Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Síða 33
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987.
33
DV
Davíð Scheving
Thorsteinsson
_____________Fólk í fréttum
Sveinn Runótfsson
Davíð Scheving T'liof-steinsson,
framkvæmdastjóri Sólar hf., er fædd-
ur 4. janúar 1930. Hann varð
framkvæmdastjóri smjörlíkisgerðar-
innar Ljóma hf. 1951, Smjörlíkis hf.
1964, og Sólar hf. 1972.
Hann var í stjóm Rauða kross fs-
lands 1958-’71 og hefúr verið formað-
ur Félags íslenskra iðnrekenda, setið
í bankaráði Iðnaðarbankans og ver-
ið í framkvæmdastjóm VSf. Þá hefúr
Ilavíð' m.a. setið í miðstjóm Sjálf-
stæðisflokksins og í stóm V erslunar-
ráðs fslands, í stjóm Hydról hf.,
Lyftis hf., Glits hf. Hafskips hf.
Smjörlíkis hf. og Sólar hf.
Davíð hefur verið mikið í fréttum
að undanfómu eftir að hann hóf
framleiðslu á dósagosi og setti upp
mjög fullkomna vélar í tengslum við
hana . Daíð er giftur Stefaníu, ritara
og flugfreyju, Geirsdóttur Borg,
framkvæmdastjóra í Rvík., og konu
hans Guðrúnar J. Ragnars frá Akur-
eyri.
Systir Davíðs er Gyða, kona Jóns
H. Bergs, forstjóra Sláturfélagsins.
Foreldrar þeirra em Magnús
Scheving Thorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri í Rvík., f. 4. október
1893, og fyrri konu hans Lauru Sche-
ving Thorsteinsson, f. Haístein, f. 22.
október 1903, d. 5. október, 1955.
Faðir hans, Magnús Scheving
Thorsteinsson, er sonur Davíðs
Schevings Thorsteinssonar, læknis í
Rvík. f. 5. október 1855, d. 6. mars
1938, Þorsteinssonar Thorsteinsson,
kaupmanns á Patreksfrrði, Þor-
steinssonar, prests í Gufudal,
Þórðarsonar. Móðir Davíðs læknis
var Hildur, Guðmundsdóttir, Sche-
ving, sýslumanns og kaupmanns í
Haga á Barðaströnd.
Hálfbróðir Davíðs læknis var Pét-
ur Jens Thorsteinsson, kaupmaður
og útgerðarmaður á Bíldudal, föður
Muggs og afa Péturs J. Thorsteins-
sonar sendiherra, og Amar Ó.
Johnsen, forstjóra Flugfélags ís-
lands, Pétur var einnig langafi Jóns
Thors, deildarstjóra í dómsmála-
ráðuneytinu.
Föðuramma Davíðs var Þómnn,
Stefánsdóttir, prófasts í Vatnsfirði,
Stephensen, sonarsonar Stefáns
Stephensens, amtmanns á Hvítár-
völlum, afa Magnúsar landshöfð-
ingja, langafa Guðrúnar Agnars-
dóttur alþingismanns, Stefáns
dóttursonar Þorvaldar Böðvarsson-
ar, prófasts og skálds í Holti undir
Eyjafjöllum, langafa Finnboga Rúts
Þorvaldssonar prófessors, foðm Vig-
dísar forseta.
Móðir Þómnnar, föðurömmu Dav-
framkvæmdastjóri Sólar hf.
íðs, var Guðrún, dóttir Páls Melsteðs
amtmanns, langafa Péturs Eggetz
sendiherra.
Bróðir Magnúsar var Þorsteinn,
lyfeali í Rvík.
Móðir Davíðs, Laura, var dóttir
Gunnars Hafstein, bankastjóra í
Þórshöfn í Færeyjum, sonar Péturs
Hafstein, amtmanns á Möðmvöllum
í Högárdal, og Kristjönu Gunnars-
dóttur, systir Tryggva bankastjóra.
