Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987.
7
Fréttir
Héðinn Emilsson hjá Samvinnutryggingum:
Eldsvoðar eru að
verða landsplága
„Þetta ár ætlar að verða þungt fyr-
ir brunatryggingafélögin. Undanfar-
in ár hafa verið viðunandi hjá okkur.
Ég held ég megi segja að við höfum
verið frekar heppnir. Það hafa mörg
stór brunatjón síðasta áratug farið
fram hjá okkur. Aftur á móti hafa
þau hitt okkur upp á síðkastið," sagði
Héðinn Emilsson, deildarstjóri
brunadeildar Samvinnutrygginga,
þegar hann var spurður hvort
brunatjón yrðu sífellt fleiri og
stærri.
- Gerið þið ekki athugasemdir við
byggingar sem ekki eru nógu traust-
ar að ykkar mati?
„Við höfum staðið í frystihúsi og
sagt, talið við okkur þegar þið haflð
gengið frá ykkar málum varðandi
Rafmagnseftirlitið og eldvarnaeftirlit
sveitarfélagsins, þá skulum við
ganga frá tryggingunni. Áöur en til
þess kom brann húsið. Ef þetta hús
hefði verið í Hafnarfirði þar sem við
erum með skyldutryggingar hefðum
viö orðið að greiöa tjónið. Trygginga-
félögin eru ekki yflrvöld á brunasvið-
inu. Til þess hefur þjóðfélagið valið
sér aðra. Með sérstökum lögum frá
1969 var komið á stofn Brunamála-
stofnun ríkisins. Hún er yfirvald í
brunatæknilegum málum. Hún á að
styðja við framkvæmdavaldið í
landinu, það er lögreglustjóra og
sýslumenn. í þessum öryggismálum
þarf að halda uppi lögum og reglum
eins og í öðrum þáttum, svo sem
umferðinni. Ég hef ekki rekið mig á
neitt dómsmál sem farið hefur í gegn-
um íslenska réttarkerfið vegna brota
á lögum um brunavamir og bruna-
mál. Ég held að kerfið sofi.“
Þessi setning er upp á nokkur
hundruð milljónir
- Eru eldsvoðar að verða lands-
plága?
„ Já, miöað við stöðuna í dag. Ef við
tökum það sem er tryggt hjá okkur
og öðrum þá sérðu í einni hendingu
Lystadún í Reykjavík, Málningu í
Kópavogi, Meitilinn í Þorlákshöfn,
Nesfisk í Garði, fiskvinnsluna í
Grímsey og Fataverksmiðjuna Gefj-
un við Snorrabraut. AUt er þetta á
einu ári og allt eru þetta milljóna
tjón. Þetta er það sem ég man í hend-
ingskasti. Það finnst töluvert í
viðbót. Þessi stutta setning er upp á
nokkur himdruð milljónir. Fyrirtæki
sem starfa undir svo mikilli pressu
þurfa opinberan stuðning um hvem-
ig þetta á að vera. Þá finnst alltaf
einhver leið til að gera það. Ef bíllinn
þinn er bremsulaus, þá er sama
hvemig stendur á í tékkheftinu, þú
verður að láta laga bremsurnar. Þú
ferð ekkert öðruvísi.
Hafa sparað húseigendum 40
milljónir
Samvinnutryggingar gerðu tilboð í
skyldutryggingu húsa í Hafnarfirði á
árinu 1985. Bæjarstjórnir Hafnar-
fjarðar og Garðabæjar höfðu tekið
ákvöðmn um að bjóða út lögbundnar
bmnatryggingar húsa. Uppsögn bæj-
arstjórnar Garðabæjar var dæmd
ólögleg þar sem hún hafði ekki kom-
ið fram nógu tímanlega.
Áður hafði Brunabótafélag íslands
haft þessar tryggingar. Tilboð Sam-
vinnutrygginga var helmingi lægra
en veröið sem var á iðgjöldunum
áður. Öll stóm tryggingafélögin buðu
í tryggingarnar í Hafnarfirði. Tilboð
Sjóvá og Samvinnutrygginga voru
mjög lík, aðeins munaöi fimm krón-
um á hverri milljón.
„Við höfum verið þeirrar skoðunar
hjá Samvinnutryggingum að bruna-
tryggjngar húsa ættu að vera frjáls-
ar. Að húseigandi ráði hjá hvaða
Tíðir brunar frystihúsa undanfarið hafa vakið mikla athygli. Eldsvoðar eru
að veröa landsplága segir Héðinn Emilsson deildarstjóri brunadeildar Sam-
vinnutrygginga.
félagi hann tryggir sitt hús. Ein-
hverjir hagsmunaaðilar í þjóöfélag-
inu hafa verið á móti þessari
fijálshyggju okkar. Það eru kannski
þeir sem safna saman peningum í
einhveija sjóði í gegnum bruna-
tryggingar húsa. Pólitískar hugsjón-
ir lifa ekki nema menn græði á
þeim.“
- Hafði þessi mikla lækkun á iögjöld-
- um í Hafnarfirði þá ekki áhrif víðar?
