Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1987, Blaðsíða 38
38
v-
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987.
LUKKUDAGAR
11. ágúst
23419
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800.-
Vinningshafar hringi i síma
91-82580.
Kvikmyndahús
Bíóborgin
Sérsveitin
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Angel Heart
Sýnd kl. 5. 7, 9 og 11.05
Krókódila Dundee
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bíóhúsið
Bláa Betty
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
The Living Daylights
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Hættulegur vinur
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Morgan kemur heim
Sýnd kl. 7 og 11.
Innbrotsþjófurinn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Lögregluskólinn
Allir á vakt
Sýnd kl. 5 og 9.
Blátt flauel
Sýnd kl. 5. 7.30 og 10,
Háskólabíó
Villtir dagar
Sýnd kl. 7. 9 og 11.10.
Laugaxásbíó
Andaboð
Sýnd kl. 5. 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Gustur
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Meiriháttar mál
Sýnd kl, 5, 7, 9 og 11.
Regnboginn
Hættuförin
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Herdeildin
Sýnd kl. 3, 5.20 9 og 11.15.
Dauðinn á skriðbeltum
Sýnd kl. 9.10 og 11.10.
Þrir vinir
Sýnd kl. 3.10 og 5.10 og 7.10.
Hættuástand
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15
og 11.15.
Otto
Endursýnd kl. 3, 5, 9 og 11.15.
Herbergi með útsýni
Sýnd kl. 7.
Stjörnubíó
Óvænt stefnumót
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Hættulegur leikur
Sýnd kl. 7 og 11.
Wisdom
Sýnd kl. 5 og 9.
ÖKUM EINS OG MENN!
Drögum úr hraða
-ökum af skynsemi!
|J UMFEROAR
Kvikmyndir
Laugarásbíó/Andaborð:
Af ógnum andaborðsins
Witchboard, bandarísk frá 1986
Leikstjóri og höfundjr: Kevin S. Tennay
Framleiðandi: Gerald Geoffrey
Myndatökustjóri: Roy H. Wagner
Tónlist: Dennis Michael Tenney
Aðalhlutverk: Todd Allen, Tawny Kitaen,
Stephen Nichols, Kathleen Wilhoite, Burke
Byrnes
Leikstjóri þessarar myndar, Kevin
Tenney, er heldur lítt þekktur en
vakti þó athygli fyrir hlut sinn í
kvikmyndinni War Games frá árinu
1982 sem hann hlaut Emmy verðlaun
fyrir. Önnur mynd sem hann hefur
leikstýrt, The Book of Joe, fékk einn-
ig Jiokkalegar viðtöku á sínum tíma.
I þessari mynd fetar Tenney svo
sem ekki frumlegar slóðir, þetta er
frekar venjuleg hrollvekja eftir
venjulegri uppskrift þar sem aða-
lógnvaldurinn er svokallað anda-
borð en það minnir einna helst á það
sem við köllum andaglas.
Þar segir frá parinu Jim og Lindu
sem heldur samkvæmi á heimili sínu
þangað sem fyrrverandi kærasti
Lindu, Brendon, mætir en eins og
við má búast eru hann og Jim engir
perluvinir.
Brendon mætir með andaborð í
samkvæmið og brugðið er á leik þar
sem sambandi er náð við anda fram-
liðins drengs. Linda verður hugfang-
in af borðinu sem Brendon skilur
eftir og ákveður að kynnast anda
þessum betur ein síns liðs. Fyrr en
varir fara ógnvænlegir hlutir að ger-
ast, andinn fer að ná tökum á henni
og hún verður fyrir „vaxandi vél-
un“ eins og heldur frumleg þýðing á
kvikmyndinni skilgreinir það. Það
verður því hlutverk Jims og Bren-
dons að reyna að uppræta andann.
Það eru nokkrar góða senur í
myndinni sem skjóta áhorfendum
skelk í bringu en dálítið ber á óvand-
virkni eins og þegar ekki varð betur
séð en að ein aðalpersónan fengi exi
á bólakaf í ennið á sér en þegar lík-
ið finnst hefúr sárið færst dátítið
neðar, þ.e. í kinnina á henni. Mynda-
takan magnar stundum upp and-
rúmsloftið, sérstaklega þegar tekið
er eins og frá sjónarhóli andans ofan
frá og niður á aðalpersónumar.
Annars er fátt sem er grípandi við
myndina, hún er heldur meinlaus og
leikur aðalleikaranna ekkert sérlega
eftirtektarverður, hvorki lélegur né
góður. Endirinn er síðan þessi sígildi
hrollvekjuendir þar sem rekja má
orsök ofsóknanna til hússins sjálfs
þar sem illi andinn á upptök sín.
