Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1987, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987.
17
Egg-leikhúsinu komið fyrir í kassa til útflutnings. A myndinni eru Arni Ibsen, Gerla, Margrét Guttormsdóttir og
Viðar Eggertsson. DV-mynd Brynjar Gauti
Egg-leikhúsið í Brighton
Viðari Eggertssyni leikara og
Egg-leikhúsinu hans hefur verið boð-
ið að sýna á listahátíðinni sem nú
fer fram í Brighton á Englandi.
Viðar ætlar að sýna einleik sinn,
„Ekki ég ... heldur... “, 72 sinnum
á hátiðinni. Þessi einleikur er
óvenjulegur að því leyti að ekki að-
eins er leikarinn einn heldur fær
aðeins einn áhorfandi aðgang að
hverri sýningu. Viðar hefur sýnt
þetta verk áður á leiklistarhátíðum
erlendis við góðar undirtektir.
Á hátíðinni verða einnig sex sýn-
ingar á „Skjaldbakan kemst þangað
líka“ eftir Árna Ibsen.
Þema hátíðarinnar er norræn list
og hefur ýmsum listamönnum frá
Norðurlöndunum verið boðið til
leiks. Þar má til nefna Drottning-
holm-óperuna frá Svíþjóð sem sýnir
tvær af óperum Mozarts.
Egg-leikhúsið er það eina frá Norð-
urlöndum sem boðið er til hátíðar-
innar. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn
sem íslensku leikhúsi er boðið á há-
tíð í Englandi.
í för með Viðari eru Árni Ibsen,
Gerla, sem hannar leikmvnd og bún-
inga, Árni Baldvinsson ljósahönnuð-
ur og Margrét Guttormsdóttir
tæknimaður. Flugleiðir hafa styrkt
leikhúsið til fararinnar og einnig
ætlar menntamálaráðuneytið að
leggja til fé.
SVR AUGLÝSIR EFTIR
VAGNSTJÓRUM
til sumarafleysinga við akstur strætisvagna á tímabil-
inu júní/ágúst.
Umsækjendur eru beðnir að snúa sér sem fyrst til
eftirlitsmanna í stjórnstöð SVR að Hverfisgötu 115.
Strætisvagnar Reykjavíkur.
Hvaða kostur
er bestur?
lengi og eitt rakvélarblað.
VORLAUKAÚTSALA
30% afsláttur af
öllum vorlaukum.
Mæðradagurinn er á morgun.
Blómaúrvalið er í Garðshorni.
Gróórarstöóin
GARÐSHORN
SuðurfUíð 35 ♦ Fossvogi • Sími 40500