Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Page 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987.
Neytendur
Jólaávextimir
annó 1987
Jólaávextírnir í ár eru meö öðru
sniði heldur en þeir voru í þá gömlu
góðu daga þegar aöeins fengust epli
og appelsínur hér um jólaleytið.
Fólk, sem komið er um miðjan ald-
ur, kemst enn í jólaskap þótt um
mitt sumar sé við það eitt að frnna
góðan eplailm.
Nú eru slíkir ávextir á boðstólum
allan ársins hring og þykir engum
lengur neitt nýmæli. Hins vegar hafa
aðrir ávextír komið í staðinn sem
spariávextír. Þeir heita framandi
nöfnum eins og pepino, karambóla,
rambútan, salak, kúmkat og m.fl.
Sumir þessir ávextír eru dularfullir
i útlití, flestir kosta dágóðan skilding
en fæstir neytendur hafa hugmynd
um hvernig á að bera sig til við að
borða þá eða hvernig þeir eru á
bragöið.
Neytendasíðan brá undir sig betri
fætínum og fór i innkaupaleiðangur
og keypti sautján tegundir af ávöxt-
um sem ekki eru á borðum okkar
daglega. AUa þessa ávextí var hægt
að kaupa á einum og sama stað, þ.e.
í Hagkaupi í Kringlunni. Þar er aö
jafnaði tU mjög gott úrval af bæði
daglegum ávöxtum og einnig þessum
framandi. Hagkaup hefur einnig lát-
ið sérprenta leiðbeiningar um
notkun á mörgum af ávöxtunum fyr-
ir viðskiptavini sína en lítíð var af
leiðbeiningum þann daginn sem okk-
ur bar að.
Framandi nöfn
Ávextimir, sem við keyptum,
reyndust sumir of þroskaðir og sum-
ir ekki nægilega þroskaðir. Bragð-
prófunin hittí því e.t.v. ekki alveg í-
mark með allar tegundirnar.
Pepino nefndist ein tegundin, sem
er í laginu eins og lítil melóna, ljós
með grænleitum röndum. Þessi
ávöxtur var greinilega ekki nægilega
þroskaður, var safamikill en líktíst
einna helst hrárri kartöflu á bragðið.
Kg af honum kostaði 549 kr. og eitt
stykki kr. 197,60.
Karambola er stjörnulagaður, gul-
ur eða gulgrænn ávöxtur. Hann er
aðallega notaður til slcrauts í drykki
eða í salöt. Karambóla bragðaðist
vel, var svolítið sætt. Ávöxturinn er
skorinn í sneiðar sem verða þá líkt
og stórar stjörnur. Hann kostar 595
kr. kg. En hægt er að komast langt
með aðeins eitt stykki sem kostar 95
kr.
Við tókum avocado með, þótt sá
ávöxtur eða grænmeti hafi nokkuð
lengi verið á boðstólum hér og marg-
ir þekki hann. Verðið hefur hins
vegar farið niður á við, er núna 249
kr. kg. Þannig kostar eitt stykki 71,20
kr. Avocado er skorinn í tvennt og
stór steinninn í honum fjarlægður.
Hijúfur börkurinn er skorinn af og
kjötíð notað í salöt. Bæði er hægt að
nota avocado í grænmetissalat sem
er mjög gott og einnig í ávaxtasalat
sem er einnig mjög gott. Þá passar
avócado vel með rækjum og öðrum
KANNAR
sjávarréttum. En gætið að ykkur,
kjötíð vill dökkna þegar það kemst í
samband við súrefniö og því er gott
að láta sítrónusafa dijúpa á það.
Avocado er hæfilegur til neyslu ef
hann gefur r-volítíð eftir í endann.
Papaya er grænleitur ávöxtur á
Þarna má sjá er við vorum búin að opna alia ávextina sem við brögðuðum á. Þeir eru, efsta röð, talið frá vinstri:
mango, pepino, pomelo. Önnur röð, að ofan: papaya, karambóla, sweetie og lime, Þriðja röð: granatepli, avocado,
guave og salak. Næstfremsta röð: tamarilio, litcie og kaktusfíkjur. Fremst á myndinni eru svo rambútan og
kúmkat. DV-myndir KAE
stærð við epli. Kjötið er bleikt á lit
og mikið er af svörtum kjörnum.
Þessi ávöxtur er vel sætur á bragöið
en hann var óþroskaður og því dálít-
ið haröur. Er áreiðanlega mjög góður
í ávaxtasaiöt eða til skrauts vegna
skemmtilegs útlits. Er flysjaður fyrir
notkun. Papaya kostaði 459 kr. kg,
en hann er þungur í sér því eitt
stykki kostaði 123,90 kr.
