Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Side 11
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987. 11 Hvað gerðist - og af hverju? Löngum hafa stjómmálaforingjar verið lagnir við að útskýra eftir kosningar að úrslit þeirra hafi verið sigur fyrir sinn flokk. Jafnvel þótt atkvæðamagn minnki og þingmönn- um fækki hafa þeir verið manna fyrstir til að telja kjósendum trú um að tapið hafi reynst sigur, varnarsig- ur ef ekki vill betur, og réttlætt niðurstöður með tölfræðilegum og pólitískum formúlum. I þetta skiptið eru slíkar sjálfsblfekkingar útilokað- ar enda hafa talsmenn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðubandalags viðm-kennt ósigurinn og lýst von- brigðum sínum. Annað er heldur ekki hægt. Báðir flokkamir guldu meira afhroð en áður hefur þekkst í sögu þeirra. Sjálfstæðisflokkurinn fer nú í fyrsta skipti niður fyrir þrjá- tíu prósent fylgi og hefur ekki í annan tíma séð það svartara. En meðan Alþýðubandalagið hef- ur þegar í stað .hafið opinberar umræður um orsakir ósigursins og nefnt til helstu skýringar hefúr lítið sem ekkert farið fyrir slíkum umræð- um meðal sjálfstæðismanna, að minnsta kosti ekki í fjölmiðlum né heldur innan flokksstofnana hans. Skýringin kann að vera sú að þessa dagana standa yfir stjómarmyndun- arviðræður þar sem flokkurinn kemur óhjákvæmilega við sögu og það er engum til góðs að upphefja gagnrýni, árásir eða naflaskoðun meðan flokksforystan spilar úr þeim spilmn sem eftir em á hendinni. Þau em heldur ekki mörg og trompin fá. Undiraldan Margt er þó skrafað í tveggja manna tali og augljósasta og nær- tækasta skýringin er auðvitað framboð Borgaraflokksins. Hann heggur fyrst og fremst inn í raðir kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Þetta liggur í augum uppi. Hins vegar er það sömuleiðis ljóst að Borgara- flokkurinn er ekki einhlít skýring. í kjördæmum eins og Austurlandi og Norðurlandi eystra náði Borgara- flokkurinn engri fótfestu en samt tapaði Sjálfstæðisflokkurinn miklu atkvæðamagni í báðum kjördæmum. Og auðvitað fá ný og framandi fram- boð Borgaraflokksins í fleiri kjör- dæmum ekki umtalsvert fylgi nema vegna þess að kjósendur eru óá- nægðir með gömlu framboðin. Það er i rauninni sérstök ástæða til að vara við þeirri almennu skoð- un i innsta hring Sjálfstæðisflokks- ins að tap flokksins verði rakið að öllu levti til þess að Borgaraflokkur- inn hafi komið í veg fyrir góða kosningu Sjálfstæðisflokksins. Það má miklu fremur halda því fram að Borgaraflokkurinn hafi komið í veg fyrir stórsigur Alþýðuflokksins eða ennþá stærri sigur Kvennalistans. Sannleikurinn er nefnilega sá að sú óánægja, sem undir kraumaði. og sú undiraida, sem hneig'að landi í kosn- ingunum, hefði skolað atkvæðunum á fjörur einhven-a annarra en Sjálf- stæðisflokksins. Það var eitthvað að í Sjálfstæðisflokknum, eitthvað sem fældi fólkið frá og gaf því tilefni til að yfirgefa hann. Þetta verða menn að gera sér ljóst vegna þess að Borg- araflokkurinn nær ekki slíkum árangri nema af þeirri ástæðu að skilyrðin eru fyrir hendi. Ef menn geta fiskað í gruggugu vatni þá er það vegna þess að vatnið er grugg- ugt, ekki satt? Sterk málefnastaða Nú skal það tekið fram að málefna- staða Sjálfstæðisflokksins var að mörgu leyti góð þegar kosningabar- áttan hófst. Margvísleg framfara- spor hafa verið stigin. Árangur hefiu' náðst í efnahags- og