Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987. Fréttir Hrikaleg árás á launafólk Fyrirhugaðar hækkanir á fiski: - segir Guðmundur Óskarsson í Sæbjörgu „Ég skO ekki hvaða sérfræðingar það eru sem telja dilkakjöt vera aðalneysluvöru launafólks á ís- landi og ég mótmæli því harölega," sagði Guðmundur Óskarsson í fisk- búðinni Sæbjörgu í samtali við DV þegar hann var spurður álits á breytingum á vöruverði í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um breytingar á óbeinum sköttum. Guðmundur sagðist í gær engin svör hafa fengið við spurningu um það hvaðan þetta álit væri komið en sagði að svo virtist sem stjóma ætti mataræði fólks með þessum aðgerðum. „Það eru hvorki ilm- vötn né myndbandstæki á matseðl- inum hjá launafólki,“ sagði Guðmundur. „Hinn almenni launamaður borðar ýsu, saltfisk, reyktan fisk, rauðsprettu eða smálúðu að meðal- tah fjómm sinnum í viku. Það er þessi almenna neysla. Þetta er hrikaleg árás á launafólk og sú agalegasta sem ég hef orðið vitni að,“ sagði Guðmundur. Guðmundur benti ennfremur á að fisksalar hefðu ákveðið að draga úr þjónustu sinni eftir áramótin og hann sagðist sannfærður um það að skattsvik ykjust í kjölfarið á þessum breytingmn. -ój Landlæknir: Manneldissjónar- mið ekki allsráðandi - við skattiagningu á neysluvörur „Ég get ekki sagt annað en að það eru önnur sjónarmið en nianneldis- sjónarmið sem ráða þarna," sagði Ólafur Ólafsson landlæknir í samtali við DV þegar hann var spurður álits á væntanlegum breytingum á vöm- verði í kjölfar breyttrar skattlagn- ingar ríkisvaldsins. Breytt skattlagning hefur það með- al annars í fór með sér að fiskur hækkar um 25% og nýtt grænmeti hækkar um 15 til 25%. Hins vegar hækkar ekki mjólk, skyr, smjör eða dilkakjöt. Ólafur Ólafsson landlæknir sagði að heilbrigðisráðherra hefði lagt heilbrigðisáætlun fyrir Alþingi í nafni ríkisstjórnarinnar en þá áætl- un ætti eftir að samþykkja. Sagðist Ólafur ekki sjá að þessi stýring neyslunnar samrýmdist þeirri áætl- un. „Mér finnst manneldissjónar- miðin ekki vera allsráðandi þegar tekin er ákvöröun um svona skatt- lagningu,“ sagði Ólafur. -ój Hafnar ósk um útflutningsbætur Framleiðnisjóður lanbúnaöarins lágt og einnig væri ekki samsfaða hafnaöi á fundi sínum um helgina á meöal framleiðenda um útflutn- ósk Landssambands kartöflu- inginn og nauðsynlega verðjöfnun bænda um aöstoö við útflutning á á kartöflum hér innanlands. kartöflum til Noregs. Þá nefhdi Jóhannes aö svo virtist Jóhannes Torfason, forraaður sem einungis kartöflur af Eyja- Framleiðnisjóðs.sagðiísamtaliviö fjarðarsvæðinu væra hæfar til DV að þessari ósk hefði verið hafn- útflutnings, en vera kvnni að kart- að með samhfjóða atkvæðum. öflur frá Homafiröi uppfylltu Jóhannes sagöi að ekki hefði verið einnig skilyröin. Jóhannes sagði að farið fram á ákveðna upphæð í til þess aö framleiðendur þeirra þessu skyni og rök sjóðsstjórnar- kartaflna sera áhugi heíði verið á innar fyrir höfnuninni ekki bókuð. aðflytiaútfengjusambærilegtverð , Þó sagði Jóhannes að það hefði fyrir afurðir sínar og innanlands haft áhrif á niðurstöðuna hve verð- hefði þurft að greiða 10 til 15 krón- ið sem til boða stendur í Noregi er ur með hvetju kílói. -ój Hver veit nema þetta verði sjaldséð sjón í Hvítá við Ferjubakka með tið og tíma? DV-mynd EJ Fundur með bændum í dag: Tekst samkomulag um upptöku neta? Draumur margra veiðimanna er að losna við netalagnir sem em víða í ósum veiðiáa eins og í Borgarfjarð- aránum og í Ölfusá og Hvítá. Virðist sem þetta mál hafi fengið byr núna hin síðari árin og sé kannski að verða að veruleika næstu daga. „Það eru ýmis ljón á veginum en við vonum að þetta gangi upp, hugurinn er mik- ill í félagsmönnum og samstaða,“ sagði Jón G. Baldvinsson, formaður Stangaveiðifélagsins, á aðalfundi fé- lagsins í fyrradag. En þar kom fram einhugur hjá félagsmönnum, sem voru um 150 mættir á fundinn, um að reyna að að semja um að leggja niður netaveiði í Borgarfirðinum á sumri komanda. „Þetta eru á annað hundrað netalagnir sem um er að raéða og verður fróðlegt hvað kemur út úr fundinum með bændum á Hvanneyri á þriðjudaginn," sagði Jón ennfremur. „Við verðum að standa saman um þetta mál því þetta er mikið hags- munamál fyrir veiðimenn," sagði Guðlaugur Bergmann, stjórnarmað- ur í Stangaveiðifélaginu, um máhð. Þessa dagana er verið kanna hvaö þetta muni kosta og verður fundur- inn haldinn með bændum í dag, þriðjudag. Við höfum heyrt að fyrir austan sé eitthvað