Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987. Hjúkrunarfræðingar Óskum að ráða hjúkrunarfræðing í 100% starf frá 1. sept. eða eftir samkomulagi. Sjúkraliða í 100% starf frá 1. sept. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 97-1631, 97-1400, 97-1374 (eftir kl. 16.00). SJÚKRAHÚSIÐ Á EGILSSTÖÐUM VARNARLIÐIÐ Á KEFLAVÍKURFLUG- VELLI óskar eftir að ráða kennara með réttindi til starfa við barnaskóla Varnarliðsins næsta skólaár. Kennslugreinar eru: íslenskt mál, íslensk menning og saga. Mjög góð enskukunnátta skilyrði. Umsóknir berist varnarmálaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins, ráðningadeild, Keflavíkurflugvelli, eigi síðar en 7. ágúst nk. Nánari upplýsingar veittar í síma 92-11973. Ólsal hf Hreinlætis- og ráðgjafarþjónusta auglýsir eft- ir starfsfólki, körlum og konum, til starfa í Kringlunni. 1. Dagleg þrif frá kl. 11.00 til lokunar verslana. 2. Hreinsun á bílastæðum. 3. Almenn ræsting eftir lokun verslana. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Ólsals hf., Dugguvogi 7. HESTAMENN STÓRMÓT SUNNLENSKRA HESTAMANNAFÉLAGA verður haldið á Rangárbökkum við Hellu dagana 8. og 9. ágúst nk. Kynbótasýningar. Gæðinga- og unglingakeppni. Kappreiðar. Tekið er á móti skráningum til hádegis mánudaginn 3. ágúst í símum 99-6055, 99-6317, 99-8470 og 99-8860. Stjórn Rangárbakka sf. Stærsta sérverslun landsins með veiðivörur. Sendum í póstkröfu um allt land. Verslunin FYRIR VERSLUNAR MANNA- HELGINA Veiðistangirog veiðihjól í úrvali. Verð frá kr. 970,-. Barnaveiðisett, verðfrá kr. 955,-. Spúnarog í hundraðatali. Fjölbreytt úrvalregn-og hlífðarfatnaðar. °° Langholtsvegi 111 104 Reykjavík 0) 6870*90 Fréttir Sóluskatturínn á matvæli effa'r helgina Frá og með næsta laugardegi verð- ur greiddur 10% söluskattur af allri matvöru nema mjólkurvörum, fiski, kjöti, matjurtum, eggjum og smjör- líki. Þannig verður tvenns konar sölu- skattur í gildi í matvöruverslunum, 10% og 25%. Áður var greiddur 25% söluskattur af ávaxta- og grænmetis- söfum, gosdrykkjum og sælgæti. Þessi varningur er seldur í matvöru- búðum þótt hann geti ekki kallast matvæli. Söluskattur verður nú einnig lagður á brauð og aðrar fram- leiðsluvörur bakara. Matvörur, sem falla undir söluskattinn, teljast til lífsnauðsynja eins og hveiti og önnur mjölvara, kaffi og sykur, öll pakka- vara, niðursoðin matvæli, bæði kjöt og fiskur, frosið og þurrkað græn- meti og ávextir. Allir drykkir, bæði ávaxta- og grænmetisdrykkir, gos- drykkir og sælgæti hafa áður verið söluskattsskyld en af þessum vörum er nú þegar greiddur 25% söluskatt- ur. Verð á þeim vörum á því ekki að hækka í tengslum við nýja sölu- skattinn. Allar mjólkurvörur undan- þegnar Allar mjólkurvörur eru undan- þegnar söluskattinum. Þá er átt við allar tegundir af mjólk, rjóma, skyr, jógúrt, bæði hreina og blandaða, mysu, undanrennu, smjör og osta, þar með talin kotasæla. Lesendur hafa haft samband við neyténdasíðuna og velt fyrir sér hvort ostur myndi falla undir sölu- skattsákvæðið og haft af því tals- Nýi söluskatturinn leggst á þær vörur, sem í körfunni eru, sem ekki voru verðar áhyggjur. Osturinn sleppur áðursöluskattsskyldarogþaðmeiraaðsegja25%.Nýiskatturinner10%. og sömuleiðis smjörlíki. Kjöt og fiskur undanþegin Allur nýr fiskur, vatnafiskur, hum- ar, rækja og skelfiskur er undanþeg- inn söluskattinum. Einnig saltaður, siginn, frosinn, reyktur, grafinn, kryddleginn og kæstur fiskur er und- anþeginn. En fiskur, sem hlotið hefur einhverja aðra vinnslu eða geymslu- aðferð en hér greinir, verður skatt- skyldur. Kjötmeti, svo sem nýtt, frosið, reykt, sýrt og saltað, er undanþegið söluskattinum. Einnig unnar kjöt- vörur, eins og úrbeinað og hakkað kjöt, kjötálegg, sem ekki er niðursoð- ið, kjötfars, pylsur, bjúgu, svið sviðasulta, hrútspungar og slátur, bæði tilreitt og ótilreitt. Kjöt, sem hlotið hefur aðra vinnslumeðferð, er söluskattsskylt. Þannig virðist bæði fisk og kjöt- meti, sem er niðursoðið, vera sölu- skattsskylt. Matjurtir, svo sem nýir ávextir, nýtt grænmeti og garðávextir, sem ekki hafa fengið neina vinnslumeð- ferð aðra en þvott og pökkun í smásöluumbúðir, eru undanþegin söluskattinum. Þannig verður frosið grænmeti og ávextir söluskattskyldir og sömuleiðis þurrkað grænmeti og ávextir. -A.BJ. Draga úr fram- leiðslu og auka innflutning Norsk yfirvö’d hafa ákveðið að draga úr eða hætta alveg við fram- leiðslu á tómötum, hoidakjúkling- um, eggjum og korni. f þess stað verður hafinn innflutningur á þess- um vörum. Er þetta gert eftir að fyrir liggja niðurstöður úr rannsókn sem háskólinn i Björgvin hefúr gert. Rannsóknin leiddi í ljós aö ekki er talið verjandi að halda áfram að styrkja framleiðslu þessara vara eins og raunin er í dag. Útreikningamir sýna að útsölu- verð á tómötum og eggjum getur lækkað um hvorki meira né minna en 30% með því að flytja þessar vör- ur inn. Verð á matvælum í Noregi er um 54% hærra en í Efnahagsbandalags- löndunum. Við sáum þessa klausu í Norsk Ukeblad sem tók hana úr neytenda- blaðinu norska. Hvað skyldi vera hægt að lækka verð á matvælum á íslandi mikið með því að flytja inn í stað þess að framleiða hér á landi? -A.BJ. Besti sjávar- réthirinn 1987 Skilafrestur til 15. ágúst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.