Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1987, Page 40
«4 •
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987.
Alþýðusamband Vesturiands:
Samþykkt að
leggja
- sambandið
niður
í allsherjar atkvæðagreiöslu dag-
ana 19. og 20. nóvember, innan 11
verkalýðsfélaga sem mynda Alþýðu-
samband Vesturlands, var samþykkt
að leggja sambandið niður. Þótt 6
félög væru á móti því að leggja sam-
bandið niður en 5 félög því meðmælt
þá eru þessi 5 félög mun fjölmennari
ög ráða því ferðinni.
Félögin sem vildu leggja samband-
ið niður voru: Verkalýðsfélag
Akraness, Verslunarmannafélag
Akraness, Sveinafélag málmiðnað-
•Grmanna á Akranesi, Verkalýðsfélag
Stykkishólms og Stjarnan í Grundar-
firði.
Félögin sem voru andvíg því eru:
Valur, Búðardal, Verkalýðsfélag
Borgarness, Hörður, Hvalfirði,
Verslunarmannafélag Borgamess,
Afturelding, Helhssandi og Jökull,
Ólafsvík.
Jón Agnar Eggertsson, formaður
Alþýðusambands Vesturlands, sagði
í morgun að málið yrði tekið fyrir á
aukaþingi sambandsins 5. desember.
Hann sagðist eiga von á því að félög-
sem ekki vildu leggja sambaudiö
niður myndu koma sér upp einhvers
konar sambandi eða mynda sameig-
inlegan umræðuvettvang. -S.dór
Ungurmaðurtýndur
Lýst er eftir 20 ára manni, Guð-
mundi Finni Björnssyni frá Hvanna-
brekku, til heimilis að Tjarnargötu
10 í Reykjavík.
Guðmundur er ljóshærður, 182
sentímetrar á hæð og notar gleraugu.
Hann var klæddur gráum jakka,
gráum buxum, í skyrtu með bindi
og í svörtum skóm. Síðast sást til
Guðmundar um miðnætti aðfaranótt
•^unnudags við veitingahúsið
Hollywood í Reykjavík. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um ferðir Guð-
mundar eru beðnir að gera lögregl-
unni viðvart.
-sme
llar
gerðir
sendibíla
25050
senDiBíLJtsTöDin
Borgartúni 21
LOKI
Valdastaðfr við Austurvöll
skulu rísa hvað sem tautar
og raular!
Skrifstofuhús Alþingis er til um-
ræðu i þingflokkum um þessar
mundir. Arkitekt byggingarinnar
ásamt húsameistara ríkisins fer
þessa dagana á milli þingflokka og
kynnir hugraynd að breyttu útliti
hússins. Ekki mun þó vera ura
stórvægilega breytingu að ræða.
„Það er ekki búið að ákveða neina
breytingu. Það eru alls konar hug-
myndir uppi sem verið er að kynna
og þingraenn geta komið með sínar
tillögur," sagði Þorvaldur Garöar
Kristjánsson, forseti Sameinaðs
þings.
A flárlögum yfirstandandi árs
eru 12 milljónir króna til hönnunar
nýbyggingar Alþingis. Þessi fjár-
veiting kom inn að tillögu forseta
og þingflokksformanna við loka-
uraræðu frumvarpsins í fyrra.
Hins vegar er ekkert fraralag til
hússins í fjáriagafrumvarpi fyrir
næsta ár.
DV hefur fregnað að þingforseti
leiti eftir vilja til aö halda áfrara
verkinu.
„Ég hef ekkert um þetta að segja.
Það er ekki búið að ákveða aö
byggja þessa nýbyggingu. Þú færð
ekkert út úr mér á þessu stigi,“
sagði Þorvaldur Garðar.
-KMU
Það er ekki furða. þótt Karlvel Pálmason sé með sælubros á vör sitjandi mitt á meðal al-
þingiskvennanna Álfheiðar Ingadóttur, Margrétar Frímannsdóttur og Kristínar Einarsdóttur.
