Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Page 27
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987.
39
dv
Sandkom
Selbit
Sjómenn á Norðurlandi eru
ekki ánægðir með selbit. Sög-
ur berast nú um að sy ndasel-
irnir éti ekki aðeins þorskinn
við strendur landsins heldur
bíti í hann líka og láti það
pcnt duga. Þetta rýrir að sjálf-
sögðu aflaverömæti sjómanna
því selbitinn fiskur fer auðvit-
að beint í gúanó. Þá þykir
kinnfiskasoginn fiskur eftir
sel ekki fallegur. Selir eru svo
sannarlega skepnur.
Mannaskipti
á Húsavík
Árið 1987 erármikilla
mannaskipta samkvæmt Vík-
urblaðinu á Húsavík. Nýr
bæjarstjóri, nýr bæjartækni-
fræöingur og þrír nýir skóla-
stjóraráárinu. Þámunþetta
vera síðasta starfsár Sigurðar
Péturs Björnssonar (Silla),
bnnkastjóra Landsbankans á
Húsavík.
Ráðskonur
það cr borðliggjandi að þær
kvonsur hjá Kvennalistanum
koma ekki til með að kalla sig
ráðherra í komandi ríkis-
stjórn. Að sjálfsögðu hljóta
þær að kalla sig ráðskonur.
Upptöku-
heimili
Enn um konurnar og þá
Steina og Jón Baldvin:
Ronurnar eru sagðar ætla
að stjórna ríkisstjórninni eins
og hverju öðru heimili, með
uppskriftinni „hin hagsýna
húsmóðir.*' Mörg vandræði
eru fvrirsjáanleg á þessu
heimili og mörg mál verða tek-
in upp. Þetta verður bæði
vandræða- og upptökuheimili.
Ó-ó, Jamaica
Að lokum aðeins um þessar
frá Jamaica sem komu ti! Is-
lands til að selja blíðu sína og
mcnn voru að amast við. Er
það ekki of langt gengið þegar
útlendingar mega ekki leggj-
ast flatir fyrir landi og þjóð?
Malbiká
Melrakka-
sléttu
Norður-Þingeyjarsýsla er
víst eina sýslan á landinu sem
ekki hefur malbikaða vegi,
fy rir utan nokrar götur á
Kópaskeri, Raufarhöfn og
Þórshöfn. Nú eru uppi raddir
á Melrakkasléttu um að á
þessu verði gerð bragarbót og
bik sett á vegi við kauptúnin.
KEA-tölvan
KEA hefur gert samning um
kaup á tölvu af gerðinni Hew-
let Packard. Þessi nýja tölva
er afkastameiri en öll önnur
tölvukerfi á Akureyri og
meira að segja stærri en sjálf
SlS-tölvan,
Tískufrík
Unglingará Akureyri eru
tískufrík samkvæmt könnun
félagsmálastofnunar bæjar-
ins. Fram kom í könnuninni
að ekki virðist vera um ungl-
ingavandamál að ræða í
bænum hvernig svo sem það
er nú fengið. Hinn dæmigerði
akureyrski unglingur reykir.
ekki og telur þá sem það gera
aumkunarverða. Hann er
samkvæmt könnuninni for-
fallinn í tískuvörur, kýs sér
dýrt áhugamál og vill vera vel
til fara. Það er ekki von að
spekingarnirhafi fundið eitt-
hvert unglingavandamál.
Þetta er foreldravandamál.
Þorsteinn Pálsson.
Fmin
Akureyringar fylgjast, eins
og aðrir landsmenn, spenntir
með þrcifingum Steina Páls
og Jóns Baldvins á konum við
myndun nýrrar ríkisstjómar.
Menn risða um að kvensurnar
séu að falla fyrir Steina og
Jóni Baldvini. Konurnarhafa
sex þingmenn og það var ein-
mitt sexið sem þá báða
vantaði. Það hafa þeir fengið
hjá konunum. Hefursannast
að Steini og Jón búa yfir
miklu sexapíli. Varðandi nafn
á ríkisstjórnina látum við
okkur detta í hug frú viðreisn
eða bara frúin.
