Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Síða 34
46 MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987. Kvikmyndahús Bíóborgin Tveir á toppnum Sýnd kl. 5, 7,9 og 11. Sérsveitin Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bláa Bettý Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20. Bíóhúsið Undir eldfjallinu Sýnd kl. 5, 7, 9, og 11.15. BíóhöUin Tveir á toppnum Sýnd kl. 5, 7.30, og 10. The Living Daylights Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Geggjað sumar Sýnd kl. 5, 7,9 og 11 Lögregluskólinn 4. Sýnd kl. 5 og 7. Innbrotsþjófurinn Sýnd kl. 9 og 11. Blátt flauel Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Háskólabíó Superman IV Sýnd kl. 7, 9 og 11. Laugarásbíó Hver er ég? Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Valhöll Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Rugl i Hollywood Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. hér Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Kvennabúrið Sýnd kl. 9 og 11.15. Villtir dagar Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Herdeildin Sýnd kl. 5 og 9. Þrir vinir Sýnd kl. 3, 5 og 7. Otto Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og 11.15 Ginan Sýnd kl. 3, 7.15 og 11.15. Stjömubíó Óvænt stefnumót Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Neðanjarðarstöðin Sýnd kl. 7 og 11. Wisdom Sýnd kl. 5 og 9. Þjóðleikhúsið Sala aðgangskorta er hafin. Verkefni í áskrift leik- árið 1987-1988. Rómúlus mikli eftir Friedrich Durrenmatt. Brúðarmyndin eftir Guðmund Steinsson. Vesalingarnir, Les Miserables, söngleikur byggður á skáldsögu eftir Victor Hugo. Listdanssýning Islenska dansflokksins. A Lie of the Mind fneftir Sam Shepard. Fjalla-Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson. Lygarinn eftir Goldoni. Verð pr. sæti á aðgangskorti með 20% afs- lætti kr. 4320. Ath! Fjölgað hefur verið sætum á aðgang- skortum á 2.-9, sýningu. Nýjung fyrir ellilífeyrisþega: Aðgangskort fyrir ellilífeyrisþega á 9. sýn- ingu kr. 3300. Kortagestir leikárið 1986-1987: Vinsamlegast hafið samband við miðasölu fyrir 10. september, en þá fara öll óseld aðgangskort I sölu. Fyrsta frumsýning leikársins, Rómúlus mikli, verður 19. september. Almenn miðasala hefst laugardaginn 12. september. Miðasala opin alla daga kl. 13.15-19 á meðan sala aðgangskorta stendur yfir. Sími í miðasölu 11200. <«i<» LEIKFELAG MJi REYKJAVIKUR Aögangskort Sala aðgangskorta, sem gilda á leiksýningar vetrarins, stendur nú yfir. Kortin gilda á eftir- taldar sýningar: 1. Faðirinn eftir August Strindberg. 2. Hremming eftir Barrie Keefe. 3. Algjört rugl Christopher Durang. 4. Síldin kemur, síldin fer eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur, tónlist eftir Valgeir • Guðjónsson. * 5. Nýtt islenskt verk, nánar kynnt síðar. Verð aðgangskorta á 2.