Bróðir Gunnars var Hannes Haf-
stein ráðherra. Kona Gunnars var
Níelsína Christiansdóttir, kaupfé-
lagsstjóra Havsteens, frændkona
hans.
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri hefur verið í fjölmiðlum að
undanfömu vegna umfangsmikillar
umljöllunar þeirra um gróðureyð-
ingu.
Hann er fæddur 28. apríl 1946, son-
ur Runólfs Sveinssonar land-
græðslustjóra á Gunnarsholti, f. 27.
desember 1909, d. 4. febrúar 1954, og
konu hans Valgerðar Halldórsdótt-
ur, f. 2. apríl 1912,
Bræður Sveins em Þórhallur,
kennari í Rvík., og Halldór, dýra-
læknir á Kirkjubæjarklaustri.
Runólfúr landgræðslustjóri var
sonur Sveins, b. á Fossi í Mýrdal,
Sveinssonar, prests í Ásum, Eiríks-
sonar. Móðir Sveins í Ásum, var
Sigríður Sveinsdóttir, læknis og
náttúrufræðings í Syðri Vík í Mýr-
dal, Pálssonar. Kona Sveins læknis
var Þómnn Bjamadóttir landlæknis
Pálssonar og konu hans Rannveigar
Skúladóttur landfógeta Magnússon-
ar.
Kona Sveins í Ásum var Guðríður
Pálsdóttir prófasts í Hörgsdal Páls-
sonar, langafa Amfinns skólastjóra
í Rvík., föður Róberts leikara.
Meðal afasystkina Sveins Runólfs-
sonar, bama Sveins prests í Ásum,
vom Gísli alþingisforseti, Páll
menntaskólakennari, faðir Páls,
prests á Bergþórshvoli og Sigríður
amma Odds Bjömssonar leikritahöf-
undar.
Föðuramma Sveins Runólfssonar
var Jóhanna Margrét, Sigurðardótt-
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri.
ir, b. og smiðs á Breiðabólstað á Síðu,
Sigurðssonar, systir Elínar, móður
Helga framkvæmdastjóra í Rvík., og
Siggeirs á Klaustri, Lárussona.
Meðal foðursystkina Sveins Run-
ólfssonar vom Páll landgræðslu-
stjóri og Róshildur, móðir Brynju
leikstjóra og Ingunnar glerlista-
konu, Benediktsdætra.
Valgerður, móðir Sveins Runólfs-
sonar, er dóttir Halldórs, skólastjóra
á Hvanneyri, f. 14. febrúar 1875, d.
12. maí 1936, Vilhjálmssonar, tré-
smiðs á Rauðará við Reykjavík,
Bjamasonar, prófasts í Laufási,
Halldórssonar.
Móðir Valgerðar var Svava Þór-
hallsdóttir, biskups Bjamasonar, og
vom þau hjón bræðraböm.
Móðursystkini Sveins em Bjöm,
hagfræðingur, Svava kona Gunnars
Bjamasonar ráðunautar, Þórhalls,
forstjóra hollustuvemdar, og Sigríð-
ur kona Páls Þorkelssonar viðgerða-
manns.
Afmæli
Daniel J. Glad
Daniel J. Glad, trúboði hjá Hvíta-
sunnukirkjunni, er 60 ára i dag.
Daniel og kona hans em sænskir
Finnar. Hann er fæddur í Finnlandi
og ólst upp í Solberg, litlum bæ
skammt frá Helsingfors. Móðir hans
hét Evie en faðir hans Edvin og var
hann jámbrautarstjóri á staðnum.
Daniel gekk í verslunarskóla í
Helsingfors en sótti síðan biblíu-
skóla í Helsingfors, Stokkhólmi og
í Smyma í Gautaborg. Árið 1952 kom
hann til íslands og hefur hann starf-
að hér að trúboðsstöríúm síðan, fyrst
á Sauðárkróki, frá 1952-1966, í
Stykkishólmi frá 1966-1970 og síðan
í Reykjavík.
