Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987. Utlönd Hefur Gorbatsjov nýjar til- lögur fram að færa? Ólafur Amarsan, DV, Washington: Atriöi úr ávarpi því sem Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, hélt viö komuna til Washington í gær eru talin benda til þess að leiðtoginn hafi í fórum sínum nýjar tillögur í afvopnunarmálum sem hann hyggist ræða við Ronald Reagan Bandaríkja- forseta á fundi þeirra í dag og næstu tvo daga. í ávarpinu sagði leiðtoginn meðal annars: „í viðræðum okkar við for- seta Bandaríkjanna verður meginá- hersla lögð á spurningar sem tengjast fækkun árásarvopna. Þess- ar spurningar eru kjarninn í vanda- málum í tengslum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Við höfum ýmislegt fram að færa við leiðtoga Bandaríkj- anna í þessum mikilvægu málum og við vonum aö við heyrum eitthvað nýtt frá viðmælendum okkar.“ Mikhail Gorbatsjov og eiginkona hans, Raisa, lentu við Andrews flug- stöðina við Washington í gær. Þar tók George Shultz, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, á móti þeim Gorbatsjov og eiginkona hans, Raisa, ganga niður úr flugvél sinni í Andrews flugstöðinni i gær. Símamynd Reuter hjónum og bauð þau velkomin. Gorbatsjov flutti stutt ávarp við komuna þar sem hann bar banda- rísku þjóðinni kveðjur hinnar sovésku og fullvissaði Bandaríkja- menn um að hann væri kominn til þess að reyna að bæta sambúð stór- veldanna tveggja. Sem fyrr segir gerði leiðtoginn svo samninga þá sem framundan eru um langdræg kjamorkuvopn að um- ræðuefni. í lok ávarpsins óskaði hann svo Bandaríkjamönnum friðar og velsældar. Vonir um árangur Ólafur Amaison, DV, Washington: Við upphaf þriðja fundar þeirra Ronalds Reagan, forseta Bandaríkj- anna, og Mikhails Gorbatsjov, leið- toga Sovétríkjanna, hér í Washing- ton er augsýnilegt að menn vonast til að verulegur árangur náist í við- ræðum um langdræg kjarnorku- vopn. Auk þess vonast embættis- menn greinilega til þess að leiðtogamir nálgist hvor annan eitt- hvað í því er tengist geimvamakerf- um. Einn af helstu samningamönnum Bandaríkjanna í þessum efnum, Max Kampelman, hefur sagt að hann telji góðar líkur á að eitthvað þokist í samkomulagsátt í þessum efnum á fundi leiðtoganna. Hugsanlega gæti þá verið að vænta samnings irni fækkun langdrægra kjamorkuvopna á næsta ári. Sovéskir embættismenn hafa tekið í sama streng og telja að leiðtogarnir muni ræða einhveijar nýjar hug- myndir í þessu sambandi á fundi sínum. Leikið á als oddi á fréttamannafundi Ólafur Arharson, DV, Washington: Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta hússins, og Gennady Gera- simov, blaðafulltrúi sovéska utanríkisráðuneytisins, héldu í gær fund með fréttamönnum vegna leiðtogafundarins sem hefst í dag. Þeir félagarnir gerðu að gamni sínu í upphafi fundar og virtist hggja vel á þeim. Gerasimov sagð- ist mundu svara öllum spuming- um sem yrðu á rússnesku en að Fitzwater myndi sjá um þær sem yrðu á ensku. Fitzwater sagðist hins vegar einungis svara auðveld- um spurningum og láta Gerasimov eftir þær erfiðari. Fitzwater tilkynnti að Reagan hefði í gærmorgun átt stundar- fjórðungs langt samtal við Thatc- her, forsætisráðherra Bretlands, um viðræður hennar við Gor- batsjov. Að sögn Thatcher mun Gorbatsjov bjartsýnn á árangur af fundinum með Reagan. Fitzwater sagði ennfremur að það samkomu- lag, sem leiðtogamir munu skrifa undir í dag, sé sögulegt á allan hátt. Fitzwater lagði hins vegar áherslu á að önnur mál, svo sem Afganistan og mannréttindamál, yrðu þýðing- armikil í viðræðum leiðtoganna. Gennady Gerasimov sagði aö Sovétmenn álitu þennan leiðtoga- fund geysilega mikilvægan. Sagði hann að þessi fundur gæti markað leiðina að algjörri eyðingu kjama- vopna. Gerasimov lék á als oddi og henti meðal annars gaman að Re- agan Bandaríkjaforseta en allt í góöu. Fitzwater sagði að á efnisskrá fyrsta fundar leiðtoganna yrði yfir- lit yfir samband Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Rætt