Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1987, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1987, Qupperneq 18
80 MIÐYIKUDAGUR 15. APRÍL 1987. Sérstæð sakamál Átta skot í myrkri dögum síðar fór hann að bera á hana lof fyrir dugnað í starfi og um svipað leyti fór hann að gefa henni gjafir. Patricia fór ekki leynt með gleði sína. Gjafimar leiddu til þess að Golombek bauð henni til hádegisverðar og fljót- lega þar á eftir stofnuðu þau til ástar- sambands. Golombek átti stórt einbýlishús í Hannover og innan tíðar fór Patricia að verða tíður næturgestur þar. Golom- bek bjó einn í húsinu með móður sinni. Stöðuhækkun gegn vissum skil- yrðum Golombek varð svo ástfanginn af Patriciu að hann gerði hana að bók- haldara í fyrirtæki sínu þótt móðir hans legðist mjög gegn því. Jafnframt lét Golombek Patriciu eftir að ákveða laun sín en skilyrðið fyrir því að hún mætti það var þó að hún svæfi hjá honum þegar hann fór lram á það við hana. Það fór ekki framhjá Martin Múller hvað var að gerast á milli Patriciu og Golombeks. Honum fannst hann hafa verið niðurlægður og reiði hans fór dagvaxandi. Patricia reyndi að róa hartn með þvi að segja honum að hún sæi í rauninni ekkert við Golombek og neitaði þvi að um nokkurt ástarsam- band við atvinnurekanda sinn væri að ræða. Skýrði hún næturheimsóknir sínar til hans með því að þau væru að vinna langt fram eftir á kvöldin og stundum lengur. Væri orsökin mikið álag og án þessarar eftirvinnu með hæfilegum leiðbeiningum og aðstoð tækist henni ekki að skila verki sínu í tæka tíð. Glöð og ánægð Patricia var glöð og ánægð með lífið. Þegar hún var heima hafði hún Martin Múller sem var trúr elskhugi og dóttur- inni góður faðir. Þegar hún var að heiman hafði hún svo Wemer Golom- bek sem lét bókstaílega allt eftir henni. Þegar samband Patriciu og Golom- beks hafði staðið í hálft ár var hún orðin svo vel efnuð að hún neyddist til þess að fela hluta íjárins fyrir skatta- yfirvöldunum og fór því að fjárfesta til þess að reyna að koma sér upp aðstöðu sem skýrt gæti á eðlilegan hátt tekjur hennar. Br hér var komið sögu var þolin- mæði Martins á þrötum. Hann trúði ekki einu orði af því sem Patricia sagði honum um vinnuálag og eftirvinnu og jafiiframt var hann sannfærður um að hún gæti ekki hafa orðið eins efriuð og raun bar vitni af launum sínum ein- um saman. Hann ákvað þvi að njósna um hana. Varð ekki mikils vísari fyrst en. . . Það kom Martin mjög á óvart, er hann fór að fylgjast með Patriciu, að hún virtist yfirleitt fara beint heim frá vinnu. Aðeins stöku sinnum virtist hún fara í innkaupaferð í bæinn áður en hún hélt heim á leið. Hann gat því ekki séð að neitt renndi stoðum undir þá sannfæringu hans að Patricia seldi Golombek blíðu sína. Þó var Martin ljóst að Patricia leyndi hann einhveiju. 21. desember 1982 héldu þau tvö til Frankfurt til þess að kaupa jólagjafir og fara á veitingahús. Þá fór mjög vel á með þeim eða eins og með nýtrúlofuðu fólki, sögðu þau síðar fyrir rétti. A heimleiðinni fór Martin þó að ganga á hana og reyndi hvað eftir ann- að að fá hana til að viðurkenna að eitthvað væri á milli hennar og Golom- beks. Hún fúllyrti þá að á milli þeirra væri ekkert ástarsamband en vildi þó ekki neita því að Golombek hefði gerst nærgöngull við hana. Henni hefði hins vegar mislíkað það því hún elskaði engan nema bamsföður sinn, Martin. Það var liðið að miðnætti er þau komu aftur til Hannover. Um tvö hundruð metra frá heimili þeirra var bensínstöð og ók Martin að henni til að fylla tankinnn. burt. Hann fór í nærliggjandi skóg og faldi þar tómt skothylkjahulstrið úr byssunni. Svo hlóð hann hana á ný og skaut einu skoti. Þetta gerði hann með það í huga að villa um fyrir starísfélögum sínum er rannsókn málsins hæfist því hann var ekki i neinum vafa um að hann yrði handtekinn. Að þvi kom lika von bráðar og þá hélt Martin því fram að hann hefði aðeins skotið einu skoti í bijóst Golom- beks og hefði það reyndar verið slysa- skot. Hvaðan hinar kúlumar hefðu komið gæti hann ekki upplýst. Játningin Duglegur veijandi kom í veg fyrir að Martin Muller fengi meira en átta og hálfs árs fangelsi því talið var að um líkamsárás, sem leitt hefði til dauða, hefði verið að ræða en ekki morð að yfirlögðu ráði. Tveimur árum síðar, er Martin var í leyfi frá fangelsinu, sá hann af tilviljun móður Golombeks, en hún var þá orðin 73 ára. Þá fékk hann svo mikið sam- viskubit að hann fór inn í skóginn, sótti tóma skothylkjahulstrið, gaf