Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Síða 33
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987.
33
f
ðv Fólk í fréttum
Sighvatur BJöigvinsson
Sighvatur Björgvinsson, formaö-
ur fjárveitinganefndar Alþingis,
hefur veriö í fréttum DV vegna af-
greiðslu fjárlagafrumvarpsins.
Sighvatur er fæddur 23. janúar 1942
á Isafirði og ólst þar upp. Hann var
stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1961 og var í nám í við-
skiptafræðideild Háskóla íslands.
Sighvatur var fulltrúi á skrifstofu
Iðnfræðsluráðs 1966-1968 og rit-
stjóri Alþýðublaðsins 1968-1974.
Hann var alþingismaður Vest-
fjarðakjördæmis 1974-1983 og
formaður þingflokks Alþýðu-
flokksins 1978-1983. Sighvatur var
fonmaður stjórnar Framkváemda-
stofnunar 1978-1979 og fjármála-
ráðherra frá september 1979 þar til
í febrúar 1980. Hann var fram-
kvæmdastjóri Norræna félagsins
frá 1984 og alþingismaður Vest-
fjarðakjördæmis frá 1987. Sighvat-
ur hefur verið formaður fjárveit-
inganefndar frá 1987. Kona
Sighvats er Björk Melax, f. 19. ágúst
1941. Foreldrar hennar: Stanley
Melax, prestur á Breiðabólstað í
yesturhópi, og kona hans, Guörún
Ólafsdóttir. Fósturdóttir Sighvats
er Bryndís, f. 10. mars 1963, gift
Nicolas Marvos, veitingahúseig-
anda á Kýpur. Börn Sighvats og
Bjarkar eru Elín Kristjana, f. 1.
október 1966, stúdent, Björgvin
Sturla, f. 6. maí 1968, og Rúnar
Stanley, f. 19. september 1972. For-
eldrar Sighvats eru Björgvin
Sighvatsson, frv. skólastjóri á
ísafirði, og kona hans, Jóhanna
Sæmundsdóttir. Faðir Björgvins
var Sighvatur, múrari á Patreks-
firði, Árnason, trésmiðs í Rvík,
Magnússonar. Móðir Sighvats var
Elín Sighvatsdóttir, frá Suðurbæ
undir Eyjafjöllum, Einarssonar,
bróður Sveins, langafa Sjafnar,
móður Magnúsar Jóhannessonar
sighngamálastjóra. Móðir Björg-
vins var Kristjana, dóttir Einars,
b. á Smyrlabjörgum í Suöursveit,
bróður Álfheiðar, móður Gunnars
Benediktssonar rithöfundar. Bróð-
ir Einars var Stefán, afi Stefáns
Benediktssonar, þjóðgarðsvaröar í
Skaftafelli. Systir Einars var
Guðný, amma Einars Braga rithöf-
undar. Einar var sonur Sigurðar,
b. á Lambleiksstöðum, bróður
Guðnýjar, ömmu Þórbergs Þórðar-
sonar rithöfundar. Sigurður var
sonur Einars, b. á Brunnum, Ei-
ríkssonar, b. á Brunnum, Einars-
sonar. Móðir Eiríks var Þórdís,
systir Jóns Eiríkssonar konfer-
ensráðs. Móðir Kristjönu var
Hólmfríður Bjarnadóttir, b. á Hæð-
argarði í Landbroti, Gíslasonar.
Jóhanna er dóttir Sæmundar, b.
á Egilsstöðum í Vopnafirði, Gríms-
sonar, bróður Vigdísar, móöur
Gríms M. Helgasonar, forstöðu-
manns handritadeildar Lands-
bpkasafnsins, föður Vigdisar
rithöfundar. Móðir Sæmundar var
Margrét Sæmundsdóttir, b. á Mið-
grund í Skagafirði, bróður Margr-
étar, ömmu Elínborgar Lárusdótt-
ur rithöfundar, móður Jóns
Ingimarssonar, skrifstofustjóra í
heilbrigðisráðuneytinu. Sæmund-
ur var sonur Áma, b. í Stokkhólma,
Sigurðssonar og konu hans, Margr-
étar Magnúsdóttur, systur Pálma,
langafa Helga Hálfdánarsonar
skálds og Péturs, föður Hannesar
skálds. Móðir Jóhönnu var Jó-
hanna, dóttir Þorsteins, b. í Hest-
gerði í Suðursveit, Þorsteinssonar,
b. og hreppstjóra á Reynivöllum í
Suðursveit, Gíslasonar. Móðir Þor-
steins í Hestgerði var Þórunn
Þorsteinsdóttir, b. og skipasmiös á
Steig í Mýrdal, Sigurðssonar. Móð-
ir Þorsteins var Þórunn Þorsteins-
dóttir, b. og smiðs á Vatnsskarðs-
Sighvatur Björgvinsson.
hólum í Mýrdal, Eyjólfssonar.
