Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Qupperneq 36
Forseti Islands, Vigdis Finnbogadóttir, er hér með einu fjölskyldunni sem býr á eyjunni Stóra Dimoni í Færeyjum. Tignarlegt umhverfi eyjarinnar blasir við. Heimsókn forsetans til Færeyja lýkur í dag. Sjá fréttir og viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur á bls. 2. DV-símamynd GVA i Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstiórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987. Reykkafarar björguðu manni úr brunanum við Kirkjuteig. Hér sést þegar hann er fluttur inn i sjúkrabif- reið. DV-mynd GÖ EJdur í tveimur íbúðum í nótt Slökkviliðið í Reykjavík var í tví- gang kallað út í nótt vegna elds í íbúðum. Skömmu eftir miðnætti var tilkynnt um eld í herbergi í í húsinu númer 13 við Kirkjuteig. Þegar Slökkviliðið kom á vettvang lagði reyk úr herberg- inu og fóru reykkafarar inn. Maður var í herberginu og var hann fluttur á slysadeild og þaðan á Landspítal- ann. Hann brenndist á höndum og höfði. |j.Greiölega gekk að slökkva eldinn en töluverðar skemmdir hlutust af. Slökkvilið var aftur kallað út klukk- an hálfijögur í nótt. Þá var laus eldur í íbúð á annarri hæð í Garðastræti 13a. Einn maður var í íbúðinni og hafði vegfarandi og lögregla farið inn og náð manninum út þegar Slökkvilið kom á vettvang. fbúinn og vegfarandinn voru fluttir á slysadeild. Vegfarandinn fékk að fara heim að lokinni skoðun en íbúinn var fluttur á Landspítalann. -sme Banaslys á Kleppsvegi Ungur maður lést er hann ók bíl sínum á ljósastaur á Kleppsvegi snemma í gærmorgun. j»«Maðurinn ók Sætún í austurátt og er hann kom á Kleppsveg virðist sem hann hafi misst stjóm á bílnum og ekið á Ijósastaur. Þegar að var komið var maðurinn látinn. Bíllinn, sem er af gerðinni Fiat Uno, er gjörónýtur. Ilar gerðir sendibíla 25050 SEJlDIBiLJISTÖDin Borgartúni 21 LOKI Nú geta menn orðiö loðnir um lófana af loðnunni! Verkamannasambandið að klofna: Síðasti nagli í kistuna segir Hrafnkell A. Jónsson, fwmaður Áivakurs á EskHbðl „Ég lít svo á að þessi krafa Karls Steinars Guðnasonar, varaformanns Verkamannasambandsins, um að neyta afls á fúndinum sé ef til vifi síðasti naglinn í líkkistu Verka- mannasambands íslands. Við, sem gengum út af þessum fonnanna- fúndi, munum á næstu dögum skoða það og meta hvort Verkamannasam- bandið er vettvangur sem skilar okkur einhverjum árangri. Eins og málin standa núna fæ ég ekki séð að svo sé,“ sagði Hrafnkell A. Jóns- son, fonnaður Árvakurs á Eskifirði. Hrafiikell var einn þeirra 11 verka- lýðsforingja sem gengu út af for- mannafúndi V erkamannasambands- ins í gær. Þá hafði Karl Steinar borið fram tillögu þess efiiis að félagafjöldi í verkjalýðsfélögunum réði við at- kvæðagreiðslu um kjaramálatillög- umar tvær sem fyrir lágu. Hrafiikell sagði að það kæmi sér ekki á óvart þótt út úr þessu kæmi að menn létu verða af því að stofiia sérstakt landssamband fiskvinnslu- fólks. Það hefði lengi blundað með mönnum. Nú væri mælirinn fullur og ljóst að til tíðinda drægi á næst> „Þetta er afar slæmt mál og ég Kt svo að að staða okkar nú bjóði ekki upp á að menn séu með briglsyrði hver um annan. Okkur ríður á að halda