Kona Daniels er Marianne, og eiga
þau íjögur böm: Sam Daniel, sem
giftur er enskri konu, Ruth Glad, en
þau búa í Reykjavík, Robert, sem
vinnur að málarastörfum, Clarens,
Daniel J. Glad, trúboði hjá Hvíta-
sunnukirkjunni.
sem stundar nám i guðfræði og heim-
speki við Brown háskólann á Rhode
Island í Bandaríkjunum, og Barbro,
sem gift er á Akranesi Sigurði Sig-
urðssyni, skósmiði og starfsmanni á
Gmndartanga.
90 ára________________________
Ásta Málfríður Bjarnadóttir,
Hrafnistu við Kleppsveg, er 90 ára
í dag.
80 ára_____________________
Gyða Guðmundsdóttir, frú, Skála-
gerði 7, Reykjavík, er 80 ára í dag.
70 ára______________________
Guðný Árnadóttir, Faxaskjóli 16,
Reykjavík, er 70 ára í dag.
60 ára_______________________
Guðmunda Pálsdóttir, Hjallabraut
7, Hafnarfirði, er 60 ára í dag.
50 ára
Jóhann Einarsson, Geithellum,
Geithellnahreppi, Suður Múla-
sýslu, er 50 ára í dag.
Ragnar J. Jónsson vinnuvélastjóri,
Miðtúni 14, Tálknafirði, er 50 ára
í dag.
Eiríkur Óskarsson, Bjarkargrund
34, Akranesi, er 50 ára í dag.
Gunnar Guðmundsson, Nýbýla-
vegi 104, Kópavogi, er 50 ára í dag.
Guðjón Ragnar Sigurðsson verk-
stjóri, Árbakka 3, Seyðisfirði, er 50
ára í dag.
Arndís Styrkársdóttir, Miklubraut
76, Reykjavík, er 50 ára í dag.
40 ára
Jón Sævar Jónsson rekstrarverk-
fræðingur, Bjargartanga 10,
Mosfellssveit, er 40 ára í dag.
Reynir Karlsson matsveinn, Leiru-
bakka 4, Reykjavík, er 40 ára í dag.
Kristinn Víglundsson bifreiða-
stjóri, Vesturbergi 54, Reykjavík,
er 40 ára í dag.
Hildur Eiríksdóttir, Efstasundi 68,
Reykjavík, er 40 ára í dag.
Ingigerður Bjargmundsdóttir
kennari, Trönuhólum 4, Reykjavík,
er 40 ára í dag.
Atli Skaftason stýrimaður, Hóla-
stig 2, Búðahreppi, er 40 ára í dag.
Andlát
Guðbjorg Pétursdóttlr
Guðbjörg Pétursdóttir, ljósmóðir,
frá Gjögri, lést að morgni 26. júlí sl.
Guðbjörg fæddist að Gjögri í Víkur-
sveit, 13. ágúst árið 1905. Hún lauk
ljósmóðurprófi frá LMSÍ árið 1924.
Guðbjörg var ljósmóðir í Ámes-
hreppsumdæmi á ámnum 1924-1927,
í Reykjaijarðarumdæmi frá
1924-1927 og 1931-1945.
Faðir hennar var Pétur, húsmaður
í Gjögri, Jónsson, bónda á Tindum
og Ingunnarstöðum, Magnússonar
og Karítasar Níelsdóttur, bónda á
Kleifum í Gilsfirði, fæddur 1764, dá-
inn 22. júní 1810, Sveinssonar. Bróðir
Karítasar var Sveinn prófastur á
Staðarstað, faðir Hallgríms biskups
og afi Sveins Bjömssonar forseta,
Sveins Valfells forstjóra, og Harald-
ar Níelssonar prófessors, föður
Jónasar Haraldz bankastjóra og
langafa Sturlu Friðrikssonar erfða-
fræðings.
Móðir Guðbjargar var Guðrún,
fædd 1873 og dáin 1950, Þorsteins-
dóttir, bónda í Litlu Árvík, Sigurðs-
sonar og Guðbjargar Ámadóttur frá
Ijósmóðir
Gjögri.