Móðir Þórunnar frá Steig var
Guðný, dóttir Einars, b. og stúdents
í Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum,
Högnasonar og konu hans, Ragn-
hildar Siguröardóttur, prests á
Heiði í Mýrdal, Jónssonar. Móðir
Ragnhildar var Sigríður Jónsdótt-
ir, „eldprests" Steingrímssonar.
Elsa G. Jónsdóttir
Elsa G. Jónsdóttir, Norðurvegi
29, Hrísey, er sextug í dag. Elsa
fæddist í gamla Syðstabæjarhúsinu
í Hrísey og ólst upp hjá foreldrum
sínum sem fluttu í Lambhaga í
Hrísey. Elsa var einn vetur í vist
hjá kunningjafólki sínu í Reykjavík
þegar hún var sautján ára, hún
starfaði við sjómannaheimiliö á
Sigluflrði um skeið og við fram-
reiðslustörf á Akureyri. Hún var
við nám í Húsmæðraskólanum á
Akureyri veturinn 1946-47 og starf-
aði á Laugarvatni sumarið 1947.
Maður hennar er Sigurgeir, sjó-
maður úr Fjörðum í Suður-Þin-
geyjarsýslu, f. 24.4. 1929, sonur
Júlíusar smiðs Stefánssonar, sem
er látinn, og Lovísu, frá Flatey á
Skjálfanda, Sigurgeirsdóttur.
Elsa og Sigurgeir eiga tvo syni
og tvær dætur: Stefán Jón, rafvirki
á Akureyri, f. 1951, er giftur Lise
Mogesen og eiga þau tvö börn;
Heimir, smiður í Hrísey, f. 1955, er
sambýlismaður Gunnhildar Sigur-
jónsdóttur og eiga þau þrjú börn;
Lovísa María, húsmóðir á Dalvík,
f. 1957, er gift Einari Amgrímssyni
málara og eiga þau þrjú börn; Guð-
björg íþróttakennari, f. 1961, starfar
á Akureyri.
Elsa átti tvær systur og tvo bræð-
ur en annar bróðir hennar er
látinn. Systkini hennar: Valdís,
húsmóðir á Hornafirði, f. 1929;
Björgvin, f. 1930, var kaupfélags-
stjóri í Hrísey, en hann er látinn;
Brynjar, smiður á Akureyri, f. 1937;
og Eyrún Selma, húsmóðir á Akur-
eyri, f. 1939.
Foreldrar Elsu létust bæði á síð-
asta ári en þau voru Jón, útgerðar-
maður og smiður í Hrísey, f. 1898,
Valdimarsson, og kona hans, Mar-
ía, f. 1896, Árnadóttir. Föðurfor-
eldrar Elsu voru Valdimar,
skipstjóri á Árskógsströnd, Guð-
laugsson, og Þórdís Hallgrímsdótt-
ir. Móðurforeldrar Elsu voru Árni,
b. á Leifsstöðum í Svartárdal í
Húnavatnssýslu, Sigurðsson og
Guðlaug Jónsdóttir.
Þórir Gíslason
Þórir Gíslason tannlæknir, Með-
albraut 14, Kópavogi, er fimmtugur
í dag. Þórir fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1958 og
tannlæknaprófi frá HÍ 1964, en
sama ár öðlaðist hann tannlækna-
leyfi. Þórir var aðstoðartannlæknir
hjá Jóhanni Finnssyni 1964-67 en
hann hefur rekið eigin stofu frá
1967.
Kona hans er Helga mennta-
skólakennari, f. 13.9. 1936, dóttir
Sigurjóns Gestssonar og Herdísar
Jónsdóttur, húsmóður í Kópavogi,
en Þórir og Helga giftu sig 14.12.
1958.
Þórir og Helga eiga þrjú börn:
Brynjólfur, f. 6.10. 1958, er stærð-
fræðingur frá Háskólanum í
Gautaborg, en hann starfar hjá
Skýrsluvélum ríkisins og Reykj-
víkurborgar; Herdís, f. 8.6.1963, er
húsmóðir í Kópavogi óg starfsmað-
ur hjá Fasteignamati ríkisins, en
hennar maður er Ingvi Guttorms-
son, flugmaður og háskólanemi, og
eiga þau tvö börn; Gísli Friðrik, f.
