Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987.
Útlönd
Eitt likanna borið út úr skyndibitastaðnum í Fort Lauderdale.
- Simamynd Reuter
Þrír starfsmenn í
skyndibitastað myrtir
Þrír starfsmenn skvndibitastaðar í Fort Lauderdale i Flórída fimdust
myrtir á laugardagsmorgun, um það leyti er opna átti staðinn.
Ekki er vitað hver myrti starfsmennina, né heldiu- hvers vegna. Staðurinn
er einn af hamborgaraveitingastöðum keðjunnar Wendy’s.
í gær haföi lögreglunni ekki tekist að finna neinar vísbendingar i málinu.
Aliir hinir látnu voru þeldökkir.
Stuðningur við NATO minnkar
í skýrslu, sem send hefur verið ríkjum Atlantshafsbandalagsins, kemur
fram að árangur bandalagsins í að sannfæra almenning um að unnt sé að
koma í veg fyrir styrjöld milli stórveldanna hafi haft þá hliðarverkan að
stuðning'.ir aimennings við NATO hafi minnkað.
I skýrslunni segir ennfi-emur að stuðningui- við bandalagið fari einnig
minnkandi vegna þeirra jákvæðu viðhorfa gagnvart Sovétríkjunum sem
Mikhail Gorbatsjov hafi tekist að skapa með nýjvim stjómarháttum sínum
og opnara viðmóti gagnvart vestrænum þjóðum.
í niðurstöðum skýrslunnar segir að mikilvægt sé fyrir Vesturlönd að finna
leiðir til þess að meðhöndla tengslin milli austurs og vesturs á þann veg
að ekki verði til þess að breyta verulega skoðunum almennings í þeim efn-
um. þá líklega átt við að ekki megi skapa jákvæðari viðhorf til Sovétríkjanna
en þegar er orðið.
Fjórir fréttamenn
reknir til baka
Yfirvöld í Rúmeníu hafa neitað fjórum vestrænum fréttamönnum um land-
vistarleyfi en þeir komu þangað til þess að fylgjast með heimsókn Mikhail
Gorbatsjov, leiðtoga Sovétríkjanna.
Að sögn embættismanna vom fréttamennimir, þeir Robin Geddy frá Lon-
don Daily Telegraph, Jackson Diehl frá Washington Post, David Storey frá
Reuter og Gustav Chalupa frá austurríska útvarpinu, stöðvaðir á flugvellin-
um í Búkarest vegna þess að þeir höfðu ekki gildar vegabréfsáritanir. Var
þeim skipað að fara aftur úr landi með næsta fáanlegu flugi.
Undir venjulegum kringustæðum fá erlendir fi-éttamenn vegabréfsáritanir
á flugvöllum Rúmeníu eða við landamæri ríkisins.
Golden Gate brúin var þéttskipuó
(ólki sem komið var til að halda
upp á háltrar aldar afmæli mann-
virkisins. - Símamynd Reuter
800.000 manna
afntælisveisla
Talið er að um átta hundruð þús-
und manns haíi flykkst út á Golden
Gate brúna við San Fransisco í gær
til þess að taka þátt í hátíðarhöldum
vegna hálfrar aldar afmælis brúar-
innar.
Mannfjöldinn, sem safhaðist sam-
an á liðlega þriggja kflómetra langri
brúnni, var meiri en fjórfalt það sem
skipuleggjendur hátíðarhaldanna
höfðu áætlað að kæmi og sköpuðust
af þeim sökum miklar umferðartruf-
lanir í nágrenninu.
Brúin opnaðist ekki aftur fyrir
umferð fyrr en þrem klukkustundum
eftir að áætlað var.
Mannfjöldinn gerði sér sitthvað til
skemmtunar á bninni. Sumir voru
grímuklæddir, aðrir flugu flugdrek-
um eða slepptu blöðrum.
„Blóm“
á 858.000
Bandanlqadali
Málverkið „Blóm“, sem málað var
af franska listamanninum Marc
Chagall þegar hann var áttatíu og
sex ára, seldist í gær á uppboði í
•Jerúsalem fyrir átta hundruð fimm-
tíu og átta þúsund Bandaríkjadali,
eða um þijátíu og fjórar milljónir
íslenskra króna.
Málverkið, sem var málað árið
1973, er af blómum í vasa og var
keypt af Bandaríkjamanni sem ekki
gaf upp nafh sitt. Verðið var um
fimmtíu prósent yfir því sem hæst
haföi verið áætlað fyrir uppboðið.