Og að sjálfsögðu gefur endirinn til-
efrii til þess að ætla að ekki hafi
tekist að ráða niðurlögum andans.
Það má því líklega vænta Anda-
borðsins II á næstunni. -BTH
Tawny Kitaen í hlutverki Lindu sem verður fyrir áreitni djöfullegs anda
gegnum andaborð í kvikmyndinni Witchboard.
A ferðalagi
Hin stórbrotna náttúrufegurð Ásbyigk
Þegar haldið er austur þjóðveg-
inn í Kelduhverfi í N-Þingeyjar-
sýslu blasir við Ásbyrgi sem án
nokkurs vafa er eitt fallegasta
náttúrufyrirbrigði íslands. Landið
er tiltölulega flatlent hvort sem
komið er að austan eða vestan og
það er því óvænt og mikil sýn þeg-
ar Ásbyrgið, dökkt og mikið
hamraþil, opnast allt í einu.
Ásbyrgið er eins og skeifa í laginu
og er það 3,5 km á lengd inn í botn
og 1 km að breidd. í mynni Byrgis-
ins er Eyjan svokölluð en hún er
standberg sem stendur hátt upp og
byrgir sýn til allra átta í Byrginu
sjálfu fyrr en komið er nær alveg
inn í botn.
Ekki eru menn á eitt sáttir um
myndun þessa náttúruundurs..
Fyrst var haldið að Ásbyrgi hefði
myndast við landsig en nú hallast
menn helst að þeirri skýringu að
Byrgið hafi myndast við tvö hlaup
í Jökulsá og að þetta sé forn farveg-
ur árinnar. Síðar hafi Jökulsá skipt
um farveg og runnið í um 3 þús. ár
í núverandi farvegi, í sínum frægu
Jökulsárgljúfrum.
I þjóðsögum er myndun Ásbyrgis
skýrð á allskemmtilegan máta.
Byrgið, sem eins og áður sagði er
skeifulaga, á samkvæmt þessari
skáldlegu og frumlegu skýringu að
hafa myndast þegar guðinn Oðinn
var á reið sinni um himingeiminn
á hesti sínum Sleipni. Þeir voru á
ferð yfir Islandi og drap þá Sleipn-
ir niður einum hóf svo fast að
hófsporið sést enn þann dag í dag
og mun sjást um allar aldir til
merkis um komu hins mikla Val-
föður til íslands. Eyjan í miðju
skeifunnar er hóftungumarkið.
Ásbyrgi er skógi vaxið og gróður-
sæld er þar mikil í algjöru skjóli
hinna 100 m háu hamraveggja á
alla vegu. í botni Byrgisins er sérs-
taklega falleg tjörn, Botnstjörn, og
fuglalífið er litskrúðugt í hömrun-
um. Bergmál er mikið inni í
Ásbyrgi og jafnast enginn magnari
á við björgin sem grípa raddirnar
og senda þær margfaldar að styrk-
leika út frá sér aftur. Segja má að
sjón sé sögu ríkari þegar talað er
um Ásbyrgi svo ómögulegt er að
lýsa náttúrufegurð þessa tígulega
hamrasalar svo að vel fari.
I Ásbyrgi voru áður haldin hér-
aðsmót og hefur staðurinn lengi
verið samkomustaður manna enda
tilvalinn staður til slíks. Tjaldstæði
er við Ásbyrgi, einnig búð og veit-
ingastaður og í nágrenninu er
ýmislegt að sjá allt frá Tjörnesi og
Kelduhverfi að þjóðgarðinum við
Jökulsárgljúfur. Hljóðaklettar og
Dettifoss eru á næsta leiti og því
ætti enginn að verða svikinn af
útilegu á þessum slóðum.
Sagt er að engin mynd geti að fullu sýnt hina stórbrotnu fegurð Ás-
byrgis. Fólk verður sjálft að fara á staðinn, skoða og sannfærást.
Útvarp - Sjónvarp DV
Stöð 2 kl. 21.45:
Lukku-Láka
Datton
Hinsta ferð Dalton klíkunnar
heitir bandarísk mynd sem sýnd
verður á Stöð 2 i kvöld. Margir af
yngri og eflaust þeir af þeirri eldri
kynslóðinni ættu að kannast við
þetta skæða gengi úr Lukku-Láka
bókunum sem brjáluðu bófana.
Dalton bræðumir úr villta vestr-
inu voru aðstoðarmenn John Frit-
gengið
patrick en þeir uppgvötuðu að
hrossaþjófnaður átti betur við þá og
sögðu sig úr lögum við samfélagið.
1 hlutverki Dalton bræðra eru
Jack Palance, Larry Wilcox, Dale
Robertson, Bo Hopkins, Sharon Far-
rell og Randy Quaid. Leikstjóri Dan
Curtis.