Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1987, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1987.
11
Útlönd
Ný bytting
Leiötogi byltingarmannanna, sem í ágústmán-
uði reyndu aö steypa Corazon Aquino, forseta
Filippseyja, af stóli, er enn á ílótta en ekki búinn
að gefa baráttu sína upp á bátinn. Hann segir
baráttuna halda áfram þar til stjórnvöld gangi
að kröfum um sakaruppgjöf, forsetinn fari frá eða
þar til hersveitir tryggar forsetanum nái honum
á sitt vald.
Gregorio Honasan ofursti, sem var einn af leið-
togum þeirra er steyptu Ferdinand Marcos af
stóli og komu Aquino til valda, er nú leiðtogi
þeirra sem vilja nýja forsetann aftur út í kuld-
ann. Honum tókst nærri því að bylta Aquino í
ágúst og hann ætlar aö reyna aftur. Hann varar
stjómvöld við því að til meiri blóðsúthelhnga
kunni að koma í það skiptið ef þau gefi ekki eftir.
„Hvað er að því að ráðast á forsetahöllina af
fullu aíli?“ spyr hann og útilokar ekki aö Corazon
Aquino verði myrt ef færi gefst. Hann fuhyrðir
að á sínum tíma hafi verið ætlunin að ráða Marc-
os af dögum og fær ekki séð að það geti tahst
verra að myrða Aquino.
Honasan segist þó einnig vera reiðubúinn th
þess að gefa baráttu sína upp á bátinn ef stjóm-
völd lofi því að gefa öllum uppreisnarmönnum
upp sakir. Segist hann skilja það að rikisstjórn
forsetans þurfi að halda andliti sínu út á við. Til
þessa hefur Aquino þó neitað aífarið að semja
við þá.
Afmæli
Það hefur líklega ekki farið fram hjá mörgum
að sovéska byltingin á sjötíu ára afmæli á þessu
ári. Fyrirhuguð eru mikil hátíðahöld í Moskvu,
að sjálfsögðu með fjölda boðsgesta alls staðar að
úr heiminum, og munu þau væntanlega ná há-
marki sínu þann sjöunda nóvember næstkom-
andi en það er opinber afmælisdagur byltingar-
innar.
Hátíðin hófst hins vegar fyrir rúmum mánuði
með mikilli flugsýningu í Moskvu. Meðal þess
sem þar var sýnt var þessi herþyrla, af gerðinni
MI-8, sem bar risavaxna mynd af Lenin.
Líkt og hátiðahöldin hófust með flugsýningu
mun þeim væntanlega ljúka með mikilli hersýn-
ingu á Rauða torginu í Moskvu, eins og hefð segir
til um hjá Sovétmönnum.
Gengur hægt
Indversku hersveitunum á Sri Lanka ætlar
seint að takast að vinna sigur á skæruliðum
tamha í Jaffna-borg á norðanverðri eynni. Barátt-
an um borgina hefur nú staðið í sautján daga og
hefur orðið mikið mannfall í liöi beggja. Talið er
að um sex hundruð tamílar hafi fallið en hundr-
að sextíu og sjö indverskir hermenn munu hafa
týnt lífi.
Að sögn Indveija gengur þungvopnuðum her-
sveitum þeirra erfiðlega að uppræta skæruhða
tamílanna, einkum þar sem ekki þykir þorandi
aö beita indverska heraflanum af fullu afli af
óttavið manntjón meðal almennra borgara. Auk
þess er óttast að meginhluti skæruliðanna í borg-
inni hafi náð aö komast undan þaðan í hópum
flóttamanna og að þeir geti tekið baráttuna aftur
upp á nýjum vettvangi.
Geimskot
Bandaríska flughernum tókst á mánudag að
skjóta á loft gervihnetti með Títan-eldflaug frá
flugstöðinni í Vandenberg í Kaliforníu. Er þetta
í fyrsta sinn í hálft annað ár sem flughernum
tekst að koma gervihnetti á loft og er talið að
skotið hafi mikla þýðingu fyrir geimferðaáætlun
Bandaríkjanna í heild.
Ekki var gefið upp hvers konar gervihnöttur
það var sem Títan-flaugin bar á loft. Sérfræðing-
ar leiða þó getum að því að þar hafi verið um
KHU njósnahnött að ræða en shkir hnettir vega
yfir þrettán tonn og eru á stærð við strætisvagn.
Bandaríkjamenn eiga sem stendur aðeins einn
slíkan hnött á braut um jörðu og er talið að hann
verði ónothæfur á næsta ári. Síðustu tvær th-
raunir Bandaríkjamanna með Títan-flaugar hafa
misheppnast, önnur vegna vélarbilunar og hin
vegna þess að eldflaugin sprakk í loft upp
skömmu eftir flugtak.
NORRÆNI SUMARHASKÓLINN
KYNNINGARFUNDUR
verður í Norræna húsinu í kvöld, miðvíkudaginn 28.
okt. kl. 20.30. f vetur gefst kostur á að vinna með
eftirtalin efni:
1. Huglægni (subjektivitet og intersubjektivitet).
2. Erfðatækni og siðareglur i því sambandi.
3. Þróunarleiöir í þriðja heiminum.
4. Trúarbrögð og menning.
5. Framtið Evrópu.
6. Tíminn, - greining og skilningur.
7. Meðferðarstefnur, meðferðarsamfélag.
8. Fagurfræði tónlistar.
9. Tækniþróun og aðiögun að henni.
10. Kynbundin áhrif í fagurfræði og menningu.
11. Frásögn, mynd og hljóð í nútimamiðiun.
Allt áhugafólk er velkomið.
Stjórn íslandsdeildar N.S.H.
/ (Q f
/
/
Mött áferð
með
Kópal
Dýrotóni
Kópal Dýrótón innimálningin hefur
gljástig 4, sem gefur matta áferð. Þessi
mjúka áferð heldur endurkasti í lágmarki
og hentar því vel þar sem veggirnir eru
baksvið í leik og starfi. Viljir þú meiri
gljáa á veggi sem meira mæðir á skaltu
velja Kópal innimálningu með hærra
gljástigi, s.s. Kópal Glitru, Kópal Flos eða
Kópal Geisla.
I
M,
málninglf
kópal
I DYROTON
k STEIN, TRÉ, MALM O.FL
ttWUHJkSTMÁLNING, VATNSÞVNN. qíÁST/q