Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1987, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987.
19
Fréttir
Miðbærinn aðfaranótt laugardags:
„Löggan er
besti vinur
bamanna“
- sungu krakkamir þegar lögreglan handtók unglinga fyrir slagsmál
Seint á fóstudagskvöld var mikill
flöldi unglinga saman kominn í
miöbæ Reykjavíkur. Þrátt fyrir
rigningarsudda voru margir ungl-
inganna illa klæddir. Um miönætti
voru unglingarnir orðnir þrjú til
fjögur þúsund. Flestir krakkanna
voru sér og sínum til mikils sóma,
óaöfmnanlegir krakkar. Eitthvað
var um fólk sem er orðiö of gamalt
til aö teljast til unglinga. Þaö fólk
átti það sameiginlegt aö vera allt
drukkið. Hvergi var að sjá foreldri
að gæta að barni sínu.
Þeir unglingar, sem drukkið
höfðu of mikið vín og létu illum
látum, voru margir. Sumir krak-
kanna þurftu ekki vín til að verða
sér og uppeldi sínu til skammar.
Slagsmál voru ekki óalgeng. Þau
voru að vísu misalvarleg, frá því
að vera mest til gamans og allt að
blóðugum og heiftugum áflogum'
þar sem grimmdin skein úr andlit-
um þeirra sem tókust á.
Hrækt á lögregluna
Lögreglan er ekki öfundsverð af
starfi sínu. Krakkarnir kalla til
hennar ljót orð og sumir eru svo
óskammfeilnir að hrækja á lög-
regluþjónana þegar þeir sjá ekki
til. Sumir lögregluþjónarnir höfðu
fengið á búninga sína ótal hráka.
Lögreglumaður, sem rætt var við,
sagði að best væri fyrir lögreglu-
menn aö láta sem þeir sæju þetta
ekki, það yrði til að æra óstöðugan
að reyna að hafa hendur í hári
þeirra sem þetta gera.
Sparkað í Ijósmyndara
Ljósmyndari DV varð fyrir árás
er hann gerði sig líklegan til að
taka mynd af drukknum unglingi.
Strákur, á að giska fimmtán ára
gamall, réðst að Ijósmyndaranum
og sparkaöi í hann af miklu afli.
Þessi svaf vært í biðskýli við Lækjargötu. Hann er vel búinn til nætur-
svefns. Eitthvað virðist honum genga illa að halda kvöidverðinum niðri.
Það er í nógu að snúast hjá lögregiunni. Hér er verið að fjarlægja nokkra eftir slagsmál. Það brutust út áflog nokkuð víða. Stundum var það mest
til gamans en önnur voru heiftug og grimmdarleg.
Gerði hann sig líklegan til frekari
árásar. Er hann gerði sér grein fyr-
ir að líklega yrði við ofurefli að etja
lagði hann á flótta. Ljósmyndarinn
gekk haltur eftir.
Rúðubrot voru nokkur. Eitt
þeirra v?r á miðborgarstöð lögregl-
unnar. Um tuttugu ölvaðir ungl-
ingar söfnuðust saman við og inni
á lögreglustöðinni. Er lögreglan
bað krakkana um að færa sig til tók
einn strákanna sig til og sló í gegn-
um eina af rúðum lögreglustöðvar-
innar. Strákurinn skarst ekki við
rúðubrotið. Hann var settur í
fangageymslu.
' Mér er svo illt í lærinu
„Lögga. það var ráðist á mig og
ég lúbarin,“ sagði drukkin stúlka
við einn lögregluþjóninn. Lög-
regluþjónninn sagðist ekki geta séð
neina áverka. „Það er á lærinu á
mér,"“ svaraði stúlkan og svipti upp
um sig pilsinu. Þar var enga áverka
að sjá. Þegar ljósmyndarinn ætlaði
að taka mynd af stúlkunni sagði
hún: „Ekki taka mynd af mér, mér
er svo illt í lærinu.“
Þeir krakkar. sem rætt var við
og höfðu ekki smakkað vín svo
áberandi væri, sögðust koma sam-
an í miðbænum vegna þess að það
væri skemmtilegt. „Ég drekk ekki
þegar ég er hérna. Ég drekk þegar
ég skemmti mér. Hingað kem ég
bara til að sjá aðra fulla." sagði
fimmtán ára strákur. -sme
Lögreglan aðstoöar unga stúlku sem hafði skorið sig á fingri. Mikill fjöldi unglinga leitar
,, til lögreglunnar i vandræðum sinum. Reýnt er að gera það sem hægt er fyrir börnin.
Katir krakkar. Margir unglingar, sem rætt var við, sogðust koma i miðbæinn til að skemmta
sér. Það er greinilegt að mikill meirihluti krakkanna hagar sér óaðfinnanlega.
DV-myndir KAE