þessu líkt í gangi líka varð- andi Ölfusá og Hvítá og hafa víst einhverjir bændur selt netalagnir sínar. Mönnum finnst víst verð á laxi verða orðið nokkuð lágt þegar líður á veiðitímann og laxinn orðinn leg- inn. G. Bender I dag mælir Dagfari________________ Jólagjöfin í ár Ráðherrarnir brostu út að eyrum og féllust í faðma. Sigurgleðin leyndi sér ekki, enda tímamótavið- burður í höfn. Þeim hafði tekist að ná samkomulagi um hallalaus fjár- lög. Það er ekki lítið afrek, sérstak- lega ef það er haft í huga, hvað þeir þurftu að leggja mikið á sig til að láta enda ná saman. Þeir ákváðu að söluskatturinn skyldi ekki lækkaður eins og þeir voru búnir að ráðgera áður en að þessum tíma- mótaviðburði kom. Ekki er það á hverjum degi sem ráðherrar á ís- landi ná samkomulagi um að lækka ekki skatta sem búið var áður að lofa að lækka. Það þarf töluvert þrek til aö taka svona ák- vöröun og ekki n'ema von að ráðherrarnir séu ánægðir með sjálfa sig. Enginn vafi er á því að þjóðin mun meta þessa erfiðu ákvörðun að verðleikum. Kannske ekki núna í augnablikinu því einhvem veginn læðist aö fólki sá grunur að það þurfi að greiða hærri skatta heldur en fyrirhugaö var og það er ekki víst að allir kunni að meta það. En síðar, einhvem tímann síðar mun sagan sanna að ráðherrarnir höfðu rétt fyrir sér. Og ráðherrar em ekki að vinna sig í álit hjá þjóðinni eða kjósendum augnabliksins held- ur eru þeir að skrá nöfn sín í söguna. Sagan er þeim miklu meira virði heldur en kjósenduriúr og skattborgaramir og jafnvel þótt það verði ekki fyrr en eftir þeirra daga og eftir daga okkar allra þá mun sagan sýna og sanna að þeir gerðu rétt þegar þeir ákváðu að hætta við að lækka söluskattinn eins og þeir vora húnir að lofa. Ástæðan fyrir þessari erfiðu á- kvörðun er það markmið að af- greiða hallalaus fjárlög. Og ríkisstjórnin og alþingi geta ekki afgreitt hallalaus íjárlög nema fólk- ið borgi meira í söluskatt en upphaflega var gert ráð fyrir. Það er auðvitað miklu eftirsóknarverð- ara fyrir almenning að fjárlögin verði hallalaus heldur en hitt, hvort skattarnir séu hærri eða lægri. Það sjá allir. Svo er það líka enn annaö, nefni- lega það að búiö var að lofa bændunum að greiöa þeim bætur fyrir aö framleiða landbúnaðarvör- urnar sem ekkiseljast. Ef menn eru ábyrgir þjóöfélagsþegnar þá verða þeir að viðurkenna að það skiptir ekki máli hvort landbúnaðarvör- urnar eru étnar eða ekki, það sem skiptir máli er að fólk borgi fyrir matinn, hvort sem hann er étinn eða ekki. Þannig er sú stefna ríkj- andi að fólk kaupir ekki aðeins í matinn heldur borgar það líka fyrir matinn sem það vill ekki. Það gera bændumir sem verða að fá sitt af því ríkistjórnin var búinn að lofa því. En ríkisstjómin gerði annað um leið. Hún ákvað að undanþegnar söluskatti skyldu nokkrar vörateg- undir sem hún, það er að segja ríkisstjómin, telur þær matvörur sem þjóðin eigi að éta öðra fremur. Það er kindakjöt, mjólk, smjör og skyr. Og osturinn. Þeir ákváðu í lokin að osturinn væri líka matur, sem þjóðin þyrfti að éta til aö halda lífi. Annað má eiga sig. Fiskurinn til að mynda er ekki á skrá yfir þær matvörar sem þjóðin þarf sérstak- lega á aö halda, enda er fiskurinn ekki framleiddur af bændastéttinni og honum hefur ekki ennþá verið hent á haugana, og þess vegna þarf ekki aö hjálpa þjóðinni til að éta fisk. Þetta er óneitanlega tímamóta- viðburður þegar ríkisstjóm íslands ákveður svona matseöilinn fyrir þjóðina á einu bretti og hiýtur það að teljast jólagjöfin í ár. Mikil gæfa er fyrir þjóðina að hafa svona ríkis stjórn sem hefur vit fyrir manni og veit að það er bæði framleiðend- um og neytendum fyrir bestu að hafa kindakjöt í öll mál og greiða fyrir kindakjötsátinu, með smjöri og skyri í bragðbæti, meö því að fella niöur söluskattinn á þessar vörur. Jólasveinarnir koma með jóla- gjafirnar. Jólasveinar eihn og átta, ofan koma af fjöllunum. í þetta skipti eru jólasveinarnir hvorki fleiri né færri en ellefu talsins, ell- efu ráðherrar, sem úthluta jólagjöf- um með söluskattslausum landbúnaðarafurðum annars veg- ar en óbreyttum söluskatti hins vegar á allar hinar óhollu matvör- umar, sem fólk þarf ekki að ómaka sig á að éta. Og með þessum jóla- gjöfum tekst ríkisstjórninni að afgreiða hallalaus íjárlög. Já, þetta era mikhr snillingar, sérstaklega þegar það er haft í huga, að þeir þurfa ekki að borga jólagjafirnar sjálfir. Heldur þjóðin sem þiggur þær. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.