yröi um mál sem ríkin væra sammála um auk þeirra sem ósamkomulag ríkir um. Hann sagði að öll mál yrðu á dag- skrá en lagði áherslu á að forsetinn ætlaði sér ekki að gefa eftir varð- andi geimvarnaáætlunina. Nú er enda ljóst að Gorbatsjov mun ekki láta geimvarnaáætlunina standa í vegi fyrir samkomulagi. Gerasimov sagðist halda að á fundinum yrði rætt í alvöru um fækkun langdrægra eldflauga. Að- spurður um hvort Gorbatsjov hefði í farteski sínu einhveijar nýjar til- lögur á sviði langdrægra kjama- flauga sagðist Gerasimov ekki geta svarað fyrir leiðtoga sinn. Hann bætti við að Gorbatsjov væri þekkt- ur fyrir óvæntar uppákomur og gaf þar með í skyn að Sovétleiðtoginn ætlaði að koma með nýjar tillögur í þeim efnum. Gerasimov sagði að á þessu stigi stæði ekki til að fram- lengja leiðtogafundinn. Ennfremur sagði Gerasimov að væntingar Sovétmanna varðandi þennan leiðtogafund væm miklar og að þeir gerðu sér vonir um að hann myndi leiða til þess að forseti Bandaríkjanna kæmi til Moskvu til að skrifa undir samkomulag um fækkun langdrægra eldflauga. Aðspurður um áætlun Raisu Gor- batsjovu, meðan á fundinum stendur, sagði Gerasimov að mörg teboð væm á dagskrá hennar og einnig myndi hún skoða marga markverða staði auk þess sem hún þyrfti að koma fram ásamt manni sínum. Gerasimov taldi jafnvel að hún yrði svo upptekin að hún hefði engan tíma til að fara og versla. í lokin klikkti Gerasimov út með því að lýsa því yfir að Sovétmenn vildu eyða öllum kjarnorkuvopn- irni í heiminum og svo virtist sem Reagan forseti vildi það líka. Talsmaður Hvita hússlns, Marlin Fitzwater, og blaðafulltrúi Sovét- manna, Gennady Gerasimov, voru hressir á fundi með fréttamönnum í gær. Símamynd Reuter Glæsilegur fulltrúi glasnost Ólafur Amarson, DV, Washingtan: Gennady Gerasimov, blaðafull- trúi sovéska utanríkisráðuneytis- ins, er sérlega glæsilegur fulltrúi glasnoststefnu Mikhails Gor- bafjovs. Gerasimov er glæsilegur maður á sextugsaldri, sem kemur vel fyrir, er glettinn og virðist mjög góðlegur. Ef blaðamenn spyrja hann spum- inga, sem hann vill ekki eða getur ekki svarað, slær hann öllu upp í grín en gerist ekki þumbaralegur eins og raunin hefur verið með opinbera talsmenn sovéskra stjómvalda í gegnum tíðina. Menn hljóta þó að spyrja sig hvort innihaldið í stefnu sovéskra stjórnvalda hafi raunverulega breyst eða hvort það séu einungis umbúðimar sem líti betur út. Því miður virðist sem fyrst og fremst sé um nýjar umbúðir að ræða. Vestrænir blaðamenn eiga enn jafnerfitt með að fá svör við áleitn- um spumingum. Menn taka hins vegar ekki eins vel eftir því að ver- ið sé að snúa út úr fyrir þeim þegar það er gert á skemmtilegan hátt.. Meðal annars þess vegna virðist dæmið ganga nokkum veginn upp hjá Sovétmönnum. Dæmin tala sínu máli og ljóst er að undanfarið ár hafa Sovéfmenn haft mim betur í áróðursstríði stórveldanna. Til marks um það em niðurstöður skoðanakannana í Evrópu. Gor- batsjov virðist vera í mun meiri metum í þeirri álfu heldur en Reag- an Bandaríkjaforseti. í Bretlandi líst 68 prósent að- spurðra vel á Gorbatsjov á meðan einungis 31 prósent líst vel á Reag- an. í Vestur-Þýskalandi era tölum- ar 59 prósent á móti 38 prósent og í Frakklandi era hlutfóllin 39 pró- sent á móti 37 prósent Gorbatsjov í vil. Þrátt fyrir að breytingin í Sovét- ríkjunum virðist fyrst og fremst vera á sviði almannatengsla binda menn þó vonir við að það sé fyrsta merkið um að von sé á raunveru- legum breytingum hjá Sovétstjóm- inni og að í framtíðinni verði haldið í átt að auknu frelsi og bættum mannréttindum. Gennady Gerasimov kom vel fyr- ir á blaðamannafundinum í gær og vildu margir segja að hann hefði slegið í gegn með léttleika sínum og skopskyni. í lokin bar þó nokk- um skugga á framgöngu hans er hann sté óvart aftur af sviðinu og féll kylliflatur. Hann spratt þó aftur á fætur og henti gaman að atvikinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.