Jón Baldvin Hannibalsson.
Forseti
kastaði upp
Hlutkestiréðráðningu
starfsmanns að æskulýðsmið-
stöð og íþróttamannvirkjum
Húsavíkur í síðustu viku. Sex
sóttu um tvær stöður. Einn
umsækjenda fékk flest at-
kvæði í íþróttanefnd ogsíðan
komu tveir jafnir. Þegar málið
kom fyrirbæjarstjórnina bað
forseti bæjarstjórnarbæjar-
stjórann um tikall til að kasta
upp um hvor fengi stöðuna.
Loðnurnar komu upp og úr-
slitin voru ráðin.
Týnda
kynslóðin
Einhver rosalegasta kyn-
slóð allra tíma, týnda kynslóð-
in, ku vera á leið norður í
sumar. Þessi kvnslóð hefur
haldið sig mest í Hollvwood
að undanförnu og rifjað upp
gömlu poppárin. Það munu
vera Dúmbó og Steini sem
koma fyrstir norður í Sjallann
ti! þess að skemmta. Síðan
koma týndir hver af öðrum
norður í leitirnar í sumar.
Kaupþing
Norðurlands
Kaupþing Xorðurlands. sem
er í eigu Kaupþings í Revkja-
vík, KEA og íleiri fvrirtækja.
hefur enn ekki ráðið fram-
kvæmdastjóra fvrir norðan.
Andrea Rafnar úrReykjavík
gegnir stöðunni til bráða-
birgða. Furðu lítil ásókn hefur
verið í starfið þrátt fyrir aug-
lýsingar. Úr rætist þó líklega
í vikunni. Stjóri er sagður í
sigtinu.
Umsjón:
JónG. Hauksson.
Menning
Vegna „Yermu“
„Þessar tvær lindir, sem mér búa
á bringu, bikarar volgrar mjólkur
þétt í holdi..
Þannig hljóða með réttu ljóðlínur
tvær úr þýðingu Karls Guðmunds-
sonar á leikritinu YERMA eftir
Federico García Lorca, sem Þjóð-
leikhúsið frumsýndi 15. maí sl., en
svo ólánlega vildi til að rangt var
með þær farið á forsíðu helgarblaðs
DV daginn eftir frumsýningu.
Sýning Þjóðleikhússins á Yermu
er viðamikil og margþætt. Að henni
stendur fjöldi valinna listamanna á
sviði leiklistar, tónlistar og danslist-
ar. Því var brugðið á það ráð að
bjóða þeim blaðamönntun, sem falið
var af ritstjórn blaðanna að kynna
lesendum Yermu, að sjá æfingar á
verkinu rúmri viku fyrir frumsýn-
ingu. Þá gætu þeir betur metið hvort
þeir vildu taka viðtöl við aðstand-
endur, láta myndir og fréttatilkynn-
ingar nægja eða af!a annarra gagna
um tilurð sýningarinnar. Síðan er
það áhorfenda og gagnrýnenda að
fella sinn dóm að lokinni frumsýn-
ingu, þegar allir þræðir eru tengdir,
en siíkt gerist aldrei fyrr en að lokn-
um meðgöngutíma á frumsýningar-
degi.
Þetta vita blaðamenn og gagnrýn-
endur, því hefur leikhúsfólk getað
treyst að mestu hingað til. En þvi
miður virðist blaðamaður DV,
skráður PLP, hafa misskilið starfs-
svið sitt og vinnu leikhússins, því
hann birtir morguninn eftir frum-
sýningu ritsmið í DV sem almennur
lesandi hlýtur að taka sem leikdóm.
