Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987.
Klassíkin
Tíminn græðir
öll sár. Menn
eru ekki fyrr
búnir að
gleyma hrika-
legri útreið
Gleðibankans i
Bergen síðast-
liðið vor en
blásið er til
leiks á ný.
Annar árgang-
ur undan-
keppni söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva hófst í sjónvarp-
inu í gær og nær hápunkti í úrslita-
keppni mánudaginn 23. mars en þá
er góuþræll.
Varðandi keppnina í ár vekur
hvað mesta athygli að tveir kepp-
endanna hafa brugðið á það ráð
að innleiða klassík í Eurovision og
fengið lærðar söngkonur í sígildum
söng til að flytja lög sín. Er hér
um að ræða þær Höllu Margréti
Árnadóttur, er syngur lag Valgeirs
Guðjónssonar. „Hægt og hljótt1',
og Jóhönnu Linnet er syngur
„Sumarást" eftir Þorgeir Daníel
Hjaltason.
„Ég veit ekki hvernig í ósköpun-
um ég datt inn í þessa keppni. Ég
hafði aldrei hitt Valgeir Guðjóns-
son þegar hann hringdi í mig og
bað mig að syngja lagið. Þetta er
yndislegt lag,“ sagði Halla Margrét
í samtali við DV.
Halla Margrét Árnadóttir leggur
stund á klassískan söng í Söng-
skóla Reykjavíkur og er á þriðja
ári. Hún er 22 ára og vinnur á dag-
inn á skrifstofu hiá vörubílstjórafé-
laginu Þrótti.
Jóhanna Linnet er eilítið eldri,
eða 27 ára, ógift og barnlaus og
nemur lögfræði við Háskóla Is-
lands. Aðspurð um þátttöku sina í
Eurovision, sagði hún:
„Þetta var slysni. Reyndar hef ég
verið viðloðandi söng meira og
minna í 10 ár og lagt stund á klass-
ískan söng, bæð’ í Tónlistarskóla
Reykjavíkur og í Hollandi. Nú
sæki ég tíma í Nýja tónlistarskól-
anum."
Jóhanna Linnet var reyndar upp-
götvuð á dansgólfinu á Hótel Sögu.
Þar rak Magnús Kjartansson aug-
un í hana en Magnús útsetur
einmitt lagið „Sumarást" fyrir Þor-
geir Daníel. Jóhanna Linnet var
ráðin á staðnum.
„Ég hef nú stundum stolist til að
syngja dægurlög og meira segja
gengið svo langt að syngja þau inn
á plötu. Ég söng eitt lag á hljóm-
plötunni Jól alla daga er út kom
fyrir síðustu jól og svo hef ég sung-
ið blúslag eftir Didda fiðlu inn á
plötu. Annars hefur klassíkin verið
alls ráðandi."
Aðspurð um lagið, sem hún syng-
ur í Eurovision, sagði Jóhanna
Linnet: „Þetta er ákaflega rólegt
og rómantískt lag. Það er auðheyrt
að höfundurinn er ákaflega tilfinn-
ingasamur."
Ég leyni minni ást eftir Jóhann G.
Jóhannsson. Björgvin Halldórsson
syngur.
Noröurljos ettir Gunnar Pórðarson
og Ólaf Hauk Símonarson. Eyjólfur
Kristjánsson syngur.
h.eld.ur innreið sína
í Eurovision
Siguriíkur þrátt fyrir fíensu
öngvakeppni
_E V R Ó F» S K R A_
SJÓMVARPSS TÖÐVA
,SW'
*&$&&&&■ 'ss
9 %§§fir
* se«Sfe»s.sa*-
Hægt og hljótt eftir Valgeir Guð-
jónsson. Halla Margrét Árnadóttir
syngur.
Lífsdansinn eftir Geirmund Valtýs-
son og Hjálmar Jónsson. Björgvin
Halldórsson og Erna Gunnarsdótt-
ir syngja.
I blíðu og stríðu eftir Jóhann
Helgason. Höfundur syngur.
