Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1987, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1987, Síða 17
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1987. 17 Dýr Könnun Verðlagsstofhunar á inn- flutningsverði í Bergen annars vegar og hérlendis hins vegar hefur vakið athygli og umtal. Meginniðurstaða könnunarinnar er að innkaupsverð sé of hátt, a.m.k. samanborið við innkaupsverð hjá frændum vorum. Að vísu skal varast að alhæfa. Eflaust eru þeir til sem vanda inn- kaup til landsins og gæta þess vel að ná lægsta verði. Reynslan er þó ólygnust og verður hér á eftir getið þriggja tilfella sem sýna að betur má ef duga skal. Margir milliliðir Fyrsta dæmið er af útboði hjá hinu opinbera. Óskað var eftir tilboði í ákveðið magn vöru. Tekið var til- boði frá innflytjanda sem hafði umboð fyrir fyrirtæki á Norður- löndum. Við athugun síðar kom í ljós að fyrirtækið á Norðurlöndum hafði verslað við móðurfyrirtæki sitt í Hollandi. Það hafði verslað við annað fyrirtæki í öðru landi sem jafnframt framleiddi vöruna. í ljós kom að með því að kaupa inn frá framleiðanda og halda óhreyttri álagningu mátti lækka verðið um helming. Þeir sem töpuðu á því að taka vöruna beint frá framleiðanda voru umboðsaðilamir erlendis umboðið hér hélt sínu, neytandinn græddi og það vel. Umrædd verk- smiðja er í tæplega 200 km fjarlægð frá Luxemburg, þannig að sam- gönguerfiðleikum er ekki um að kenna. Sama varan í margs konar umbúðum Annað dæmi er um vöru sem hing- að er flutt inn frá Norðurlöndum. Lengi vel var varan einungis til innkaup KjaUarinn Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi Alþýðuflokksins tegundir undir mörgum vörumerkj- um, allar samar að gæðum. Hér má spara óþarfa milliliðakostnað. Smurt ofan á Síðasta dæmið sýnir hve frændui' vorir á Norðurlöndum geta beitt okkur órétti vegna smæðar og fá- kunnáttu. Framleiðandi vöru hérlendis vant- aði ákveðið tæki, innlendur umboðs- aðili fannst ekki. Við nánari athugun kom í ljós að danskur um- boðsaðili hafði söluréttinn, en framleiðandinn var í USA. Við samanburð á verði kom í ljós að tækið keypt í Danmörku kostaði sama og tvö í USA, munurinn var nokkur hundruð þúsund krónur. Ákveðið var að sjálfsögðu að kaupa frá framleiðanda, hann neit- . dæmið sýnir hve frændur okkar á Norðurlöndum geta beitt okkur órétti vegna smæðar og fákunnáttu.“ undir dönsku merki - þá keypt hing- að til lands af heildsala sem aftur keypti af dönskum heildsala. Daninn keypti vöruna af sænskum framleið- anda sem eingöngu framleiðir vöruna fyrir aðra, þ.e. ekki undir eigin merki heldur einvörðungu í umbúðir sem seljandinn hefur ákveðið. Þessi vara fæst hérlendis nú, pökkuð í mismunandi umbúðir, danskar og islenskar, nákvæmlega sama varan; eini munurinn er í verði. Þessi sænski framleiðandi framleiðir margs konar vöru, sumar aði að selja, kvað umboðið vera í Danmörku og það ætti að selja hing- að. Þegar honum var sagt frá verðlagningunni kom í ljós að fyrir- tækið hafði ákveðna stefnu í verð- lagsmálum - þá að selja vöruna alls staðar á sama verði. Innan tveggja tíma frá samtalinu við framleiðand- ann var búið að hringja frá Danmörku og tilkynna að verðið lækkaði um helming - ástæðan var sú að höfuðstöðvar í Evrópu höfðu komið skilaboðum frá skrifstofúnni í USA til skila þess efriis að verð „Það er og umhugsunarefni nú þegar unnið er að myndum nýrrar ríkis- stjórnar hvort ekki sé rétt að nota tækifærið til þess að breyta starfsemi ráðuneyta á þann veg að til bóta horfi í inn- og útflutningsversluninni.