Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987.
Viðskipti___________________________________________________
^ Ragnar í Ragnarsbakaríi:
Eg varð einfaldlega
„Ég varð einfaldlega undir og þetta
var búið. Dæmið lá fyrir og ég var
ekki að teygja það neitt og líklegast
hefur ákvörðun mín verið tekin of
seint. Það sem gerðist raunverulega
var að fjármagnskostnaðurinn reið
mér að fullu. Peningarnir voru það
sem vantaði. Ég lánaði vörur í 45 til
60 daga án vaxta en varð að greiða
háa vexti, oftast dráttarvexti, vegna
vanskila til þeirra heildsala sem lán-
uðu mér hráefni."
Þetta segir Ragnar Eðvaldsson,
fyrrum eigandi Ragnarsbakarís í
Keflavík, en fýrirtækið var lýst gjald-
þrota í síðustu viku. Frétt sem kom
mörgum á óvart í viðskiptaheimin-
um. Svo kom önnur frétt um helgina
sem vakti jafnmikla athygli þegar
þeir félagarnir í Ávöxtun sf., Pétur
Björnsson og Ármann Reynisson,
keyptu þrotabúið og hafa endurreist
fyrirtækiö, ráðið Ragnar í vinnu og
annað starfsfólk.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 20-22 Lb.lb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 20-24 Úb
6mán. uppsogn 22-26 Ab
12mán.uppsogn 24-30,5 Úb
18mán. uppsögn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp.lb
Sértékkareikningar 10-23 Ib
Innlán verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb. Lb.Vb
Innlán með sérkjör- 19-34,5 Úb
um Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6-7,25 Ab.Sb,
Vb
Sterlingspund 7,75-9 AbVb, Sb
Vestur-þýsk mork 3-3,5 Ab.Sp, Vb
Danskarkrónur 8,75-9 Allir nema Bbog Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 33-34 Sp
Viöskiptavixlar(forv.) (1) 36 eða kaupqenqi
Almennskuldabréf 35-36 Úb.Vb, Sb.Sp
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 35-39 Sp
Utlan verötryggð
Skuldabréf 9.5 Allir
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 31-35 Úb
SDR 8-9 Vb
Bandarikjadalir 9-10,5 Vb
Sterlingspund 10,5-11,5 Vb.Úb
Vestur-þýskmork 5,5-6,5 Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Drátlarvextir 49,2 4.1 á mán.
MEÐALVEXTIR
Överðtr. des. 87 35
Verötr. des. 87 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalades. 1886stig
Byggingavísitala des. 344 stig
Byggingavisitala des. 107,5stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 5% 1 . okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóóa
Ávoxtunarbréf 1,3456
Einingabréf 1 2,484
Einingabréf 2 1,454
Einingabréf 3 1,534
Fjölþjóðabréf 1,140
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,497
Lífeyrisbréf 1.249
Markbréf 1,272
Sjóðsbréf 1 1,218
Sjóðsbréf 2 1,077
Tekjubréf 1,308
HLUTABREF
Soluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr
Hampiöján 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr.
Iðnaðarbankinn 143 kr
Skagstrendingur hf. 182 kr.
Verstunarbankinn 126 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Áb = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
Ragnar Eðvaldsson í Ragnarsbakaríi: Fjármagnskostnaðurinn reið mér að
fullu.
Heildsalar tapa á gjaldþrotinu
Ragnar segir að þeir sem fyrst og
fremst tapi á gjaldþrotinu séu hann
og þeir heildsalar sem lánuðu honum
hráefni. „Mig tekur það sárt þegar
menn tapa vegna mín.“
Um það hvort hann hafi fengið
rekstrarlán hjá fyrirtækinu Ávöxtun
sf. segir Ragnar svo ekki hafa veriö.
En spennti hann bogann of hátt?
„Það má kannski segja það. Og auð-
vitað má spyrja sig hvort þessa
ákvörðun hefði ekki átt að taka fyrr.“
Bakarar svartsýnir
Að sögn Ragnars eru bakarar
svartsýnir um þessar mundir. Lagð-
ur var á þá 10 prósent söluskattur
1. ágúst en salan í krónum talið hefði
verið sú sama og áður, sem þýddi að
rauntekjur hefðu minnkað um 10
prósent. „Áður var komið 3,6 prósent
vörugjald sem ekki skilaði sér held-
ur.