atvinhumálum. Fijálsræði er i sókn á mörgum svið- um og pólitískir landvinningar em allir til hægri. Vinstri stefna. sósíal- ismi, á ekki upp á pallborðið hjá ungu kynslóðinni og í heild sinni lifum við i borgaralegu millistéttar- samfélagi sem er heppilegasti jai'ð- vegur sjálfstæðisstefnunnar sem hugsast getur. Flokkurinn var einn- ig búinn að ná sér að mestu eftir hatrönmi átök í tengslum við ríkis- stjórn Gunnars heitins Thoroddsens; ný forysta leiddi flokkinn í fyrsta skipti til kosninga. Þátttaka Sjálf- stæðisfiokksins í ríkisstjórn hefur að ýmsu leyti skilað árangri sem jafna má við viðreisnarárin. Allt gaf þetta vísbendingu um að gengi Sjálfstæðisflokksins vrði gott. Staðan var jafnvel þannig að ef allt væri með felldu átti flokkurinn að geta staðið af sér sprengiframboð eins manns sem hafði sjálfur verið í vörn vegna Hafskips- og Utvegs- bankamálsins og flokkurinn hafði sjálfur talið óheppilegan í ráðherra- stól. Málið er bara að það er ekki allt með felldu í Sjálfstæðisflokkn- um. Það er ekki í mínu valdi að kveða upp úr með annmarkana enda ekki eins eða neins að þvkjast vita allt um innanmein Sjálfstæðisflokksins. Til þess er hann of stór og of marg- þættur og vegir stjórnmálanna eru sem betur fer órannsakanlegir. Ellert B. Schram Sumir kunna að nefna einstök mál: Borgarspítalavitleysima. Sturlumálið. kjai'asanminga. hús- næðisvandann. bvggðamál. kvó- tann. embættisfærslu. hnevkslismál hvers konar og svo ft-amvegis og svo framvegis. Þetta kann vitaskuld allt að hafa sín álunf en að mínu mati verður að leita skýringanna ennþá dýpra. einhvers staðar í þeim tengsl- imi sem verða að vera milli flokks og frambjóðanda annars vegar og kjósenda hins vegar. Sumir kalla þetta jarðsamband. aðrirhinn mann- lega þátt stjórhmálanna sem lýsirsér i svipmóti. andliti eða snertingu flokksins við hinn venjulega kiós- anda frá degi til dags grasrótina. Fylgi eftir pöntun Einhvem veginn hefúr maðtu' á tilfinningunni að Sjálfstæðisflokk- urinn hafi einangrast í sínum eigin heimi; tali ekki tungumálið sem fólk- ið skilur. Jafnvel þótt hann sé að gera góða hluti hefur hommi ekki tekist að fá það talið sér til tekna. kannski af því að það er talið svo sjálfsagt, kannski af því að fólk er orðið góðu vant og vill meira. Það þekkjum við úr eigin lífi. Dekurbarn- ið er aldrei ánægt. Stórir flokkar hafa tilhneigingu til að verða að stofnunum lifiausimi. vélrænum stofnummi þar sem fylgið er á sínimi stað úti í bæ og kemur eftir pöntun. Því er ekki sinnt vegna þess að flokkurinn er öruggur með sig. ætlast til að kjósendm-nir skili sér þegar kallað er. Flokkurinn telur sig eiga þetta fylgi. hafi alltaf átt og muni alltaf eiga það. Þess vegna reka menn upp stór augu þegar þess- ir sömu kjósendur dirfast að hlaupa eitthvað annað. Það er ekkert að hjá flokknum. Það er þveit á móti eitthvað að hiá þessu brenglaða fólki. Mér heyrist á ýmsum sjálfstæðis- mönmmi að þeir telji það sjálfgefið að þetta fólk hafi vaknað með timb- urmenn eftir kosningamai' og ef ekki .eigi beinlínis að hefna sín á Albertsliðinu þá skuli að minnsta kosti láta það éta það sem úti fiýs þangað til það kemur skríðandi aftur á fjónun fótuni og biður imi gott veðm- í Sjálfstæðisflokknum - með öðnmi orðmn. enn og aftur: mistökin liggja hjá kjósendumun. ekki flokkmmi. Mikill dæmalaus misskilningm- er þetta. Þeir tímar ein