Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAQUR 8. DESEMBER 1987. Frjálst,óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJOLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð í lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Hollt og ódýrt hækkar Ekkert fúsk er í frumvörpum ríkisstjórnarinnar til öflunar aukinna ríkistekna. Sjaldan hefur sézt jafn nak- in og beinskeytt atlaga sérhagsmunahópa aö hagsmun- um almennings. Ríkisstjórnin er að afla sér milljarða frá almenningi til að leggja í hefðbundinn landbúnað. Eins og jafnan áður er árásin í formi einfóldunar og hagræðingar á tekjuöflunarkerfi ríkisins. Að gamalli venju telja ráðamenn sig þurfa að einfalda þetta kerfi og hagræða því, af því að þeir sjá í uppstokkuninni greiða leið til að ná auknum tekjum til gæludýra sinna. í fyrsta sinn breiðir ríkisstjórn ekki af alúð yfir stað- reyndina. Á blaðamannafundi sagði fjármálaráðherra næstum berum orðum, að ein aðalskýring aðgerðanna væri, að afla þurfi meira en milljarðs til að unnt sé að greiða niður kjöt og mjólkurvörur í auknum mæh. Stjórnin hyggst hækka verð á fiski, brauði, ávöxtum og grænmeti um hvorki meira né minna en heilan fjórð- ung. Þessar vörur eru bezta hohustufæðan á boðstólum; viðurkennd vörn við menningarsjúkdómum, sem meðal annars stafa af ofáti á feitu kjöti og mjólkurvörum. Um leið eru í þessum flokki einmitt vörurnar, sem almenningur hefur efni á að kaupa. Þetta kemur þyngst við fólkið, sem kaupir í matinn ódýran fisk, en ekki kjöt; notar mikið af hohustubrauði og þá með ódýru viðbiti, en ekki því smjöri, sem dýrast er í heiminum. Auknar niðurgreiðslur á dilkakjöti gagna Utt fólki, sem telur hæfa pyngju sinni að hafa fisk fimm daga í viku. Auknar niðurgreiðslur á smjöri og osti gagna lítt fólki, sem telur fé sínu betur varið í meira brauð og smjörUki. Þetta eru niðurgreiðslur í þágu vel stæðra. AUt stafar þetta af, að hinn hefðbundni landbúnaður hefur samið við sjáUan sig, það er að segja við land- búnaðarráðherra, um, að ríkið kaupi í raun næstum alla framleiðsluna. Til að koma offramleiðslunni í lóg telur ríkið sig þurfa að skekkja verðlagið í landinu. Fróðlegt er, að fjármálaráðherrann, sem býr tfl um- fangsmiklar tflfæringar á tekjuaukningarkerfinu tU að þjónusta sérhagsmuni hins hefðbundna landbúnaðar, kemur frá Alþýðuflokki, sem nýlega er búinn að sætt- ast við Framsóknarflokk um, hvað gæludýrið skuli fá. Ekki er síður athyglisvert, að samkomulag þetta strandaði á yfirboði SjáUstæðisflokks, sem allur þing- flokkur hans stóð að. Flokkurinn heimtaði enn meiri þjónustu við sérhagsmunina. Yfirboðið setti af stað skriðu, sem endaði í skattahækkun síðustu helgar. Þetta ættu í huga að hafa þeir, sem hneigjast til að kenna Framsóknarflokki um gælurnar við hinn hefð- bundna landbúnað og til að sýkna um leið aðra flokka. Hinir stjórnarflokkarnir bera ekki minni ábyrgð á gælu- dýrinu, svo sem nú hefur rækilega komið í ljós. Ennfremur ættu kjósendur einnig að minnast þess, að fóst venja hefur verið, að flokkarnir, sem nú skipa stjórnarandstöðu, yfirbjóði Framsóknarflokk í dálæti á sérhagsmunum hins hefðbundna landbúnaðar. í raun vinna nærri allir flokkar gegn almannahagsmunum. Hér hefur verið gefm rétt og köld mynd af skatta- hækkunaráformum ríkisstjórnarinnar. Myndin stingur að sjálfsögðu í stúf við fleðulætin, sem einkenndu frétta- flutning ríkisQölmiðla um helgina, einkum spariviðtöl þeirra við ráðherra, er sýndu rammfalska ímynd. Rétt er orðað, að ekkert fúsk er í skattheimtunni. Ríkisstjórnin siglir þöndum seglum í þjónustu við sér- hagsmuni á kostnað hagsmuna og hoflustu almennings. Jónas Kristjánsson Munaðarleysing- inn í Fossvoginum Heilbrigðisráðherra hefur svarað fyrirspurnum á alþingi um b-álmu Borgarspítalans sem hefur veriö kallaður „munaðarlausa sjúkra- húsið“ í Reykjavík. Árið 2002 í svarinu kemur fram að B- álmunni verður fyrst lokið áriö 2002 með sama framkvæmdahraða og verið hefur á þessu ári, 1987. Eða orðrétt í svari heilbrigðisráðherra: „.. .samkvæmt áætlun um kostnað við að ljúka byggingunni tæki það 15 '/j ár að ljúka „bygging- unni“ með þeim framlögum sem eru til verksins í ár“! Framlög ríkisins og Fram- kvæmdasjóðs aldraðra til bygging- ar B-álmunnar á þessu ári eru 18 milljónir króna. Á síðasta heila ári þeirrar ríkisstjórnar er Aiþýöu- bandalagið fór með heilbrigðismál og þar með málefni aldraðra var framlagið meira en þrisvar sinnum hærra eða 58 milljónir rúmar á verðlagi ársins 1987. 