Salan í Ragnarsbakaríi skiptist
þannig að um 40 prósent voru brauð
en um 60 prósent kökur. „Á innflutt-
ar kökur koma um 32 prósent
vörugjald svo á vissan hátt búa bak-
arar við vernd. En ég sé ekki annað
en að verulegt vandamál komi upp
þegar virðisaukaskatturinn kemur á
Stjórn Steypustöðvarinnar hf.:
Rangt að Ós sé að
kaupa Steypustöðina
Vegna fréttar í DV hinn 4.12.1987,
sem birt var með feitletraðri fyrir-
sögn „Ós að kaupa Steypustöðina
hf.“, vill stjórn Steypustöðvarinnar
hf. taka fram að engar viðræður hafi
farið fram milh forráðamanna fyrir-
tækisins og Óss hf. Frétt þessi er
algjörlega úr lausu lofti gripin.
Það vekur undrun okkar að jafn-
virtur fjölmiðill eins og Dagblaðið
skuli ekki leita upplýsinga hjá
Steypustööinni hf. áöur en slík frétt
er birt. Frétt sem þessi er aö sjálf-
sögðu skaðleg fyrir fyrirtækið og
getur rýrt það trausti fólks er ekki
þekkir til þess.
Enn meiri furðu vekur þegar fram-
kvæmdastjóri Óss hf., Einar Vil-
hjálmsson, lætur að því liggja í
viðtali við DV að fréttin gæti allt að
því verið sönn.
Steypustöðin hf„ sem heldur upp á
fjörutíu ára afmæh sitt á þessu ári,
stendur traustum fótum fjárhagslega
og tæknilega. Steypustöðin hf. horfir
stolt yfir farinn veg og lítur björtum
augum til framtíðarinnar.
Reykjavík 4.12.1987.
Stjórn Steypustöðvarinnar hf.
Dr. Ágúst Valfells verkfr.
Júlíus Sólnes prófessor
Sveinn Valfells, verkfr. og
viðskiptafr.
Halldór Jónsson verkfr.
Gunnar Indriöason tæknifr.
- 1 Dyr]un lanuar <* a»ur ■ greiðsluafslitt og
^ að kauP® Steypustöðina hf?
.£g get hvorid játaö þvl né neit-
að“ se»r Einar hór VUhjálmsson
framkvæmdastjón Steypustöövar-
Innar Os hf. I Garöab* um það
hív“ft Ús hf. sé að kaupa Steypu-
stóðina hf. Mikll samkcppnl cr A
stcypumarkaöinum og cr ós vax-
mkN. fýriruekl sem skilaöi u,. ^
mllljóna króna hagnaöl I fyrra.
Samkvæmt heimildum DV hafa
fanð fram viðneöufundir á milli
forráöamanna fyrirtækjanna um
kaup óss hf. á Steypustööinni ht
Stcypustööin Ós hf. framleiöir
rör, hellur og steypu. A næstunni
mun fyrirtmkið taka i notkun nýla
3 þusund fermetra verksmlöju og
er ætlunin að hefla framleiöilu í
steyptum dningura.
Alkastagcto núvcrandi iteypu-
stöðvar Oss mun vera fullnýtt og
vantar fyrirtækiö þv( aukna getu
ttl aö fraralciöa iteypu vegna nýju
elnlngaverksmiöiunnar sem þaö
tekur I notkun sncmraa á nýju ári.
-JGH
Ólafur Bjömsson, eigandi steypuverksmiðju Óss:
Bað lögmann um að ræða við Svein
Valfells um kaup á Steypustöðinni hf.
„Gífurleg aukning hefur orðið á
steypusölu hjá steypuverksmiðju
Óss, um 70 til 80 prósent á þessu ári.
Okkur vantar orðið meiri afkasta-
getu til að anna eftirspurninni. Við
leituðum því leiða til að auka af-
kastagetuna og ein leiðin var sú að
ég bað ónefndan lögmann hér í bæ í
vor um að spyija Svein Valfells um
það hvort Steypustöðin hf. væri til
sölu. Hann kom með það svar til
baka hvort steypuverksmiðja Óss
væri til sölu. Aðrar viðræður hafa
ekki átt sér stað,“ segir Ólafur
Björnsson, einn aðaleigandi steypu-
verksmiðju Óss hf.