„Blóm“ Chagalls seldust
858.000 dollara á uppboði í Jerusal-
em. - Simamynd Reuter
Slæmar horfur hjá
kosningabandalagi
Kosningabandalag frjálslyndra og
sósíaldemókrata á Bretlandi hefur
nú breytt baráttuaðferðum sínum og
ræðst í auknum mæli á Verka-
mannaflokkinn þar í landi, stærsta
stjórnarandstöðuflokkinn. Þessar
breytingar eru komnar til vegna
slæmrar stöðu kosningabandalags-
ins, sem skoðanakannanir sýna að
nýtur til muna minna fylgis meðal
kjósenda, heldur en Verkamanna-
flokkur og Ihaldsflokkur.
Fulltrúar kosningabandalagsins
segjast þegar hafa sett fram gagnrýni
sína á Thatcher, forsætisráðherra og
leiðtoga íhaldsflokksins, og nú sé því
kominn tími til að afgreiða stjórnar-
andstöðuna.
David Owen, leiðtogi sosíaldemó-
krata, sagði um helgina að kosninga-
bandalagið hygðist gagnrýna stefnu
Verkamannaflokksins í varnarmál-
um, sem hann taldi beinlínis hættu-
lega og fáránlega. Verkamanna-
flokkurinn vill leggja með öllu niður
kjarnorkuvarnir Breta.
Undanfarna daga hefur kosninga-
bandalagið tapað um sex prósentu-
stigum af fylgi því sem það hafði við
upphaf kosningabaráttunnar. þar af
tveim prósentustigum beint til
V erkamannaflokksins.
I niðurstöðum fimm skoðanakann-
ana, sem gerðar voru á Bretlandi í
gær, kemur í ljós að íhaldsmenn leiða
enn, með um fjörutíu og tvö prósent
stuðning, Verkamannaflokkur er í
öðru sæti með tæplega þrjátíu og
fimm prósent, en kosningabandalag-
ið er komið niður fyrir tuttugu og
tvö prósent fylgi.
Leiðtogar kosningabandalagsins
funduðu mikið um helgina og kom-
ust að þeirri niðurstöðu að þeir hefðu
gefið Verkamannaflokknum of
frjálsar hendur í baráttunni til þessa.
Þótt Verkamannaflokkurinn saxi á forskot íhaldsmanna, gengur miðjumönn-
um verr í baráttunni gegn Margaret Thatcher forsætisráðherra sem hér
ber veiðiglampa í augum.
Simamynd Reuter
Lögreglan í Seoul hylmdi yfir morð
Háttsettir suður-kóreskir lögreglu-
menn hafa játað að hafa hylmt yfir
hvemig dauða stúdents nokkurs bar
að í janúar síðastliðnum.
Tveir meðlimir sérstakrar lögreglu-
sveitar til höfuðs kommúnistum vom
sakaðir um morð skömmu eftir að
stúdentmn lést í bækistöðvum lögregl-
unnar.
Nú hafa þrír aðrir lögreglumenn
verið handteknir fyrir þátttöku í
morðinu sem hefúr vakið mikla reiði
og á laugardaginn börðust þúsundir
andófsmanna við lögregluna í Seoul
til þess að mótmæla misþyrmingu lög-
reglunnar á stúdentinum. Rúmlega
þúsund manns vom handteknir og
fimmtán þúsund lögregluþjónar komu
í veg fyrir að frekari mannfjöldi gæti
safnast saman til mótmælaaðgerða.
Það var þegar verið var að reyna
að fá stúdentinn til að ljóstra upp um
vinstri sinnaða andófsmenn sem hon-
um var misþyrmt þannig að hann lést.
Þegar hefúr innanríkisráðherra lands-
ins og yfirmanni lögreglunnar verið
vikið frá störfúm vegna þessa máls.
Mótmæiaaðgerðir vegna
meintra kosningasvika
» ' l'f M
ikl
Stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar á Filippseyjum i motmælaaðgerð.
Þeir halda því fram að svik hafi verið höfð í frammi í nýafstöðnum kosning-
um. Simamynd Reuter
Óeirðalögregla í Manila beitti í
gær táragasi og þrýstivatni til að
dreifa þúsund stuðningsmönnum
stjómarandstöðunnar. Töfðu þeir
umferð á þjóðvegi í úthverfi borgar-
innar til þess að mótmæla meintum
svikum í kosningunum sem em nýaf-
staðnar.
Sumir mótmælendanna höfðu
hafst við alla nóttina á þjóðveginum
sem er nálægt bækistöðvum her-
manna. Samtímis sem þeir kröfðust
þess að Aquino yrði vikið úr emb-
ætti gerðu þeir atlögu að fimm
hundmð hermönnum með grjótkasti
og fóm fram á að hermennimir
tækju þátt í vökunni. Hermennimir
héldu þó kyrrn fyrir í bækistöðvun-
um.
Ekki hefur verið greint frá hvort
nokkrir hafi hlotið meiðsli og að
sögn lögreglunnar vom engir hand-
teknir.
I upphafi mótmælanna vom saman
komnir allt að þrjátíu þúsund manns
á þjóðveginum en þeir týndu smám
saman tölunni.