Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987.
71
foreldrar ekki treyst því að fram fari
uppeldisstarf það sem skyldi á leik-
skólanum. Það verður því ekkert val
af hálfu foreldranna. Þeir annað-
hvort neyðast til að vinna báðir, ef
brýn fjárhagsþörf er á, eða að velja
á milli þess að vera heima eða vinna
utan heimilis og hafa dagvist fyrir
börnin, sem þau eru ekki ánægð með.
Konur sem búa við þetta óöryggi
með aðhlynningu bama sinna fara
síður út á vinnumarkað í ábyrgðar-
stöðu.“
Smíðar skútu, skerpir
skauta ...
- Ef við snúum okkur nú að öðrum
áhugamálum ykkar þá hef ég heyrt,
Guðmundur, að þú sért búinn að
smíða skútu.
Guðmundur: „Já, það er rétt. Ég
er að leggja síðustu hönd á hana
núna. Ég byrjaði að smíða hana þeg-
ar ég var við nám í Svíþjóð. Eftir að
við fluttum heim til íslands fórum
við út tvö sumur með það fyrir aug-
um að klára skútuna. En það gekk
ekki svo að við fluttum hana til ís-
lands með Smyrli og héldum áfram
að vinna í henni hór.
Við ætluðum að sigla í fyrrasumar
en í fríinu okkar var rok og rigning
svo að ekkert varð úr því. En við
stefnum á að fara á henni hringinn
í kringum landið í sumar. Þessi skúta
er 32 fet og 8,8 tonn. Hún er með
þeim stærri sem smíðaðar hafa verið
hér á landi og er hún reyndar sú eina
hér á Seyðisfirði.
Að sjálfsögðu hef ég lagt mikla
vinnu í hana en það er ekkert mál
að smíða skútu ef maður bara kann
það - bara feikilega tímafrekt. Við
höfum vandað til hennar, t.d. eru
allar innréttingar úr tekkvið. Ekkert
próf þarf til þess að stjórna skútu en
þó hef ég tekið pungapróf, eitt ís-
lenskt og annað sænskt, svo við
ættum að vera í stakk búin að fara
í heimsreisu ef því er að skipta.
Við eigum kunningja sem búa í
svona skútu. Þau voru á Grænhöfða-
eyjum í fyrra, vissi ég, og núna ættu
þau vera á Kyrrahafi."
... býr til súpur, osta og grauta
- Guðmundur, þú ert áhugamaður
um matargerð, eldar þú eftir upp-
skriftum?
Guðmundur: „Nei, bara af fingrum
fram. Annars hef ég minnkað elda-
mennskuna töluvert núna, maður
hefur svo lítinn tíma. Ég gerði meira
að þessu áður fyrr. Þá héldum við
stundum matarveislur."
Kristín: „Ég var einmitt ófrísk þeg-
ar við fluttumst hingað, þá gerðum
við svolítið að því að bjóða fólki
heim í mat. Eftir að barnið fæddist
héldum við þessu áfram í dálítinn
tíma en svo datt það upp fyrir, sjálf-
sagt af því að yfirleitt þegar loksins
var sest að borðum fór annaðhvort
barnið að skæla eða Guðmundur var
kallaður út. Annars höfum við áhuga
á matargerð og leggjum mikið upp
úr því að hafa kjarngóðan og lystug-
an mat á boðstólum."
- Áfram með áhugamálin, ég sé að
þið eruð tónlistarunnendur því að
nóg eigið þið af plötunum og eitthvað
hljótið þið að lesa því að allar hillur
eru fullar af bókum.
Kristín: „Já, við lesum töluvert og
gerðum mikið að því að hlusta á tón-
list. Ég á nokkuð gott safn af bókum
um uppeldismál þar sem ég er fóstra.
Ég hef unnið hér við leikskólann,
bæði við sérkennslu og sem forstöðu-
kona um tíma. Ég hef verið að fikta
við að skrifa ýmiss konar barnaefni,
bæði bækur og fyrir myndbönd."
- Líka hefur heyrst, Guðmundur, að
þú sért „tölvufrík" og sért að vinna
stórt verkefni sem getur haft víðtæk
áhrif, er það rétt?
Guðmundur: „Jú, það er rétt að ég
hef haft áhuga á tölvum síðustu árin.
Ég fékk strax áhuga á að nota tölvu
til að skrá upplýsingar um sjúkling-
ana. Hófst ég handa með að semja
forrit til að gera þetta, en gekk ekki
vel. Nú er ég kominn í samvinnu um
þetta verkefni við fyrirtæki í Reykja-
vík sem heitir Hjarni sf. Hjarni
sérhæfir sig í forritum fyrir lækna
og við vinnum þarna tveir læknar
og tveir forritarar. Hvað forritið
varðar þá er það orðið mjög viðamik-
ið. Það geymir allar ypplýsingar sem
geyma þarf um sjúklinga. Eftir nokk-
ur ár verður væntanlega hætt að
nota vélritaðar upplýsingar og svona
forrit eingöngu notuð. Við erum að
vinna brautryðjendastarf hér á landi
því forritið er að öllu leyti samið hér
á landi og hentar vel íslenskum að-
stæðum. Það er í það minnsta eins
öflugt og það besta á markaðnum
erlendis og töluvert vingjarnlegra í
notkun. Forritið er ætlað til notkun-
ar á IBM PC líkar tölvur, en mun
síðar verða nothæft á fleiri tegundir.
Forritið er nú tilbúið og munum við
hefja markaðssetningu nú á næst-
unni.“
Langarekkisuður
- Jæja, Kristín, reiknarðu með því
að komast inn á þing?
Kristín: „Já, ég á alveg eins von á
því. I raun verð ég að reikna með
því. Það getur orðið svolítið mál því
að ef ég kemst að þá verðum við jafn-
vel að flytja suður sem okkur langar
alls ekki til. En það verður bara að
koma í ljós.“
Guðmundur: „Við „þingmanns-
frúrnar" verðum bara að taka því.
Annars kemur þetta allt í ljós í kosn-
ingunum og við erum ekkert að velta
okkur upp úr því núna, nógur verður
tíminn.“
- Þið drffið ykkur kannski bara í
heimsreisu?
Kristín: „Það var nú meiningin
með smíði skútunnar í upphafi. En
það er ekki svo gott á meðan börnin
eru lítil, nú, ef aðstæður breytast svo
í kosningunum þá bíður það bara
betri tíma.“
- Er það satt, Guðmundur, að þegar
þú varst að smíða skútuna og Seyð-
firðingar þurftu á læknishjálp að
halda utan hefðbundins vinnutíma
fóru þeir beint á verkstæðið til þín?
Guðmundur: „Jú, þeir komu þarna
sumir með sín vandamál að ein-
hverju leyti. Ég hef, jú. lent í því að
skrifa út lyfseðil á verkstæðinu."
- Er það rétt að þegar skipta þurfti
um vél í plastbát þá var komið til
þín og leitað aðstoðar?
Guðmundur: „Já, reyndar, annað-
hvort þurftu þeir að fá aðkeyptan
mann að sunnan eða notast við ráð-
leggingar læknisins á staðnum. Nú,
þeir völdu síðari kostinn."
-AI
Kristín Karlsdóttir á frægum æsingafundi á Reyðarfirði.
B
'H',1/111,:■'////>
'Illl/I ‘U/W ////»-
7//////' ..ll Ur'///.
,////////'■ .llll’-
Kosningahappdrættið
stendur straum af
kosningabaráttunni
Sjátfstæðismenn, greiðum heimsenda gíróseðla.
Skrifstofa happdrættisins í Valhöll er opin alla daga
kl 09.00-22.00.
DREGIÐ 24. APRÍL 1987
Stórglæsilegir vinningar að verðmæti kr. 3.998.160
3 fólksbifreiðir
34 glæsilegir ferðavinningar
20 húsbúnaðarvinningar
SJÁLFSTÆÐISMENN STÖNDUM SAMAN UM D-LISTANN