Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Qupperneq 38
38
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987.
Kvikmyndahús
Bíóborg
Hættulegur vinur
Synd kl. 5, 7, 9 og 11.
Angel Heart
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05
Arizona yngri
y Sýnd kl. 7 og 9.
Krókódíla Dundee
Sýnd kl. 5 og Í1.
Bíóhúsið
Bláa Betty
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
The Living Daylights
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Morgan kemur heim
Sýnd kl. 5, 7. 9 og 11.
Innbrotsþjófurinn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Lögregluskólinn
Allir á vakt
Sýnd kl. 5, 7 og 11.
Morguninn eftir
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Blátt flauel
Sýnd kl. 9.
Háskólabíó
Villtir dagar
Frumsýnd kl. 7.
Sýnd kl. 9 og 11.10.
Laugarásbíó
Gustur
Sýnd kl, 5, 7, 9 og 11.
Meiriháttar mál
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Martröð á Elmstræti
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Regnboginn
HerJeildin
> Sýnd kl. 3, 5.20 9 og 11.15.
Á toppinn
Sýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05.
Dauðinn á skriðbeltum
Sýnd kl. 9.05 og 11.05.
Þrír vinir
Sýnd kl. 3.10 og 5.10.
Á eyðieyju
Sýnd kl. 9 og 11.15
Hættuástad
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15.
Otto
Endursýnd kl. 3, 5, 9 og 11.15.
Herbergi með útsýni
Sýnd kl. 7.
Hrafninn flýgur
Sýnd kl. 7
Kvikmyndasjóður
kynnir
íslenskar myndir með enskum texta
Skilaboð til Söndru
Message To Sandra
Leikstjóri Kristin Pálsdóttir.
Sýnd kl. 7.
Stjömubíó
Hætturlegur leikur
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Wisdom
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Heiðursvellir
Sýnd kl. 5.
Bönnuð innan 16 ára
TOURIST, 2ja manna
göngutjald, kr. 4.536,-
3ja—4ra manna göngu-
tjald, kr. 6.960,-
PATRIJS, 2ja manna
göngutjald, kr. 11.660,-
Póstsendum.
EYJASLOö 7 - SÍMI 621780
LUKKUDAGAR
30. júií
3850
Hljómflutnings-
tæki frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 40.000,-
Vinningshafar hringi i sima
91-82580.
Kvikmyndir
Laugarásbíó/Gustur:
Ein og óttaslegin
The Wind
Framleiðandi og lei«stjóri: Nico Mastorak-
is.
Höfundur handrits: Nico Mastorakis og
Fred C. Perry.
Aðalhlutverk: Meg Foster, Wlngs Hauser.
Þemað, sem kvikmyndin Gustur
byggir á, er ansi kunnuglegt. Ein-
vera í dularfullu húsi, íjarri annarri
byggð, vont veður og með ógn vof-
andi yfir við hvert fótmál. Þrátt íyrir
að uppskriftin sé ekki ný, tekst Nico
Mastorakis að gera hina ágætustu
spennumynd þótt einstök atriði séu
kannski í það lengsta.
Sagan segir frá rithöfundinum Si-
en Anderson, sem leigir hús, uppi á
hæð fyrir ofan gríska smábæinn
Monemvassia. Þar ætlar Sien að
klára skáldsögu sína í ró og næði.
Leigusalinn, Elias Appleby, varar
hana við hægttulegum vindum sem
blása og segir henni að fara ekki út,
í þann mund sem hann kveður og
Sien og Phil há marga hildina í myndinni, hér er þó allt í góðu enda hefur hann þá ekki orðið þess var að hún
veit meira en góðu hófi gegnir.
skilur hana eina eftir. Hann á sér
aðstoðarmann, Phil, sem á að vera
Sien innan handar. Án þess að hún
viti það kemur til deilna milli mann-
anna og Phil drepur Elias.
Sien verður vitni að því þegar
Phil grefur Elias í garðinum og upp
frá því sætir hann færis að myrða
hana líka.
Sien læsir sig inni en Phil beitir
margvislegum brögðum við að kom-
ast inn en rithöfundurinn ver hendur
sínar með oddi og egg. í lokin nær
Phil að króa hana af á klettasyllu
og reiðir sigð sína til höggs en ægi-
leg stormhrina feykir honum um
koll.
Gustur er engin stórmynd, allur
leikur og tæknivinna er í meðallagi.
Hins vegar er hún hin ágætasta
dægrastytting og heldur áhorfand-
anum spenntum. Endirinn er
kannski svolítið úr takt, miðað við
það sem á undan er gengið. I heild
má vel mæla með þvi að sjá myndina
ef fólk ætlar í bíó og hefur gaman
af spennumyndum.