- - ' ' i • m
Lífið er lag eftir Gunnlaug Briem, Sofðu vært eftir Olaf Hauk Símon-
Friðrik Karlsson og Birgi Braga- arson. Sigrún Hjálmtýsdóttir
son. Eiríkur Hauksson syngur. syngur.
Aidrei ég gleymi eftir Axel Einars-
son og Jóhann G. Jóhannsson.
Erna Gunnarsdóttir syngur.
Þrátt fyrir alla klassíkina mun
Jóhanna halda áfram að syngja
dægurlög, hvort sem hún vinnur
Eurovision eða ekki: „Næst á dag-
skrá er að syngja slagara í upp-
færslu Islenska dansflokksins á
leikverkinu „Ich tanze mit dir" sem
frumsýnt verður 25 mars. Þar syng
ég með Agli Ólafssyni."
Engu skal spáð um úrslit keppn-
innar í sjónvarpssal 23. mars.
Ekkert er gefið í þeim efnum enda
dómarar dreifðir um allt land, á
öllum aldri, úr öllum kjördæmum
landsins. Tölfræðilega séð ætti Jó-
hann G. Jóhannsson að eiga mesta
möguleika á sigri. Hann á tvö lög
í keppninni og texta við það þriðja.
Reyndar lenti Jóhann í fyrsta sæti
í undankeppninni í fyrra í skoð-
anakönnun DV en það dugði
skammt i sjálfri úrslitakeppninni.
Ef hins vegar skal marka lesenda-
bréf dagblaðanna þá verður það
Björgvin Halldórsson sem verður
fulltrúi íslands í Eurovision í
Brussel 9. maí næstkomandi:
„Björgvin hefur góða rödd, gott
útlit og er viðmótsþýður," segja
lesendur og þeim ætti að geta orðið
að ósk sinni. Björgvin syngur þrjú
lög af tíu í undankeppninni.
Islensku Eurovisionlögin, sem
hljóma munu í eyrum landsmanna,
eru reyndar hálfgert tölvupopp.
Fáir hljóðfæraleikarar hafa komið
við sögu við upptöku þeirra því
allt er þetta leikið á tölvu af norska
arkitektinum Jon Kjell sem búsett-
ur hefur verið hér á landi undan-
farin ár. Þrautin getur aftur á móti
orðið þyngri þegar á hólminn verð-
ur komið í Brussel í sjálfa keppnina
í maí. Þar bíður nefnilega heil al-
vöruhljómsveit sem stjórna verður
með tónsprota og tilheyrandi. Eins
gott er að ekkert fari úrskeiðis því
hundruð milljóna manna eru vanar
að fylgjast með beinum útsending-
um af staðnum. 1 fyrra kom það í
hlut Gunnars Þórðarsonar að
stjórna hljómsveitinni er lék undir
hjá Icy-tríóinu og í viðtali við DV
frá þeim tíma sagðist hann vakna
upp í svitakófi um nætur á hótel-
herbergi sínu við tilhugsunina um
að hljómsveitin hefði gleymt nót-
unum. Sá ótti var ástæðulaus eins
og allir landsmenn komust að raun
um 3. maí í fyrra. Gleðibankinn
hafnaði hins vegar í sextánda sæti
af tuttugu en það er önnur saga.
Hrafn Gunnlaugsson lýsti því yfir
eftir að úrslit lágu fyrir í fyrra að
Islendingar myndu halda áfram
þátttöku í Eurovison þar til sigur
ynnist, sama hversu mörg ár það
tæki. Við skulum ekki útiloka þann
möguleika að íslendingar sigri í ár
og ekki yrði það lélegt fréttaefni
fyrir heimspressuna ef klassísk
söngkona ofan af íslandi sneri sér
alfarið að dægurlagasöng eftir slík-
an sigur. Þetta fer að verða
spennandi strax eftir helgina.
-EIR
Sumarást ettir Þorgeir D. Hjalta-
son og Iðunni Steinsdóttur.
Jóhanna Linnet syngur.
Mín þrá eftir Jóhann G. Jóhanns-
son. Björgvin Halldórsson syngur.