“ skyldi alls staðar vera það sama. Slík tæki sem um ræðir eru notuð í nokkrum fyrirtækjum hérlendis. hvort öll hafa notið sömu kjara er óvíst. Hvað er til ráða? Þessi dæmi eru hér tekin til þess að glöggva lesendur á þvi að fyllsta ástæða er til þess hvetja innflytj- endur til hagkvæmra innkaupa. Það er og umhugsunarvert nú þeg- ar unnið er að mvndun nvrrar ríkisstjómar hvort ekki sé rétt að nota tækifærið til þess að breyta starfsemi ráðuneyta á þann veg að til bóta horfi í inn- og útflutnings- versluninni. Ekki skal skilja þetta svo að undir- ritaður vilji að ríkið hefji eigin innflutning, þvert á móti. Hins vegar á strax að endurskipuleggja starf- semi viðskipta- og utanríkisráðu- neytis, sameina þau og beina starfsemi þeirra í ríkari mæli að því að afla og miðla upplýsingum um framleiðendur. umboðsaðilja. kaup- endur og verð. Bæði þessi ráðuneyti eru steinmnnin. nær öll vinna er í etikettuformi i stað þess að beinast a.m.k. að hluta til að því að bæta kjör landsmanna. Bjarni P. Magnússon Mistök Þorsteins Síðan alþingiskosningamar fóru fram hafa formenn stærstu stjóm- málaflokkanna verið að reyna að mynda ríkisstjórn. Steingrímur fyrst og var hann fljótur að gefast upp. Þá næst byrjaði Þorsteinn Pálsson og það vissu náttúrlega allir fyrir- fram að sá blessaði maður væri ekki fær í það þrátt fyrir það að hann tæki sér hálfan mánuð. Duglegur þingmaður þarf skilyrðislaust að hafa unnið við atvinnuvegi íslensku þjóðarinnar til þess að hann geti fúllnægt sínu starfi (og þarf að gjör- þekkja atvinnulífið). Þorsteinn Pálsson þyrfti að fara í sveit í tvö ár og þrjú ár til sjós og koma aldrei til Reykjavíkur að hitta stjómendur Heimdallar. Þar lærði hann sína stjórnmálavisku og verkin tala svo að hann sé ómögulegur stjómmála- maður, feikilega fljótfærinn og fram úr hófi illa innrættur. Islenska þjóð- in mun seint gleyma framkomu hans við Albert Guðmundsson iðnaðar- málaráðherra. Ég spyr: Er Þorsteinn Pálsson einráður í þingflokki Sjálf- stæðisflokksins? Verkin tala svo að alþingismenn Sjálfstæðisflokksins sofi værum blundi og láti flokks- formanninn vera einráðan í ljótu verkunum. Þorsteinn var lengi bú- inn að undirbúa það ljóta verk að bola Albert burt með því að koma sjálfum sér í fjármálaembættið. Þor- steinn er fram úr hófi fljótfærinn og sér aldrei neitt fram í tímann (eins og algengt er með menn á hans þroskastigi). Hann bara anar áfram í sinni vitleysu þar til hann rekur sig á, eins og t.d. með að koma Al- bert úr ríkisstjórn í vor. Þá var Þorsteinn svo glaður og þvoði hend- ur sínar og hann taldi sig svo sigurvissan að hann gleymdi að þvo samvisku sína. Svo sigurviss var hann, en það ber ekki allt upp á sama dag fyrir litlu Heimdallarstutt- buxnadrengina í þossu jarðneska lífi. Kópavogsblaðið íslenska þjóðin fylltist hryggð með „Nú er Þorsteinn svo ánægður með sjálfan sig og ætlar sér að verða forsætisráðherra i næstu rfkisstjórn." óþokkaverkum Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, og var stofnaður Borgaraflokkur með Albert sem fyrsta mann á lista og kom flokkurinn inn sjö mönnum með viku fyrirvara. Framboðsfrest- urinn var að renna út en Þorsteinn fjármálaráðherra hefur aldrei verið góður í reikningi. Verkin sýna það. I besta góðæri Islands hefur sjaldan verið meiri halli á fjárlögum íslensku þjóðarinnar og er þá mikið sagt. Auðvitað gat blessuðtmi blinda súkkulaðidrengnum Þorsteini ekki dottið í hug að stuðningsfólk hins mikla manns, Alberts Guðmunds- sonar, gæti stofnað Borgaraflokkinn á nokkrum dögum. Alþjóð veit hvað hugsandi fólk getur mikið sem er ekki með þessa miklu sjálfstæðis- blindu sem einkennir ráðandi rnenn í hinum svokallaða Sjálfstæðisflokki og þá sérstaklega alþingismennina sem eru kosnir sem trúnaðarmenn íslensku þjóðarinnar. Eg get vorkennt aumingja Þor- steini formanni hvað hann á lang- blinda húsbændur yfir sér og á ég þá aðallega við alþingismenn Sjálf- stæðisflokksins