Lime er afbrigði af sítrónu, fallega
grænn á litinn. Hann er súr eins og
sítróna en svolítið öðruvísi á bragðið.
Lime er gott í alls kyns matargerð
eins og í pæfyllingu. Er mest notað
hér í drykki og höfðu smakkararnir
orð á að hann færi einkar vel með
gini. Lime er miklu dýrari en sítrón-
ur, kostar 369 kr. kg eða 31,40 kr.
stykkið.
Pomelo er systir greipaldinsins,
sætara og mildara á bragöið en
venjulegt greip. Þetta er risastór
ávöxtur, borðaður líkt og greip.
Hann var ódýr, kostaði 125 kr. kg,
og stykkið 89 kr.
Annar ávöxtur af greipaldinætt var
þarna sem við höfum ekki séð áöur
en það var „sweetie“. Minni en
venjulegt greip, mjög sætt og gott á
bragðið. Kostaði einnig 125 kr. og
28,20 kr. eitt stykki.
Lítill grænn ávöxtur, líkt og lítið
epli eða pera, nefnist guave. Kjötið
af þessum ávexti var grænleitt og
inní í miðjunni hálfgert hlaup með
miklu af kjörnum. Kjamana á að
sigta frá og síðan má borða hlaupið
og sjálft kjötið. Það var sérstætt sætt
bragð að þessum ávexti sem er ör-
ugglega góður í ávaxtasalat eða í
frómas. Guave kostaði 495 kr. kg eða
kr. 54,50 stykkið.
Salak minnti heilmikið á perulag-
Lög um málefni fatlaðra
Tryggingamál
Hver er
réttur okkar?
Greinar um tryggingamál birtast
á neytendasíðunni á þriöjudögum.
Það er Margrét Thoroddsen sem
sér um þennan þátt. Hún svarar
einnig fyrirspumum ef einhveijar
kynnu að berast. Utanáskriftin er
DV, c/o Margrét Thoroddsen, Þver-
holti 11, Reykjavík.
1. janúar 1984 gengu í gildi lög um
málefni fatlaðra sem mörkuðu
tímamót í málefnum þessa hóps.
Markmið laganna er að tryggja
fotluðum jafnrétti og sambærileg
lífskjör við aðra þjóðfélagsþegna.
Er þá bæði átt við þá sem eru and-
lega og líkamlega fatlaöir. Enn-
fremur að tryggja heildarsamtök-
um fatlaðra að hafa áhrif á
ákvarðanatöku um málefni sín.
Mál fatlaðra heyra undir þijú
ráðuneyti:
1. Heilbrigðisþjónusta, þ.á m..
læknisfræðUeg endurhæfing
undir heUbrigðis- og trygginga-
ráðuneytið.
2. Fræðslu- og uppeldismál undir
menntamálaráðuneytið.
3. Félagsleg endurhæfing og at-
vinnumál undir félagsmála-
ráðuneytið.
Sérstök nefnd fer með yfirstjóm
málefna fatlaðra og kallast hún
stjómarnefnd. Stjórnamefndin er
skipuð 7 mönnum. Ráðuneytin
skipa sinn manninn hvert en síðan
er einn fulltrúi frá hveiju eftirtal-
inna samtaka: Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, Samtökum fatlaðra,
Þroskahjálp og Öryrkjabandalag-
inu. Fulltrúi félagsmálaráðuneytis
er formaður nefndarinnar. Nefnd-
in úrskurðar ágreiningsatriði sem
upp kunna að koma vegna fram-
kvæmdar laganna.
Félagsmálaráðuneytið skal annast
málefni fatlaðra og í því skyni hef-
ur verið stofnuð sérstök deild
innan ráðuneytisins sem Margrét
Margeirsdóttir félagsráðgjafi veitir
forstöðu.
Landinu er síðan skipt í átta starfs-
svæði:
1. Reykjavíkurborg.
2. Reykjanessvæði.
3. Vesturland.
4. Vestfirðir.
5. Norðurland vestra.
6. Norðurland eystra.
7. Austurland.
8. Suðurland.
Á hveiju svæði starfa sjö manna
svæðisstjórnir, sem hafa það hlut-
verk að gera tillögur um þjónustu.
og samræma aðgerðir þeirra aðila
sem fara með þessi mál á svæðinu.
í hverri svæðisstjóm eru héraðs-
læknir, fræðslustjóri og fimm
menn skipaðir af ráðherra. Þeir
sem skipaðir em í svæðisstjórn
skulu vera búsettir á svæðinu.
Svæðisstjórnir eru á eftirtöldum
stöðum:
Svæðisstjórn Reykjavíkur, Hátúni
10, Reykjavík.