-10. sýningu kr. 3.750. Verð frumsýningakorta kr. 6.000. Upplýsingar, pantanir og sala I miðasölu Leikfélags Reykjavíkur i Iðnó daglega kl. 14-19. Sími 1-66-20. Einnig slmsala með VISA og EUROCARD á sama tlma. Regnboginn Vildi að þú værir Kvikmyndir Matador Spænska framlagið á kvikmynda- hátíðinni er næstnýjasta mynd leikstjórans Pedro Almodóvar en hann er nokkurs konar„enfant terrible" spánskrar kvikmyndagerð- ar. Almodóvar þessi, sem fæddur er 1949, hafði lengi starfað hjá spænska símafélaginu í Madrid. Á kvöldin skrifaði hann smásögur og teiknaði teiknimyndasögur sem síðan voru gefhar út í hinum ýmsu neðanjarðar- ritum. 1978 gerði hann kvikmynd sem bar nafnið Folle, Folle, Folleme Tim en hún var tekin á super 8. Sama ár gerði hann myndina Salomé á 16 mm filmu. 1980 tók Almodóvar sér launalaust leyfi frá símanum og hellti sér út í gerð fyrstu bíómyndar sinnar, Pepi Luci, Boom y otras chicas del mon- tón. Þessi mynd sló í gegn svo um munaði. Almodóvar gat farið að sinna leikstjóm. Síðan þá hefur hann gert fimm myndir: Laberinto de pasiones (1982), Entre tinieblas (1982/3) Qué he hecho yo para merec- er eso? (1984), Matador (1985) og loks La ley del deseo sem er ný. I myndum sínum hefur Almodóvar fjallað um ástina og gimdina. I leið- inni hefur hann svo dundað sér við að rífa niður ýmis tabú og afhjúpa. Myndir hans em gjaman í fárán- leikastíl, absúrd kómedíur sem gjaman er líkt við leikrit Beckett. Þessi umdeildi maður er nú einn frægasti kvikmyndagerðarmaður Spánar og hafa myndir hans náð þó nokkrum vinsældum í Bandaríkjun- um. Til gamans má geta þess að kvikmyndahátíð, sem haldin var í Stokkhólmi í ágústmánuði síðast- liðnum, var honum til heiðurs en þar vom sýndar allar myndir hans, nema Matador sem var þó myndin sem skapaði honum frægð á alþjóða- markaði. í þessari mynd tekur Almodóvar fyrir nautabanann, hið íberska karl- mennskutákn, og ástríður hans. Að vanda gerir Almodóvar mikið grín að öllu saman en þetta er þó sú mynda hans sem einna minnsta hneykslun hefur vakið. Til að skrifa handrit myndarinnar fékk Almodóvar til liðs við sig ungan rithöfund, Jesús Ferrero, og þykir árangurinn af þessu samstarfi fá- dæma góður. -PLP Pedro Almodóvar við kynningu á mynd sinni Matador Á ferðalagi Þjórsá, lengsta á landsins Þjórsáin getur stundum látið ófriðlega og Þjórsárhlaup valda oft miklum usla og tjóni. I Landnámabók er nafiigift Þjórs- ár svo skýrð; „Þórarinn hét maður, son Þorkels úr Alviðru Hallbjamar- sonar Hörðukappa. Hann kom skipi sínu í Þjórsárós og hafði þjórshöfuð á stafhi og er áin þar við kennd.“ Þjór er gamalt orð yfir naut og þýð- ir nafhið því Nautsá, hversu fárán- lega sem það kann nú að passa við gömlu góðu Þjórsá. Það er því kannski eins gott að Þórarinn þessi talaði fomt mál að hætti síns tíma og nefndi þetta voldugasta og lengsta fljót landsins Þjórsá. Áin skiptir Ámes- og Rangárvalla- sýslu í tvennt og er eins og áður sagði lengsta fljót landsins, alls 230 km frá upptökum fyrstu kvíslarinn- ar; Bergvatnskvíslar sem liggur norðanvert við Sprengisand, í Þjórs- árdrögum. Athyglisvert er að frá upptökum Þjórsár em 145 km í beinni loftlínu suður á Skaftafellsfjöru en aðeins 70 km til sjós í hina áttina, norður í Akureyrarpoll. Áin kýs sér þó far- veg til suðvesturs þvert yfir hálendi íslands og niður á milli Vatnajökuls og Hofsjökuls, alla leið niður í Hreppa og loks út í sjó í stórum ósi, ekki langt fiá Þykkvabæ. Þjórsámafiiið fær