Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1987, Side 40
F“ R Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Bitstióm | Ausiýslngar - Askrlft-Dreifing: Simi 27022 | Afruglarar verði án , söluskatts „í sjálfu sér er þetta ekki stórmál en sýnir best hve umræðan öll er rugluð þegar settur er 25% söluskatt- ur á öll matvæli en afruglarar fyrir Stöð 2 eru án söluskatts og ekki gert ráð fyrir að setja hann á,“ sagði Júl- íus Sólnes alþingismaður í samtali við DV í morgun. Júlíus sagðist hafa spurt fjármála- ráðherra um þetta mál og fengið það svar að ákveðiö hefði verið á sinni tíð aö hafa afruglara án söluskatts til að bæta samkeppnisaðstöðu Stöðvar 2 gegn Ríkissjónvarpinu sem fengi afnotagjöld af öllum heimilum landsins. „Nú segjast talsmenn Stöðvar 2 fá ^c&fnotagjöld af 25 þúsund afruglurum þannig að þessi gamla röksemd stenst varla lengur," sagði Júlíus Sólnes. Björn Björnsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, sagðist ekki hafa neina skýringu á því hvers vegna ekki væri gert ráð fyrir söluskatti á afruglara. Hann benti þó á að ríkis- stjórnin ætti eftir að afgreiða sölu- skattsmálið endanlega og siðan gætu orðið á því breytingar í meðferð Al- þingis. -S.dór Kjararannsóknamefnd: Tímakaup hef- ur hækkað um 39% Greitt tímakaup á miili 2. ársfjórð- ungs 1986 og 2. ársfjórðungs 1987 hefur hækkað um 38,9 prósent að meðaltali hjá verkamönnum, iðnað- armönnum, afgreiðslumönnum og skrifstofumönnum, samkvæmt at- hugun kjararannsóknarnefndar. Tímakaupiö hefur hækkað mis- ' * Siundandi eftir starfsstéttum. Á sama tímabili hækkaði framfærslu- vísitalan um 16,8 prósent og jókst því kaupmátturinn um 18,9 prósent að meðaltali, segir í nýútkomnu frétta- bréfi kjararannsóknarnefndar. -JGH LITLA GLASGOW LAUGAVEGI 91 SÍMI20320. LEIKFÖNG CÍy91 - ökumaður fluthir Gylfi Kristjátuson, DV, Akuxeyxr Tæplega þrítugur maður frá Sauöárkróki var í gærkvöld fluttur á Fjórðungssjúkrahúsiö á Akur- eyri eftir að bifreið hans hafði farið út af veginum f Syðra-Drangsgili f Ólafsfjarðarmúla. Ökumaður, sem átti leið um Múlann, sá grunsamleg hjólfór í vegkantinum og haföi samband við lögregluna í Ólafs- firði. Fór Sigurður Björnsson lögreglumaöur þegar á vettvang. Sigurður sagði í samtali við DV í morgun að ljóst hefði veriö af hjól- fórunum að þarna hefði oröið óhapp. í Syðra-Drangsgili eru um 150 metrar firá veginum niður í sjó, fyrst brött hlið og síðan um 30 metra þverhnípt klettabelti. Þegar var kölluð út björgunarsveit og menn úr henni sigu niöur snar- bratta hiíðina. Um 70 metra fyrir neðan veginn fundu þeir liggjandi meðvitundarlausan mann. beltinu niður við sjóinn. Er menn Sigurðursagðiaðþeirhefðuekki komust aö bílnum varð ljóst að þekkt manninn og ekki getað geng- ökumaður hafði verið einn á ferð. iö úr skugga um hvort hann hefði Ekki var í morgun hægt að fá nán- veriö einn á ferð. Ekki var hsegt ari fregnir af líðan ökumannsins að komast aö bílnum neðan frá sjó sem mun hafa slasast mikið. en hann var í flæðarmálinu og var Á þessum sama stað varö bana- engu líkara en að honum hefði ve- slys fyrir nokkrum árum þegar riö vöðlað saman, að sögn Sigurð- feögar fórust þar í bílslysi. Þar hef- ar. ur einnig önnur bifreið farið fram Ökumaðurinn haföi því kastast af og snjóruðningstæki, en i þeim út áður en bíliinn fór fram af kletta- tilfellum var ekki um slys að ræða.. Menn hafa þurft að klóra sér í höfðinu af minna tilefni en því að koma hinu umdeilda kvótafrumvarpi í gegnum Alþingi. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra hóf þá eldraun sína við fyrstu umræðu í efri deild Alþingis í gær. DV-mynd GVA Óskað eftirfram- lagi tll þinghúss Beiðni um 25 milljóna króna fjár- veitingu til nýbyggingar Alþingis var hafnað er fjárlagafrumvarp næsta árs var sett saman í haust. Ýmislegt bendir hins vegar til þess að forsetar Alþingis muni í ár hafa sama háttinn á og í fyrra og leggja fram tillögu um framlag til þinghússins við lokaum- ræðu um fjárlög. í samtah við DV kvaðst Jón Bald- vin Hannibalsson fjármáiaráðherra vera andvigur þessum byggingará- formum. Kvaðst hann telja hyggi- legra að taka hús Pósts og síma við Austurvöll undir starfsemi Alþingis. Arkitekt hússins, Sigurður Einars- son, og þijár verkfræðistofur, Almenna verkfræðistofan, Verk- fræðistofa Guðmundar og Kristjáns og Rafhönnun, hafa unnið að hönnun skrifstofuhúss fyrir Alþingi. í íjár- lögum yfirstandandi árs eru 12 milljónir króna til verksins. -KMU Flugstöðvarskýrslan: Byggingarnefnd stóð sig ekki Samkvæmt niðurstööu Ríkisend- urskoöunar í úttekt á byggingar- kostnaði við flugstöð Leifs Eiríksson- ar er helsta skýringin á því að byggingarkostnaður fór fram úr áætlun sú aö byggingamefnd flug- stöðvarinnar stóð sig ekki sem skyldi, samkvæmt upplýsingum sem DV hefur aflað sér. Úttekt þessa gerði Ríkisendurskoð- un að ósk fj ármálaráöuneytisins en niðurstöður hafa ekki verið opin- berlega kynntar. Aö sögn heimildar- manns DV gaf þáverandi utanríkis- ráðherra byggingarnefndinni of lausan tauminn á byggingartíma og einnig segir heimildarmaður DV að talsverður kostnaðarauki hafi fylgt því að áhersla var lögð á að ljúka framkvæmdum fyrir síðustu kosn- ingar. -ój LOKI Þarf ekki að afrugla ráð- herra skattamála? Veðrið á morgun: Breytileg áttoghlýtt Á morgun verður breytileg átt, gola eða kaldi nyrst á landinu en annars suðvestankaldi eða stinn- ingskaldi. Súld verður afivíða á Suður- og Vesturlandi en senni- lega slydda við norðaustur- ströndina. Úrkomulitið verður á Austur- og Suðausturlandi. Hiti verður víðast hvar á bihnu 5 til 7 stig. Eyjótfur Konráð: Áefdr að skoða málið „Ég bíð eftir aö sjá endanlega hvemig frumvörpin og tillögumar hta út. Ég á eftir að skoða málið,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, einn harðasti andstæðingur skattahækk- ana á Alþingi, er DV innti hann áhts á breytingum á söluskatti, tohum og vörugjaldi. „Ég fagna því að vegið skuh að hafnarbakkaverðbólgunni, sem ég tel að hafi verið skaðræði," sagði Eyjólfur Konráð. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.