Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Side 5
LAUGARDAGUR 9. MAI 1987.
5
Fréttir
Tæknimaður
nær dottinn
Kristján Bemburg, DV, Belgíu;
Tæknimenn eru á fullu við að vinna
við ljós og annað á meðan flytjendur
eru að æfa. Oft verða þeir að klifra
hátt upp í stiga og hanga í loftum.
Þegar Lillian StPierre, belgíski
keppandinn, var að flytja sitt lag
heyrðist allt í einu hrópað: hjálp! hjálp!
Hafði þá tæknimaður dottið af palli
sem hékk tólf metra fyrir ofan sviðið.
Svo mikill taugakippur kom í þá sem
ætluðu að koma með stiga og hjálpa
manngreyinu, sem hékk í pallinum,
niður að allt fór í handaskolum og það
tók allt of langan tíma. Að lokum gat
tæknimaðurinn prílað upp sjálfur. Var
óneitanlega spennandi að horfa á
þetta.
'*■**■/' -' ' ■■
Halla Margrét með íslensku sendiherrajónunum í Brussel, Einari Benediktssyni og Elsu Pétursdóttur.
DV-mynd De Cauwer
Johnny Logan, fulltrúi írlands í söngvakeppninni, ræðir við Belgíukonung í
veislu sem konungur hélt þátttakendum keppninnar. DV-mynd De Cauwer
Halla Margrét vekur
hrífningu blaðamanna
Kristján Bemburg, DV, Briissel:
1 belgísku blöðunum voru í morgun
birtar myndir og viðtöl við Höllu og
Valgeir. Var greinilegt áð Halla vakti
mikla hrifningu blaðamanna sem
einnig fóru lofsamlegum orðum um
lagið.
Gazet Van Antwerp, stærsta blaðið
í Antwerpen, sem er höfuðborg flæm-
ingja, birtir í dag stóra mynd af Höllu
á forsíðu. í myndatexta segir: „ísland
er með fallegasta keppandann." Síðan
er vísað á bls. 3 en þar stendur í stór-
um fyrirsögnum: „Kemur þetta úr
ævintýri? Er hún draumahafmeyjan?"
Aðeins eitt lag hefur vakið áhuga
blaðamanns okkar og er það Hægt og
hljótt, segir blaðið sem birtir síðan
viðtal og tvær myndir af Höllu.
„Islenska snjóprinsessan er með kalt
norðurblóð f æðum en er þú ræðir við
hana er hún mjög heit innst inni við
hjartað."
Het Nuesblad birtir myndir af Höllu
og Valgeiri i dag þar sem þau fá af-
henta silfurkassettu.
I gær afhenti hljómplötuútgáfan
Kontinental Konsult a.s. Hölla silfur-
kassettu. Tilefnið var að plata með
söng Höllu ásamt fleiri lögum úr
keppninni hefur nú selst í meira en
150.000 eintökum.
Við það tækifæri var haldinn blaða-
mannafundur í Hotel President á
vegum Jóns Ólafssonar í Skífunni.
Fundminn fór mjög vel fram en á
hann kom mikill fjöldi blaðamanna
og einnig kom Johnny Logan í heim-
sókn.
Síðan var farið í íslenska sendiráðið
og tók íslenski sendiheirann á móti
hópnum. Ekki gátu Halla og Valli
stoppað lengi hjá honum þar sem þau
þurftu að mæta í kvöldboð sem haldið
var í kastalanum van Genval. Halla
virkaði hálfþreytt eftir allt umstangið
síðustu vikurnar.
-PLP
BÍLASÝNING
og sunnudag
Bestu
bílakaupin
ídag!
Og auk bílanna verða til sýnis og sölu
mikið úrval aukahluta á allartegundir
Lada bílanna.
Bíla- og vélsleðasalan verður opin.
Komið, þiggið veitingar og njótið dags-
ins með okkur.
Opid alla helgina frá kl. 10—17.
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur