Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1987, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1987.
9
Utlönd
Palestínumenn eignast
nýjar frelsishetjur
Fjórir ungir, strangtrúaðir mú-
hameöstrúarmenn, sem fyrr í þess-
um mánuði féllu í skotbardaga við
hernámslið ísraela á Gaza-svæðinu,
hafa nú bæst í hóp þeirra sem teljast
frelsishetjur andófshreyfingar Pa-
lestínumanná þar.
Myndir af fjórmenningunum,
klipptar út úr dagblöðum Palestína,
hanga nú á veggjum margra heimila
á Gaza-svæðinu og sögur af hetjudáð-
um þeirra og félaga þeirra í hreyf-
ingu sem nefnir sig Jihad (heilagt
stríð), hafa heillað hug ungmenna í
fátækrahverfum þar.
Ung hreyfing
Fyrir ári síðan var Jihad-hreyfing-
in nær óþekkt. Síðan hefur hún orðið
eitt virkasta aflið í baráttunni gegn
hersetu ísraela á Gaza-svæðinu og
hefur, að því er haft er eftir bæði
palestínskum og ísraelskum heimild-
um, jafnvel staðið fyrir aögerðum á
herteknu svæðunum á vesturbakka
Jórdan.
ísraelar leggja nú sívaxandi
áherslu á aðgerðir gegn hreyfing-
unni sem þeir telja að hafi staðið að
baki flestum árásum gegn ísraelsk-
um hagsmunum á Gaza undanfarið
ár. Hafa þeir handtekið liðlega fimm-
tíu aðila sem grunaöir eru um aðild
að hreyfingunni, svo og gert upptækt
mikið magn vopna sem Jihad-félagar
höfðu í fórum sínum.
Telja ísraelar að Jihad hafi meðal
annars staðið að morðinu á yfir-
manni ísraelsku herlögreglunnar í
Gaza-borg, árás á lest ísraelskra ör-
yggisvarða i flóttamannabúðunum í
Jabalya og moröum á nokkrum al-
mennum ísraelskum borgurum.
Óháðir shítum
Þessi nýja Jihad-hreyfing starfar á
mjög óskipulegum grundvelli. Hún
hefur enga yfirlýsta leiðtoga, rekur
engar skrifstofur eða fulltrúa út á
við, hvorki heima né erlendis, og
fylgismenn hennar segja hana alger-
lega ótengda samnefndri hreyfingu
shíta í Líbanon sem þar halda nokkr-
um vesturlandabúum í gíslingu.
ísraelskar heimildir herma að Ji-
had fái vopn sín og fjármuni og njóti
þjálfunar að mestu frá Fatah,
stærstu skæruliðahreyfmgu innan
frelsishreyfingar Palestínu, PLO.
Komi birgðir yfirleitt gegn um Jórd-
aníu. Þeir sem berjast fyrir hreyfing-
una eru hins vegar ungir Sunni-
múhameðstrúarmenn, sem alist hafa
upp undir skugga ísraelskrar her-
setu.
Telja sérfræðingar að styrkur
hreyfingarinnar liggi aðallega í
áherslu hennar á hefbundnar kenn-
ingar múhameðstrúar, því að hún
hafnar alfarið öllum málamiðlunum
gagnvart ísrael og Vesturlöndum og
fangabúöum ísraela. I búðunum taka
þau við kenningum sem gera þau að
hörðum fylgjendum íslamskrar þjóð-
ernisstefnu, en margir telja að fátt
sé ísraelum jafnhættulegt og múha-
meðstrú sem blandast þjóðernistil-
finningum.
Óttast fylgið
ísraelsmenn óttast þess vegna
þessa nýju hreyfingu mjög, einkum
þar sem undanfarið ár hefur dregið
til aðgerða sem ólíkar eru fyrri árás-
um Palestínumanna á herteknu
svæðunum og í ísrael sjálfu.
í ágústmánuði síðastliðnum komst
til dæmis upp samsæri um að aka
vörubíl, hlöðnum sprengiefni, til að-
seturs stjórnvalda í Jerúsalem og
sprengja hann þar í loft upp. Öku-
mennirnir ætluðu sjálfum sér ekki
líf og er þetta í fyrsta sinn sem vitaö
er til aö sjálfsmorðstilræði af þessu
tagi hafi verið skipulagt innan landa-
mæra Ísraelsríkis.