12.11.1969, er menntaskólanemi og
býr í foreldrahúsum.
Foreldrar Þóris: Gísli Petersen,
yfirlæknir og prófessor við rönt-
gendeild Landspítalans í Reykjavík
og heiðursfélagi Félags íslenskra
röntgenlækna og Krabbameins-
félags Reykjavíkur, f. 21.2.1906, og
Sigríður Guðlaug Brynjólfsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík, f. 23.2.1910.
Föðurforeldrar Þóris voru Áge
Lauritz Petersen verkfræðingur og
Guðbjörg Jónína Gísladóttir hús-
móðir. Móðurforeldrar Þóris voru
Brynjólfur Þorláksson organisti og
Guðný Magnúsdóttir húsmóðir.
Haukur Magnússon
Haukur Magnússon verkstjóri,
Þverholti 20, Keflavík, er sextugur
í dag. Haukur fæddist í Keflavík
og ólst þar upp. Haukur, sem var
fjögurra ára þegar hann missti föð-
ur sinn, ólst upp hjá móður sinni,
en hún lést þegar Haukur var átján
ára. Haukur byijaði fjórtán ára til
sjós og var átta vertíðir á aflabátn-
um Guðfinni frá Keflavík, hjá
Guðmundi Guðfinnssyni. Hann fór
síðan að keyra leigubíl og stofnaði
þá ásamt fleirum Aðalstöðina í
Keflavík 1948, en Haukur var form-
aður Aðalstöðvarinnar um skeið
og framkvæmdastjóri hennar í
tuttugu og þrjú ár. Hann hefur nú
verið verkstjóri hjá íslenskum að-
alverktökum á Keflavíkurflugvelli
í tíu ár.
Kona Hauks er Þorgerður frá
Kirkjubóli í Höfnum, dóttir Þor-
bjarnar, útvegsb. á Kirkjubóli,
Benediktssonar, sem er látinn, og
konu hans, Magneu Friðriksdótt-
ur.
Haukur og Þorgerður eiga fjögur
böm: Guðríður, f. 1949, er starfs-
stúlka í Fríhöfninni á Keflavíkur-
flugvelli og húsmóðir í Njarðvík;
Magnea, f. 1951, er vaktstjóri hjá
íslenskum markaði og húsmóðir í
Keflavík; Vilborg Þórunn, f. 1953,
er lögfræðingur hjá Trygginga-
stofnun ríkisins; Magnús Hersir, f.
1964, er vélvirki hjá Islenskum að-
alverktökum.
Foreldrar Hauks voru Magnús,
skipstjóri og útgerðarmaður frá
Hjörsbæ í Keflavík, Pálsson, og
kona hans, Guðríður Ingibjörg, frá
Akri í Innri-Njarðvík, Jónsdóttir.
Föðurforeldrar Hauks voru Páll
útvegsb. í Hjörsbæ, Magnússon, og
kona hans Þuríöur Nikulásdóttir.
Móðurforeldrar Hauks voru Jón
b. á Akri, Jónsson, og kona hans,
Ingigerður Jónsdóttir.
Andlát
Bergsteinn Guðjónsson bifreiða- stjóri, Bústaðavegi 77, lést í Borg- arspítalanum 4. desember. Guðjón Jónsson, Bragagötu 16, Reykjavík, lést aðfaranótt sunnu- dagsins 6. desember. Ingvar Kristjánsson, Meðalholti 3, lést á heimili sínu laugardaginn 5. desember.
Afmæli
Bjorn Blondal
Kristmundsson
Björn Blöndal Kristmundsson
skrifstofumaður, Sæviöarsundi 74,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Björn fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Hann
gekk í V.í. og útskrifaðist þaðan
1956. Hann starfaði hjá Gísla Jóns-
syni & Co í eitt ár að námi loknu
og síðan hjá Málningarverksmiöj-
unni Hörpu í Reykjavík til 1960 en
þá fór hann vestur í Ólafsvík og
var kaupfélagsstjóri þar í eitt og
hálft ár. Björn starfaði svo aftur
hjá Hörpu frá 1962-64, en hóf þá
störf hjá Heklu hfl, þar sem hann
var verslunarstjóri í raftækjadeild
til 1973. Björn starfaði svo hjá
Heildversluninni Satúrnusi til
1985, en hefur síðan þá starfað fyr-
ir Prjónastofu Borgarness í Reykja-
vík.
