Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1987, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987. 31 Sandkom lllugi sýndi skemmtilega takta i sjón- varpinu á sunnudaginn og sannaöi að hann er ekki bara fróöur heldur einnig snjall hlaupari. Illugi í sveita- mennskuna Það vakti athygli sjónvarpsá- horfenda á sunnudagskvöld- ið að Illugi Jökulsson var meðal þátttakenda í spum- ingaþætti Ómars Ragnars- sonar, Hvað heldurðu? Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að Illugi skuli valinn í keppnislið Reykvikinga þar sem hann er margfróður maöur, glöggur og rey ndur í slíkri keppni. Hitt vekur meiri athygli að hann skuli vilja koma fram í þætti sem hann er nýbúinn að gefa væg- ast sagt afleita dóma í fjöl- miðlagagnrýni á rás 2. Sagði hann meðal annars að þátt- urinn væri sveitó og púkó og gott ef ekki líka halló. En Hl- ugi tók sem sagt þátt í sveita- mennskimni á sunnudaginn og stóð sig með stakri prýði. Hann renndi sér meðal ann- ars nokkrar glæsilegar fót- skriður eftir vel bónuðu Sjallagólfinu og lenti í eitt skiptið undir borði við mik- inn fognuð áhorfenda. Og hvort sem það er Hluga að þakka eða ekki var þetta með skemmtilegri eintökum af Hvað heldurðu? sem sýndur hefur verið til þessa. Aftur stokkað uppárás 2? Það hefur kvisast út að enn sé breytinga að vænta á rás 2. Rásinni hefur gengið illa að ná upp fyrri vinsældum þó eitthvað hafi hlustmún aukist að undanfórnu. Gert er ráð fyrir að öllu lausráðnu dagskrárgerðarfólki við rás- ina verði sagt upp frá og með áramótum, nýir ráönir í stað- inn og einhverjir endurráðn- ir. En tilgangurinn með þessu er þó að fækka starfsfólki og spara þar með. Heyrst hefur að breyta eigi tónlistarvalinu, lasða inn harmóníkuþáttum og gömlu dönsunum, unn- endum þeirrar tónhstar til mikillar ánægju en þunga- rokkurum til talsverðrar armæðu. Þá mun ætlunin vera að draga úr dagskrár- gerð á kvöldin og leika þess í staö ókynnta tónlist af hijóð- böndum, enda mun hlustun- in á kvöldin vera hverfandi litil. Kvistir? Fyrir nokkrum árum sendi Arni Johnsen blaðamaður frá sér bókina Kvistir í lífs- trénu. Þar birtust nokkur viðtöl Áma við gagnmerka menn sem flestir eiga það sameiginlegt að vera ekki al- veg eins og fólk er flest og þá í jákvæðri merkingu en ekki neikvæðri. Bókin seldist vel enda Ámi naskur viö að fmna aihyglisverð viðtals- efni. Nafn bókarinnar visaði til bókarheitisins og málvenj- unnar „kynlegir kvistir" og tóku flestir nafni bókarinnar sem slíku. Nú er komið út óbeint framhald bókarinnar og nefnir Ámi síðara bindið Fleiri kvistir. Þar heldur Ami áfram þar sem frá var horfið og ræðir við athyglis- vert fólk. Það hefur hins vegar ýmsum bmgðið illilega Örlygur Hálldánarson útgcfandl og Árnl Johnsen með bók Árna, Fleirl kvislir. við að fmna viðtal við dr. Kristján heitinn Eldjám í þessu safni. Finnst mörgum þettaósæmilegt. Stríðsvélum hampað! Fyrir daga frjálsu útvarps- og sjónvarpsstöðvanna var það heilög regla að ekki mætti höfða beint til barna og ungl- inga í auglýsingum í útvarpi og sjónvarpi. Að sjálfsögðu var farið í kringum þetta á einn og annan hátt og þó krakkar væm ekki beinlínis ákallaðir í auglýsingunum fór ekki framhjá neinum hverjum auglýsingin var ætl- uð þegar sýndar vom myndir af bömum að skemmta sér með leikfong. Nú hafa nýju ljósvakamiðlamir stigiö skrefið til fulls og Stöð 2 jafnt sem