Og þaö sem ísraelum þykir verst
er að þeir hafa kynt sér þennan eld
sjálfir, meö aðgerðum sínum á her-
teknu svæðunum.
Palestínsk kona í hefðbundnum bún-
ingi við nám í háskóla múhameðs-
trúarmanna á Gaza-svæðinu. Jihad
hreyfingin sækir styrk sinn mikið til
háskólans. Simamynd Rcuter
vilja félaga hreyfingarinnar til sjálfs-
fórnar.
Góð vaxtarskilyrði
Jihad-hreyfingin á góð vaxtarskil-
yrði á Gaza-svæðinu. Þar búa nú um
sex hundruð og fimmtíu þúsund Pa-
lestínumenn, sem eiga sér ekkert
heimaland og enga framtíð, aðra en
illa launuö verkamannastörf í ísrael,
þegar einhverja slíka vinnu er að fá
á annað borð.
Þegar þeir sem alast upp við þessi
skilyrði ná unglingsárum hafa marg-
ir þeirra tekið þátt í aö grýta hersetu-
lið ísraela, þeir hafa komist í návígi
við táragas og kylfur herlögreglunn-
ar, hafa lent í skothríð og jafnvel
dvalið um hríð í fangabúðum ísraela
á svæðinu.
Fangavist veitir þeim sjálfsvirð-
ingu og skipar þeim sess meöal
annarra andstæðinga ísraela, auk
þess að þeir fá í fangabúðunum
grundvallarþjálfun til baráttu gegn
hersetunni. Að hafa setið í fangabúð-
um ísraela er talið virðingarmerki
meðal ungra Palestínumanna.
Þeir sem vinna alþjóðleg hjálpar-
störf á Gaza-svæðinu segja að með
fangabúðunum séu ísraelar í raun
að reka skóla fyrir palestínska
skæruliða. Unglingarnir fari inn
óharðnaðir og ráðvilltir, en komi út
aftur sem harðnaðir hermenn.
Eini kosturinn
Að sögn palestínskra heimildár-
manna er Jihad-hreyfingin og bar-
átta hennar eini raunhæfi kosturinn
sem þessi ungmenni sjá. Hefðbundin
þjóðernisstefna Palestínumanna hef-
ur ekki náð árangri í viðskiptum
sínum við ísraela, Sovétríkin og
hreyfmgar vinstri sinnaðra Palest-
ínumanna hafa ekki staðið undir
loforðum sínum og mörgum ungum
Palestínumönnum þykir PLO hafa
svikið þann málstað sem þeir vilja
berjast fyrir.
Mörg ungmenni, sem fylgjandi eru
PLO, skipta um skoðun við dvöl í
WJÓRNUNAR
veitir þú þjónustu ?
INNRITUN TIL
30. OKT.
FYRIRTÆKINU VEGNAR BETUR,
NÝTI STARFSMENN
SAMSKIPTAHÆFNI SÍNA TIL FULLS.
ÞJÓNUSTUNÁMSKEIÐ FYRIR EINSTAKLINGA
, OG STARFSMANNAHÓPA.
Magnaö námskeið afnýju tegundinni og því erætlað
xað skila árangri strax. Þetta er námskeiðið sem
Flugleiðir sendu allt sitt starfsfólk á.
NÁMSKEIÐIÐ Á:
• Að auka þátttöku og áhuga starfsfólks á starfsemi
fyrirtækisins • Að auka skilning allra á mikilvægi þess
að uppfylla þarfir viðskiptavinarins
• Að kynna raunhæfar aðferðir til samskipta innan
fyrirtækis og utan • Að taka breytingum með
jákvæðum hætti • Að bæta starfsandann
1 \ • Að skapa skilning á því að þjónustan innan fyrirtækisins
^ hefur mikil áhrif á þjónustuna út á við
LEIÐBEINANDI:
Haukur Haraldsson, sölu- og markaðsráðgjafi.
TÍMI OG STAÐUfí:
2.-3. nóvember kl. 8.30-17.30 að Ánanaustum 15.
Stjórnuridrfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
Arnarflug og KLM
- Til yfir 130 borga í 77 löndum