Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1987, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987.
9
Sprengt
íAþenu
Tíu starfsmenn bandaríska hersins
og grískur bílstjóri særðust í Aþenu í
gær er sprengja, sem komið hafði ver-
ið fyrir í bíl bandarísks sendiráðs-
starfsmanns, sprakk. Voru hermenn-
imir á leið íram hjá í herflutningabíl.
Engin samtök hafa enn lýst yfir
ábyrgð á sprengjutilræðinu.
Var herflutningabíllinn í Voula, sem
er tuttugu kílómetra fyrir sunnan
Aþenu, til þess'að sækja starfsmenn
til bækistöðva bandaríska hersins þar
rétt hjá. Að sögn vitna sáust tveir
menn á mótorhjóli koma einhveiju
fyrir nálægt bíl sendiráðsstarfsmanns-
ins sem gjöreyðilagðist við sprenging-
una. Rúður brotnuðu í nálægum
húsum.
I apríl var gerð árás á starfsmenn
bandaríska hersins við herbækistöð-
ina. Særðust þá sextán Bandaríkja-
menn og tveir Grikkir er herflutninga-
bíll, sem þeir ferðuðust í, sprakk í loft
upp.
Billinn, sem sprengjunni var komið fyrir i í Aþenu i gær, sprakk i loft upp. I
baksýn má sjá bandariska herfiutningabílinn. Simamynd Reuter
Owen berst áfram
gegn sameiningu
Jón Oimur Halldórsson, DV, Landon;
David Owen, sem í síðustu viku
sagði af sér sem leiðtogi Lýð-
ræðisjafhaðarmannaflokksins (SDP)
í Bretlandi í kjölfar ósigurs í at-
kvæðagreiðslu um sameiningu við
Frjálslynda flokkinn, hefúr haldið
áfram baráttu sinni gegn slíkri sam-
einingu.
I atkvæðagreiðslunni meðal með-
lima í flokknum í síðustu viku var
samþykkt með 57 prósentum at-
kvæða gegn 43 prósentum að leita
eftir sameiningu við Frjálslynda
flokkinn en flokkarnir tveir hafa
barist hlið við hlið í síðustu þing-
kosningum í Bretlandi.
Owen hefur ákveðið að gegna ekki
leiðtogaembætti til bráðabirgða, eins
og farið var fram á við hann, til þess
að hann hafi frjálsari hendur með
að skipuleggja andstöðu gegn sam-
einingu og hugsanlegri stofnun nýs
flokks ef af sameiningu verður.
Helstu leiðtogar SDP náðu fæstir
kjöri á þing í síðustu kosningum að
Owen og fjómm af fimm þingmönn-
um flokksins undanskildum. Flestir
leiðtoganna styðja sameininguna og
þar á meðal eru þau Shirley Williams
og Roy Jenkins sem nú heitir raunar
Jenkins lávarður. Hann varð aðlað-
ur eftir að hann missti sæti sitt í
neðri málstofunni í kosningunum í
júní.
David Owen veittist að Jenkins
um helgina og kvað hann hafa litið
á SDP sem eins konar flóttamanna-
búðir fyrir fólk á leið í Frjálslynda
flokkinn. I kosningunum í júní fékk
SDP aðeins fimm þingmenn kjöma
en fijálslyndir fengu tuttugu menn
á þing. Á breska þinginu sitja sex
hundruð og fimmtíu þingmenn og
hefðu þessir flokkar fengið nálægt
hundrað og fimmtíu sæti á þingi í
stað tuttugu og fimm ef hlutfalls-
kosningar væru notaðar við þing-
kosningar í Bretlandi. Þessi ósigur
og þær aðstæður að flokkar fá lítinn
sem engan þingstyrk þó fjórðungur
kjósenda sé að baki þeim leiddu til
þess að flestir framámenn beggja
flokkanna leituðu eftir sameiningu
þeirra.
Beina
kókaíni
til Evrópu
Venezuela er nú að verða mikilvæg-
ur hlekkur í kókaínkeðjunni frá
Suður-Ameríku til Bandaríkjanna og
Evrópu. Talið er að útflutningurinn
hafi þrefaldast síðustu þrjú árin og sé
nú orðinn tuttugu tonn á ári.
i fyrra vom hundrað og fimmtíu
tonn af kókaíni flutt inn til Bandaríkj-
anna. Vegna offramleiðslu og verðfalls
hafa nú kókaínbarónar Suður-Amer-
íku í auknum mæli beint viðskiptum
sínum til Evrópu og Ástralíu.
