Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Side 19
FIMMTUDAGUR 30. JULÍ 1987. 19 Dægradvöl ur vill útivistarsvæði en Reykjavík vill leggja hraðbraut eftir dalnum miðjum, gegnum Skógræktarstöðina og yfir í Öskjuhlíð. Þetta eru heilmikl- ar deilur og að mínu viti er ekki hægt að samræma þetta og hafa bæði braut og útivistarsvæði svo að vel fari. Ég hef því gengið út frá þvi að útivistar- svæðið verði ofan á í samkepphinni. í teikningum mínum er gert ráð fyrir göngu- og reiðleiðum, skauta- og báta- svæði, skokkbrautum með æfinga- stöðvum og auk þess húsdýrasafiii í Lundi, litlu tívolíi og mörgu fleiru," sagði Yngvi Þór. Hann kvað Foss- vogsdalinn vera mjög merkilegan að ■ því leyti að þetta væri 85 ha ónotað flæmi nær miðsvæðis í borginni og tengdi dalurinn þar að auki saman fjöru og fjall, Öskjuhlíðina og Elliða- árdalinn. t Slæm umgengni i Fossvogsdal Fámennt var nú orðið í hópnum enda veður ekki eins og best varð á kosið. Þó var haldið ótrautt áfram og stormað upp Fossvogsdalinn innan um njóla, kálgarða og ýmsan gróður. Það sló göngumenn hversu illa er gengið um dalinn og hve algengt það virðist vera að fólk losi rusl hinum megin við limgerði sitt. Þetta var ljótt að sjá og er mikið lýti á dalnum. Skógur, hraun og fossar í Ell- iðaárdal Þegar komið var í Elliðaárdalinn slóst Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur, í hópinn og sýndi og útskýrði svokallaðan reskigróður en svo kallar hann þann gróður sem sest að í röskuðum jarðvegi. Elliðaárdalurinn er einstaklega skemmtilegt svæði. Fegurðin og kyrrðin þar er gífurleg og fallegir stíg- ar liggja út um allt. Elliðaáin rennur í fossum og flúðum niður allan dalinn og hraun og skóglendi fylla afganginn. „Það eru rúm 40 ár síðan byrjað var að gróðursetja tré í Elliðaárdalnum Jóhann Pálsson, grasafræðingur og garðyrkjustjóri ríkisins, útlistaði gróð- ur og sögu Elliðaárdalsins fyrir fólki. sem er eitt af hinum stóru útivistar- svæðum í Reykjavík. Það var starfs- fólk hjá Rafmagnsveitum ríkisins sem byijaði að planta trjám í dalinn og enn þann dag í dag fjármagnar Rafmagns- veitan þessar framkvæmdir," sagði Jóhann. Fleira fólk með sólinni Á sunnudagsmorgun var lagt af stað frá Árbæjarsafni og haldið niður Elliðavog þar sem sólin fór að skína. Það voru líka mun fleiri í göngunni seinni daginn eða um 60 manns að sögn Einars Egilssonar, formanns Náttúrufræðifélags íslands, en hann gekk í broddi fylkingar þá tvo daga sem hún tók. I Elliðavogi var jarð- fræði Háubakka og Reykjanesskagans athuguð. Haft var á orði að þeir sem fylgdu göngunni báða dagana væru orðnir útlærðir og komnir með gráðu í jarðfræðinni. Laugarnessaga og mengunar- mælingar Úr voginum var stormað niður Laugarásinn og í Grasagarðinn' í Laugardal þar sem áð var. Þaðan var haldið í Laugamesið þar sem Birgitta Spur, sem er mjög sögufróð um nesið, tók á móti hópnum og bauð í kaffi. Frá Laugamesinu var gengið í brak- andi hafgolu niður á Amarhól þar sem þessari 33 km löngu göngu lauk með því að Tryggvi Þórðarson heilbrigðis- fulltrúi kynnti nýja starfsemi sem em mengunarmælingar og rannsóknir. Hann leyfði göngufólkinu að fylgjast með sér niður að höfh þar sem hann mældi mengunina í sjónum sem reynd- ist hverfandi. „Fleiri göngustíga“ Þeir vom tveir fyrir utan Einar Eg- ilsson leiðsögumann sem gengu báða dagana. Það vom þeir Bjöm Finnsson og Ómar Skafti Gíslason. „Við erum alveg himinlifandi með ferðina og alls ekkert þreyttir. Við stefnum að þvi að fara aftur í haust en þá stendur til að endurtaka þetta,“ sögðu þeir félagar, og Einar leiðsögumaður bætti við: „Það er mikil nauðsyn að kynna betur þau útivistarsvæði sem Reykjavík hef- ur upp á að bjóða og mér finnst’ að borgaryfirvöld ættu að sinna því hlut- verki betur. Það þarf líka að leggja göngustíga til að tengja þessi svæði og auka nýtingu þeirra. Það er t.d. sorglegt að sjá Miklatúnið, þessa stóm og finu flöt, sem er svo of lítið not- Tryggvi Þórðarson heilbrigðisfulltrúi útskýrir og sýnir notkun mengunarmælingatækis sem notað er t.d. til að finna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.