Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1987, Page 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987.
RÝMINGARSALA
Nýir vörubílahjólbarðar.
Mikil varðlækkun.
900x20 nælon frá kr.
8.500,-
1000x20 nælon frá kr.
10.500, -
1100x20 nælon frá kr.
11.500, -
1200x20 nælon frá kr.
12.500, -
1000x20 radial frá kr. 12.600,-
1100x20 radial frá kr. 14.500,-
1200x20 radial frá kr. 16.600,-
Gerið kjarakaup. Sendum
um allt land.
BARÐINN HF.,
Skútuvogi 2 - Reykjavík.
Sími 30501 og 84844.
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, annað og síðara, sem auglýst var í 49., 54. og
64. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Lágumýri 6, 2. h.h„ Mos-
fellshr., þingl. eigandi Ingi Bjarnar Guðmundsson, fer fram á skrifstofu minni
að Strandgötu 31 föstudaginn 14. ágúst nk. kl. 16.30 og verður síðan fram
haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru: Skúli
J. Pálmason hrl., Skarphéðinn Þórisson hrl., Helgi V. Jónsson hrl., Veðdeild
Landsbanka íslands, Búnaðarbanki íslands og Landsbanki íslands.
(Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, annað og síðara, sem auglýst var I 3., 5. og 8.
tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 á eigninni Litla landi, Mosfellshr., þingl. eig-
andi Sveinn Jörundsson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31
föstudaginn 14. ágúst nk. kl. 16.00 og verður síðan fram haldið eftir nánari
ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru: Guðmundur Jónsson
hdl., Jón Egilsson hdl. og Grétar Haraldsson hrl
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, annað og síðara, sem auglýst var í 140., 148.
og 151. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Melabraut 57, 1. hæð,
Seltjarnarn., þingl. eigandi Bjarni Smárason, fer fram á skrifstofu minni að
Strandgötu 31 föstudaginn 14. ágúst nk. kl. 15.45 og verður siðan fram
haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er: Trygg-
ingastofnun ríkisins.
____________ ____________Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, annað og síðara, sem auglýst var í 66., 69. og
79. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Brekkubyggð 31., Garðakaup-
stað, þingl. eigandi Jón E. Gunnarsson, fer fram á skrifstofu minni að
Strandgötu 31 föstudaginn 14. ágúst nk. kl. 15.00 og verður síðan fram
haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru: Veð-
deild Landsbanka islands, Verzlunarbanki islands, lögfr., Sveinn H. Valdimars-
son hrl„ Sigurður G. Guðjónsson hdl., Gjaldheimtan í Garðakaupstað og
Búnaðarbanki islands.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, annað og síðara, sem auglýst var í 57., 63. og
70. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 á eigninni Selvogsgötu 8, e.h. + ris, Hafn-
arf„ þingl. eigandi Haraldur Einarsson, fer fram á skrifstofu minni að Strand-
götu 31 fimmtudaginn 13. ágúst nk. kl. 14.00 og verður síðan fram haldið
eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild
Landsbanka islands, Guðjón Steingrímsson hrl„ Ásgeir Thoroddsen hdl„
innheimta rikissjóðs, Ingvar Björnsson hdl„ Guðjón A. Jónsson hdl„ Björn
Ólafur Hallgrímsson hdl„ Jón Þóroddsson hdl„ Jón Eiríksson hdl„ Björn
Ólafur Hallgrímsson hdl„ Veðdeild Landsbanka islands, Jón Finnsson hrl.
og Gjaldheimtan í Hafnarfirði.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð, sem var auglýst í Lögbirtingablaðinu: 76. tbl.
1984, 78. tbl. 1984 og 80. tbl. 1984 á eigninni Krosseyrarvegi 4, e.h„ Hafn-
arf„ þingl. eigandi Ragnhildur Harðardóttir, fer fram á skrifstofu minni að
Strandgötu 31 föstudaginn 14. ágúst nk. kl. 14.30 og verður því síðan fram
haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er: Veðdeild
Landsbanka íslands.
____________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
Opinbert nauðungaruppboð sem var auglýst í Lögbirtingablaðinu, 51. tbl.
1987, 58. tbl. 1987 og 66. tbl. 1987 á eigninni Unaðsdal, grænmetisg.,
Hafnarf., þingl. eigandi Magnús Jónasson, fer fram á skrifstofu minni að
Strandgötu 31 föstudaginn 14. ágúst nk. kl. 14.30 og verður því siðan fram
haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru: Árni
Grétar Finnsson hrl. og borgarfógetaembættið.
