Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987. Frjálst, óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð í lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Flækjur í stjórnarmyndun Flækjurnar eru margar við tilraunir til stjórnar- myndunar, sem nú eru hafnar. Persónulegur metnaður forystumanna skiptir miklu. Líklegt er, að stjórnar- myndun dragist eitthvað á langinn. Ýmsir þingmenn telja, að lítið gerist í þessum mánuði. Því veldur meðal annars, að flokksformenn verða að láta sinn flokk koma sem bezt út. Ekki verður aðeins barizt um ráðherra- stóla, heldur verður hver formaður að tryggja, að kjósendur flokksins sætti sig sæmilega við þá bræðslu, sem út kemur. Verði samið við ólíkan flokk, verður vandinn þeim mun meiri. Þá er flokkunum mikilvæg- ast, að landsmenn verði orðnir þreyttir á stjórnarkreppu og uni nýju ríkisstjórninni sem þrautalendingu. Steingfmur Hermannsson hefur síðustu ár getað bað- að sig í sviðsljósinu. Fundur helztu leiðtoga heims var notaður til að auglýsa Steingrím fyrir kosningarnar. Steingrímur sér, að þetta borgar sig. Stærstur hluti þjóð- arinnar vill einnig, að hann verði áfram forsætisráð- herra. Steingrímur vann mikinn persónulegan kosningasigur á Reykjanesi. Því vill Steingrímur Her- mannsson verða áfram forsætisráðherra. Hann hyggst næst rífa Framsóknarflokkinn upp úr lægðinni í Reykja- vík. Þetta þýðir, að formanni Framsóknarflokksins er kappsmál að halda áfram að stýra þjóðarskútunni. Það skipti Þorstein Pálsson miklu, verði hann forsæt- isráðherra. Þorsteinn liggur undir ámæli stórs hluta flokksmanna sinna. Hann er af mörgum sakaður um að hafa rústað Sjálfstæðisflokkinn, verið við stjórn, þegar flokkurinn beið mesta ósigur sögu sinnar. Kröfur eru uppi um, að Þorsteinn taki afleiðingum gerða sinna og segi af sér formennsku. Þær kröfur þagna ekki í bráð. Þorsteinn hugsar því um dóm sögunnar. Auðvitað vill hann ekki, ungur maður, verða að víkja með slíka skömm á herðunum. Verði Þorsteinn hins vegar forsæt- isráðherra í þokkalega farsælli stjórn, gæti hann endurreist álit sitt, þegar árin líða. Jón Baldvin Hannibalsson er metnaðargjarn. Einnig hann vildi helzt verða forsætisráðherra, að minnsta kosti ráðherra. Hann var eftir kosningarnar fyrstur á ferð með þreifingar um stjórnarmyndun. Jóni er mikið kappsmál, að Alþýðuflokkurinn komist í stjórn eftir að hafa verið utangarðs sfðan 1980. Þess vegna vinnur Jón svo mjög að myndun stjórnar. Hann hafði fyrir kosning- ar stefnt að viðreisnarstjórn en virðist nú vilja reyna nánast hvað sem er. Albert Guðmundsson þarf að verða ráðherra til að endurheimta heiður sinn, sem beið hnekki, þegar Al- bert var neyddur til að segja af sér ráðherradómi. Borgaraflokkurinn var stofnaður utan um Albert til þess að trýggja heiður hans í íslandssögunni. Það yrði, að þeirra dómi, auðvitað bezt gert með því, að Albert yrði fljótlega ráðherra að nýju. Svavar Gestsson gerir varla miklar kröfur. En mörg- um alþýðubandalagsmönnum finnst einna skást að setjast hið fyrsta í ríkisstjórn. Þeir sjá, að við svo búið má ekki standa, eigi flokkurnn að halda áfram Kvennalistinn er óskrifað blað. Flestir telja nú ólík- legt, að konurnar setjist 1 næstu stjórn. Þó hlýtur það að freista eftir alla athyglina heima og erlendis. Metnaður margra hnígur því til þátttöku í stjórn. En fleiri en formennirnir eru um hituna. Spilið næstu vikur verður afar fróðlegt. Haukur Helgason. Þegar allir sigra Það hefur vafist fyrir mörgum, þar á meðal undirrituðum, hvemig á þvi stendur að