áin ekki fyrr en til móts við Tungnafellsjökul þegar fyrsta jökulárkvíslin rennur í hana en hún er að drjúf'um hluta jökulá þó að bergvatn sé veigamesti hluti hennar. Vatnasvið hennar er 7.530 km2 eða 7,2% af flatarmáli lands- ins. Rosalegri flóð en komið hafa í nokkra aðra á hér á landi hafa ein- mitt hlaupið í Þjórsá en mestu flóðin sem mælst hafa vom 1848 og 1949 og var rennslið þá á fjórða þúsund rúmmetrar á sekúndu. íshrönnin verður stundum gífurleg í Þjórsánni og þá einna helst við Urriðafoss, oftast 10 til 12 metra háar. Merkja má hlaup í Þjórsá af mikilli brenni- steinslykt sem gýs upp og berst með kolmórauðri ánni niður í byggð. Fyrir neðan Þjórsárver uppi undir Hofsjökli kemur áin niður á fast berg og fellur þar brátt í gljúfri og er orðin að stórá. Þar em í henni þrír miklir fossar; Hvanngiljafoss, Dynkur, sem er þeirra mestur, og Gljúfurleitarfoss sem er fallegastur og talinn meðal glæsilegustu fossa landsins. Þjórsá og þverár hennar er orku- mesta fallvatn á íslandi enda em nú þrjár virkjanir í ánni; Sigöldu-, Hrauneyjafoss- og Búrfellsvirkjun. Þórisvatn er notað sem uppistöðulón fyrh' virkjanimar og er kvíslunum þar fyrir ofan veitt í vatnið. Við Sultartanga er einnig miðlun og nú em virkjanimar því óháðari rennsl- isduttlungum árinnar og ísskriði en var í upphafi. Þjórsá var löngum mikill farar- tálmi á milli sveita og sem dæmi um það er að tveir þeirra fossa, er hér á undan vom nefiidir, hétu hvor sínu nafni austan og vestan ár. Neðar í Þjórsá, niðri í byggð, var að finna vöð, þó oft á tíðum væm þau ófær með öllu, enda komu snemma lög- ferjur á ána. Brú var fyrst byggð yfir Þjórsá árið 1895 og endurbyggð 1949. Þjórsárbrúin í núverandi mynd var byggð árið 1973 og gegnir veiga- miklu hlutverki í samgöngum um landið enda þjóðvegur 1. HJOLKOPPAR Aðeins á kr. 2.390,- settið, meðan birgðir endast. SKEIFUNNI 5A SÍMI 91 8 47 88 10 ARA ÁBYRGÐ ALSTIGAR ALLAR GERÐIR SÉRSMIÐUM BRUNASTIGA O.FL. Kaplahrauni 7, S 651960 Útvarp - Sjónvaip__________ RÚV, rás 1, kl. 23.00: Tónlist að kvöldi dags Kvöldtónleikar em tíðir í Ríkisút- fynr píanó eftir Hjálmar H. Kagnars- varpinu af hvaða tegund sem er og í kvöld verða fimm verk á dagskrá. Verkin em þriðji kafli úr sinfóníu nr. 5 eftir Dimitri Sjostakovitsj, Fíladelf- íuhljómsveitin leikur; Eugen e Ormandy stjómar. Þrjú ástarljóð eftir Pál P. Pálsson við ljóð Hannesar Pét> urssonar, Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngur og Anna Guðný Guðmunds- dóttir leikur á píanó. Tvær prelúdíur son verða einnig á dagskrá, Anna Áslaug Ragnarsdóttir leikur á píanó. Þá verður hljómsveitarverk eftir Jón Nordal, Sinfóníuhljómsveit íslands leikur undir stjóm Jean-Pirre Jacqu- illat. Að síðustu verða sönglög eftir Atla Heimi Sveinsson sem nefriast Úr ljóðakomum. Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir syngur. Anna Guðný Guð- mundsdóttir leikur á píanó. BINGO! Hefjtkl. 19.30 Aðalvlnnlnqur aft verðmaetl kr.40bús. Hclldarverðmaetl vlnnlnqa kr.180 bús. ll TEMPLARAHÖLUN Eiríksgötu 5 — S. 20010 6brMo4iv>h6bJitTUön ðvjj.) iru iCiHsd C v ú -HJf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.