Kona Björns er Sigríður, f. 21.3.
1939, en þau giftu sig 10.12. 1957.
Foreldrar hennar: Kjartan Þor-
grímsson smiður, sem nú er látinn,
en starfaði lengi hjá Agii Vilhjálms-
syni, og Halldóra Jónsdóttir.
Björn og Sigríður eignuðust þrjú
börn: Kjartan, f. 28.3.1957, d. 1974;
Halldóra íþróttafræðingur, f. 12.4.
1961, er sambýliskona Birgis Bald-
vinssonar kennara, en þau búa í
Reykjavík og eiga einn son, Kjartan
Þór; Kristín, f. 13.8. 1974.
Björn á einn bróður, Úlfar kenn-
ara við V.Í., f. 30.8. 1929, en kona
hans er Þóra Viktorsdóttir og eiga
þau tvö börn.
Foreldrar Björns voru Krist-
mundur prentari í Gutenberg, f. á
Þyrli í Hvalfirði 18.2. 1903, d. 5.1.
1961, Guðmundsson, og kona hans,
Halldóra, iðnrekandi í Reykjavík,
f. 10.12. 1905, d. 22.1. 1951, Björns-
dóttir. Föðurforeldrar Björns voru
Guðmundur b. á Þyrli og víðar, síð-
75 ára_________________________
Sigurður Kristófersson, Holti, Bú-
landshreppi, er sjötíu og fimm ára
í dag.
Guðleif J. Jóhannesdóttir, Kárastíg
14, Hofsósi, er sjötíu og fimm ára í
dag.
50 ára_______________________
Vilhelm Guðmundsson hljómlist-
armaður, Nýbýlavegi 40, Kópavogi,
er fimmtugur í dag.
Lúðvík Agústsson, Melteigi 6,
Keflavík, er fimmtugur í dag.
Gísli Ragnar Pétursson, Duggu-
gerði III, Pretshólahreppi, er
fimmtugur í dag
Jóhanna Auður Ámadóttir, Sólt-
úni 5, Keflavík, er iimmtug í dag.
Björn Blöndal Kristsmundsson
ast verkamaður í Revkjavík, f. 1858,
d. 1930, Magnússon, b, í Þúfnakoti
og Kiðafelli í Kjós, Guðmundsson,
og kona hans, Kristín, f. 1864, d.
1942, Einarsdóttir, b. í Miðdal og
Flekkudal, Jónssonar. Móðurfor-
eldrar Björns voru Björn Blöndal
löggæslumaöur, f. 1881, d. 1950,
Jónsson, og kona hans, Jóhanna,
f. 1882, d. 1969, Jónsdóttir. Björn
löggæslumaður var bróöir Gísla
Jónssonar alþingisrpanns frá
Bíldudal, föður Þorsteins forstjóra
Coldwater Seafood Corp. Annar
bróðir Björns var Guðmundur
Kamban rithöfundur. Systir þeirra
bræöra er Guðrún Þördís, móðir
Helgu Bachmann leikkonu. Jó-
hanna var systir Þorgríms sööla-
smiðs í Laugarnesi, föður Ólafs
hrl. og Gests myndligtarmanns sem
er faðir Þorgríms fréttamanns hjá
Ríkisútvarpinu. Björh löggæslu-
maður var sonur Jóns Hallgríms-
sonar, b. á Hausastöðum á
Álftanesi, síðar b. og formanns í
Litlabfe á Álftanesi ög útgerðar-
manns á Bakka í Arnarfirði, og
konu hans, Guðnýjar Jónsdóttur í
Grashúsum á Álftanesi, Pálssonar.
60 ára______________________
Gísli Hjartarson loftskeytamaður,
Álftamýri 6, Reykjavík, er sextugur
í dag.
40 ára__________________________
Guðni H. Sigurjónsspn, Kolbeins-
götu 55, Vopnafirði, !er fertugur í
dag.
Helgi Bjamason, Ljósheimum 8A,
Reykjavík, er fertugúr í dag.
Guðný Pálsdóttir, Sigtúni 27, Pat-
reksfiröi, er fertug í idag.
Þórdís Guömundsdóttir, Njarðar-
holti 1, Mosfellsbæ, er fertug í dag.
Kolbrún Sigurbjömsdóttir, Þrúð-
vangi 14, Hafnarfirði, er fertug í
dag.