630 einstaklingar og 122 hjón á biðlistunum í sama svari heilbrigðisráðherra kom fram að á biðlistum eftir þjón- ustu við aldraða í Reykjavík eru aUs um 630 einstaklingar og 122 hjón eða alls um 870 manns. Þar af viðurkennir ráðuneytið „brýna þörf ‘ hjá 354 einstaklingum og 76 hjónum. Ástandið í málefnum aldraðra í Reykjavík er þannig, að hluti af þessu fólki mun aldrei fá neina þjónustu ef svo heldur fram sem horflr. Hvað á að.gera Þegar Alþýðubandalagið fór með heilbrigðisráðuneytið var gerö áætlun um úrbætur í þjónustu við aldraða á landinu öllu sem meðal annars gerði ráð fyrir því að bið- listar eftir þjónustu yrðu tæmdir á tilteknu árabili. Til þess að fram- kvæma þessa áætlun var stofnaður Framkvæmdajóður aldraðra, sem hefur þegar skilað verulegum ár- angri í þjónustu við aldraða um allt land. Ljóst er að félagasamtök hafa rekið á eftir og þeim hefur oft tekist að ná í hlut úr Framkvæmda- sjóönum. Hins vegar er Borgarspít- adinn munaðarlaus. Borgarstjórn- aríhaldið hefur engan áhuga á því að sinna þeirri stofnun eins og al- kunna er þegar borgarstjórinn ætlaði að selja Borgarspítalann seint á sl. ári. Þess vegna er ljóst að b-álma Borgarspítalans heldur Kja]]aiinn Svavar Gestsson alþingismaður fyrir Alþýðubandalagið áfram aö vera í Fossvoginum fáum til gagns og að lokum breytast auðu hæðimar í háðsmerki á baki borg- arstjórnaríhaldsins. Því auðvitað hefur meirihlutinn getað náð því sem hann vildi í þessum efnum. Fjármálaráðherrann og heilbrigð- isráðherrann voru úr Sjálfstæðis- flokknum allt kjörtímabil síðustu ríkisstjómar. Hvaö gerist nú? í fjárlagafrumvarpi næsta árs hggur ekkert fyrir um að ætlunin sé að halda áfram með B-álmuna. Þó em þrír þingmenn - allir þing- menn Alþýðuflokkíins í Reykjavík, í ráðherrastóh, einn þeirra reyndar íjármálaráðherra. Vonandi fer ekki eins illa árið 1988 og þegar Alþýðuflokkurinn var síðast í rík- isstjóm og fór með heilbrigðisráðu- neytið. Þá var framlag ríkisins til b-álmu borgarspítalans ALLS ein milljón fimm hundruð og flmmtíu þúsund krónur! Þá fór Framsókn- arflokkurinn með fjármálaráðu- neytið. 0 Hin pólitíska skýring Hin pólitíska skýring á margfóld- un framlaga á ámnum 1980-1983 var hins vegar sú staöreynd að Alþýðubandalagið fór með heil- brigðisráðuneytiö og fjármála- ráðuneytiö og var um leið sterkasti aðilinn að meirihlutanum í borgar- stjórn . Reykjavíkur. Það munar alltaf um Alþýðubandalagið. það sást þá á mörgum sviðum félags- legra athafna, það sést einnig nú þegar Alþýðubandalagið hefur ekki nægilegan styrk til þess aö fylgja málum eftir. En ég tala fyrir mig og mína: Viö munum halda því áfram að berjast fyrir úrlausnum í málefnum aldraðra í Reykjavík. Núverandi ástand í einu ríkasta sveitarfélagi landsins eftir stór- felldan hagvöxt er fyrir neðan allar hellur. Kvittað fyrir skæting Borgarstjórinn í Reykjavík sendi höfundi þessarar greinar bréf á dögunum sem hófst með þessum smekklegu orðum: „Framhjá borgaryfirvöldum hef- ur ekki farið aö skyndilega hefur vaknað áhugi, a.m.k. sumra þing- manna Reykjavíkur, fyrir málefn- um borgarinnar." Ljóst er að þingmenn Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík hafa meiri áhuga á málefnum B-álmu borgarspítalans en borgarstjórinn í Reykjavík. Þar með er ekki sagt að hann hafi engan áhuga á borgar- málum sem væri reyndar sams konar hundalógík og hann notar sjálfur. Honum væri nær að nota tímann núna fram að afgreiðslu íjárlaga til þess að tryggja hags- muni borgarbúa með því að gera kröfur á ríkið um að staðið verði við gerða samninga af hálfu ríkis- ins um Borgarspítalann og bygg- ingu hans. Tilgangur greinar minnar er að vekja athygli á ófremdarástandi í málefnum aldr- aðra í Reykjavík - og að kvitta fyrir skæting Davíðs Oddssonar. Og eftir því verður gengið á al- þingi; Hver er stefna ríkisstjómar- innar í málefnum aldraðra og ætlar hún að miða við að B-álmunni ijúki árið 2002, eins og fram kom í svari heilbrigðisráðherra? „Astandið í málefnum aldraðra í Reykjavík er þannig að hluti af þessu fólki mun aldrei fá neina þjónustu ef svo heldur fram sem horfir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.