Maður Guðbjargar var Sörli, út-
vegsbóndi og formaður frá Gjögri
og síðar eftirlitsmaður í Reykjavík,
Hjálmarssonar, sjómanns frá Gjögri,
Guðmundssonar og Lilju Þorbergs-
dóttur úr Reykjavík.
Börn þeirra em Pétur, forstjóri í
Reykjavík, fæddur 1927, og giftur
Sigríði Vilhjálmsdóttur frá Vest-
mannaeyjum, Kristmundur, forstjóri
í Reykjavík, fæddur 1929, sem giftist
Lám Ölafsdóttur frá Reykjavík en
þau slitu samvistum, Erla, fsedd 1931,
og gift Guðmundi Karlssyni, vél-
stjóra að Laxárvirkjun, Elín Sigur-
rós, fædd 1933, gift Einari
Gunnarssyni, málarameistara í
Reykjavík, Friðgeir, trésmíðameist-
ari í Reykjavík, fæddur 1935, og
giftur Sigurborgu Þórðardóttur frá
Bolungarvík, Þorsteinn Rúnar,
starfsmaður Stálvers í Reykjavík,
fæddur 1938, og giftur Eddu Aspe-
lund frá Reykjavík, Lýður, hárskeri
í Garðabæ, fæddur 1942, og giftur
Elísabetu Matthíasdóttur úr
Guðbjörg Pétursdóttir Ijósmóðir.
Reykjavík, og Lilja Elsa, fædd 1947,
gift Sigurði Sigurðssyni, vélfræðingi
á Álftanesi.
Pétur Ásbjöms Georgsson
Pétur Ásbjörns Georgsson neta-
gerðarmeistari, Grundartúni 1,
Akranesi, lést 24. júlí.
Hann var fæddur 5. júní 1931 og
rak um margra ára skeið Nótastöð-
ina hf. á Akranesi, fyrst í félagi við
aðra en var aðaleigandi hennar hin
síðari ár. Pétur var landskunnur
knattspymumaður á yngri árum
og lék meðal annars nokkra lands-
leiki fyrir fsland.
Kona Péturs er Emilía Jónsdótt-
ir, alþingismanns á Akranesi,
Ámasonar, og konu hans, Ragn-
heiðar Þórðardóttur.
Dætur þeirra eru Ragnheiður
Jóhanna, Vilborg, Margrét og Pe-
trea Emilía.
Pétur átti tvær systur, Salvöru
Sigríði og Katrínu.
Foreldrar þeirra voru Georg Sig-
urðsson, vélstjóri á Melstað á
Akranesi, f. 28. júní 1906, en hann
fórst með m/b Kjartani Ólafssyni
14. desember 1935, og kona hans,
Vilborg Matthildur Ölafsdóttir.
Foreldrar Georgs voru Sigurður,
b. á Melstað á Akranesi, f. 22. nóv-
ember 1867, Jörundsson og kona
hans, Salvör Jónsdóttur. Faðir
Georgs var Jörundur, b. í Mið-
húsum á Akranesi, Jörundssonar,
b. á Birnhöfða á Akranesi, Guð-
mundssonar, b. á Stórubýlu á
Akranesi, Guðmundssonar.
Sesselja Eldjárn lést að Hrafnistu
í Reykjavík þriðjudaginn 28. júlí.
Sigurbergur Árnason, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri, Eskihlíð
5, Reykjavík, lést þriðjudaginn 28.
júlí.
Hermann Gestsson, Strandgötu
79, Hafnarfirði, lést 28. þessa mán-
aðar.
Jónína H. Snorradóttir frá Hús-
um, Rangárvallasýslu, f. 20.12.1900,
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu
Gmnd þann 29. júlí.
Páll Guðjónsson frá Sléttu til
heimilis að Arahólum 2, Reykjavík,
andaðist í Borgarspítalanum að-
faranótt þriðjudagsins 28. júlí.