Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1987, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987.
21
m innan vítateigs og vitaspyrna dæmd.
DV-Brynjar Gauti
[ristjáns það
laddi augað
íþróttir
„Sá svart
á laugardag"
- segir Birkir Kristinsson, maricvörður ÍA, sem meiddist
illa á æfingu s.l. laugardag en er bjartsýnn á bata
til upphit;
í lænnu.
stoð vgðn
Keflvi
OMÖg. e:
Kristmsson
spyrnu, í vj
og kemur fram her
Kristinsson illa 4 æJ
sliðinu s.l. laug-.
létta spretti
aði aftan til
ian á mig
visu meö iiömu uegn
ínni og þaðjvar
um siöir, sagði, Birkir
Akumesmga 1 kngtt-
•ærkvöldi. En eins
1 gærkvo
an meid(
ð liði sm
ist Birkir
smu um helg-
„Vöðvinn svaraði
engum hreyfingum“
„Eg fór ásamt þjálfara mínum,
Guðjóni Þórðarsyni, til Reyjavíkur
til að leita lækninga og komst í
hendur á ágætum lækni. í fyrstu
var hann ekki bjartsýnn og taldi
að meiðslin væru alvarleg og ég
sá keppnistímabilið renna úr hönd-
um mér. Vöðvinn í lærinu svaraði
engum hreyfingum," sagði Birkir.
„Ólýsanleg vonbrigði“
„Það verður að segjast eins og
er að það eru ólýsanleg vonbrigði
að lenda í svona meiðslum og það
á skokkæfingu þegar maður á síst
von á. Ég er búinn að æfa vel í
allt sumar og var ég í mjög góðu
formi þegar þetta þurfti endilega
að koma fyrir. En það þýðir ekk-
ert annað en að bíta á jaxlinn."
„Mér var gefið raflost“
„Mér var gefið raflost í lærið og
einnig var notuð svoneftid nálar-
stunguaðferð. Þessi meðferð virð-
ist hafa hafl góð áhrif því mér
• Birkir Kristinsson, markvörður
ÍA, meiddist illa á æfingu með líði
sínu s.l laugardag en segist vera
bjartsýnn á að hann nái sér fljót-
lega. Þvi hljóta stuðningsmenn
Skagaliðsins að fagna enda Birkir
einn sterkasti hlekkur liðsins.
finnst ég vera miklu betri í lær-
inu. Læknirinn hefur góða trú á
að ég nái bata fljótlega. Ég hvíli
mig vel þessa dagana en finn til
ef ég tek eitthvað á . Það þýðir
ekkert annað en að vera bjartsýnn
í þessum málum. Ég á að mæta
hjá lækninum á morgun og þá
kemui- betur í ljós hvort ég get
farið að hreyfa mig.“
„Eigum góða möguleika í
deildinni"
„Við eigum að leika gegn Þór
um næstu helgi hér á Akranesi og
það verður hörkuleikur og ætla ég
að vona að ég verji mark Akumes-
inga í þeim leik. Við eigum tals-
verða möguleika á íslandsmeist-
artitli ennþá, staða okkar í
deildinni sýnir það. Liðin sem eru
fyrir ofan okkur eiga eftir að leika
gegn okkur svo hlutimir geta
breyst verulega í þeim leikjum sem
eftir em í deildinni. Það hefur sýnt
sig i deildarkeppninni á síðustu
árum svo um munar," sagði Birkir
Kristinsson að lokum.
Fimm sinnum verið valinn í
DV-liðið
Birkir Kristinsson hefur varið
mark Akumesinga af stakri snilld
á Islandsmótinu og verið einn að-
alburðarás liðsins og væri það
mikil blóðtaka fynr liðið ef hans
nyti ekki við í þeim erfiðu leikjum
sem framundan eru í deildinni. En
vonandi nær hann sér af þessum
meiðslum. Þess má geta að Birkir
hefur alls fimm sinnum verið val-
inn í DV-liðið það sem af er
keppnistímabilinu og hefúr enginn
markvörður orðið oftar þeim heiðri
aðnjótandi það sem af er. -JKS
>mótinu í gærkvöldi í slökum leik
ið hefur sýnt betri leik. Liðið siglir nú
lygnan sjó í deildinni, er sjö stigum á eft-
ir efsta liðinu en allt getur gerst ennþá.
Pétur Ormslev var besti maður í leiknum.
Ragnar Margeirsson átti einnig góðan
leik, hélt knettinum sérlega vel og skap-
aði mikinn usla í vörn andstæðinganna.
Staða Víðis orðin slæm
Staða Víðis í deildinni er orðin mjög
slæm en liðið hefur enn tíma til að bæta
sig og þeir Víðismenn eru frægir fyrir
allt annað en að gefast upp þegar á móti
blæs. Liðið barðist vel í gærkvöldi en það
dugði ekki til. Daníel Einars var þeirra
besti maður en einnig átti Vilberg Þor-
valdsson ágætisspretti.
Góður dómari leiksins var Eysteinn
Guðmundsson. Hann þurfti ekki að grípa
til gula spjaldsins f leiknum.
Áhorfendur voru 962.
Maðui' leiksins var Pétur Ormslev.
-JKS
Valsmenn tapa ekki
þegar Magni skorar
- Sveinbjöm skoraði sitt 30. maik fyrir Skagamenn
Magni Pétursson, miðvallarspilarinn
skotfasti úr Val, hefur heldur betur
verið á skotskónum í 1. deildar keppn-
inni í sumar. Magni hefur skorað
fjögur glæsileg mörk með sannkölluð-
um þrumufleygum. Hann skoraði sitt
fjórða mark á Akureyri gegn Þór.
Magni hefur aldrei skorað eins mörg
mörk á einu keppnistímabili. Fyrir
þetta keppnistímabil hafði hann skor-
að þijú mörk í deildinni. Þau mörk
skoraði hann 1980, 1981 og 1983, eða
eitt mark á ári þessi ár.
Þess má geta til gamans að Magni
hefur skorað sjö mörk fyrir Val í sjö
leikjum. Valsmenn hafa ekki tapað
þessum sjö leikjum, sem Magni hefur
skorað mark í.
• Sveinbjöm Hákonarson, hinn
leikreyndi leikmaður Skagamanna,
skoraði sitt 30. 1. deildar mark gegn
Keflvíkingum. Sveinbjöm skoraði sitt
fyrsta mark gegn KR 1979.
• Skagamenn hafa ekki tapað leik
í Keflavík síðan 1982 að Keflvíkingar
unnu sigur, 1-0. Síðan hafa Skaga-
menn farið með sigur af hólmi, eða
unnið fimm síðustu 1. deildar leiki sína
í Keflavík.
• Magni Blöndal Pétursson.
fiSonur stjórans skorar og skorarl
Enski knattspymumaðurinn Nig-
el Clough, sem leikur með Notting-
ham Forest, þar sem faðir hans,
Brian Clough rajður ríkjum, hefur
lieldur betur verið á skotskónum
með liði sínu undanfarið.
Nottingham Forest hefur verið á
keppnisferðalagi á Norðurlöndum
og hefur liðið skorað fiórtán mörk i
þremur leikjum sínum. Þar af hefur
Nigel Clough skorað níu mörk.
Hann skoraði meðal annars þrennu
á móti danska liðinu KB.
-SK