tónlistarrásimar birta auglýsingar sem hefjast á upphrópunum eins og: Krakkar, athugið! Framhald- ið er síðan fjálgar lýsingar á stríðsleikfóngum og bardaga- mönnum. Ríkisútvarpið hefur enn sem komið er sneitt hjá auglýsingum þar sem böm og unglingar em beinlinis ávarpaðir og á það hrós skilið fyrir það. Það er hins vegar spuming hvort ekki á að auka eftirlit með auglýsingum, sérstaklega þeim sem ætlaðar em böm- um því þau em svo áhrifa- gjöm. Það getur ekki verið eðliiegt að innprenta í börn nauðsyn þess að þau eignist eflirlíkingar af morð- og striðstólum og ofurmanna- brúður sem alla geta lamið og alla drepið án þess að depla auga. Það þarf alla vega engan að undra tilsvör gutt- ans þegar móðir hans truflaði hann við sj ónvarpiö og sagði með tárin í augunum: „Nonni minn. Hann afi þinn var að deyja.“ Og þá sagði Nonni litli með æsingarglampa í augun- um: „Hvað segirðu! Hver drap hann?“ Hver var fyrst- ur? Smárígur er kominn upp, og kannski ekki í fyrsta skipti, á milli tveggj a stærstu og aö því margir telja merkustu kóra landsins, Pólýfónkórs- ins og og Kórs Langholts- kirkju. Báðir kóramir hafa gefið út hljómplötu og geisla- disk fyrir þessi jól og er þaö geisladiskurinn sem hefur valdið rignum að þessu sinni. í báðum tilfellum er um stór- kostleg verk að ræða. Pólý- fónkórinn flytur Messías eftir Handel á sínum diski en Kór Langholtskirkju flytur Jó- hannesarpassíu Bachs á sínum diski. En það sem veld- ur rígnum er hvor kórinn var á undan með sinn geisladisk. Báðir halda því fram að þeir bjóði þama fram fyrsta ís- lenska geisladiskinn með klassískri tónlist og er erfitt um að dæma hvor var á und- an. Réttast er að ráðleggja fólki að kaupa báða diskana þvi þarna er í báðum tilfell- um um stórmerka menning- arviðburði að ræða. Umsjón: Axel Ammendrup Lausafjáruppboð að kröfu skiptaráðandans í Dalasýslu verður lausafjáruppboð haldið að Dalbraut 2, Búðardal, föstudaginn 18. desember 1987 kl. 11.30. Selt verð- ur m.a. ryksuga, þvottavél, sjónvarp, húsgögn og eldhúsáhöld. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn í Dalasýslu SKuiuvogi íua, sími 687370. Jólagetraun DV - 7. hluti: Hvar er jólasveinninn? ATHUGIÐ! Sendið EKKI inn úrlausnir fyrr en allir tíu hlutar getraunarinnar hafa birst. Nú fer að síga á seinni hluta ferðalags jólasveinsins okkar um hin ýmsu lönd. Að þessu sinni er hann staddur í borg þar sem allt lyktar af fiski. Og vitaskuld þarf jólasveinninn að ferja gjafirnar á fiskibáti. En svona er þetta sums staðar í Skandinavíu og við því er ekkert að gera. Þiö merkið við rétt borgarheiti á meðfylgjandi seðh, klippið hann út og gey- mið þar til alhr tiu hlutar getraunarinnar hafa birst. Þá eru alUr seðlarnir sendir í einu umslagi til DV, Þverholti 11, 105 Reykjavik, merkt: „Jólaget- raun.“ Við minnum á hina sextán glæsilegu vinninga sem í boöi eru. Nr. 1 er geisla- spilari, nr. 2 er ferðageislaspUari og nr. 3 er ferðaútyarpstæki. Vlnningar nr. 4-16 eru talandi og dansandi bangsar og brúður að ógleymdu Lazer-Tag leik- tækinu. Heildarverðmæti vinninganna nemur ríflega 130.000 króna. En spurningin er: 1 hvaða borg er jólasveinninn staddur? Skötuhjúin Kermit og Svínka eru meða vinninga i jólagetraun DV. Þau dansa eins og herforingjar eftir hvaða lagi sem er. Bergen Dallas Kairo NAFN: HEIMILISFANG SIMI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.