Tugir þúsunda bænda lifa á því að
rækta kókalauf og hefur verðið á þeim
lækkað allt að fimmtíu prósent á einu
ári. Kókaræktin hefur aðallega farið
fram í Perú, Bólívíu og Kólumbíu en
nú hefur Venezuela bæst í hópinn. Fer
ræktunin fram við landamæri Kól-
umbíu undir eftirliti kólumbískra
eiturlyíjasala. Reiða þeir sig á að
skæruliðar frá Kólumbfu vemdi
bændurna.
Varnarmálaráðherra Venezuela, Eliodoro Gomez, á tali við hermenn við landa-
mæri Kólumbiu. Þjóðvarliðar voru drepnir þar i júni siðastliðnum af aðilum
er vernda vilja kókaínrækt þar. Símamynd Reuter
UtLönd
Sprenging í kjamorkuveri
Rafmagnsbilun olli í gær lítilli
sprengingu í kjamorkuveri í Wales
en engan sakaði og enginn geisla-
virkur ieki kom að stöðinni, að sögn
talsmanns orkuframleiðslufyrirtæk-
isins.
f tilkynningu frá kjamorkuverinu
segir að rafinagnsiaust hafi orðið í
hluta stöðvárinnar og við það hafi
orkuframleiðsla: hennar dregist
veruiega saman í nokkra klukku-
túna. Sagði talsmaðurinn að: éinna
helst mætti líkja atvikinu við það
áð stórt öryggi hefði sprungið en
aldrei hefði verið nein hætta á út-
geislun.
Atvikið átti sér stað þegar verið var að aftengja spennubreyta fyrir venju-
bundið eftirht og viðhald. Orsakir óhappsins verða rannsakaðar.
Fleiri lík fundin
Sjö tík hafa nú fundist í húsi þvi
í Philadelphia f Bándaríkjunum þar
seni lögregla var til kvödd vegna
óþefs í gær. í gær fundust sex lík í
íbúð í húsinu, öll meira eða minna
rotnuð, og í nótt fannst svo sjöunda
líkið uppi á þaki hússins.
Líkamsleifamar á þaki hússins
voru raunar beinagrindin ein og var
hún vafin í segldúk og dýnu.
Lögregian segir að nokkra daga
muni taka að komast að því af hverj-
um tíkin em.
Gefin hefúr verið út handtökuskipun á hendur Harrison Graham, sem
tatíð er að hafi verið íbúi í þeim hluta hússins þar sem líkin fundust. Gm-
ham var rekinn úr íbúð sinni í gærmorgun vegna óþefs sem lagði út þaðan
en hann hafði ekki sinnt kröfum húseiganda um að þrífa íbúðina. Lögregla
var til kölluð eftir að húseigandi fór inn í íbúðina og sá vegsummerki þar.
Hnullungur veldur manntjóni
Sex manns létu tífið og sextán slösuðust í gær þegar stór hnullungur lenti
á langferðabifreið í fjallaskarði skammt frá Winter Park í Kóloradó í Banda-
ríkjunum. Hnullungurinn var á stærð við fólksbifreið.
Áð sögn lögreglu var langferðabifreiðin á ferð um fjörutíu mílur vestur
af borginni Denver í Kólóradó þegar lmullungurinn kom veltandi niður
hlíð og lenti á hægri hlið bifreiðarinnar.
HnuUungurinn tók með sér hliðina úr vagninum.
í langferðabifreiðinni vom tuttugu og átta manns. Aðeins sexþeirra sluppu
ómeiddir.
Strsetisvagnastjórar
í London í verkfalli
Strætisvagnastjórar í Lundúnum
em nú í verkfalli til þess að mót-
mæla því að einkafyrirtækjum verði
fenginn í hendur rekstur hluta af
almannasamgöngukerfi borgarinn-
ar.
Strætisvagnastöðvar borgarinnar
em því auðar um þessar mundir,
ólíkt þvi sem venjulega gerist.
Verkfaltíð munstanda í einn sólar-
hring.
Koch á batavegi
Ed Koch, borgarstjóri New York,
er nú á batavegi eftir að hafa fengið
vægt slag fyrir nokkrum dögum.
Borgarstjórinn þurfti að dvelja á
sjúkrahúsi um sinn en var brott-
skráður þaðan í gær og dvelst nú í
opinberum bústað borgarstjórans
þar sem hann mun hvílast
Lá enn við árekstri
í gær varð enn eitt tilvikið þar sem lá við árekstri tveggja flugvéla í lofti
skammt frá New York. 'IVær þotur í farþegaflugi flugu þá í um tvö hundr-
uð metra fjarlægð hvor frá annarri en talið er að flugumferðarstjóri hafi
gefið rangri þotu lendingarleyfi.
Önnur þotan var frá flugfélaginu Pan Am og var hún á leið frá Boston til
Sa Guardia flugvallar við New York. Hin þotan var frá TWA, á leið frá
Mílanó á Ítalíu til Kennedy-flugvallar.