Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1987, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987.
Stjómmál
Þjóðhagsstofhiiit seglr markmlð um mlnna en 2% viðsklptahalla brostið:
Versnandi hoifur
viðskiptakjör
„\ iöskiptakjör hafa versnaö síö-
ustu tvo mánuöi og horfur um
viðskiptakjör fyrir næsta ár eru nú
lakaii en reiknað var meö í októb-
er,“ segir í greinargerð sem Þjóö-
hagsstofnun sendi íjárveitinga-
nefnd Alþingis um helgina um
helstu breytingar sem orðið hafa á
efhahagshorfum fyrir árið 1988 frá
því þjóðhagsáætlun og fjárlaga-
trumvarp voru lögð fram á Alþingi
í október.
„Hér veldur gengislækkun
Bandaríkjadollars í kjölfar verð-
hrunsins á hlutabréfamörkuðum
heimsins í lok októbermánaðar
mestu en jafnframt hefur álverð í
dollurum lækkað og óvissa ríkir
um verð á sjávarafurðum."
Þjóðhagsstofnun segir nú ljóst aö
að stefnt veröi að mun meiri sam-
drætti í þorskafla milli ára en
reiknað hafi verið með í þjóðhagsá-
ætlun. Samdráttur þorskafla um
40-50 þúsund tonn geti þýtt 4-5%
samdrátt í vöruútflutningi og 1-2%
samdrátt í þjóðartekjum.
Stofhunin gerir ráð fyrir meiri
aukningu innflutnings milli ár-
anna 1987 og 1988 en reiknað hafi
veriö með. Þetta stafi einfaldlega
af því að innflutningur á þessu ári
hafi reynst meiri en búist var við.
„Þar sem einnig er stefiit að sam-
drætti í þorskafla og þar með
útflutningstekjum á næsta ári virö-
ist Ijóst að markmið ríkisstjómar-
innar um aö halli á viðskiptum við
útlönd verði innan við 2% af lands-
framleiðslu áriö 1988, sem þjóð-
hagsáætlun tók mið af, er brostiö,“
segir Þjóðhagsstofnun.
-KMU
Birgir vill 130 millj-
ónir í bókhlöðu
Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra hefur lagt
fram gagntilboð í deilu sinni við Jón
Baldvin Hannibalsson fjármálaráð-
herra um framlög til Þjóðarbók-
hlöðu.
„Ég hef gaukað að honum tillögu
sagöi Birgir ísleifur í samtali við DV
í gærkvöldi.
Hann leggur til að fjármunir þeir,
sem innheimst hafa af sérstökum
eignarskattsauka vegna Þjóðarbók-
hlöðunnar á yfirstandandi ári og
ekki hafa verið ætlaðir til byggingar-
innar, um 80 milljónir króna, renni
til hennar á næsta ári að viðbættum
þeim 50 milljónum króna sem ráö er
fyrir gert í fjárlagafrumvarpi. Alls
vill menntamálaráðherra því fá 130
milljónir króna til Þjóðarbókhlöö-
unnar á næsta ári.
Jón Baldvin gerði Birgi ísleifi í síð-
ustu viku tilboð þess efnis að frá
árinu 1989 verði framlög til Þjóðar-
bókhlöðu stóraukin og byggingunni
lokið árið 1991. -KMU
Skólabyggingar sem fa mest
Foldaskóli í Grafarvogshverfi í
Reykjavík er sá skóli á landinu sem
stærsta fjárveitingu mun fá til upp-
byggingar á næsta ári, samkvæmt
tillögum fiárveitinganefndar. Folda-
skóli fær 30 milljónir króna.
Nýbygging Verkmenntaskólans á
Akureyri fær næstmest, 22,2 milljón-
ir króna. íþróttahús Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti fær 17,3 milljónir.
íþróttahús á ísafirði fær 12 milljón-
ir króna. Grundaskóli á Akranesi og
Síðuskóli á Akureyri fá hvor 10 millj-
ónir, Kópavogur fær 8,6 milljónir
vegna skóla þar í bæ og til Seljaskóla
í Reykjavík fara 7 milljónir.
Önnur skólamannvirki með 5
milljónir króna eða meira til fram-
kvæmda eru Víðistaðaskóli í Hafnar-
firði, skóli, íþróttahús og sundlaug í
Bessastaöahreppi, íþróttahús í
Stykkishólmi, viðbygging skóla í Bol-
ungarvík, íþróttahús á Blönduósi,
Hamarsskóli í Vestamannaeyjum og
skóli í Hveragerði.
-KMU
Sighvatur Björgvinsson, formaður fjárveitinganefndar, flutti langa ræðu í
gær um fjárlagafrumvarpið og breytingatillögur nefndarinnar við gjaldaliði
frumvarpsins. DV-mynd GVA
Gengismál koma
til skoðunar
- segir iðnaðanáðhevra
„Það er ekkert einfalt mál að fella
gengið. Það er ekki byijað að ræða
neinar efnahagsaðgerðir í ríkis-
stjóminni, hvað þá gengisfellingu,"
sagði Friðrik Sophusson iðnaðarráð-
herra í samtali við DV, þegar hann
var spurður að því hvort gengisfell-
ing stæði fyrir dyrum.
„Við emm nú að fjalla um ríkis-
fjármálin. En menn hljóta að sjá það
að í framhaldi af því verðum við aö
ræða hvemig best verður konúst hjá
viðskiptahaUa og þenslu. í þeirri
umræðu hljóta gengismál að koma
til skoðunar. En fyrsta skrefið er að
afgreiða hallalaus fjárlög,“ sagði
Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra.