„Jú, Húsatryggingar Reykjavíkur
og Brunbótafélagið lækkuðu iðgjöld
í kjölfar lækkunarinnar í Hafnar-
firði. Á árinu 1986 spöruðu þessar
lækkanir húseigendum í landinu 40
milljónir. Þessir stóru samkeppnis-
aðilar okkar fylgdu ekki eftir
lækkunum okkar á iðgjöldum vegna
atvinnuhúsnæöis. í samanburði, sem
gerður var eftir þetta, kom fram að
Kaupfélag Eyfirðinga greiðir Bruna-
bótafélaginu fyrir hús sín á Akur-
eyri, rúmlega helmingi hærri iðgjöld
heldur en þeir þyrftu að gera væru
þessi hús í Hafnarfirði eða á skyldu-
tryggingasvæði Samvinnutrygg-
inga.
Tjón í Reykjavík eru 25% af
iðgjöldum
- Hefur þessi mikla hækkun þá
ekki kippt stoðunum undan Sam-
vinnutryggingum?
„Nei, þegar tryggingafélögin reikn-
uðu út iögjöldin fyrir Hafnarfiörð þá
gekk það alla vega þannig á þessum
bæ að menn litu yfir reynsluna á
höfuðborgarsvæðinu síðustu tíu til
tuttugu árin og fundu út hverjir taxt-
arnir þyrftu að vera til þess að tjónin
færu ekki yfir 60 til 70% af iðgjöldum.
Þannig var taxtinn ákveðinn. Tjóna-
prósentan í Reykjavík síðustu tíu til
tuttugu árin er ekki nema um 25%
af iðgjöldum. í Reykjavík eru einna
minnstu tjón í eldsvoðum í heimin-
um þrátt fyrir ýmis óhöpp. Hér eru
góð hús og eru kynt upp með heitu
vatni, hér eru raflagnir góðar og hér
er mikið af skynsömu fólki. Við höf-
um samt verk að vinna í sambandi
við ýmsa þætti í atvinnulífinu. Sérs-
taklega í frystiiðnaðinum, bæði í
landbúnaöi og fiskvinnslu. Þar er
yfirspennt álag á raflögnum og fiár-
málaálagið er líka yfirspennt, það
virðist ekki vera svigrúm til að gera
nauðsynlegar ráðstafanir og lagfær-
ingar. Við höfum ekki komið inn í
skipulag bygginga að neinni bruna-
tæknilegri hönnun. Þetta er alltaf að
gerast, þetta gerðist til dæmis hjá
Nesfiski. Þegar eldur verður laus í
þessum húsum breytast þau í sam-
fellda rúst. Það er byggingatæknilegt
slys. -sme
Hótel Húsavík:
Rekstur-
inn erfiður
Rekstur Hótel Húsavíkur hefur
gengið erfiðlega undanfarin ár og
sögusagnir komist á kreik í bæn-
um um að lokun hótelsins stæði
fyrir dyrum.
Katrín Einarsdóttir, stjómar-
formaður hótelsins, sagði í
samtali við DV að það væri rétt
að rekstur hótelsins hefði verið
þungur undanfarin ár, eins og er
með nær öll hótel úti á lands-
byggðinni. „Þaö eru erfiðleikar í
rekstrinum hjá okkur en þeir eru
ekki þess eðlis að við sjáum ekki
fram úr þeim,“ sagði Katrín.
Hún sagði ástæðu erfiðleikanna
fyrst og fremst vera þá að hótelið
nýttist illa yfir vetrarmánuðina
en reksturinn á sumrin gengi
ágætlega. Bæjarsjóður Húsavík-
ur er aöaleigandi hótelsins með
64% eignarhlut en aðrir eigendur
em Kaupfélag Þingeyinga, Flug-
leiðir, Ferðamálasjóður og ein-
staklingar.
SMJ
Bílvelta á Reykja-
nesbraut
Bíl var ekið út af Reykjanesbraut
viö Kúagerði á laugardagsmorgun.
Bíllinn valt og skemmdist hann tölu-
vert. Tveir menn vom i bílnum og
sluppu þeir lítt meiddir.
Mikil bleyta var á Reykjanesbraut-
inni er óhappið varð. -sme
Bakkus í bðtúr
Tuttugu og fimm ökumenn vora
teknir vegna meints ölvunaraksturs
í Reykjavik um síöustu helgi. Skrán-
ingamúmer voru klippt af þrjátiu og
þremur ökutækjum vegna van-
rækslu á aðalskoðun. -sme
Meðal efnis:
Albert Guðmundsson „Ég er stríðsmaður í mér“
Finnur Ingólfsson, „arftaki Steingríms?“
Ólafur Laufdal: „Eg er bestur!“
Hvað raunverulega skeði í aldingarðinum!
Að vera flottur um fimmtugt.
„Ekkert mál fyrir Jón Pál.“
Viltu læra að fljúga?
Karlmenn og snyrting.
Hárlos og skalli - er lausnin fundin?
Bridge, golf, sport o.fl.
Skólavörðustíg 30 • Sími 23233
Náðu þér í blað í tima á næsta útsölustað.