DV-mynd GVA
Asmundur og Þorsteinn ræða saman
Ásmundur Stefánsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, og Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra áttu fund
saman nokkra stund í Alþingishús-
inu síödegis í gær.
„Við sátum smástund og röbbuð-
um saman. Þetta voru ekki neinar
samningaviðræður af hvorugs
hálfu,“ sagði Ásmundur um fund
þeirra.
„Við hittumst bara og ræddum
saman um ýmislegt eins og þegar
tveir menn hittast á fórnum vegi.
Þetta er ekki tilefni til eins eða neins.
Það var ekkert stórt í sambandi við
þetta,“ sagði Ásmundur.
-KMU
Veðríð á morgun:
Suðvest-
anátt
ríkjandi
Á morgun verður suðvestanátt
ríkjandi. Framan af degi verður
rigning austanlands en léttir til
síðdegis. Um vestanvert landið
verða skúrir eða slydduél. Hiti
verður á bilinu 2 til 5 stig.
Akureyri:
Hávaði er
rúntinum
var lokað
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þeir höguðu sér eins og asnar,“
sagði varöstjóri hjá Akureyrarlög-
reglunni í morgun um mótmæli
ungra ökumanna í miðbænum þar í
gærkvöld.
Ökumennimir voru að mótmæla
því að nú hefur rúntinum umhverfis
Ráðhústorg verið lokað fyrir umferð
frá kl. 22 á kvöldin til 6 á morgnana.
Þessu var mótmælt á þann hátt að
bílflautur voru þeyttar stanslaust við
Torgið frá því lokað var kl. 22 í gaer-
kvöldi fram til miðnættis.
Lögreglan mætti að sjálfsögðu á
staðinn og tók nokkra ökumenn til
yfirheyrslu og síðan voru þeir kærö-
ir fyrir að vera með hávaða á
almannafæri. Kom fram hjá þeim
flestum í yfirheyrslum að þeir höfðu
verið að hefna sín á íbúum við Ráð-
hústorg. Kvartanir íbúanna um
hávaða vegna umferðarinnar urðu
til þess að Torginu hefur nú verið
lokaö og hinum hefðbundna rúnti
þar með.
Nýtt fiskverð
ákveðið í gær
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins ákvað nýtt fiskverð á fundi
sínum í gær. Verðið gildir frá 15.
nóvember síðastliðnum til áramóta.
Það er nokkuð svipað því sem verið
hefur undanfarið meðan verðið var
frjálst. Sem dæmi má nefna að verð
fyrir 2ja kílóa þorsk var ákveðið 31,42
krónur fyrir kílóið.
Verðið var ák ,’eðið með atkvæðum
fulltrúa útgerðarmanna, sjómanna
og annars fulltrúa vinnslunnar,
Árna Benediktssyni. Bjarni Lúðvíks-
son fulltrúi Sölumiðstöðvarinnar var
á móti og lét bóka að þar sem vinhsl-
an væri rekin með tapi gæti hann
ekki samþykkt þetta verð. -S.dór
Kvótasvikamálið:
Skúli krefst
aðgerða hjá
ráðuneytinu
Skúli Alexandersson alþingismað-
ur sem ásakaður hefur verið af
sjávarútvegsráöuneytinu fyrir
vinnslu ólöglegs afla í fyrirtæki sínu
Jökh hf á Hellissandi, hefur skrifað
ráðuneytinu bréf og krafist þess að
máh sínu verði flýtt.
Hann bendir á að nú séu liðnir 3
mánuðir síðan hann svaraði ásökun-
um ráðuneytisins og síðan hafi
ekkert gerst. Hann segist hafa sent
inn gögn sem sýni að ásakanir ráðu-
neytisins séu rangar og nú krefjist
hann þess að ráðyuneytið ljúki mál-
inu, svo hann geti hreinsað mannorð
sitt og fyrirtækis síns af röngum sak-
argiftum.
Skúli segir í bréfmu að taki ráðu-
neytið ekki skýringar hans til greina
muni hann leita réttar síns fyrir
dómstólum.
-S.dór