íslendingar em hamingj- usamari en aðrar þjóðir. Þetta er þó niðurstaða hávísindalegrar athug- unar sem félagsvísindadeild Háskól- ans lét gera um árið. Samkvæmt könnuninni em íslendingar ýmist hamingjusamir eða mjög hamingju- samir með lífið og tilveruna og er síðamefndi hópurinn stærri og meira áberandi ef nokkuð er. Efasemdamenn og nöldurseggir hafa haft á orði að þessi niðurstaða sé undarleg ef tillit er tekið til þess að sjálfsmorðshlutfall á fslandi er með því hærra sem þekkist í heimin- um og að stór hluti launafólks situr uppi með gjaldfallna víxla og íbúð- ina undir hamrinum. Hækkandi kaupmáttur reikni- meistaranna Með þetta í huga hafa ýmsir leitað ástæðunnar logándi ljósi og hafa margir komið með athyglisverðar kenningar. Nú eiga launamenn til dæmis að vera gríðarlega hamingju- samir þar sem kaupmáttur launa þeirra á að hafa hækkað einhver býsn. Launamennimir trúa stjóm- málamönnunum sínum eins og fyrri daginn og kaupa sér bíla og panta utanlandsferðir fyrir kaupmáttar- aukninguna sem hefur aðallega verið að finna í útreikningum en minna í buddum. Efasemdamennimir leiðinlegu hafa bent á að tilhneiging íslendinga til hamingju hafi opinberast áður en reiknimeistarar uppgötvuðu að þrátt fyrir gúmmilykt af tékkheftum og tómar buddur hefði launafólk það bara helvíti gott og þyrfti bara ekk- ert að kvarta þó íbúðimar þeirra færu á uppboð. Þar væri einhveiju öðm um að kenna en lágum launum því tölvumar sýndu eindregna kaup- máttaraukningu. Nú er undirritaður hreint enginn bölsýnismaður en þó hefúr hann líkt og aðrir verið að leita að ástæðunum fyrir taumlausri hamingju landans. Nú á dögunum rann upp fyrir mér ljós, skýringin eða hluti skýringar á því hvers vegna hýrudregið fámenn- í talfæri Axel Ammendrup um eða hálfur þingflokkurinn hyrfi á braut. Bandalag jafhaðarmanna fékk innan við hálft prósent atkvæða en forráðamönnum flokksins fannst mikið hafa áunnist þar sem athygli hefði verið vakin á nauðsyn þess að kjósa forsætisráðherra beint. Það hefði hvort eð er aldrei verið ætlun- in að koma manni á þing. Flokkurinn stærri en Stefán Flokkur mannsins fékk fina kosn- ingu og er ekki lengur minnsti flokkur landsins. Flokkurinn fékk til dæmis fleiri atkvæði en Stefán Valgeirsson sem þó komst á þing. Þegar litið er á kosninganiðurstöður læðist þó að manni sá gmnur að frambjóðendumir sjálfir hafi ekki allir kosið flokkinn, hvað þá makar þeirra eða skyldmenni. Sjálfstæðismenn telja brotthvarf hálfs þingflokksins vera Albert Guð- mundssyni og fólskulegu framboði hans að kenna. í rauninni sé því ekki um tap að ræða, öllu frekar spurðu hann um ástæðumar fyrir því að hann náði ekki sæti á þingi. Hann svaraði stutt og laggott: „Astæðan er einfaldlega sú að ég fékk ekki nógu mörg atkvæði." Hann sá síðan að sér og brá fyrir sig bjartsýninni og sagði kosnin- gaúrslitin engu að síður sigur fyrir flokkinn. Þrátt fyrir að flokkurinn hefði misst mann í kosningunum væri hann þó búinn að ná því marki að vera stærsti flokkur kjördæmis- ins. Já, bjartsýnin lætur ekki að sér hæða í stjómmálunum frekar en á öðrum stöðum. Sjónvarpsstöðvamar tvær gerðu einnig út á stjómmálin í kosningunum sælu. Báðar stöðv- amar lögðu mikið undir og vönduðu kosningasjónvarp sitt sem mest mátti. Það var örugglega enginn svikinn af því að sitja fyrir framan kassann þessa nótt og má þá einu gilda á hvora stöðina var horft. Þeg- ar fréttastjórar stöðvanna vom spurðir eftir kosningahasarinn hvor stöðin hefði nú orðið ofan á í sam- keppninni um áhorfendur, brá svo við að báðir