Olafur segir ennfremur að þeir hjá
Ósi leiti nú annarra leiða til að auka
afkastagetu sína, eftir að ljóst varð
að þessi fyrsta leið þeirra, að kaupa
Steypustöðina hf„ kom alls ekki til
greina.
-JGH
Tölvu-trésmíði
íMosó
Þeir hjá trésmíðaverkstæðinu
Mosfelli í Mosfellssveit eru meö at-
hyglisverða tölvustýringu í trésmíði
sinni. Vélin er ættuð frá Ítalíu og er
sú eina sinnar tegundar hérlendis.
Inn í tölvustýrðu vélina fer efnið
óunnið en þegar út kemur er búið
að fræsa það sem fræsa þarf, taka
hliðar- og þverstykki og auðvitað fyr-
ir skránni líka.
„Véhn kostar rúmlega 20 milljónir
króna. Hún hefur reynst mjög vel.
Það er nauðsynlegt í samkeppninni
að geta unnið hratt án þess að fara
niöur í gæðum,“ segir Kristján Þór
Vídalín, framkvæmdastjóri Mosfells.
-JGH
Kristján Vidalin Oskarsson, framkvæmdastjóri Mosfells, styöur sig við tölv-
una. DV-mynd Brynar Gauti
undir
næsta ári. Ég tel að þá hverfi sú
vernd sem íslenskir bakarar hafa
haft til þessa."
Get ekki annað en litið upp
núna
En hvernig hður svo Ragnari Eð-
valdssyni núna þegar hann hefur
orðið að gefast upp í rekstrinum og
lýsa sig gjaldþrota? „Ég reyni að vera
bjartsýnn, ég get ekki annað en litið
upp núna. Það er ánægjulegt að nýir
eigendur skuli hafa tekið við rekstr-
inum og að allt fólkið mitt skuli hafa
fengið aftur vinnu. Gjaldþrot mitt
snýst ekki hvað síst um atvinnumál
á Suðurnesjum, það sýnir að fólk hér
þarf að taka höndum saman og reyna
að skipta eins mikið við þau fyrir-
tæki sem eru af Suðurnesjum og
kostur er.“
Kollegunum var brugðið
- Hafa kollegarnir haft samband við
þig undanfarna daga?
„Þeir hafa hringt og vottað mér
samúð sína, þeim var á vissan hátt
brugðið," segir Ragnar Eðvaldsson,
áður eigandi og framkvæmdastjóri
Ragnarsbakarís en nú framleiðslu-
stjóri hjá fyrirtækinu.
-JGH
Beðist
velvirðingar
í frétt DV síðastliðinn fóstudag,
undir Tyrirsögninni Ós aö kaupa
Steypustöðina hf.?, segir: „Sam-
kvæmt heimildum DV hafa farið
fram viðræðufundir á milli forr-
áðamanna fyrirtækjanna um
kaup ðss hf. á Steypustöðinni
hf.“ Þetta er rangt. Áðumefndar
heimildir reyndust ekki traustar.
DV biöst velvirðingar á fréttinni.
-JGH
Olíuviðskipti:
Skrifað
undir
í Moskvu
íslendingar og Sovétmenn skrifuðu
þann 1. desember í Moskvu undir
samning um kaup íslendinga á 80
þúsund tonnum af bensíni, 80 til 120
þúsund tonnum af svartolíu og 140
þúsund tonnum af gasolíu af Sovét-
mönnum. Olían verður afgreidd á
næsta ári. Þetta er svipað magn og
íslendingar hafa keypt af Sovét-
mönnum á þessu ári. Bensínið
verður með mjög lágu blýinnihaldi
og gasohan með lágu brennisteins-
innihaldi, hvort tveggja vegna
umhverfisverndar. -JGH
Horfur á
mikilvægum
mörkuðum
Útflutningsráð íslands er með þijá
athyghsverða fundi þessa dagana um
ástand og horfur á mikilvægum
markaðssvæöum íslenskra útflytj-
enda. Fundirnir eru haldnir í
Holiday Inn. Öllum er heimil þátt-
taka. Fyrsti fundurinn hófst í
morgun og er hann um málefni mat-
vælaiðnaðar. Á fimmtudaginn
verður rætt um markaöi fyrir vélar
og tæki og loks verður fataiðnaður-
inn tekinn fyrir á fóstudaginn. Á
meðal ræðumanna eru viöskiptafull-
trúar Útflutningsráðs í Kaupmanna-
höfn, Frankfurt og New York. -JGH