Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Page 9
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987.
9
Utlönd
Fordæmislaus
fangaskipti
Fangaskipti munu eiga sér stað í
Maputo, höfuðborg Mósambík, í dag
þegar skipt verður á einum Hollend-
ingi, Frakka og hundrað þijátíu og
þremur AngóFabúum íyrir einn hvítan
hermann frá Suður-Afríku.
Eftir nokkurra mánaða viðræður
taka yfirvöld i Suður-Afríku nú á
móti Wynand Du Toit sem tekinn var
til fanga í Angóla fyrir tveimur árum.
í staðinn munu frönsk yfirvöld fá Pi-
erre-André Albertini, sem setið hefur
í fangelsi í Suður-Afríku, fyrir að hafa
neitað að bera vitni fyrir rétti gegn
andstæðingum kynþáttaaðskilnaðar-
stefiiunnar.
Hollendingurinn Klaus de Jonge,
sem leitaði á náðir hollenska sendi-
ráðsins í Pretoríu 1985 á flótta undan
öryggissveitum, fær nú að snúa til síns
heimalands. Hermennimir hundrað
þrjátíu og þrír frá Angóla, sem teknir
voru af skæruliðum studdum af S-
Afríkustjóm, verða einnig látnir
lausir.
Að Maputu skyldi verða fyrir valinu
fyrir þessi fordæmislausu fangaskipti
markar tímamót í samskiptum
Mósambík og Suður-Aíh'ku.
Hollendingurinn Klaus de Junge t hollenska sendiráðinu í Pretoríu þar sem
hann hefur dvalið síðustu tvö árin eftir að hann leitaði þangað á flótta undan
öryggissveitum. Hann fær nú að ganga frjáls ferða sinna í dag.
Simamynd Reuter
Rústir kvikmyndaversins í gær.
Símamynd Reuter
íkveikja
í kvik-
myndaveri
Bmni í kvikmyndaveri í Los Angelse
orsakaði skemmdir sem metnar em á
tvær og hálfa milljón dollara. At-
burðurinn átti sér stað eftir að hringt
var í Universal Studios kvikmynda-
verið á fóstudagskvöld og tilkynnt að
kveikt yrði í því og sprengju komið
fyrir.
Sjötíu og fimm starfsmenn kvik-
myndaversins þurftu að yfirgefa það á
meðan tvö hundmð slökkviliðsmenn
börðust við eldinn sem braust út eftir
hringinguna. Engin sprengja fannst
og ekki er vitað uni ástæðuna fyrir
sprengjuhótuninni.
Kosningar
Peronistar sigruðu
Flokkur Raul Alfonsin, forseta
Argentinu, viðurkenndi í morgun að
hefa beðið ósigur í kosningunum
fyrir flokki perónista.
Höfðu peronistar hlotið 41,2 pró-
sent atkvæða en Róttæki flokkurinn
37,8 prósent þegar búið var að telja
62 þrósent atkvæðanna.
Úrslitin em túlkuð á þann veg að
Alfonsin hafi tapað þeim meirihluta
sem hann hafði haft í neðri deild
þingsins frá því að hann komst til
valda árið 1983 eftir nær átta ára
herstjórn.
Peronistar virðast einnig ætla að
vinna fylkisstjómarkosningamar
sem haldnar vom samtímis í gær.
Þar á meðal í Buenos Aires fylkinu.
Juan Casella, frambjóðandi rót-
tækra, óskaði andstæðingi sínum,
Antonio Cafiero, til hamingju með
sigurinn í fylkinu þar sem þrjátíu
milljónir manns búa.
Spáð er miklum breytingum á
efnahagsstefnu þjóðarinnar. Peron-
istar hafa lofað að eyða meira fé til
félagsmála, atvinnumála og iðnþró- Kosiö var i Argentinu i gær, til þings og fylkisstjóma. Peronistar bám sigur
unar. Úr býtum. Simamynd Reuter
Honecker til vesturs í dag
Opinber heimsókn Erich Honec-
ker, leiðtoga Austur-Þýskalands, til
Vestur-Þýskalands, hefet í dag. Látið
er á heimsókn þessa setn hápunktinn
á hægfara sáttaþróun sem átt hefúr
sér stað milli þýaku ríkjanna tveggja
undanfarin fjömtiu ár.
V-þýskir embættismenn vara þó
við því að láta heimsókn A-Þjóðverj-
ans fela deilueftii ríkjanna og sögðu
að Honecker og Helmut Kohl, kansk
ari V-Þýskalands, myndu ekki ræða
nein j viðkvaim mál á fundi sínum.
Lofa að láta gísl lausan
Mannræningjar í Líbanon lofúðu
því í morgun að láta annan af tveim
v-þýskum gíslum sínum, verkfræð-
inginn Alfred Schmidt, lausan úr
haldi innan fárra klukkustunda.
í yfirlýsingu frá mannræningjun-
um aegir að þar eem ríkisstjóm
landsins hefúr ábyrgst að það sé í
þágu allra málsaðila verði Schraidt
látinn laus í dag.
Gagnrýna árásina
ísraelskt dagblað gagnrýndi í gær harkalega árás ísraefeka flughersins á
Palestínumenn í suðurhluta Líbanon, en fjömtíu manns létu lífið í árásum
þessum. Blaðið sagði að árásimar væm hinar blóðugustu frá því ísraels-
menn réðust inn í Líbanon, árið 1982. Sagði blaðið árásimar hafa verið
gerðar á íbúðasvæði, þær hefðu valdið mikilli reiði meðal Palestínumanna
í flóttamannabúðum og hefðu ekki beinst gegn raunverulegum óvini.
Sjaldgæft er að fjölmiðlar í ísrael gagnrýni hemaðaraðgerðir landsins á
þennan hátt.
Níu slökkviliðsmenn förusi
Talið er að níu slökkviliðsmenn
hafi farist í eldsvoða sem varð í fimm
hæða verslanasamstæðu í Madrid á
Spáni á laugardag.
Slökkviliðsmennimir urðu undir
braki þegar rústir byggingarinnar
hmndu niður. Lík þriggja þeirra
hafa fúndist en talið er fúllvist að
hinir sex séu einnig látnir. Félagar
þeirra úr slökkviliði borgarinnar
vinna nú að því að fjarfeegja meir
en eitt þúsund tonn af braki úr hús-
inu. Gera þeir það með handafli einu
saman því óttast er að vinnuvélar
geti skaðað þá sem hugsanlegt er
að séu á lífi í rústunum.
Segir dóminn mannúðlegan
Sovéska dagblaðið Pravda sagði á
sunnudag að dómur hæstaréttar
landsins í máli v-þýska piltains Mat-
hias Rust hefði verið mannúðlegur.
Benti blaðið á að þótt Rust væri v-
þýskur heföi hann brotið sovésk lög,
heföi verið fyrir sovéskum rétti og
þar stjómuðust niðurstöðiur ekki af
viðhorfúm í öðrum heimshlutum.
Rust hlaut fjögurra ára þrælkun-
ardóm en talið er að hann verði
létinn afplána dóminn í vinnubúöum
skammt frá Moskvu þar sem aðstæð-
ur em allar mjög góðar.
Til nokkurra óeirða kom í fangefei
í Brussel á sunnudag þegar um tvö
hundmð fangar mótmæltu þvi að
tuttugu og sex Bretum, sem fram-
seldir hafá veriö til Belgfu til að
mæta fyrir rétti, sakaðir um mann-
dráp í óeirðum á knattspymuvelli,
verður boðinn mun betri aðbúnaður
en þeim sjálfúm er gert að búa við.