Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1987, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987.
37
DV
Sviðsljós
Orðnar vinkonur aftur
Linn Bergman dóttir Liv Ullman
og Ingmars Bergman hefur átt við
sín unglingavandamál að stríða
líkt og margt besta fólk á hennar
aldri. Hún er sautján ára gömul
og er flutt aftur til mömmu sinnar.
Fyrir rúmu ári þoldi hún ekki við
heima og flutti í burtu. Ástæðan
mun ekki vera alveg ljós en á þess-
um tíma lét hún allt fara í taugam-
ar á sér, ekki síst móður sína. Þoldi
hún enga afskiptasemi og öskraði
og æpti þegar henni þótti við eiga.
En nú hafa mæðgurnar tekið
gleði sína á ný því eins og segir er
Linn komin heim og eru þær stöllur
orðnar bestu vinkonur. Fyrir
stuttu fóru þær ásamt eiginmanni
Liv til Filippseyja þar sem þær áttu
góðar stundir saman. Haft er eftir
móðurinni að samband þeirra sé
ekki byggt á venjulegum grunni
sambands móður og dóttur heldur
tali þær saman um allt líkt og nán-
ustu vinkonur.
Linn er mjög stolt af foreldrunum
báðum og þeirra starfi. Segist hún
eiga auðvelt með að gagnrýna
mynd sem móðir hennar leikur í
því hún hafi alltaf auðveldlega
greint á milli leikkonunnar Liv og
mömmunnar Liv. Linn hefur átt
mikið og gott samband við föður
sinn en foreldrarnir skildu þegar
hún var aðeins tveggja ára. Sjálf
segir hún að hennar framtíðará-
form séu ekki negld. Hún hefur
starfað sem fyrirsæta og verið í
leiklistarskóla en gafst fljótt upp á
hvoru tveggja. Hún hefur mikinn
áhuga á bókmenntum og segir að
hún geti jafnvel hugsað sér að
verða blaðamaður þegar kemur að
því að velja sér lífsstarf.
Lifandi eftirmynd föður síns
Það er ekki hægt að neita þvi. Sean er ansi líkur föður sinum heitnum, John Lennon
Það hefur hingað til ekki mjög
mikið borið á Sean Lennon, einka-
syni Yoko Ono og John Lennon.
En nú er pilturinn að fullorðnast
og gerist æ vinsælla umfjöllunar-
efni fjölmiðla. Ekki síst fyrir þær
sakir hve líkur hann er að verða
föður sínum heitnum.
Hvar sem Yoko kemur með strák-
inn dregur fólk andann. „Mikið er
hann líkur John.“ Sama fíngerða
andlitið, dökka hárið og eilítið
dreymandi yfirbragð.
Móðirin tekur líka allshugar
undir þetta. Hún segir soninn
meira að segja hafa sömu persónu-
einkennin og gerðu John Lennon
svo einstakan mann. Og sömu
skapgerð. Það sfefnir því í það að
Sean verði lifandi eftirmynd föður
síns.
Sean er þó aðeins ellefu ára. Eins
og allir vita gerðist sá hræðilegi
atburður að John var skotinn fyrir
framan Dakota bygginguna í New
York fyrir sjö árum. Sean hefur
bara verið fjögurra ára og á því
varla mjög margar greinilegar
minningar um fóður sinn.
Ólyginn
sagði...
Sophia Loren
lenti nú heldur illa i því um
daginn. Hún var farþegi í
áætlunarflugi til Los Ange-
les og þá bara allt í einu...
missti hún buxurnar niður
um sig. Þannig var að hún
var í buxum sem teknar voru
saman með teygju í mittið.
Teygjan slitnaði og þar með
héngu víðar buxurnar ekki
lengur á maddömunni.
SXLphXLa dó ekki ráðalaus.
Hún brá sér inn á klósett og
vafði þar um sig stórri slæðu
sem hún hafði í handfar-
angrinum. Þannig gat hún
útbúið nokkurs konar mini-
pils og málið var leyst á
farsælan hátt. Þá vitum við
það, ekki ferðast í buxum
með teygju í mittið, það
gæti leitt af sér vandræði.
t
<
Björn Borg
er með fjárhagslega stönd-
ugri íþróttamönnum verald-
ar. Hann hefur á tennisferli
sínum orðið sér úti um
drjúgan skilding, ekki síst
fyrir þátttöku í auglýsingum.
Björn þykir hafa fjármálavi-
tið í lagi og er þekktur fyrir
að fjárfesta í réttum verð-
bréfum, hlutafélögum og
öðru. Nú síðast hefur hann
fest pening í alls kyns dýrum
verslunum í Stokkhólmi. Má
þar nefna ilmvatnsverslanir,
klæða- og íþróttaverslanir
og fleira. Sjálfur segist hann
frekar vilja sjá fé sitt verða
að einhverju áþreifanlegu
heldur en einungis að láta
það dúsa inni á þankabók.
Eric Douglas «■
tuttugu og fimm ára gamall
sonur Kirks reynir nú af öll-
um mætti að feta í fótspor
föður síns. Líkt og eldri
bræður hans hyggst hann
reyna fyrir sér á hvíta tjaldinu
eins og pabbi. Stefnan er
tekin beint á hátind frægðar-
innar en ekki þykir liggja
Ijóst fyrir hvernig til muni
takast. Þó segja sérfræðing-
ar að líklegt sé að honum
muni reynast leikurinn auð-
veldari en Michael bróður
hans. Michael var sá sem
fyrstur bræðranna reyndi við
kvikmyndirnar en komst lítið
áfram. Eftirnafnið ætti svo
sem ekkert að skaða forleik-
inn en svo er bara að sjá....