Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987.
Fréttir i>v
Hvalatalning:
Fjögur þúsund hvalir
af ýmsum tegundum
Þrjú skip komu til Reykjavíkur í
fyrradag að lokinni hvalatalningu.
Unnið hefúr verið að talningu og
rannsóknum á hvölum í hafinu um-
hverfis íslands undanfamar fimm
vikur.
Kannað var hafsvæðið allt frá Sval-
barða suður undir Bretlandseyjar í
austri og frá ísröndinni norðvestan við
landið suður fyrir Höfða í vestri.
Einnig hefur verið talið úr flugvél
innan 600 metra dýptarlínu umhverfis
ísland.
Þessar rannsóknir eru liður í sam-
eiginlegum hvalarannsóknum þjóð-
anna við norðausturhluta Atlantshafs,
en auk íslendinga hafa Norðmenn,
Færeyingar, Danir og Spánverjar tek-
ið þátt í þessum rannsóknum. Þannig
hefúr verið talið samtímis frá Barents-
hafi og Svalbarða að Spánarströndum
og frá ströndum Vestur-Grænlands að
Noregsströndum.
Mikill fjöldi hvala af mörgum tegundum sást við talninguna
Við rannsóknir þessar hafa menn
orðið margs vísari. Frá einu skipanna
sáu menn sléttbak en hann hefúr ekki
sést hér við land síðastliðin fimmtán
ár og er talinn næsta sjaldgæfur í
Norðaustur-Atlantshafi. Hann var
mikið veiddur fyrr á tímum.
Alls sáust í leiðöngrum íslensku
skipanna um fjögur þúsund hvalir af
ýmsum tegundum. Þar af sáust 1.400
marsvín, 370 langreyðar, 260 hrefnur,
176 andamefjur, 136 hnúfúbakar og
105 búrhveli. Afgangurinn var svo
smærri hvalir.
Þá er ónefnd talning úr flugvél en
hún staðfesti verulega hrefnugengd
umhverfis landið.
Enn er of snemmt að segja fyrir um
lokaniðurstöður varðandi stærð og
ástand einstakra hvalastofna og er
talið að samræming og úrvinnsla
gagna taki um ár.
-PLP
Nýr fimmtíukall
óvart í umferð
Einum blaðamanni DV varð heldur
hverft við er hann fékk fimmtíu króna
mynt til baka í sjoppu í vikunni. Hann
hafði vanist fimmtíu króna seðlum og
ekki heyrt af því að von væri á nýrri
mynt.
Stefán Stefánsson, aðalféhirðir
Seðlabankans, sagði að fimmtíu króna
myntin væri væntanleg í umferð 8.
september. „Það eru aðeins komin um
hundrað sýnishom til landsins og hafa
þau flest verið lánuð til fyrirtækja, svo
sem Pósts og síma, sem eru með pen-
ingavélar sem þarf að breyta með
tilkomu nýrrar myntar.“
Það er því engu líkara en að starfs-
maður einhvers þessara fyrirtækja
hafi verið orðinn auralítill svona í lok
mánaðarins og notað sýnishomið til
að fjárfesta í kóki og prinspólói.
Nýja myntin er úr gulleitri eir-
blöndu. Hún er örlítið minni en fimm
króna myntin, eða 23 millímetrar í
Nýja fimmtíu króna myntin. Á bak-
hlið hennar er mynd af bogakrabba.
þvermál. Hins vegar er hún þyngri en
tíu króna myntin. Á framhlið myntar-
innar er skjaldarmerkið en á bakhlið-
inni er mynd af bogakrabba. -ATA
Bandarísk hvalavemdunarsamtök,
sem nefna sig Midwest U.S.A. Whale
Protection Federation, ætla að senda
íslenskum fyrirtækjum í Bandaríkjun-
um og stjómvöldum hér á landi bréf
með harðorðum mótmælum og hótun-
um um viðskiptaþvinganir gagnvart
íslendingum vegna hvalveiðanna. Það
sem vekur einkum athygli við þessa
sendingu eru undirskriftalistar sem
látnir hafa verið ganga í allar bekkjar-
deildir í bamaskóla í Frankfort í
Illinois. Á annað hundrað böm hafa
þar undirritað harðorða yfirlýsingu
gegn hvalveiðum íslendinga, þau
yngstu eru vart meira en sjö eða átta
ára gömul, eins og ráða má af skrift-
inni.
Mótmæli þessi ásamt hótunum um
viðskiptaþvinganir segjast samtökin
ætla að senda til höfúðstöðva Cold-
water Seafood Corporation og Ice-
landic Seafood Corporation ,í
Bandaríkjunum og einnig til Flug-
leiðaskrifstofunnar í Illinois. Krefjast
samtökin þess að hvalveiðum íslend-
inga verða algerlega hætt.