samstöðu og svona sundrung er verkalýðshreyfingunni hættuleg," sagði Guðmundur J. Guðmundsson, fbmiaður Verkamannasambandsina Harrn sagðist vona að þegar menn settust niður og hugsuðu máhð í rólegheitum sæju menn að sundr- ungin væri aðeins vatn á myllu vinnuveitenda. -S.dór Verötilboð Krossanesverksmiðjunnar í loðnuna: Hagstæðara en útreikn- ingar Þjóðhagsstofnunar - segir Sveinn Hjörtur Hjartarson hjá LIU „Við erum nokkuð ánægðir með frumkvæðið, það hefur verið okkar stefna að loðnuverð ætti að vera frjálst," sagði Sveinn Hjörtur Hjartar- son, fúlltrúi. Kristjáns Ragnarssonar hjá LIU, um ákvörðun Krossanesverk- smiðjunnar á Akureyri sem auglýsti í gærdag verðtilboð í loðnu sem er fyrir fyrsta farminn 3000 krónur á hvert tonn, 2500 krónur fyrir annan farminn og síðan 1800 til 2000 krónur fyrir hvert tonn eftír gæðum hráefnisins út mánuðinn. Tilboðið er háð því skilyrði að ríkis- stjómin falli frá því að endurgreiða verksmiðjunni uppsafiiaðan söluskatt. Það myndi lækka um 150 krónur á hvert tonn af loðnunni. Hjörtur sagði ennfremur að verð- tilboð Krossanesverksmiðjunnar væri nokkuð betra en útreikningar Þjóð- hagsstofnunar segðu til um. Fyrir hálfum mánuði lögðu tveir bátar frá Vestmannaeyjum, Huginn og Gullbergið, á haf út í leit að loðnu og vom þeir um vikutíma en fundu enga loðnu þar sem sjórinn var enn of heitur. Síðan þá hefur enginn loðnu- bátur farið út enda mikill kostnaður við leitimar. „Með þessu tilboði fú þeir umbun fyrir að reyna að fara af stað í loðnuleit þar sem engin ákvörð- un er komin frá verðlagsnefnd enn. Ef verðið verður hærra þá hækkum við tilboðið en ef það verður lægra mun tilboðið standa," sagði Geir Þ. Zoega, framkvæmdastjóri Krossanes- verksmiðjunnar, í samtali við DV. -GKr Þrennt flutt á sjúkrahús Gyifi Kristjánsaan, DV, Akureyii Framúrakstur fólksbifreiðar á Öxnadalsheiði í gærkvöldi endaði með því að ökumaðurinn missti vald á.bif- reiðinni sem valt út af veginum. I bifreiðinni vom hjón með tvö böm. Þrennt var flutt á Fjórðungssjúkrahú- sið á Akureyri, en ekki mun vera um mjög alvarleg meiðsli að ræða. Bifreið- in er hins vegar mjög mikið skemmd. Synti í sjónum og drukknaði Þrítugur maður dmkknaði um mið- nætti á föstudag. Maðurinn ætlaði að Veðrið á morgun: Skýjað en úrkomu- Ivtið Á morgun verður hæg, breytileg átt á landinu, víðast hvar skýjað en úrkomulítið. Hiti verður á bilinu 8 til 13 stig. Ágætis veður á landinu öllu miðað við árstíma. synda um borð í skútu sína en hún lá við festar við aðstöðu Siglingaklúbbs- ins Vogs í Garðabæ. Maðurinn var ásamt bróður sínum við aðstöðu siglingaklúbbsins seint á föstudagskvöld. Skúta mannsins lá um 200 metra frá landi og hugðist hann synda um borð í hana. Þegar hann lagðist til sunds kallað bróðir hans á lögreglu. Ásamt lögreglunni í Hafnarfirði komu á vettvang björgunarsveitin Fiskaklettur, hjálparsveit skáta í Hafriarfirði og lögreglan í Kópavogi. Um klukkustund eftir að leit að manninum hófst fannst hann við skipasmíðastöðina Stálvík, var hann þá látinn. Maðurinn hét Pétur Þór Magnús- son, til heimilis að Einilundi 1, Garðabæ. Hann var þrítugur að aldri. i I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.