þóttust hafa orðið ofan á og væri um mjög marktækan mun að ræða sem enginn viti borinn maður gæti borið brigður á. Máli sínu til stuðnings lögðu fréttastjór- amir fram niðurstöður ítarlegra skoðanakannana sem báðar voru unnar af sama aðilanum fyrir hvora stöðina um sig. Hnípin þjóð í vanda Þama kemur enn fram að bjart- sýnin fleytir landanum yfir margt skerið. Þó svo að útlendingar, sem koma til landsins og kanna verðlag- ið og launakjör landsmanna, haldi að hér hljóti að búa hnípin þjóð í vanda þá vitum við sem hér búum betur. Hamingjan beinlínis tröllríð- ur þessari þjóð. Fyrir utan bjartsýnina er kannski annað atriði sem hressir upp á ham- ingjuna í skoðanakönnunum. Undirritaður varð þess heiðurs að- njótandi á dögunum að vera beðinn um að taka þátt í skoðanakönnun félagsvísindadeildar. Ég hafði lagt .mig eftir vinnu og var vakinn upp Sjálfstæðismenn fagna sigri á kosninganótt. Hálfur þingflokkurinn féll en samt skín hamingjan ur hverju andliti. ið hér við Dumbshaf, norðan marka hins byggilega heims, er jafn yfir- máta hamingjusamt og það er. Islendingar eru hreinlega bjartsýnni en lög leyfa! Lýðræðið hvílt í fjögur ár Fyrir guðs miskunn eru þingkosn- ingamar afstaðnar og við þurfúm ekki lengur að heyra hvað Yoko Ono Lennon hefur að segja um stefnu- fastar og traustar rauðar rósir á réttri leið. Niðurstöður kosninganna liggja fyrir og nú á aðeins eftir að velja stjóm og ekki þarf að hafa meiri áhyggjur af lýðræðinu næstu Qögur árin. Þegar níu flokkar berjast um hylli kjósenda, þar af fjórir nýir flokkar, mætti halda að í slíkum kosningum væm einhverjir sigurvegarar og að einhverjir bæm skarðan hlut frá borði. Því var þó ekki að heilsa í þessum kosningum. Út úr kosning- unum komu allir sigurvegarar og mátti þá einu gilda hvort flokkar bættu við sig einhverjum þingmönn- sigur því nú sé flokkurinn á réttri leið. Alþýðubandalagið tapaði nokkr- um atkvæðum en það er alfarið vegna þess að Kvennalistinn réri á sömu atkvæðamið og Alþýðubanda- lagið og hirti af þeim mörg atkvæði með því lævíslega bragði. Svavar Gestsson, formaður flokksins, var hins vegar svo mikill félagsskítur að halda því fram að ef til vill og kannski þyrfti hugsanlega að gera einhverjar breytingar á stefnu og störfum flokksins með tilliti til fall- andi gengis á atkvæðamarkaðnum. Fyrir þessar vanhugsuðu athuga- semdir hefúr formaðurinn að sjálf- sögðu fengið miklar ákúrur og em uppi háværar raddir innan flokksins um að höfundur þessa svartsýnis- rauss eigi fortakslaust að láta af embætti. Ástæðan er einfaldlega sú... Einn góður fyrrverandi þingmað- ur, sem féll naumlega á Vesturlandi, dró hvergi undan þegar blaðamenn með þessu símtali, sem tók hátt í klukkutíma. Syfjaður, þreyttur og skapillur reyndi ég að svara öllum spumingum eftir bestu getu og sam- visku og var meðal annars komið inn á nokkur mjög persónuleg málefni. Þetta spurningaflóð vakti nokkra athygli heimilisfólks, þeirra á meðal eiginkonu og tengdamóður sem var i heimsókn. Þær fylgdust með graut- fúlum og syfjulegum heimilisfoðum- um svara ólíklegustu spumingum og virtist hann um tíma vera að því kominn að gleypa símann af einni saman geðvonsku. Ertu hamingjusamur? En hverju gat ég svarað þegar lokaspumingin kom: Ertu mjög hamingjusamur, hamingjusamur, lítið hamingjusamur eða ekki ham- ingjusamur? Ég gleymdi geðvons- kunni, fjárhagsáhyggj unum, kjamorkusprengjunni og vondu stjómmálamönnunum, brosti til konunnar og sagði: Mjög hamingju- samur! -ATA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.