sig á ný fram við lögregluna og sagði allt af létta. „Ég drap Golombek að yfirlögðu ráði,“ sagði hann. „Og hér er sönnunar- gagnið." Svo rétti hann fram hylkið. Játningin leiddi til þess að Martin Múller fékk annan og þyngri dóm en með því að leysa frá skjóðunni létti hann á samvisku sinni og batt enda á vangaveltumar um hvemig Wemer Golombek hefði í rauninni týnt lífinu. Málið komst því enn á forsíður dag- blaða i Vestur-Þýskalandi og því beindist athyglin enn einu sinni að konunni sem hafði komið svo mjög við sögu þess. Fær atvinnuleysisbætur og. . . Patricia Heimberger býr nú í Stein- heim skammt fyrir utan Hannover og það hefúr orðið mikil breyting á lifi hennar. Konan, sem var eitt sinn svo ákveðin í því að njóta alls þess besta sem lífið hefúr upp á að bjóða, verður nú að láta sér nægja atvinnuleysisstyrk. Þó hefur hún stundum af því nokkrar tekj- ur að sýna sig nakta. Sú stefiia sem hún tók kostaði at- vinnurekanda hennar lífið og manninn sem hún hafði átt bam með og sagðist í rauninni elska þrettán og hálft ár á bak við lás og slá. Síðasta myndin sem tekin var af Wem- er Golombek. Patricia Heimberger var tuttugu og fjögurra ára og vissi vel að karlmenn litu hana margir löngunaraugum. Munaður og peningar vom henni meira virði í lífinu en flest annað og þvi greip hún til þess þegar bamsfaðir hennar gat ekki fullnægt þörfum henn- ar að selja sig milljónamæringi. Líf í munaði Líf fékk skyndilegan endi síðla nætur er átta skothvellir rufu næturkyrrðina. Hún haíði um alllangt skeið átt sér elskhuga, annan en milljónamæringinn sem áður getur. Hann var þijátíu og sex ára, hét Martin Múller og var lög- reglumaður i Vestur-Þýskalandi þar sem atburðir þessir gerðust árið 1982. Múller hafði komist að sambandi Patriciu, sem var reyndar bamsmóðir hans, og milljónamæringsins. Hann var fjömtíu og fimm ára og hét Wemer Golombek. Hann var sömuleiðis at- vinnuveitandi Patriciu. Málið vakti mikla athygli í sambandslýðveldinu og komst hvað eftir annað á forsíður blaða, síðast tveimur árum eftir að Wemer Golombek týndi lífinu en þá kom Martin Múller fyrir rétt í annað sinn, sakaður um morðið á honum. Réttarhöldin Fyrri réttarhöldin hófust strax árið 1982 er Martin Múller var ákærður fyrir að hafa skotið manninn sem hafði keypt blíðu konunnar sem Múller var svo hrifinn af. Þeim lauk með því að hann var sekur fúndinn um að hafa valdið dauða Golombeks en málinu var svo áfiýjað. Fyrri dómurinn hafði kveð- ið á um átta og hálfs árs fangelsisvist. Við síðari réttarhöldin, sem lauk 17. desember 1984, komst hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að rétt væri að þyngja dóminn um fimm ár svo lokadómurinn var á þá leið að Martin Múller skyldi sitja inni í þrettán og hálft ár. Til grundvallar þessum dómi lá ný játning sakbomingsins en hún leiddi til þess að hann var talinn hafa framið glæpinn að yfirlögðu ráði. Tældi atvinnurekandann Martin Múller var ákaflega ástfang- inn af Patriciu Heimberger. Hann vildi þó ekki kvænast henni og breytti það engu fyrir hann þótt Patricia yrði ólétt og fæddi síðan dóttur sem gefið var nafnið Rebekka. Patriciu fannst lífið með lögreglumanninum heldur fábrot- ið því laun hans vom lág en draumur hennar var sá að geta veitt sér flestar lystisemdir lífsins og að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af peningaskorti. Þar kom að Patricia fékk starf á skrif- stofu Wemers Golombek. Ekki leið á löngu þar til hún fór að gefa honum hýrt auga. Golombek tók vel eftir því. Hann var tuttugu árum eldri en hún og átti nóg af peningum. Nokkrum Patricia Heimberger. Allt í einu kom hann auga á Golom- bek. „Er þetta ekki hann vinur þinn sem var að leita á þig?“ spurði hann. Sorgarleikur Martin ók að íbúðinni og þar fór Patricia úr bílnum. Svo ók hann til Golombeks, rauk út úr bílnum og réðst á manninn sem var þama á kvöld- göngu. Múller missti alveg stjóm á sér á þessari stundu og hrópaði hátt að hann skyldi gera „hakkað kjöt“ úr Golombek léti hann ekki Patriciu í friði. Þá fékk Martin þá staðfestingu sem hann hafði svo lengi beðið eftir. Golombek sagði honum að hann teldi Patriciu sína. Allt í einu heyrðust átta skothvellir í náttmyrkrinu. Martin Múller hafði tekið fram lögregluskammbyssuna sína af Walthergerð með hlaupvíddinni 7.65. Flest skotanna hæfðu Golombek í bijóstið og hann hneig niður örendur. Ók á brott Martin hljóp nú upp í bíl sinn og ók

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.