Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1987, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987.
13
Neytendur
Sjukratiyggingar
Allir þeir sem lögheimili eiga á
íslandi eru sjúkratryggðir. Sjúkra-
tryggingar eru í höndum sjúkrasam-
laga og sjúkratryggingadeildar
Tryggingastoíhunar ríkisins. Verka-
skipting er milli þessara aðila, en ég
mun fyrst víkja að þætti sjúkrasam-
laga.
Sjúkrasamlögin eru 40 að tölu og
er að jafriaði eitt í hverri sýslu og í
hverjum kaupstað landsins. Lands-
menn eru' sjúkratryggðir í því
samlagi, þar sem þeir eiga lögheim-
ili. Hjón skulu vera i sama sjúkra-
samlagi og með þeim eru tryggð
böm þeirra 16 ára og yngri.
Helstu greiðslur, sem sjúkrasam-
lög inna af hendi:
a. Dvöl í sjúkrahúsi er greidd að
fúllu. Þó getur sjúklingur þurft að
greiða aukagjald í stofnunum í
einkaeign.
b. Almenna læknishjálp hjá heimil-
islækni, nema sjúklingur greiðir
sjálfúr 110 kr. fyrir hverja komu,
en 200 kr., ef læknirinn kemur í
vitjun til sjúlkingsins.
c. Rannóknir, röntgengreiningu og
sérfræðilæknishjálp, en sjúklingur
greiðir þó 360 kr. fyrir hverja
komu. Aldrei má krefia sjúkling
um nema eina greiðslu í hvert
skipti, þó um margs konar rann-
Tryggingamál:
Hver er
réttur okkar?
Greinar um tryggingamál birtast
að á neytendasíðunni á þriðjudög-
um. Það er Margrét Thoroddsen sem
sér um þennan þátt. Hún svarar
einnig fyrirspumum ef einhveijar
kynnu að berast. Utanáskriftin er
DV,c/o Margrét Thoroddsen, Þver-
holti 11, Reykjavík.
sóknir sé að ræða. Elli- og örorkulif-
eyrisþegargreiða 140 kr. fyrstu 12
skiptin árlega, en síðan ekkert.
Nauðsynlegt er að fá kvittanir fyrir
þessum 12 greiðslum og afhenda
þær í sjúkrasamlagi. Fæst þá skír-
teini, sem veitir ókeypis rétt til
læknishjálpar það sem eftir er ársins.
d. Lyfjakostnað, nema sjúklingur
greiðir sjálfur 200 kr. fyrir hvert inn-
lent lyf og 350 kr. fyrir erlent lyf.
Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
80 kr. fyrir hvert innlent lyf og 120
kr. fyrir erlent lyf. Ákveðin lyf, sem
samlagsmanni er brýn nauðsyn að
nota að staðaldri, fást ókeypis i lyfja-
Raunir
einstæðrar
móður
I bréfi frá Lilju stendur m.a.:
„Anna er einstæð móðir með eitt
komabam. Vegna þess að hún
stundaði ólavmað nám í mennta-
skóla í nfu mánuði og náði því ekki
nema 514 dagvinnustundum á 12
mánaða tímabilinu fyrir bamsburð-
inn fær hún 10.986 kr. í fæðingaror-
lof. Á það bætast síðan mæðralaun,
2.910 kr., og meðlag, 4.642 kr„ sem
sagt 18.538 kr. Af því fara 16.000 kr.
í húsaleígu og hita þannig að Anna
hefur 2.538 kr. á mánuði til að hafa
ofan í sig og á fyrir sjálfa sig og
barnið, ca 84 kr. á dag.
Anna er fúllfrísk manneskja og fær
þvi fæðingarorlof í aðeins þijá mán-
uði. Eftir það stendur hún uppi með
mæðralaun og meðlag, 7.552 kr.