-ój
Dreifbýiisstyrkur lækkar
Dreifbýlisstyrkur til nemenda hef-
ur á tólf árum lækkað um meira en
helming. Þetta kom fram í svari Birg-
is ísleifs Gunnarssonar mennta-
málaráðherra við fyrirspum Sturlu
Böðvarssonar, varaþingmanns Sjálf-
stæðisflokksins, um framkvæmd
laga um ráðstafanir til jöfnunar á
námskostnaði.
Menntamálaráðherra sagði að árið
1975 hefði meðalupphæð dreifbýlis-
styrksins numið um 26.500 krónum
á núgildandi verðlagi. Fjárhæðin
hefur síöan farið stiglækkandi. Árið
1981 var meðalstyrkur kominn niður
í 20.000 krónur á verðlagi þessa mán-
aðar. Síðustu tvö ár hefur hann
numið um 12.500 krónum. -KMU
Er gengisfelling á döfinni?
Ótímabært
að vænta
gengisfellingar
segir Sighvatur Björgvinsson
„Gengisfelling er ekki á næsta
leiti. Ríkisstjórnin er ákveðin í því
að halda genginu fóstu,“ sagði Sig-
kvatur Björgvinsson, þingraaður
Alþýðuflokksins, í samtali við DV
þegar hann var spurður að þvi
hvort gengisfelling væri yfirvof-
andi vegna þess að líkur em á
meiri viðskiptahalla en áður hefði
verið reiknaö raeð.
Sighvatur sagði að ef viðskipta-
hallinn myndi aukast væri fast-
gengisstefna ríkisstjómarinnar í
hættu. „Það er ekki tímabært að
eiga sér væntingar um gengis-
breytingar," sagöi Sighvatur og
bætti þvi við að eitt af þeim skilyrð-
um sem fyrir hendi þyrftu að vera
væm hallalaus fiárlög.
Sighvatur sagði það mjög vara-
samt aö gefa yfirlýsingar um
mögulega gengisfellingu og breyt-
ingar á fastgengisstefhunni og að
einstaka ráöherrar töluöu þannig
gegn stefnu ríkisstjómarinnar.
-ój
Heilbrigðismál:
Guðmundur
reynir að
fa meira
Guðmundur Bjarnason, heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra, er ósáttur
við að fjárveitinganefnd skyldi ekki
taka betur undir óskir hans um
breytingar á fjárlagafrumvarpinu.
„Eg mun reyna að fá lagfæringar á
ákveðnum liðum,“ sagði ráðherrann
í samtali viö DV.
Hann telur að rekstrartölur ýmissa
heilbrigöisstofnana séu óraunhæfar
í fjárlagafmmvarpinu þótt 50 millj-
óna króna hækkun á rekstrarliðum
hafi lagað stöðuna eitthvað.
-KMU
Sjúkrahúsið
á ísafirði
efst á blaði
Sjúkrahúsið á ísafirði er efst á lista
fjárveitinganefndar yfir þær heil-
brigðisstofnanir sem fá fjármuni til
framkvæmda á næsta ári. Ísaíjöröur
fær 26,9 milljónir króna.
Alls á að veija 214,8 milljónum
króna til byggingar sjúkrahúsa og
heilsugæslustöðva. Þessi fjárveiting
hækkaði um 54,8 milljónir í með-
fómm fi árveitinganefndar.
Sjúkrahúsið á Blönduósi er annað
í röðinni með 15,2 milljónir, Húsavík
fær 12,5 milljónir, Keflavík og Hafn-
arfiörður fá 10,2 milljónir króna hvor
staður, Þórshöfn fær 10,1 milljón,
Reykjavík fær 10 milljónir til heilsu-
gæslustöðvar og Egilsstaöir 9,9
milljónir til hjúkrunarheimilis aldr-
aðra.
-KMU
Albert hótaði
að láta vekja
þingmenn í nótt
Albert Guðmundsson, formaður
Borgaraflokksins, hótaði því á Al-
þingi klukkan þrjú í nótt aö láta
vekja alla þá þingmenn sem famir
vom heim að sofa og kalla þá til at-
kvæðagreiðslu.
Albert kvaðst ætla að leggja fram
breytingartillögur við fjárlagafmm-
varpið, sem var til umræðu, og mæla
fyrir þeim í nótt. Til þess hefði þurft
að samþykkja afbrigði að viðstödd-
um meirihluta þingmanna. Aðeins
12 þingmenn vom eftir í þinghúsinu
en 51 var farinn heim.
Áður en til þess kom að starfsfólk
Alþingis færi að hringja heim til fjar-
staddra þingmanna frestaði Albert
því að flytja tillöguna og þingfundi
var slitið. -KMU
Stjómarfrum-
varp lagt fram
ínótt
Stjómarfmmvarp um tekjuskatt
fyrirtækja var lagt fram á Alþingi á
miðnætti í nótt. Ríkisstjómin stefnir
að því aö keyra það í gegn fyrir jóla-
leyfi þingmanna, eins og 20 önnur
fmmvörp.
Fmmvarpið um tekjuskatt fyrir-
tækja gerir ráð fyrir að skatthlutfall
lögaðila lækki úr 51% niður í 45%
jafnframt því sem felldir em niður
ýmsir frádráttarliðir. Áætlað er að
ríkissjóður fái með samþykkt fmm-
varpsins 163 milljónir króna í
auknum sköttum af fyrirtækjum á
næsta ári.
-KMU