mnnir upp að Sjálfstæðisflokkurinn verðiu' að hafa fyrir fylgi sínu eins og aðrir flokkar. Hann verður að sinna því og skilja það. Hann verður að kom- ast í jai'ðsamband. Fólkið. sem hvarf frá Sjálfstæðisflokknum í þessmn kosningiun. fór vegna þess að eitt- hvað i fari flokksins fældi það burt. Málflutningur fór fyrir ofan garð og neðan. foiystan var klisiuð. við- brögðin hofmóðug eða slió. tilfinn- ingin fyrir manneskjunni kaldlynd. Án jarðsambands Það er athyglisvert í þessu sam- bandi að þær sögur bárust frá kosningaferðalögum fi'ambjóðenda Sjálfstæðisflokksins að þeir fyndu hvergi þetta svokallaða fylgi Borg- araflokksins. Þeir urðu ekki varir við flótta úr herbúðunum. enga straiuna sem bentu til þess að Sjálf- stæðisflokkurinn tapaði neinu sem næmi. í Revkjavík gældu þeir við það á kosningaskrifstofunum að nýtt fólk nnindi þyrpast í flokkinn í til- efhi af klofningmun og bæta upp fylgistapið og vel það. Niðui'staðan varð önnur eins og öllum er kunn- ugt. Nænú lagi er að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi ekki unnið eitt einasta atkvæði í kosningabarátt- unni úr hópi hinna óákveðnu og manni sýnist af kosningatölum að þau tuttugu og sjö prósent, sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk. sé berstrípað flokksfylgið og ekki gramm í viðbót. Hvað segir þetta okkur? -Jú. það segir okkmvað frambjóðendm'. kosn- ingavélin. þessi siálfvirka maskína sem sitm- á kosningakontómnmn dagana fyrir kjördag. sé í engiú snertingu við kjósandann. Það ligg- m' við að þeir komi af annarri plánetu til að safna atkvæðmn einn dag en hverfi síðan til síns heima aðra virka daga kiörtímabilsins. Ef flokkurinn væri í jarðsambandi hefði hann gert sér grein fyrir áfallinu áður en það skall yfir. Þá hefði hann lært og viðurkennt að það kann ekki góðri lukku að stýra að hundsa og vanrækja vini sína. stuðningsfólk sitt. stíga á litla manninn eða láta hún'ahrópin yfir sjálftmi sér berg- mála svo hátt að þau yfirgnæfi neyðarópin frá hinum sem ekki em í náðinni. Númer eitt, tvö og þrjú Ég var siálfstæðismaður fyrir kosningar og er sjálfstæðismaðm- eftir-kosningai'. Svo er mn fleiri. En nú er kominn upp að hliðinni á Siálf- stæðisflokknmn annar flokkur sem segist einnig staifa í anda siálfstæð- isstefnunnar. bara með ööriun blæbrigðmn. öðrum áherslmn. ann- ai's konar viðmóti. Fyrir þá sem bera hag sjálfstæðisstefnunnar fýrir brjósti hlýtiu' það að vera æskilegt keppikefli að þessir hópar geti sam- einast fyrr eða síðar. Þeir hafa sameiginlegar lífsskoðanir en það sem skilm- þá að í augnablikinu er afstaða þeiira til fólksins - eða fólks- ins til þeirra. Sjálfstæðisflokkurinn nálgast ekki þetta fólk nema með því að sýna því skilning. viðurkenna að áminningarinnar var þörf og iæra af mistökum sínum. Ef sami hof- móðurinn á að ríkia áfram. tillits- leysið gagnvai-t einstaklingnmn sem leitai' ásjár og íhaldssemi gagnvart breyttimi viðhorfiun í byggðamálum. jafnréttismálum og öðrum pólitísk- imi staðrevndmn þá kemur þetta fólk ekki aftur. hvort heldur Borgara- flokkurinn lifir eða deyr. Þá fer það bara eitthvað annað. Niðurstaða mín er því sú að númer eitt. tvö og þrjú sé að Sjálfstæðis- flokkurinn nái sáttum við þær þúsundir kjósenda sem hurfu frá flokknum i þessum kosningum. Og það gerist hvorki með hefndum né hótunum. Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.