__________________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Neytendur
í barattunni við blóðþiýstinginn:
Lettist og minnkið
áfengis- og
saltneysluna
Einn af hverjum þrem sjúklingum,
sem þjást af of háum blóðþrýstingi,
þyrftu hugsanlega ekki aða taka lyf.
Þeim ætti að duga að hafa hemil á
holdafari sínu og minnka áfengis-
og saltneyslu.
Þetta kemur fram í könnun sem
bandaríska læknablaðið Joumal of
the American Medical Association
stóð fyrir.
Fjögurra ára rannsóknir leiddu í
ljós að um 40 % þeirra, sem fóru að
ráði næringarfræðinga hvað varðaði
mataræði, gátu haldið blóðþrýstingi
í skefjun með því einu og án nok-
kurra lyfja.
Aðeins 5 % þess hóps, sem ekki fór
að ráði næringarfræðinga, gat hald-
ið sér án lyfjatöku.
Þetta þýðir ekki að allir sem eru
á lyfjum við of háum blóðþrýstingi
geti hætt við lyfjatökuna. Ólíklegt
er að mataræði eitt sér geti haldið
öllum blóðþrýstingi í skefjun.
Hins vegar má af þessu ráða að
stór hópur fólks með hækkaðan
blóðþrýsting getur verið án lyfjanna
með því að borða skynsamlega og
samkvæmt ráði næringarráðgjafa.
Þótt lyf séu góð til síns brúks er
alltaf betra að vera laus við að taka
þau og vera þar með laus við þær
aukaverkanir sem lyf kunna að hafa.
I áðurnefndri könnun kom einnig
fram að þátttakendumir léttust um
2 kg að meðaltali. Margir urðu allt
að 5 kg léttari eftir könnunina. Það
er hreint ekki svo lítið.
-A.BJ.
Hnetu-gráðaostur
Þeir sem ætla að sitja heima um
helgina geta gert sér dagamun í mat
og drykk. Við á neytendasíðunni
leggjum okkar af mörkum. með alls
konar skemmtilegum uppskriftum i
dag. Héma kemur uppskrift að gráða-
osti með valhnetum.
150 g gráðaostur
'A dl sýrður rjómi
2-3 msk. mjúkt smjör
50 g gróft hakkaðar valhnetur
1 msk. koníakfmá sleppa)
Heillaráð
Teygjuband
á sleifina
Setjið teygjuband á skaftið á
skeið eða ausu þá dettur hún ekki
ofan í pottinn.
Skrúfaálímtúpuna
Oft er agnarlítill pinni í límtúp-
um. Það getur verið sniðugt að
láta litla skrúfu í túpuna í staðinn
fyrir pinnann. Það er auðveldara
að ná skrúfunni úr og þar að auki
má hengja túpuna upp á skrúfunni
svo hún ætti ekki að týnast í
draslskúffu heimilisins.
Lengið Ivf-
daga blómanna
Hægt er að lengja lífdaga afskor-
inna blóma með því að blanda
saman 2 msk. af ediki og 3 msk.
af sykri. Látið út í 1/2 1 af ca 30°C
heitu vatni. Látið vatnið ná ca 5-6
cm upp á legg blómanna. Skiptið
um vatn daglega og skolið blóma-
vasann.
Auðveldari laukur
Það er auðveldara að afhýða
lauk ef hann er soðinn í hreinu
vatni í 1-2 mínútur. Þá losnar
„skinnið“ auðveldlega af honum.
Lokan á botninn
Næst þegar þú skiptir um poka
í ruslafótunni skaltu láta lokuna
á botninn áður en þú setur nýja
pokann í fótuna. Það ættu allir að
hafa það sem fastan lið að loka
ruslapokunum vel og vandlega
áður en þeim er fleygt annaðhvort
í öskutunnuna eða í ruslalúgur þar
sem þær eru. Ef pokunum er fleygt
opnum á ruslið greiða leið út um
hvippinn og hvappinn.
Hrærið ostinn þar til hann er orðinn
mjúkur og bætið út í hann sýrða ijóm-
anum, smjörinu og hökkuðum val-
hnetukjömunum. Látið í skál og
skreytið með nokkrum heilum kjöm-
um. Þetta er gott með stökku kexi
eins og t.d. vatnskexi eða góðu heima-
bökuðu hafrakexi. -A.BJ.
Gómsætur ostur fyrir þá sem ekki fara i ferðalag um helgina.
Upplýsingaseðill
í til samanburðar á heimiliskostnaði
i Hvað kostar heimilishaldið?
i
| Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
| andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
I fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
I
! Nafn áskrifanda
Heimili
i
Sími
i Fjöldi heimilisfólks _
i
! Kostnaður í júlí 1987:
| Matur og hreinlætisvörur
I Annað
I
I
kr.
kr.
Alls kr.