Efhún ætíar út á vinnumarkaðinn
noyðist hún til þess að setja bamið
til dagmömmu (3 mán. gamalt) vegna
þess að bamaheimilispláss eru vand-
fundin. Dagmamman tekur venju-
lega um 10 þús. kr. fyrir mánuðinn.“
Síðan er sott upp reikningsdæmi í
bréfinu þar sem Anna fær i laun 30
þús. kr. eða 37.552 kr. með masðra-
laununum. Af þvi greiðir hún
húsaleigu, hita og dagmömmu 26
þús. kr. Eftirstöðvamar, 11.552 kr.,
eiga að duga fyrir öllu öðm.
Þá veltir bréfritari því fyrir sér
hvemig dæmið gengi upp ef Anna
vildi halda áfram að mennta sig og
ljúka við þær þrjár annir sem hún á
eftir í stúdentspróf, hvað þá áfram-
haldandi nám.
Lilja biður Margréti að segja álit
sitt á þessu máli sem bréfritari telur
að sé síður en svo einsdæmi í þjóð-
félaginu.
Svartil Lilju:
Ég á erfitt með að svara bréfi þínu
þar sem ég hef aðeins tekið að mér
að sv&ra fyrirspumum um trygg-
ingamál en ekki að leysa önnur
vandamál þjóðfélagsins.
Allar bætur almannatrygginga eru
ákveðnar í lögiun sem sett eru af
Alþingi. Eftir þessum lögum verður
Tiyggingastofnunin að starfa og má
ekki fara út fyrir þann ramma. Þess
vegna eru þær bætur sem þú getur
um (fæðingarorlof, meðlag og
mæðralaun) hámarksbætur frá okk-
ur í umræddu tilviki.
Ef fólk á aftur á móti í erfiðleikum
með afkomu sína er það hlutverk
viðkomandi sveitarfélags að hlaupa
undir bagga og í Reykjavík er það
Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar sem annast slík mál.
Mér er fyllilega ljóst að mjög erfið-
ar aðstæður em hjá mörgum ein-
stæðum mæðnmi eins og hjá öðru
láglaunafólki í landinu. Held ég að
skortur á leiguhúsnæði og þ.a.l. há
húsaleiga sé mesta vandamálið en á
því getum við í Tryggingastofnun-
inni því miður ekki ráðið bót. Aftur
á móti veita félagsmálástofnanir oft
húsaleigustyrk í slíkum tilvikum.
Ég vil einnig benda þér á að ein-
stæðar mæður, sem þurfa að hafa
böm sín hjá dagmömmu, sem hefur
leyfi frá Félagsmálastofmin Reykja-
víkur, fá endurgreiddan mismun á
því gjaldi og barnaheimihsgjaldi. Fer
sú greiðsla fram hjá Dagvistun
bama í Hafnarhúsinu. Nú er dag-
gjald á bamaheirailinu 4.160 kr. á
mánuði og myndi því sú kona sern
greiðir 10 þús. kr. fá endurgreiddar
5.840 kr. Þarf aðeins að framvísa
kvittun frá dagmömmu og vottorði
frá Tryggingastofnuninni um að við-
komandi njóti mæðraiauna.
Að lokura vil ég bæta við að ein-
stæð móðir með eitt barn undir 7 ára
aldri fær greiddar bamabætur frá
Skattstofúnni sem nema 67.875 kr. á
yfirstandandi ári. M.Th.
búð gegn framvísun á sérstöku
lyfjakorti samlags.
e. Sjúkradagpeninga. Samlagsmenn
17 ára og eldri (sem ekki njóta elli-
og örorkulífeyris) fá greidda sjúkra-
dagpeninga frá 15. veikindadegi, ef
þeir verða óvinnufærir a.m.k. 21 dag
og tekjur þeirra falla niður. Sérstakt
• læknisvottorð þarf að fylgja umsókn
til sjúkrasamlags.
Fullir dagpeningar, kr. 323,54 á dag,
greiðast þeim sem fella niður heils
dags vinnu.
Hálfir dagpeningar, kr. 161,77,
greiðast þeim sem stunduðu minna
en heils dags vinnu og einnig þeim
sem eingöngu stunda heimilisstörf.