Okkur létti nú reyndar á mánu-
daginn þegar réttmætur gagnrýn-
andi DV, Auður Eydal, birti álit sitt
eins og vonir stóðu til. En þar sem
svo óheppilega vildi til að „leik-
dómur" PLP birtist óátalið á áber-
andi stað í síðasta helgarblaði DV,
en gagnrýni Auðar Eydal fór án
myndskreytingar á fréttasíðu undir
mynd af John Travolta tveinnu- dög-
um seinna, vil ég leyfa mér að
leiðrétta eftirfarandi atriði:
1. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri
heftir ekki „brotið verk Lorca upp
í smærri einingar" heldur fylgir
hún nákvæmlega þátta- og atriða-
skiptingu höfundar. Út frá þessari
ranghugmvnd dregur PLP flestar
ályktanir sínar um leikstjóm og
leikmynd og væri að æra óstöðug-
an að eltast við þá vitleysu. Auk
þess eru lýsingar hans á leikmynd
ekki réttar, þó hlutlausar væru.
Hvað lýsingu og búninga varðar
vom þau atriði langt frá að vera
tilbúin á þeirri æfingu sem PLP
byggir leikdóm sinn á.
2. Eftir að hafa séð eitt af fyrstu
„rennslum" á leiknmn á stóra
sviðinu viku fyrir frumsýningu
_ fellir PLP dóm um túlkun Íeikara
á tækniæfingu með 3 áhorfendum
á 14. bekk. Rennir PLP ekki gran
í að til er nokkuð sem heitir víxl-
'verkun sviðs og salar og er ein
af undirstöðum túlkunar leikar-
ans? Að dómi PLP var einn
leikarinn „bestm-". annar
„skemmtilegur" og sá þriðji
„skapaði eftimiinnilega persónu".
Þversagnir PI.P í ummælum hans
um Yermu sjálfa era óskiljanleg-
ar.
3. Hjálmar H. Ragnarsson. tónskáld.
á heiðurinn af um klukkutíma
framsaminni tónlist í sýningu
Þjóðleikhússins á Yemiu og telur
PLP hana „lifandi og skemmti-
lega". Það er vel. en hitt er
misskilningur að við samningu
hennar hafi hann einungis
„brugðið á það ráð að blanda sam-
an tónlist frá arabaheiminum og
Norður-Spáni".
Að lokimi skal þakka það sem vel
er gert og er það í fyrsta lagi ítarleg
grein um höfundinn. Federico Gai’c-
ía Lorca. og skrif PLP um þvðingu
Karls Guðmundssonar sem „hefur
þar unnið glæsilegt stórvirki". Enda
er þýðingin á leikritinu Yemia í
rauninni það eina senv hægt er að
fella dóm um fvrir frumsýningu, hafi
blaðamaðurinn einhvers staðar
komist yfir handi’it að leiknum.
Satt að segja glöddust hér nokkrar
sálir þegar fréttist að nýr penni væri
mættur á ritvöll fjölmiöla með þekk-
ingu á leikhúsi og nennu til að miðla
henni. Eg vona að hann haldi áfram
á þeirri braut en geri í framtíðinni
greinamiun á hlutverkum gagnrýn-
enda og blaðamanna og runfrmn allt
virði þann trúnað sem leikhúsin
sýna blaðmönnum með því að bjóða
þeim að fylgjast með æfingum. Leik-
sýning er aldrei tilbúin fyrr en á
frumsýningu!
Með þökk fyrir birtinguna,
f.h. Þjóðleikhússins,
Signý Pálsdóttir
(Láttu okkur um þetta!|
t Tökum aö okkur hreingeningar og ræstingar á öllu húsnæöi. Veitum hreinlætisráögjöf og gerum hreinlætis- áætlanir fyrir fyrirtæki og stofnanir.
ÍHI ■ v,- S A L ■ < NTA Notum sérhæfð efni sem enginn notar.
■ ■ 1 C CS I 1 Ougguvoqi 7 V-r JlvJCl* Ifi.1. Siini 33444
Rakarastofan Klapparstíg
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Sími 12725
fimapantanir
13010 |
--------------
BOÐA
RAFGIRÐINGAR
til afgréiðslu strax.
verð.
-1
H
F
Sími 91-651800.
Hvaða kostur
er bestur?
lengi og eitt rakvélarblað.