-JFJ
Á ferðalagi
Auður landnámskona
„djúpúga" í Hvammi
íslensk böm máttu um langan aldur læra
aðskiljanlegustu atriði um þá flóttamenn sem
komu hingað til lands á níundu og tíundu öld.
Bömin vom látin læra utanbókar nöífi þeirra
landnámsmanna sem höfundar kennslubóka
töldu merkilegasta, hvaðan þeir komu, ættar-
tréð, hvar þeir námu land og hverja þeir drápu.
Allt þótti bömum þetta afspymu leiðinlegt og
fannst það þurrkuntulegt stagl að stafa sig fram
úr og leggja á minnið löngu dauða menn, oft
með torskildum viðumefnum, sem bjuggu á
framandi slóðum eins og Borgarfirði, Borgar-
fjarðarsýslu eða Vesturlandi og komu frá enn
framandlegri stöðum á borð við Þrændalög og
Sunnmæri. Síðan vom bömin prófuð í tuggu-
fræðunum og þá reið á að gubba úr sér réttum
nöfnum og ártölum og bæjum og sveitum og
morðum á bændum, biskupum og dönskum út-
lendingum og enskum útlendingum. Fyrir þetta
fengu blessuð bömin hvítar og bláar ein-
kunnabækur þar sem kennarinn hafði upp á
hundraðshluta vegið og metið frammistöðuna
yfir veturinn. Sæl eða væld fóru bömin heim
til sín með bækumar hvítu og bláu og sýndu
foreldrunum sem ánægð eða reið höfðu löngu
gleymt mikilvægustu atvikum í lífi og starfi
þjóðarinnar í þúsund ár.
Bömin, sem höfðu ekkert betra við tímann
að gera, fóru í aðra í skóla þar sem kennaram-
ir sáðu fræjum óvissu innan um stöngla stað-
reynda sem plantað hafði verið á íyrri
skólaárum. Eftir því sem leið á varð blekking
bemskunnar augljósari; ártölin vom vafasöm,
atburðir ýmist stílfærðir eða uppdiktaðir, ætt-
emið óljóst vegna þess að allir lágu með öllum;
og loks, í Háskólanum: Landnáma er ljúgrit,
samið af seinnitíma kynslóðum til að réttlæta
rán og stuld á jörðum og hlunnindum. Þess
vegna fyrirlíta gagnfræðaskólabömin bama-
skólann, menntaskólabömin gagnfræðaskól-
ann og háskólabömin menntaskólann og líka
allt annað, sérílagi staðreyndir.
A Krosshólum stendur kross til minningar
um Auði djúpúðgu sem skólaböm þekktu und-
ir nafninu Auður „djúpúga" þvi þau vissu ekki
hvað „djúpúðga“ þýddi og kunnu ekki að skrifa
orðið. A krossinn er höggið:
AUÐR DJÚPÚÐGA BJÓ í HVAMMI
HON HAFÐIBAÆNAHALD SITT Á KROSSHÓLUM
ÞAR LÉT HON REISA KROSSA
ÞVÍ AT HON VAR SKÍRÐ OK VEL TRÚUÐ
-pal
Utvarp - Sjónvaip
RÚV, rás 1 kl. 16.20:
Freddi og
Drakúla greifi
Flutningur á leikgerð bamaút-
varpsins af sögu Dennis Júrgensens,
Múmían sem hvarf, hefur göngu sína
um miðjan daginn í dag. Þetta er
sagan um strákinn Fredda og vini
hans. Koma við sögu Drakúla greifi
sem er orðinn svo slæmur í magan-
um eftir aldalanga blóðdrykkju að
rautt gos er það eina sem hann
drekkur, varúlfurinn Edda sem tek-
ur vinsældarlistann á rásinni fram
yfir allt annað, ófreskjan Boris, hinn
hauslausi Sir Arthur Fieldstein,
drekinn Logi og Mummi múmía.
Þeir lenda saman í óteljandi ævin-
týrum þegar Mummi múmía týnist.
Það er líf og fjör í bamaútvarpinu
og er Múmían á dagskrá fimmtu-
daga, föstudaga og laugardaga
klukkan 16.20 allan ágústmánuð.
Þegar flutningi lýkur á fimmtudög-
um og föstudögum er síminn opinn
og krökkunum boðið að syngja og
segja sögu meðan tími endist.
Sagan er um strákinn Fredda og
vini hans. Drakúla greifi er orðinn
svo slæmur i maganum eftir alda-
langa blóðdrykkju að rautt gos er
það eina sem hann drekkur.