Barnaviðból, kr. 87,79 á dag, er
greidd fyrir hvert barn innan 18 ára,
sem umsækjandi hefur á framfæri
sínu.
f. Flutningskostnað sjúklings milli
heimilis og sjúkrahúss innanlands
að 7/8 hlutum, ef sérstakur sjúkra-
flutningur er nauðsynlegur. Hámark,
sem sjúklingi er gert að greiða, er
þó 1.200 kr. Á sama hátt er greitt
fyrir fylgdarmann, ef hans þarf með.
Sjúkraflutningur innanbæjar greiðist
ekki. Flutningur milli sjúkrahúsa er
greiddur af því sjúkrahúsi sem send-
ir sjúklinginn.
g. Ferðakostnað i sambandi við
ákveðna sjúkdóma, ef sjúklingur
þarf ítrekað að takast ferð á hendur
til meðferðar eða eftirlits hjá lækni
eða á sjúkrahús. Eftir að ferðir eru
hafnar, þarf sjúklingur að leggja inn
skýrslu sérfræðings til sjúkratrygg-
ingadeildar og tekur síðan trygg-
ingayfirlæknir ákvörðun um
greiðsluheimild, sem send er sjúkra-
samlagi.
Skilyrði um lágmarkstiðni ferða.
Langar ferðir:
Sjúklingur þarf að koma til með-
ferðar eða eftiriits a.m.k. þrisvar á 12
mán. timabili, en nægir að koma
tvisvar á næstu 12 mán., ef þörf
verður á framhaldsmeðferð. Eftir að
önnur ferðin er farin endurgreiðir
sjúkrasamlag fyrstu ferð að frádregn-
um 1.100 kr„ en síðari ferðir að
frádregnum 550 kr.
Stuttar og tíðar ferðir:
Sjúklingur þarf að koma til með-
ferðar eða eftirlits a.m.k. 8 sinnum á
4 vikna tímabili.
Eftir fyrsta mánuðinn endurgreiðir
sjúkrasamlag 2/ hluta kostnaðar fyrir
farnar ferðir. Síðan fer endurgreiðsl-
an fram hálfsmánaðarlega.
Til endurgreiðslu reiknast:
1) fargjald með áætlunarbíl eða
skipi, ef um meira en 15 km vega-
lengd er að ræða.
2) ferðakostnaður innanbæjar með
leigubíl milli aðseturs sjúklings og
meðferðarstaðar. Ekki er greitt fyrir
flutning með bifreið manns af sama
heimili eða venslamanns. Fargjald
fylgdarmanns er aðeins greitt, ef
sjúklingur er 12 ára eða yngri eða
ósjálfbjarga.
h. Sjúkraþjálfun hjá viðurkenndum
sjúkraþjálfurum að 3/ hlutum í 18
skipti á ári.
j Reykjavik fá ellilífeyrisþegar ókeyp-
is sjúkraþjálfun, þar sem Reykjavík-
urborg greiðir hlut sjúklings fyrir
þann aldurshóp.
i. Kostnað vegna aðstoðar Ijósmóður
við fæðingu í heimahúsi. Einnig fá
konur, sem ala barn í heimahúsi,
dagpeninga I 10 daga frá fæðingu
barnsins og barnaviðbót fyrir hvert
barn undir 18 ára aldri.
j. Meðferð á húðsjúkdómum, sem
veitt er á heilsugæslustöðvum og
sérstökum göngudeildum sjúkra-
húsa.
i næsta pistli verður framhald á upp-
lýsingum um sjúkrabætur.
Sjúklingar þurfa ekki að greiða þótt þeir þurfi að vistast á sjúkrahúsi.
Engan skurðgröft
Crundomat-borinn gerir skuröi aö
mestu leyti óþarfa. Grundomat grefur
sig undir götur og gangstéttir án þess
aö trufla umferö.
Framkvæmdaaðilar:
DALVERK Sf, Sími 91-685242
ÚLFAR HARÐARSON, sími 99-6625
umboö:
flJJOHN AIKMAN
BORGARTÚN 23 — 105 REYKJAVÍK
SÍMAR 91-27655 — 91-27440