Að sögn Péturs Mássonar, markaðs-
stjóra á aðalskrifstofu Coldwater
Seafood Corporation í Bandaríkjun-
um, þá er geysilegur fjöldi slíkra
samtaka á við þessi starfandi þar um
þessar mundir og kannaðist hann ekki
við þessi.
-BTH
undir þetta mótmælaskjal sem banda-
risk hvalavemdunarsamtök láta
ganga i bamaskólum í lllinois þessa
dagana til að mótmæla hvalveiðum
íslendinga. i yfirlýsingunni er sagt að
hvalveiðamar séu villimannslegar og
mark beri að taka á afstöðu bamanna
því að þau eigi eftir að taka við stjóm-
artaumunum síðar.
Fyrsta hótelið á Islandi sem tilheyrir alheims hótelkeðju hefur verið form-
lega opnað. Þetta er hið glæsilega Holiday Inn við Sigtún. Það er Guðbjörn
Guðjónsson sem er eigandi hótelsins en hótelstjóri er Jónas Hvannberg.
Nýja hótelið er góð viðbót við gistirými höfuðborgarinnar því þar eru hundr-
að herbergi með óvenju breiðum og góðum rúmum. Þar er að finna tvo
glæsilega veitingastaði sem opnir eru almenningi og að auki einn veis-
lusal. Á myndinni sést Matthías Mathiesen samgöngumálaráðherra opna
hótelið formlega. -A.BJ./DV-mynd JAK
Bruggverksmiðja í Yrsufelli:
Gengust við rúmlega sautján
hundruð lítrum af bruggi
Verðið: einn og hálfur lítri á 1.000 krónur
Rannsóknardeild lögregluemb-
ættisins í Reykjavík hefúr komið upp
um stórfelda bruggverksmiðju. Lög-
reglan hefur um tíma fylgst með
mönnum sem grunur hefur leikið á
að stunduðu bruggun á víni. Lög-
reglan hóf aðgerðir aðfaranótt
þriðjudags. Þrír menn voru hand-
teknir, auk þeirra voru fjórir færðir
til yfirheyrslu. Fimm menn munu
vera viðriðnir þetta mál. Lögreglan
lagði hald á 600 lítra af bruggi og
88 lítra af áfengi.
Að sögn lögreglunnar var ákveðið
að láta til skarar skríða fyrir versl-
unarmannahelgi. Fyrsti maðurinn
var handtekinn í húsi við Yrsufell,
rejmdi hann að komast hjá handtöku
án árangurs. Úr húsinu, sem maður-
inn var í, lagði gufustrók. Þegar
leitað var í húsinu fundust í bílskúr
við húsið eimingartæki sem voru í
notkun. Þar voru einnig um 150 lítr-
ar af bruggi og rúmlega 30 lítrar af
eimuðum landa. Lögreglan lagði
hald á bruggið og landann. í bíl-
skúmum voru 100 kíló af sykri og
ger. Einnig var gerð húsleit í ann-
arri íbúð við Yrsufell og fundust þar
nokkrir lítrar af áfengi.
Á þriðjudag var forsprakki brugg-
aranna handtekinn. Lögreglan
stöðvaði bíl hans og fundust í bílnum
12 lítrar af áfengi. Heima hjá for-
sprakkanum fundust 8 lítrar og í
aðstöðu sem maðurinn hafði annars
staðar fundust 10 lítrar af áfengi.
Með forsprakkanum í bílnum var
maður búsettur í Hveragerði, heima
hjá honum fundust 500 lítrar af
bruggi og lítið eitt af áfengi. Lögregl-
an lagði því hald á samtals 88 lítra
af áfengi og 600 lítra af bruggi.
Áfengið var veikast 40 % að styrk-
leika, en 90 % það sterkasta.
Að sögn lögreglunnar hafa menn-
imir viðurkennt að hafa lagt í 1.720
htra frá því í apríl. Ekki er ljóst
hversu mikið af bmggi mennimir
hafa selt en þeir hafa viðurkennt
einhverja sölu. Enginn kaupandi
heíúr komið við sögu hingað til.
Mennimir hafa verið leystir úr
haldi og rannsókn málsins vel á veg
komin. Forsprakki þessa máls var
einnig viðriðinn Guðrúnargötumál-
ið svokallaða en það komst upp fyrir
tveimur árum og er það stærsta
bruggmálið sem rannsóknardeild í
áfengismálum hefur haft afskipti af
en rannsóknardeildin var sett á lagg-
imar árið 1980. Þetta nýja mál er
nærri Guðrúnargötumálinu hvað
umfang snertir. Aðrir, sem vom við-
riðnir málið, hafa ekki áður komið
■við sögu bmggmála. -sme
Bandarísk hvalaverndunarsamtök:
Sjö ára skólabörn
undirrita mötmæli
gegn hvalveiðum