegamálastjóri.
r
GoldStor
AUKA SJONVARP
SÍMI 29800 SKIPHOLTI 19
14" GoldStar CBS-4341
litsjónvarp og
verðið er aóeins
22.900,-kr stgr.
eða
24.976,- kr afb.
útborgun 8.000,-kr og
eftirstöðvar á 6 mán.
eða
Eurokredit 0 kr. útborgun
og eftirstöðvar á 11
mán.
SAAB UMBOOIÐ
BíJdshöfða 16 - Simar 681630 og 83104
Seljum ídag
; ú*
Saab 900 GLE árg. 1982, 4ra
dyra, sjálfskiptur, vökvastýri,
litað gler o.fl., litur silver,
ekinn 88 þús. km, útvarp/
segulband. Verð kr. 390.000.
Saab 900 GLE árg. 1983, 4ra
dyra, beinskiptur, 5 gíra, vökva-
stýri, litað gler o.fl. útvarp/
segulband, ekinn 70 þús. km.
Verð kr. 460.000,-
Vantar þig bil?
Ef svo er höfum við einn góð-
an Saab 99 GL til sölu, 2ja
dyra, beinskiptan, 4 gira, árg.
1982, bláan að lit og ekinn
88 þús. km. Verð kr. 300.000.-
Saab 99 GL árg. 1979, 4ra
dyra, Ijósgrænn, beinskiptur,
4ra gira, ekinn 95 þús. km.
V
Opið laugardag kl. 12-16. Ath. breyttan opnunartíma.