sem geta verið skynsamir eftir á. en þeir eru alltaf svo ánægðir með sjálfa sig og taka ekki_ábendingum flokkssvstkina sinna. Ég gladdist sannarlega yfir því að sjá í blaði sjálfstæðismanna í Kópa- vogi nýlega að þar skrifa nokkrir sjáandi sjálfstæöismenn ágætis greinar og þar á meðal Friðrik Soph- usson, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, og býðm- að formaður og varaformaður flokksins séu tilbúnir hvenær sem er til að boða til lands- fundar. Ég spyr: Til hvers er verið að boða til landsfundar þar sem eng- inn má segja neitt nema stjórnin sjálf? Af hverju var landsfundar- mönnum á síðasta landsfundi ekki sagt frá því mikla skattsvikamáli Alberts Guðmundssonar sem Þor- steini Pálssyni lá svo á hjarta og ætlaði sannarlega að slá sér upp á i alþingiskosningunum? Þeir orðuðu það ekki við nokkurn rnann á lands- fundim.un, þetta mikla skattamál, en KjaUarinn Regína Thorarensen fréttaritari á Selfossi lágu bara á þv'í eins og góðar ungar hænur liggja á eggjum sínum. Ég bara spyr: Er ekki landsfundur Sjálf- stæðisflokksins bai'a skemmtisam- koma og sýndarmennska og mikil peningaeyðsla? Ég hef hevrt mm-gan landsfimdarfullti'úann kvarta undan þessum landsfundtmi. hvað þeir væru fólkinu dýrir. Ekki forsætisráðherra Ég bara vonast til þess að sjónin aukist hjá fleirmn en þeim sem skrifa i áðurgreint Kópavogsblað. Einnig vonast ég til þess að það óhapp hendi ekki að Þorsteinn verði forsætisráð- herra í næstu ríkisstjóm. Ráðandi menn í Sjálfstæðisflokknum eru búnir að færa Þorsteini margar stöð- ur á silfurfati sem er að eyðileggja sjálfstæði íslensku þjóðarinnar og er að koma þjóðarbúinu á vonarvöl. Við þurfum að kjósa fólk á alþingi sem hefur unnið við atvinnuvegi þjóðarinnar og þekkir það af eigin reynslu. Það eru orðnir allt of marg- ir ungir lögfræðingar. sem þekkja ekki hvað þjóðinni er fyrir bestu. á alþingi. Verkin tala svo. ef alþingis- maður. sem er háskólagenginn. hjá Sjálfstæðisflokknum fer nokkra túra á sjó yfir sumarmánuðina til að kvnnast þeim atvinnuvegi þá hregð- ur svo við að það er traðkað á honum af ráðamönnum Sjálfstæðisflokkks- ins og honum sýnd rnikil fyrirlitning í alla staði. Þorsteinn Pálsson rankaði við sér eftir kosningamar í vor að eitthvað væri að sér sem formanni því eins og alþjóð veit tapaði flokkurinn gevsilega mikið í kosningunum og Þoi-steinn spurði þessa ráðandi menn hvort hann ætti ekki að segja af sér formennskunni. Hverju svör- uðu þeir Þorsteini? Stóðu upp og lýstu fyllsta trausti til hans og báðu hann að vera áfram sem formaður. Nú er Þorsteinn svo ánægður með sjálfan sig og ætlar sér að verða for- sætisráðherra í næstu ríkisstjórn. Þorsteinn Pálsson. Ertu ekki bú- inn að gera nógu illt af þér. kljúfa Sjálfstæðisflokkinn? Það hefur eng- inn flokkur að gera með mann í formannsstöðu sem er alltaf eins og klipptur út úr tískublaði og þekkir ekkert til atvinnu þjóðarinnai' og kann.ekki að svara andstæðingum sinum nema með sömu páfagauks- orðunum... Svo er Þorsteinn svo illa innréttaður að íslenska húsrnæð- ur myndu ekki þola svoleiðis eld- húsinnréttingar sem eru ekkert nema vtra byrðið og hurðalausar og þar af leiðandi ekkert hægt að geynta í þeim og ekki til nokkurs nýtar nema bara horfa á þær. Hús- mæður láta rífa þær niður með forgangshraða þvi fólk vill hafa eld- hús með mikla geymslu og vel innréttað. Að endingu þurfa ráðandi sjálfstæðismenn að koma Þorsteini í burtu og láta hann vinna við at- vinnuvegi þjóðarinnar í fimrn ár samfleytt og þá mun stækka hans sjóndeildarhringur. Regína Thorarensen. „Þorsteinn er fram úr hófi fljótfærinn og sér aldrei neitt fram í tímann (eins og algengt er með menn á hans þroska- stigi).“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.