Svæðisstjóm Reykjaness, Lyngási
11, Garðabæ.
Svæðisstjóm Vesturlands, Gunn-
laugsgötu 6A, Borgarnesi.
Svæðisstjóm Vestfjarða, Bræöra-
tungu, ísafiröi.k
Svæðisstjórn Norðurlands vestra,
Varmahlíð, Skagafirði.
Svæðisstjóm Norðurlands eystra,
Stórholti 1, Akureyri.
Svæðisstjórn Austurlands, Kaup-
vangi 6, Egilsstöðum.
Svæðisstjórn Suðurlands, Eyrar-
vegi 37, Selfossi.
Umsóknir um þjónustu og vistun
á stofnunum fyrir fatlaða skulu
sendar viðkomandi svæðisstjóm.
Svæðisstjórnir skulu í samráði við
hlutaöeigandi ráðuneyti sjá svo um
að fatlaðir eigi kost á endurhæf-
ingu svo að þeir geti sem best séð
sér farborða með eigin vinnu og
tengsl séu milli endurhæfingar og
, atyinnuleitar.
Ég mun nú í stuttu máli víkja aö
ýmiss konar þjónustu sem heimilt
er að veita að tillögum svæðis-
sfiómar en almenningi er ef til vill
ekki kunnugt um:
1. Styrk eða lán til verkfæra- og
tækjakaupa
. og aöra fyrirgreiðslu í sam-
bandi við heimavinnu eða
sjálfstæða starfsemi að endur-
hæfingu-Jokinni er heimilt að
veita fótluðum 18 ára og eldri.
Margs konar tæki koma til
greina, s.s. saumavélar, tré-
smíöavélar og tölvur, svo eitt-
hvað sé nefnt. Umsókn sendist
svæðisstjóm á þar til geröum
eyðublööum ásamt rekstará-
ætlun og læknisvottorði þar
sem kemur fram hveijar horfur
séu á að hinn fatlaði sé fær um
að stunda fyrirhugaða starf-
semi. Svæðistjórn metur
umsóknina og sendir síðan til-
lögur til félagsmálaráðuneytis
sem tekur ákvörðun í málinu
og sér um útborgun.
2. Námsstyrkir og námslán.
Heimilt er að veita fótluðum 16
ára og eldri styrk eða lán til
greiðslu námskostnaðar sem
ekki er greiddur skv. ákvæðum
annarra laga. Með námskostn-
aði er átt við:
a. Styrk til framfærslu meðan á
námi stendur.
b. Kostnað vegna námsgagna
og námskeiðs eða skólagjalda.
c. Styrk vegna sérstaks útlagðs
kostnaðar sem tengist fótlun-
inni, svo sem sérstakra náms-
gagna vegna hennar.
Umsóknir sendist svæðisstjóm
með ítarlegri greinargerð og
áætlun um námið sem síðan
sendir rökstuddar tillögur til
félagsmálaráðuneytis sem sér
síðan um þær greiðslur sem
samþykkt er að veita.
Fjárhagsaðstoð við framfærend-
ur fatlaðs barns
eða unglings undir 18 ára aldri,
sem dvelur í heimahúsi og
þarfnast sérstakrar umönnun-
ar. Greiðslumar eru misháar.
Hámarksgreiðsla' er nú kr.
21.782 á mán. en hún lækkar
eftir því sem hinn fatlaði nýtur
meiri þjónustu á vegum hins
opinbera. Umsókn skal send
svæðisstjórn sem kannar vand-
lega aðstæður hins fatlaöa og
metur hvort framfærandi er
hæfur til að annast þessa þjón-
ustu. Að uppfylltum settum
skilyrðum eru félagsmálaráðu-
neytinu sendar tillögur. Kveður
það upp úrskurð í málinu sem
sendur er Tryggingastofnun
ríkisins og annast hún greiðsl-
umar.
4. Stuðningsfjölskyldur
Svæðisstjómir skulu beita sér
fyrir því að á hverju svæði sé
að finna stuðningsfjölskyldur
eftir því sem þörf krefur. Hlut-
verk stuðningsfjölskyldna er að
taka fatlaðan einstakling í sól-
arhingsvistun í skamman tíma
í þeim tilgangi að létta álagi af
fjölskyldu hans. Miðað er við
að samfelld dvöl fari ekki yfir 3
sólarhringa í mánuði. Svæðis-
stjóm gerir samning við stuðn-
ingsfjölskyldur um greiðslu og
skerða þær ekki aðrar bætur
sem hinn fatlaði eða aðstand-
endur hans kunna að njóta.
Margrét Thoroddsen